Morgunblaðið - 27.03.2019, Side 9
W og taka stjórn á vélinni
7 2018 2019
núar
ið
ast um
3
rða
WOW hefur 17 vélar
í rekstri og 1.100
starfsmenn í lok árs
15. ágúst
Ragnhildur
Geirsdóttir,
yrrum
orstjóri
celanda-
r, ráðin
aðstoðar-
orstjóri
WOW
2. október
Flugfélagið Monarch
fer á hausinn og
dregur Kortaþjón-
ustuna næstum
niður með sér. Sú
staða dregur mjög
úr lausafjárstreymi
WOW air
1. janúar
Tap félags-
ins nemur
2,4
milljörðum
króna á
árinu 2017
WOW hefur 22 vélar í
rekstri og 1.400 starfs-
menn fram í desember
Mars
WOW air
fl ytur fl eiri
farþega á
fyrstu tveimur
mánuðum
ársins en
Icelandair
15. ágúst
Upplýst um að félagið
hyggist sækja sér 6-12
milljarða króna með
skuldabréfaútboði
18. september
Félagið lýkur
skuldabréfaútboði og
safnar 50 milljónum
evra, jafnvirði 6,8
milljarða króna.
Eigandinn kaupir um
11% af heildarfjár-
hæðinni
5.
nóvember
Tilkynnt að
Icelandair hafi
keypt með
fyrirvara allt
hlutafé WOW
air á allt að
3,6 milljarða
króna
29. nóvember
Icelandair fellur frá
kaupunum á WOW
air. Tilkynnt að Indigo
Partners eigi í viðræð-
um um aðkomu að
félaginu
1. janúar
Félagið
tapar
22
milljörðum
króna árið
2018
4. janúar
Ragnhildur
Geirsdóttir
hættir sem
aðstoðar-
forstjóri Aðeins 7 vélar WOW air
sinna fl ugi fyrir félagið
(áætlanir gerðu ráð fyrir
24 vélum) og starfsmenn
eru um 1.000 talsins
9. mars
Indigo lýsir sig
reiðubúið að
setja 90 millj-
ónir dollara í
félagið. Skulda-
bréfaeigendur
verða að gefa
meira eftir
21. mars
Indigo slítur viðræðum við
WOW air um möguleg kaup
í félaginu. Icelandair kemur
aftur að borðinu með velvild
stjórnvalda
24. mars
Icelandair slítur viðræðum
við WOW air að nýju
26. mars
Skuldabréfaeigendur taka
félagið yfi r. Skúli á eftir
sem áður 11% í félaginu
13. desember
Fækkar í fl ota
félagsins sem fer
úr 20 vélum í 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019 9FRÉTTASKÝRING
Líkt og Morgunblaðið hefur greint frá á síð-
ustu dögum hefur skráður eigandi tveggja
flugvéla WOW air, flugvélaleigufyrirtækið Jin
Shan 20 Ireland Company Limited, kyrrsett
tvær vélar félagsins en um dótturfélag kín-
verska bankans Bank of Communications
(BoComm) er að ræða. Vélarnar tvær bera ein-
kennisstafina TF-NOW og TF-PRO. Báðar eru
þær af gerð Airbus A321-200 og framleiddar
árið 2017. TF-NOW var í gærkvöldi stödd í
Miami í Bandaríkjunum og TF-PRO er ennþá
stödd í Montréal í Kanada en hún átti að taka
á loft þaðan þann 24. mars en fór aldrei. Önnur
flugvél WOW air, TF-DOG, var send af stað í
staðinn og tók á loft þann 25. mars. Svanhvít
Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, seg-
ir í svari til ViðskiptaMoggans að WOW air
vinni í nánu samstarfi við leigusalann og að fé-
lagið búist við því „að leysa þetta sem fyrst“.
Þá geti flugfélagið haldið leiðakerfi
sínu gangandi óáreitt þar sem
þessar tvær vélar hafa ekki
áhrif á núverandi leiðakerfi.
Í tilkynningu frá WOW air
þann 13. desember síðast-
liðinn kom fram að félagið hygðist
fækka flugvélum úr 20 í 11.
Í loftfaraskrá Samgöngustofu er skráður
eigandi sjö flugvéla sem flugfélagið WOW air
hefur til umráða félög á vegum bandaríska
flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corpora-
tion (ALC). Stofnandi þess og starfandi
stjórnarformaður er hinn ungverskættaði
Steven Udvar-Házy, 529. ríkasti maður heims
að sögn Forbes.
Fjögur félag skráðir eigendur
Líkt og fram kom í frétt Morgunblaðsins 18.
ágúst síðastliðnum voru á þeim tíma átta fé-
lög skráð eigendur flugvélanna 20 sem WOW
Air hafði til umráða. Í dag eru þau fjögur tals-
ins að meðtöldu Jin Shan, en TF-Cat og TF-
Dog eru í eigu tveggja fyrirtækja félaga sem
bæði eru þó skráð á sama heimilisfangið og
því líklega um sama aðila að ræða. Um er að
ræða félögin Tungnaa Aviation Leasing Limi-
ted og Sog Aviation Leasing Limited.
Vélarnar sem fyrirtækið er skráð sem eigandi
að í loftfaraskrá voru af gerð Airbus A321-200
og framleiddar árið 2018.
ALC er skráður eigandi í loftfaraskrá að sjö
þotum, eins og fyrr segir, en það eru flugvél-
arnar TF; -NEO, -GMA, -GPA, JOY, -WIN,
-SKY, og TF-DTR. Fjórar þeirra eru af gerð
Airbus A321-200, tvær þeirra eru af gerð Air-
bus A321-200neo og ein af gerð Airbus A320-
200neo. Samkvæmt vefsíðunni Flight-
radar24.com hefur TF-GPA verið kyrrsett á
Keflavíkurflugvelli, að kröfu Isavia, en vélin er
ekki skráð á nein flug. Áður hafði TF-NEO
verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli en þessa
stundina er hún stödd í Ljubliana í Slóveníu í
reglubundnu viðhaldi.
Þegar flugvélafloti WOW air var skipaður 20
flugvélum voru eftirfarandi félög einnig skráð
eigendur í loftfaraskrá:
CIT Aerospace International sem skráð var
fyrir tveimur vélum af gerð A330-300 sem
framleiddar voru 2015, TF-LUV OG TF-WOW.
Jessica Leasing DAC sem skráð var fyrir
tveimur vélum af gerðinni A320-200, TF-BRO
og TF-SIS.
Skyway Bermuda Limited sem skráð var
fyrir tveimur vélum af gerðinni A321-200, TF-
KID og TF-SON.
Rosewind Bermuda Limited sem skráð var
fyrir tveimur vélum af gerðinni A321-200, TF-
DAD og TF-MOM.
Sky High IV Leasing De-
signated Activity Company
sem skráð var fyrir A330-
300, TF-GAY.
Sjö vélar eru til taks í flugvélaflota WOW air
TF-SON er ekki lengur
í flugvélaflota WOW air
Dr. Friðrik Larsen vörumerkjasérfræðingur
hjá brandr ehf. og lektor í markaðsfræði við
Háskóla Íslands segir, spurður um gildi WOW
air vörumerkisins, að stóra málið til framtíðar
litið sé vörumerkjavirðið (e. Brand equity) í
huga fólks hér og þar um heiminn. „Vöru-
merkjavirðið sem býr í huga neytenda er
mjög mikils virði. WOW air hefur staðið sig
vel í markaðsstarfi í mörg ár á þeim mörk-
uðum sem félagið flýgur til,“ segir Friðrik.
Hann bendir á að ef einhver ætlaði að
koma núna og reisa fyrirtæki á grunni WOW
air, ef allt færi á versta veg, þá sé alveg á
hreinu að vörumerkið væri afar mikils virði.
„Fyrirtækið hefur varið hundruðum eða þús-
undum milljóna í að byggja upp vörumerkið
og festa það í huga neytenda. Þetta er fjár-
festing sem er raunveruleg og er ennþá til.“
Flugrekstur hrávöruviðskipti
Spurður um vörumerkjavitund þegar fólk
er að leita sér að flugi á leitarvélum, þar sem
ótal flugfélög koma til greina, segir Friðrik að
flugrekstur sé að vissu leyti hrávöruviðskipti,
líkt og fjármál og orka, þar sem eina aðgrein-
ingin sé verð. „Það má segja að ef þú færð
upp nokkra valmöguleika í leitarvél, og þitt
flugfélag er ekki þar á meðal, þá spáir enginn
í þig. En ef þú kemur upp sem einn af val-
möguleikum innan einhvers ákveðins verð-
bils sem þú sem neytandi sættir þig við, þá
fer þetta að skipta máli. Eftir því sem vöru-
merkið er sterkara, því meira fyrirgefur við-
skiptavinurinn hærra verðbilið.“
Friðrik segir að ef valið í flugleitarvél standi
um vörumerki sem viðskiptavinur þekki ekki,
þá þurfi verðið að vera töluvert lægra en hjá
öðrum vörumerkjum, til að viðskiptavinur
velji það. „Gott vörumerki má vera dýrara,
þar sem því er treyst. Þannig að það felst
ákveðin þversögn í því að segja að fólk leiti
alltaf eftir lægsta verði, því þetta snýst í raun
ekki bara um verð.“
Vörumerkið hefur skaðast
En hefur WOW vörumerkið skaðast af um-
ræðunni um framtíð félagsins síðustu vikur
og mánuði?
„Það er klárlega búið að skaðast, og ef
vandræðin halda áfram þá gengur hratt á
vörumerkjavirðið. En í þessu tilfelli þá hefur
frekar fáum flugum verið aflýst í stóra sam-
henginu, og ef þeim tekst að halda uppi tíðn-
inni, þá hefur félagið unnið ákveðinn varn-
arsigur sem mun skipta máli fyrir vörumerkið
til framtíðar.“
Friðrik bætir við að stærsti punkturinn sé
sá að vörumerkið hafi ákveðið framtíðarvirði,
sem hverfi, ef WOW air hverfur af markaði.
„Það er búið að leggja mikla fjármuni og
ærna fyrirhöfn í að byggja þetta vörumerki
upp, og það yrði einfaldlega leiðinlegt fyrir
flesta ef félagið myndi hverfa af markaði.“
American Airlines verðmætast í heimi
Eins og sést á meðfylgjandi töflu var Am-
erican Airlines verðmætasta vörumerki í
flugiðnaðinum á síðasta ári, en taflan er unn-
in upp úr árlegri skýrslu BrandFinance um 50
verðmætustu vörumerkin í iðnaðinum.
Verðmæti American Airlines er þannig
jafnvirði tæpra 1.100 milljarða íslenskra
króna. Næst verðmætasta vörumerkið er
bandaríska félagið Delta, eða rúmlega 1.050
milljarða virði, og þriðja vinsælasta vöru-
merkið í alþjóðlegum flugiðnaði er síðan enn
eitt bandaríska félagið, United Airlines.
Til gamans má geta þess að norska flug-
félagið Norwegian er í 31. sæti listans, SAS
er í 46. sæti og næst þar á eftir í 47. sætinu er
Wizz Air, sem að stórum hluta er í eigu Indigo
Partners, sem átti um tíma í viðræðum um
kaup á hlut í WOW air. Ekkert íslenskt flug-
félag er á listanum.
Í fjárfestakynningu sem Pareto Securities
vann fyrir skuldabréfaútboð WOW air í lok
síðasta sumars er sérstaklega fjallað um það
sem skaðað geti vörumerkið. Þar segir að
neikvæð umræða eða tilkynningar sem
tengjast félaginu gætu, hvort sem sú um-
ræða er sanngjörn eður ei, dregið úr virði
vörumerkisins og haft neikvæð áhrif á WOW.
Vörumerkið WOW air mikils virði til framtíðar
Verðmætustu vörumerki
fl ugfélaga í heimi 2018
Milljarðar kr.
1 American Airlines 1.103
2 Delta 1.057
3 United Airlines 852
4 Emirates 647
5 Southwest Airlines 643
6 China Southern Airlines 493
7 China Eastern Airlines 462
8 British Airways 423
9 Air China 416
10 Lufthansa 353
Heimild: BrandFinance