Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 8

Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 8
Kröfuhafar stíga inn í WOW Þegar ljóst varð á mánudag að WOW air gæti ekki staðið í skilum með 150 milljóna króna vaxtagreiðslu af 50 milljóna evra skuldabréfaút- gáfu sem félagið réðst í á haustdögum í fyrra, ákváðu eigendur skuldabréfanna að grípa til að- gerða og taka félagið yfir. Fyrir þeirri ákvörðun fékkst meirihluti í atkvæðagreiðslu milli þeirra og lá niðurstaða atkvæðagreiðslunnar fyrir í gærdag. Ákvörðunin byggist á ákvæðum sem sett voru í skuldabréfaútboðinu sem fela í sér að eigendur bréfanna geti tekið félagið yfir, við brot á skilmálunum. Með þessari ákvörðun hafa því orðið tímamót í rekstri flugfélagsins WOW. Allt frá stofnun fé- lagsins á haustdögum 2011 hefur það verið í hreinni eign Skúla Mogensen, í gegnum félagið Títan Fjárfestingarfélag. Eftir eignarhalds- breytinguna, sem ganga mun að fullu í gegn á næstu dögum, er Skúli eftir sem áður hluthafi í félaginu. Það helgast af þeirri ástæðu að hann keypti sjálfur skuldabréf fyrir andvirði 5,5 millj- óna evra, en það jafngildir 11% af heildarfjárhæð útboðsins. Vilja fá fleiri til að fella niður Líkt og fram hefur komið í Morgunblaðinu hafa nýir eigendur félagsins í hyggju að fá fleiri kröfuhafa félagsins til þess að umbreyta skuld- um félagsins í hlutafé. Í þeim hópi eru flugvéla- leigufyrirtæki sem mörg hver eiga millj- arðakröfur á hendur félaginu. Nokkur þeirra komu reyndar að útboðinu fyrrnefnda þegar þau skuldbreyttu gjaldföllnum skammtímakröfum, einkum ógreiddum leigugreiðslum, í skuldabréf. Þar var stórtækast ALC sem í dag á sjö af þeim 9 flugvélum sem WOW air hefur enn í sínum fór- um. Samkvæmt upplýsingum úr hópi hinna nýju eigenda félagsins er stefnt að því að safna að auki um fimm milljörðum króna í nýtt hlutafé frá núverandi kröfuhöfum og öðrum fjárfestum til þess að leggja inn í reksturinn. Hið nýja hlutafé muni mynda 51% eign í félaginu á móti 49% hlut sem byggjast mun á því að skuldum verði breytt í hlutafé. Heimildir Morgunblaðsins herma að enn sé allt á huldu um hver eignaskipting núver- andi kröfuhafa verður innbyrðis og hversu mikil hlutdeild skuldabréfaeigendanna verður í fyrr- nefndum 49%. Rangar upplýsingar flæða um markaðinn Fram eftir degi í gær flutu rangar upplýsingar um fjölmiðla landsins. Þannig hélt Sigþór Krist- inn Skúlason, forstjóri Airport Associates á Keflavíkurflugvelli, því fram í hádegisfréttum RÚV í gær að köfuhafar hefðu umbreytt „rúm- lega 15 milljörðum í hlutafé“ og þannig umbreytt þeim í 49% hlut í félaginu.“ Airport Associates er stærsti þjónustuaðili WOW á Keflavíkurflugvelli og móðurfélag þess umbreytti skuldum WOW við fyrirtækið að fjárhæð 1 milljón evra, í skulda- bréfaeign í september síðastliðnum. Rangar upplýsingar af því tagi sem bornar voru á borð í hádeginu í gær og á vefmiðlum í kjölfarið ollu miklum sviptingum í Kauphöll Ís- lands og lækkuðu bréf Icelandair Group t.d. um tæplega 10% meðan öll önnur félög á aðallista annað hvort stóðu í stað frá fyrri viðskiptadegi eða hækkuðu. Enginn reki virtist gerður að því að leiðrétta þessar fréttir og voru þær end- urteknar í kvöldfréttatímum sjónvarpsstöðv- anna. Beggja vegna borðsins Staðan sem nú er komin upp er að mörgu leyti flókin. Þannig eru nokkrir skuldabréfaeigend- anna, sem nú hafa leyst félagið til sín, einnig eig- endur að öðrum skuldum félagsins. Þar má helst nefna fyrrnefnda flugvélaleigusala. Heimildir ViðskiptaMoggans herma að þar fari fremst ALC og Avalon. Þá er Skúli Mogensen, sem nú fer með lítinn hlut í félaginu, einnig eigandi að kröfu í gegnum félagið Títan Fjárfestingarfélag og nemur sú krafa í bókum félagsins ríflega 6,3 milljónum dollara. Sömu heimildir herma að afar erfitt verði að fá flugvélaleigufyrirtækin til þess að auka við hlut sinn í félaginu á kostnað krafna sem þau nú þegar halda á gagnvart WOW air. Þá er talið útilokað að Isavia ohf. sem WOW skuldar verulegar fjárhæðir muni taka það í mál að um- breyta 1,8 milljarða langtímaskuld í hlutafé. Meiri óvissa ríkir um Arion banka. Bankinn situr beggja vegna borðsins og er um leið, ásamt Arc- tica Finance, í þeim hópi sem nú reynir að afla nýrra hluthafa að félaginu. Bankinn hefur enda mikla hagsmuni af því að WOW air haldi velli. Langtímaskuldir flugfélagsins hjá bankanum nema 1,6 milljörðum króna. Fara víða í leit að fjármagni Fulltrúar WOW air leita nú til innlendra og erlendra fjárfesta í von um að fá aukið fé inn í rekstur félagsins. Á sama tíma og forstjóri fé- lagsins og aðrir hagsmunaaðilar benda á að tíð- indin af inngripi skuldabréfaeigendanna létti róður félagsins er það samdóma álit allra þeirra sérfræðinga sem ViðskiptaMogginn hefur rætt við að staðan sé þröng og að í raun þurfi allt að ganga upp til þess að halda félaginu á floti á komandi vikum. Meðal þess sem nefnt hefur verið er að leitað verði til lífeyrissjóða um mögulega aðkomu þeirra að breyttum eigendahópi félagsins. Sér- fræðingar innan lífeyrissjóðanna telja litlar líkur á að það verði að veruleika. Þar ráði ýmsar ástæður en fyrst og fremst sú áhætta sem fylgja myndi slíkri fjárfestingu. Auk þess gildi sú vinnuregla innan flestra sjóðanna að óskráð hlutabréf séu ekki keypt öðruvísi en að það fari einu sinni eða tvisvar fyrir stjórnir sjóðanna að undangenginni ítarlegri kynningu. Það taki alla jafna langan tíma.Þá munu aðrir fjárfestar sem fulltrúar Pareto Securities, Arctica Finance og Arion banka nálguðust í tengslum við skuldabréfaútboðið í september taka því nokkuð fálega, nú þegar tilraun er gerð til að nálgast þá með nýjar hugmyndir um aðkomu þeirra að fé- laginu. Viðmælendur ViðskiptaMoggans í þeim hópi segja að þar ráði mestu sú staðreynd að þær tölur og áætlanir sem lagðar voru fyrir fjár- festa í tengslum við útboðið hafi í engu tilliti staðist. Viðurkenna þeir reyndar í samtölum við blaðamenn að margt hafi sigið á ógæfuhliðina fyrir félagið frá því að kynningunni var dreift en að þó sé himinn og haf milli þess sem þar var kynnt og raun varð á þegar árið síðasta var gert upp. Mun meira tap en áætlað var Líkt og rakið er á forsíðu ViðskiptaMoggans í dag reyndust tekjur félagsins á síðari árshelm- ingi ársins 2018 4,4 milljörðum lægri en lagt var upp með. Rekstrargjöldin urðu hins vegar 5,7 milljörðum hærri. Olli það því að tap félagsins varð 22 milljarðar króna. Viðmælendur Við- skiptaMoggans segja að þeir fimm milljarðar sem nú sé stefnt að því að safna í formi nýs hluta- fjár dugi auk þess skammt þegar rauntölur sýni að félagið tapi um milljarði króna á mánuði hverjum. Stefán E. Stefánsson Þóroddur Bjarnason Pétur Hreinsson Skuldabréfaeigendur í WOW air gripu í taumana í gærdag og hafa leyst félagið til sín. Þeir reyna nú til þrautar að bjarga félaginu frá gjald- þroti en þeir verða að hafa hraðar hendur, eigi ætlunarverkið að tak- ast. Morgunblaðið/Kristinn Skúli Mogensen hefur á síðustu mánuðum unnið sleitulaust að því að tryggja viðgang WOW air. Í gær leystu skuldabréfaeigendur félagið til sín. 2011 2012 2012013 201620152014 Nóvember Skúli Mogensen stofnar WOW air með fjármagni frá félagi sínu Títan ehf. 1. janúar Félagið tapaði 2,3 milljónum á árinu 2011 en þá var það ekki komið í eigin- legan rekstur 23. október WOW air tekur yfi r fl ugrekstur og áætlunar- fl ug Iceland Express 1. janúar WOW air tapar 794 milljón-um 2012 29. október Flugrekstrar- leyfi veitt 9. júlí WOW býður fl ug til London aðra leiðina á 5.990 kr. 1. janúar Tap varð af rekstrinum sem nam 332 milljónum á árinu 2013 1. janúar Tap félagsins nam 560 milljónum króna 2014 27. mars Tekur við tveimur nýjum Airbus 321-vélum 8. ágúst Flytur fl eiri farþega í júlí en allt árið 2012 1. janúar Félagið hagnast um 1,5 milljarða króna 2015 Mars WOW air lýsir yfi r vilja til að reisa nýjar höfuðstöðvar og hótel á Kársnesi í Kópavogi 23. nóvember Opnað fyrir bókanir hjá félaginu í fyrsta sinn 31. maí Jómfrúarfl ug WOW air til Parísar WOW hefur þrjár vélar í rekstri og 165 starfsmenn í lok árs 2013 30. janúar Ameríku- fl ug í uppnámi vegna úthlutun- ar brott- farartíma 13. febrúar Festir kaup á tveimur vélum sem áttu að fara til Rúss- lands WOW hefur sex vélar í rekstri og 290 starfs- menn í lok árs 2015 1. október Hefur fl ug til tveggja borga í Kanada og tvær vélar bætast í fl otann WOW hefur 12 vélar í rekstri og 700 starfsmenn í lok árs 1. jan Félag hagna 4, milljar 2016 1 R G fy fo Ic ir a fo W WOW notast við tvær vélar WOW hefur fjórar vélar í rekstri og 195 starfsmenn í lok árs 8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019FRÉTTASKÝRING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.