Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.03.2019, Qupperneq 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Stefanía Ólafsdóttir er meðstofnandi og framkvæmdastjóri íslenska nýsköpunarfyrirtækisins Avo sem fyrst íslenskra fyrirtækja var tekið inn í við- skiptahraðalinn Y-combinator, sem er sá elsti, og jafnan talinn sá öflugasti í heiminum. Y-combinator lagði félaginu til 150 þúsund dali í hlutafé en áður hafði fyrirtækið tryggt sér 1,2 millljónir dala í fjármögnun frá Brunni og In- vesta. Hraðallinn hefur þegar ungað út fyrirtækjum á borð við Airbnb, Drop- box, Reddit og Twitch TV. Auk þess að búa yfir miklu tengslaneti færustu sér- fræðinga heims er Y-combinator sá fjárfestingasjóður sem er með eitt hæsta hlutfall einhyrningsfjárfestinga í heiminum, en þá er um að ræða ný- sköpunarfyrirtæki sem metin eru á meira en milljarð Bandaríkjadala. Avo er notendavænt vefapp fyrir gagnasérfæðinga, vörustjóra og for- ritara sem vinnur að því að skilgreina hvaða gagnaöflun þarf að eiga sér stað fyrir hverja vöruuppfærslu. Auk þess er Avo forritaratól sem býr til kóða sem tryggir að gögnin séu rétt áður en þau eru send í gagnagrunn. „Avo verður infrastrúktúrinn sem fyrirtæki í heiminum reiða sig á til að tryggja skilvirka og áreiðanlega gagnaöflun,“ segir Stefanía við ViðskiptaMoggann og bindur vonir við það að fyrirtækið verði að risafyrirtæki. „Villur í gögnum eru ólíkar villum í kóða að því leyti að það er hægt að laga villur í kóða, en gögn eru var- anleg. Gagnavillur eru óbætanlegur skaði, sem hægja gríðarlega á hug- búnaðarteymum.“ Avo setti vöruna á markað fyrir mánuði og einblínir á al- þjóðlegan markað og er nú þegar komið með viðskiptavini víða um heim. Meðstofnendur Avo eru þau Árni Hermann Reynisson og Sölvi Loga- son, og þá hefur Þóra Guðfinnsdóttir gengið til liðs við þau en öll eru þau fyrrverandi starfsmenn QuizUp. Hafa þau öll verið í San Francisco frá byrj- un árs. Avo er fyrsta íslenska fyrirtækið til þess að hljóta inngöngu í Y-Combinator. Í sama hraðli og Airbnb Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Stefanía Ólafsdóttir og fé- lagar í íslenska nýsköp- unarfyrirtækinu Avo hlutu inngöngu í öflugasta við- skiptahraðal heims. Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Það var frekar óskemmtilegt aðlesa ummæli sem höfð voru eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni verkalýðsfélagsins Efl- ingar, á Mbl.is á mánudagskvöldið um að verkalýðsbarátta snerist um að tryggja vinnuaflinu mannsæm- andi afkomu „sama hvað kapítalísk fyrirtæki gerðu“, en fréttin var sögð þegar fundi verkalýðsfélaga við SA var slitið fyrr en áætlað var vegna óvissunnar varðandi WOW air. Það að einstaklingur sem tengd-ur hefur verið við sósíalisma þurfi endilega að hnýta orðinu „kapítalísk“ fyrir framan orðið „fyrirtæki“, mátti skilja eins og við- komandi óskaði sér að frekar verið væri að semja við opinber fyrir- tæki, ef maður gefur sér að það séu þá öll hin fyrirtækin í landinu. Orðin mátti skilja einnig á þannveg að tillit ætti ekki að taka til stöðu hinna einkareknu fyr- irtækja, sem í lok dagsins þurfa að hafa burði til að borga launin, sem kröfugerð verkalýðsfélaganna snýst um. Mætti sem sagt telja að halda eigi ýtrustu kröfum til streitu, og það sama þó fyrirtækin megni ekki að greiða launin sem samið er um. Almennt þá greiða fyrirtæki laun eins og þau treysta sér til, og stofnendur og eigendur þessara fyrirtækja hafa lagt blóð, svita og tár í uppbyggingu þeirra, vöxt og viðhald. Suma dreymir um að fyrirtæki séu helst öll opinber, en sú hug- myndafræði er margreynd, og hef- ur ítrekað endað með ósköpum. Kapítalísk fyrirtæki SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Vél WOW í Montréal tekin af … WOW air verður endurskipulagt Kröfuhafar hlynntir endurreisn WOW WOW færi sömu leið og Air Berlin WOW nær samkomulagi við … Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Það er ekki tíðindalaust í Svörtu-loftum. Á sama tíma og fráfar- andi seðlabankastjóri situr yfir teikningum sem miða að því að koma skrifstofu eftirmanna hans tveimur hæðum ofar en nú er mögulegt, vinn- ur ríkisstjórnin að því að færa Fjár- málaeftirlitið undir bankann og gera forkólfa þeirrar stofnunar að vara- skeifum bankastjórans. Forvitnilegt verður að sjá hvort þá dugi að hafa lokið öðru prófi en hagfræði til að uppfylla hin hátt upp höfnu hæfni- skilyrði sem allir segjast vita hvað fela í sér en enginn getur útskýrt. Og nú bætist ofan á fyrirhugaðarbyggingaframkvæmdir og breytta stjórnskipan bankans að velja þarf nýjan skipherra í brúna því sá sem gegnt hefur embættinu síð- ustu 10 árin má ekki gera það lengur. Það vill reyndar svo til að lögin kveða á um það en að öðrum kosti yrði hann að hætta vegna þeirra hneykslismála sem skekið hafa bankann síðustu ár- in. Hinn afmarkaði skipunartími hef- ur reynst hið besta björgunarvesti á síðustu og verstu tímum. Svo var tilkynnt að 15 hefðu sóttum stöðuna og supu margir sína daglegu hvelju yfir því að aðeins ein kona hafi verið í hópnum. Þekktir álitsgjafar sem gjamma helst um það sem þeir ekkert vita um, fullyrtu að ríkisstjórnin hefði brugðist fyrst engin „hæf“ kona „treysti“ sér til þess að sækja um! Vandséð er hvern- ig ríkisstjórnin, jafn öflug og hún nú er, geti borið ábyrgð á því. Nóg á hún víst með sjálfa sig. Og svo kom reyndar fram, svona í framhjáhlaupi, að konurnar reyndust tvær og um- sækjendurnir 16. En hvað sem því líður mun for-sætisráðherrann innan skamms benda á þann sem að henni þykir bestur. Og þar þarf ráðherrann að hafa í huga að sá einstaklingur sem velst til starfans á að fylgja lögum um Seðlabankann (og reyndar öðr- um lögum einnig þótt ekki ætti að þurfa að taka það fram nema vegna þess sem gengið hefur á í bankanum síðustu árin). Í þeim lögum segir að bankinn hafi það verkefni með hönd- um að stuðla að stöðugu verðlagi. Í því felst m.a. að tala ekki niður gjaldmiðil þjóðarinnar sem reynst hefur betur á síðustu árum, einkum við endurreisnarstarfið í kjölfar bankaáfallsins, en sumir hefðu ósk- að sér. Þetta þarf ráðherrann að hafa í huga við mat á því hverjir koma til greina við val á nýjum stjóra. Víst ávallt þeim vana halt Óheimilt var fyrir dreifiveitur að setja raforkukaupendur í viðskipti við tengd sölufyrirtæki. Dreifiveitur brutu lög 1 2 3 4 5

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.