Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 4

Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 4
Á SKRIFBORÐIÐ Ekki þarf að kynna breska ryksugu- framleiðandann Dyson fyrir les- endum. Uppfinningamaðurinn James Dyson byggði fyrirtækið upp í kringum hugvitsamlega hannaða ryksugu, og í framhaldinu hafa litið dagsins ljós alls kyns framúrskar- andi raftæki fyrir heimilið, s.s. há- tæknihárblásari og spaðalaus vifta. Stendur meira að segja til að fram- leiða Dyson-rafmagnsbíl. En nýjasta viðbótin við Dyson- vörulínuna er fyrir skrif- og nátt- borðið. Dyson-lampinn er sannkall- aður snjalllampi sem lagar ljós- styrkinn að birtuskilyrðum hverju sinni, og breytir birtunni t.d. eftir því hvað notandinn er gamall eða hvað hann er að fást við. Verkfræðingar Dyson huguðu sérstaklega að láta loft leika um lampann eftir innbyggðum leiðslum sem bera burtu hita frá díóðuper- unum svo þær endast lengur og við- halda bæði réttum lit og styrk. Segir Dyson að fyrir vikið geti peran dug- að í allt að 60 ár. Vestanhafs kostar lampinn frá 600 til 900 dali og fæst bæði í borðlampa- og gólflampaútfærslu. ai@mbl.is Stílhreinn er hann og búið að hugsa fyrir hverju smáatriði. Dyson fer alla leið í lampahönnuninni 4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019FRÉTTIR Umsvif Heimavalla hafa aukist hratt og á skömmum tíma fór fé- lagið frá því að reka um 200 leigu- íbúðir upp í 1.800. Í byrjun næsta mánaðar sest Arnar Gauti Reyn- isson í framkvæmdastjórastólinn og tekur við keflinu af Guðbrandi Sigurðssyni. Framundan er að af- skrá félagið úr Kauphöll, að ósk hluthafa, samhliða því að halda áfram að efla starfsemina. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Stærsta áskorunin er að tryggja að reksturinn sé og verði arðbær þrátt fyrir miklar hækkanir á fast- eignagjöldum, sem eru einn stærsti einstaki gjaldaliður félags- ins. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Haustráðstefna Advania á síð- asta ári. Erindi Guðbjargar Heiðu Guðmundsdóttur í Marel um stjórnun var sérlega áhugavert. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Bókin Veröld sem var eftir Stef- an Zweig var áhrifarík. Þá sér í lagi til að minna mann á það að allt í heiminum er breytingum háð, eins og Zweig segir frá á ein- staklega áhugaverðan hátt þegar hann fer í gegnum lífshlaup sitt. Hver myndi leika þig í kvikmynd um líf þitt og afrek? Kevin Bacon á yngri árum tæki þetta hlutverk að sér enda þykir ýmsum sterkur svipur með okkur, nema kannski þegar kemur að danshæfileikum. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég les bækur, tímarit og fylgist með þjóðfélagsumræðunni á Ís- landi og í okkar helstu nágranna- löndum. Hugsarðu vel um líkamann? Já, ég geri það, hreyfi mig a.m.k. þrisvar í viku og hugsa um mat- aræðið. Hreyfingin er mér lífs- nauðsynleg bæði andlega og lík- amlega. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Draumastarfið væri tengt áhugamálunum á sviði íþrótta og útivistar. Það væri ekki slæmt að vera leiðsögumaður á fjallaskíðum á veturna og fjallahjólum á sumrin. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég væri mikið til í að bæta við mig frekari tungumálaþekkingu. Þá yrði sennilega spænska fyrir valinu. Best væri ef námið væri stundað á sólríkum stað. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Kostirnir við núverandi rekstr- arumhverfi fyrir íbúðaleigufélög eru þeir að sífellt stærri hluti fólks á íbúðamarkaði kýs að búa í leigu- húsnæði og nýta sér þá kosti sem í því felast frekar en að festa sig nið- ur í eigin fasteign. Helsti gallinn er sá að rekstrarsaga íbúðaleigu- félaga á Íslandi er mjög stutt, ólíkt því sem er í nágrannalöndum okk- ar, og ber umræðan og sú gagnrýni sem þessi félög fá, þess oft merki. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Ég tek mér frí. Hvort sem það er með konunni minni, fjölskyldu eða vinum þá bregst það ekki að maður kemur tvíefldur til starfa eftir gott og skemmtilegt frí. Yf- irleitt fæ ég bestu hugmyndirnar og innblástur í starfið á slíkum stundum. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Fyrstu lögin sem ég myndi breyta væru lögin um stimpilgjöld. Þau myndi ég fella úr gildi enda eru þau ekkert annað en ósann- gjörn skammtheimta. SVIPMYND Arnar Gauti Reynisson, framkvæmdastjóri Heimavalla Hækkun fasteignagjalda íþyngjandi Morgunblaðið/Eggert Gauti segir umræðuna bera þess merki hve stutt rekstrarsaga íbúða- leigufélaga er hér á landi. Æ stærri hópur kýs að búa í leiguhúsnæði. NÁM: Stúdent úr Verzlunarskóla Íslands 2001; B.S. í vélaverk- fræði Háskóli Íslands 2005; M.S. í iðnaðarverkfræði University of Minnesota 2008. STÖRF: Ýmis störf í markaðsviðskiptum Íslandsbanka 2008 til 2015, m.a. við gjaldeyrisstýringu, gjaldeyrismiðlun, verð- bréfamiðlun og eigin viðskipti. Fjármálastjóri Heimavalla 2015 til 2019. Framkvæmdastjóri frá apríl 2019. ÁHUGAMÁL: Áhugamál tengjast íþróttum og útivist. Hjólreiðar á sumrin og skíði á veturna. Þykir fátt skemmtilegra en að vera á fjallaskíðum á veturna eða fjallahjólinu á sumrin í góðum hóp vina. FJÖLSKYLDUHAGIR: Kvæntur Sigríði Völu Halldórsdóttur verk- fræðingi og saman eigum við tvö börn, stelpu sem er 6 ára og strák sem er 4 ára. HIN HLIÐIN STÖÐUTÁKNIÐ Úranördar urðu ekki fyrir von- brigðum með Rolex á árlegri kaup- stefnu úrsmiða í Basel. Af mörgum eigulegum úrum stóð upp úr nýtt „Leopard“-úr, byggt á Cos- mograph Day- tona. Er úrið hlaðið demönt- um sem mynda svart og gyllt hlébarða- mynstur, umvaf- ið geislabaug sem gerður er úr 36 steinum. Íburðurinn kall- ast skemmtilega á við lágstemmda ólina úr biksvörtu Oysterflex-efni. Hlébarðaúrið verður aðeins fáan- legt hjá allra stærstu seljendum Ro- lex-úra. Verðið liggur ekki fyrir en ætti að hlaupa á mörgum tugum milljóna króna. ai@mbl.is Hlébarða-úrið læðist ekki með veggjum. Hnallþóra frá Rolex ©Rolex/Alain Costa Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.