Morgunblaðið - 01.03.2019, Síða 10

Morgunblaðið - 01.03.2019, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 B jarni Benediktsson, eigandi Víkurvagna, er manna fróðastur um allt sem við kemur kerrum, dráttar- beislum og vinnulyftum. Um árabil hefur fyrirtæki hans flutt inn kerrur frá breska framleiðandanum Ifor Williams, vinnulyftur frá sænska fyrirtækinu Zepro og dráttarbeisli frá bæði Westfalia og Steinhof, auk þess að smíða eigin dráttarkróka. Aðspurður hverju þarf að gæta sérstaklega að við kerru- kaupin segir Bjarni að tryggja verði að kerran sé nægilega sterkbyggð, og má þá oft fylgja þeirri þumalputtareglu að kerr- an sé því sterkari sem hún er þyngri. „Það má reyna að finna það á kerrunum, með því að þreifa á þeim, hvað þær ráða við, en svo má líka athuga eigin þyngd þeirra til að fá hugmynd um hversu mikið af stáli var notað í framleiðsluna.“ Bjarni segir kerrur ýmist þurfa að vera úr galvaníseruðu stáli eða áli, en álið sé dýrara og stálið verður því yfirleitt ofan á. Álkerra er léttari, sem hjálpar til að draga úr eldsneytisnotkun, en fyrir flesta kaupendur er eldsneytissparnaðurinn ekki svo mikill að stálkerran sé ekki hagkvæmari kosturinn bæði til skemmri og lengri tíma litið. „Það mæðir mikið á kerrum og ætti því líka að ganga úr skugga um að auðvelt sé að nálgast varahluti og viðgerðarþjónustu, líkt og á við um Víkurvagna sem raunar þjónustar kerrur frá öllum framleiðendum.“ Einfaldleikinn dregur úr hættunni á skemmdum Góð kerra þarf að vera sterkbyggð, hafa nægilega burðargetu, rétta fjöðrun, og ekki vera of flókin. Ásgeir Ingvarsson | ai@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Huga þarf að fullkomnum rafbúnaði bílsins við uppsetningu dráttarbeisla. Við val á kerru ætti að athuga burðargetuna og fjöðrunina. Blaðfjöðrun hefur ýmsa kosti, að sögn Bjarna hjá Víkurvögnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.