Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 14

Morgunblaðið - 27.03.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 2019FRÉTTIR Ekki mátti betur sjá en að lítið tár birtist á hvarmi Tim Cook í lok risa- viðburðar Apple í Hollywood þar sem fyrirtækið kynnti nýja sjónvarps- streymisþjónustu sína. Var hann svona feginn að áætlanir fyrirtækisins um að stækka vöruframboð sitt væru loksins orðnar að veruleika? Eða var þetta eitthvað sem gerist einfaldlega eftir að fólk hefur fengið faðmlag frá Opruh? Ekkert lát virðist ætla að verða á áhuga Kísildals á áskriftar- tekjumódelum. Er þá hugmyndin sú að búa til pakka á mjög hagstæðu verði, og síðan ná í eins marga áskrifendur og hægt er í þeirri von að arð- semin komi með meiri umsvifum. MoviePass, sem virðist ekki eiga langt eftir ólifað fjármagnaði þetta módel með peningum hluthafa. Netflix heldur sér gangandi á lánsfé. Apple hefur efni á að láta reyna á svona rekstur þökk sé frjálsu fjárstreymi að upphæð 64 milljarðar dala. Í áraraðir hefur Apple verið að skoða möguleikann á að opna sína eigin sjónvarps- og kvikmyndaveitu. Á árum áður hefði þetta verið aukaverkefni hjá félaginu, en í dag liggur á að Apple –sem metið er á 886 milljarða dala – finni nýjar leiðir til að fá inn meiri tekjur á sama tíma og hægt hefur á sölu raftækjanna sem fyrirtækið framleiðir. En samanlagðir stórstjörnukraftar Opruh, Stevens Spielbergs og Big Bird reyndust ekkert í líkingu við það þegar Apple kynnti ný raftæki á mesta blómaskeiði fyrirtækisins – og það þó svo að vandlega skipulögð uppákoman hefði gert ráð fyrir fjöldamörgum hléum til að leyfa fagnaðarlátum áhorfenda að heyrast. Hlutabréfaverð Apple bifaðist varla. Ástæðan gæti verið að lítið var gefið upp um smáat- riðin. Áhorfendur fengu að vita að áskrift að stafrænni fréttagátt Apple mun kosta 9,99 dali á mánuði. En ekkert var sagt um hvað nýja greiðslu- kortið sem Apple og Goldman Sachs gefa út í sameiningu, og smíða úr tít- an-málmi, á eftir að kosta eða hver mánaðaráskriftin verður fyrir leikja- þjónustuna Apple Arcade og Netflix eftirhermuna Apple TV+. Venjuleg áskrift hjá Netflix kostar 12,99 dali á mánuði. Áskriftarpakkar HBO kosta 14,99 dali. Apple gæti snúið á samkeppnina með því að selja sjónvarpsstreymisþjónustuna á 9,99 dali. En þá myndi þurfa að laða að margar milljónir notenda. Ef tækist að fá 56 milljón áskrifendur – sem eru jafnmargir og nota Apple Music í dag, myndi það bæta 7 milljörðum dollara á ári við reksturinn, sem er lægri upp- hæð en tapaðist á síðasta ársfjórðungi vegna minnkandi tekna af sölu i- Phone snjallsímanns. Ef áskrifendurnir væru 150 milljón talsins, líkt og hjá Netflix, myndi það þýða 18 milljarða dala í tekjur, sem jafngildir 7% af heildartekjum síðasta árs. Allt veltur á því hvaða sjónvarpsefni mun standa viðskiptavinum til boða. Að gera samstarfssamning við fólk eins og Opruh verður ekki ódýrt. En ef Apple vill endilega færa sig úr smíði raftækja yfir í sölu rafrænnar þjónustu þá eru ekki aðrir kostir í stöðunni en að halda áfram að eyða. LEX Apple TV: ekki fagna alveg strax Forstjóri Volvo Cars varar við því að ef farið verður of geyst í að setja sjálfakandi bíla á markað gæti það í reynd haft þau áhrif að hamla þró- un þessarar tækni sem ætti að verða „mesta framfaraskref sög- unnar í öryggismálum bifreiða.“ Hakan Samuelsson segir að það væri „óábyrgt“ að taka sjálfstýrða bíla í almenna notkun áður en þeir væru orðnir nægilega öruggir, því ef slysin hendir á það eftir draga úr tiltrú almennings og auka á tor- tryggni stjórnvalda. Vilja ryðja brautina á ný „Þessi ábyrgð hvílir á okkur og öllum hinum sem eru að þróa sjálf- akandi bíla. Annars er hættan sú að við gerum út af við þessa tækni sem gæti vel reynst verða besta öryggistækið sem þróað hefur ver- ið fyrir einkabílinn,“ segir hann. Samuelsson lét þessi ummæli falla þegar Volvo hratt af stað nýju umferðaröryggisverkefni sem mið- ar að því að nota nýjustu tækni til að binda enda á akstur undir áhrif- um áfengis, truflun frá snjallsímum í akstri, og of hraðan akstur. Von- ast Volvo til að þetta nýja útspil fyrirtækisins muni smita út frá sér til annarra bílaframleiðenda, rétt eins og þriggja punkta bílbeltið gerði fyrir 60 árum. Lofa of miklu Sumir framleiðendur hafa sett á markað bíla með tækni sem getur bæði stjórnað stefnu bílsins og hraða þegar ekið er á hraðbrautum. En Samuelsson segir að ef framleið- endur þessara bíla ýkja eiginleika þeirra þá sé hætt við að ökumenn reiði sig um of á tæknina og að slys hljótist af. „Fara þarf mjög varlega þegar svona tækni kemur á markað, og tel ég að sjálfstýringin þurfi að vera enn öruggari en ökumaðurinn heldur,“ segir hann og bætir við að þegar upp er staðið hvíli ábyrgðin á þessum ökutækjum „hjá þeim sem eru að selja sjálfstýringarbúnaðinn“. Hann bætir við að: „Það að hefja sölu á sjálfakandi bílum án þess að vera þess fullviss að þeir verði ekki valdir að slysum væri mjög óábyrgt.“ Þó svo að Samuelsson hafi ekki nefnt neina framleiðendur á nafn má telja nokkuð víst að hann sé einkum að vísa til Tesla sem hefur kallað hraðbrauta-aksturskerfi sitt „sjálf- stýringu“ og haldið því fram að öku- tækin sem fyrirtækið framleiðir séu „með öllu sjálfakandi“. Nokkur banaslys Finna má nokkur tilvik þar sem banaslys hlaust af þegar ökumenn Tesla-bifreiða slepptu höndum af stýrinu og hættu að fylgjast með akstrinum á meðan sjálfvirk stýring og bremsustjórnun bílanna var í gangi. Margir bílaframleiðendur ákváðu að gera hlé á prófunum sjálfakandi bíla í kjölfar þess að gangandi veg- farandi lét lífið eftir að hafa orðið fyrir sjálfakandi Volvo-bíl í próf- unum hjá Uber. Við nánari skoðun kom þó í ljós að skutlfyrirtækið hafði slökkt á miklu af þeim öryggisbúnaði sem Volvo hafði komið fyrir í bílnum. Horfir í augu ökumanns Bílaframleiðendur og tæknifyr- irtæki vinna að því að þróa sjálfstýr- ingarkerfi fyrir bíla svo að umferð- arslys þar sem banaslys verða geti heyrt sögunni til en ár hvert lætur meira en milljón manns lífið í um- ferðinni. Í síðustu viku kynnti Volvo til sög- unnar úrval nýrra tæknilausna sem fyrirtækið telur að muni geta dregið enn frekar úr banaslysum í umferð- inni með því að koma í veg fyrir hraðakstur, akstur undir áhrifum áfengis og notkun snjallsíma undir stýri. Snemma á næsta áratug verða nýjar Volvo-bifreiðar búnar mynda- vél sem vaktar augnhreyfingar öku- manns og greinir hvenær hann er með athyglina við eitthvað annað en veginn. Einnig stendur til að nota stað- setningartækni til að kortleggja svæði þar sem bílar munu sjálfkrafa hægja ferðina, s.s. í kringum skóla. Jafnframt mun nýja tæknin frá Volvo nota staðsetningu bílsins og upplýsingar um ástand vega til að takmarka hámarkshraða í hálku og þoku, sem Samuelsson segir „áhrifa- ríkari“ leið en að stóla á hraðaskilti. „Bíllinn mun vita að vegurinn er átta metra breiður og hlykkjóttur, og að frost er, myrkur og snjór. Mjög vönduð algrími munu þá reikna það út að bíllinn megi ekki fara hraðar en á 75 km/klst á umræddum veg- arspotta,“ segir hann. Vill fara varlega af stað með sjálfakandi bíla Eftir Peter Campbell í Gautaborg Ef tækni á bak við sjálf- akandi bíla stendur ekki undir væntingum gæti það gert almenning og stjórn- völd tortryggin. AFP Sjálfakandi strætó af gerðinni Volvo sem kynntur var í Singapúr í byrjun þessa mánaðar en að mati Hakan Samuelsson þarf að fara hægt í sakirnar. á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is eða í App Store og Google Play SÆKTU APPIÐ Sæktu appið frítt á AppStore eða Google Play Hreyfils appið Pantaðu leigubíl á einfaldan og þægilegan hátt Þú pantar bíl1 3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn. 2 fylgist með bílnum í appinu ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.