Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 MORGUNBLAÐIÐ 11
Það mæðir mikið á kerrum og þess vegna skiptir miklu að hafa gott aðgengi að viðhaldsþjónustu og varahlutum.
Blaðfjöðrun hefur vinninginn
Annað sem Bjarni mælir með er að velja kerru með fjöðrun
við hæfi. „Blaðfjöðrunin hentar yfirleitt best því hún er mýkri ef
ekið er um með kerruna tóma, svo hún hoppar ekki og skoppar.
Hinn valkosturinn er flexitor-fjöðrun en hún er stífari og byrjar
ekki að virka sem skyldi fyrr en komið er hlass í kerruna.“
Oft eru margir um hverja kerru og segir Bjarni að til að
minnka líkurnar á skemmdum sé ágætt að allur kerrubúnaður-
inn sé sem einfaldastur. „Má orða það þannig að ef kerran er til-
tölulega einföld, þá er minna sem hægt er að eyðileggja. Hjá
Ifor Williams vita menn þetta, eru íhaldssamir í vöruþróun
sinni og eru ekki að breyta því sem virkar bara til þess að
breyta því.“
Lögum samkvæmt má hámarks dráttarþyngd ekki vera yfir
3.500 kílóum og er þyngd kerrunnar þá talin með. Segir Bjarni
að verði að hafa þetta í huga við val á kerru, t.d. þegar ætlunin
er að flytja vinnuvélar og ökutæki á milli staða. Spurður hvað
það er sem helst á til að gefa sig nefnir Bjarni ljósin og bremsu-
búnaðinn. „Bæði vill það henda að ekki er farið nógu varlega
svo að kerran rekst utan í eitthvað og ljós brotnar, eða að
gleymist að taka handbremsuna á kerrunni af áður en haldið er
af stað.“
Engin kúla á rafmagnsbíla
Við val á dráttarbeisli segir Bjarni að á fólksbíl eða jeppling
sé alla jafna sett hefðbundið beisli og er þá kúlan í staðlaðri
hæð. „Öðru máli gegnir um sendiferðabíla, og ráðleggjum við
þá að taka s.k. prófílbeisli sem leyfir að stjórna hæð kúlunnar
svo hún geti passað við misháar kerrur.“
Festa má dráttarbeisli á hér um bil allar gerðir bifreiða en þó
ekki þær sem ganga fyrir rafmagni eingöngu. Gilda þar reglur
framleiðandans en Bjarni bætir því við að þess sé eflaust
skammt að bíða að á markaðinn komi rafmagnsbílar sem leyfi
dráttarkúlu.
Segir hann vissara að láta fagmann um að koma dráttarbeisl-
inu fyrir enda þarf ekki aðeins að festa búnaðinn tryggilega við
burðarvirki bílsins heldur líka tengja rafmagnssnúrur rétt.
„Rafmagnsbúnaður bíla verður æ flóknari og viðkvæmari og
þarf t.d. stundum að taka tillit til þess ef fjarlægðarskynjarar
eru aftan á ökutækinu,“ útskýrir Bjarni og minnir á að kúlan
megi ekki ná lengra en 10 cm frá stuðara nema eigandi öku-
tækisins vilji bjóða heim hættunni á að vera krafinn bóta fyrir
skemmdir ef einhver skyldi rekast utan í.
Mega ekki bíða lengi eftir varahlutum
Vörulyftur hafa aldrei verið fullkomnari og notendavænni og
eru Zepro-lyfturnar hjá Víkurvögnum þannig úr garði gerðar
að sjálfur lyftuflöturinn er tvískiptur og hægt að brjóta saman.
Þegar lyftan er í réttstöðu aftan á vörubíl hylur hún því aðeins
aðra hurðina og hamlar ekki aðgengi.
„Með vörulyftur eins og annan búnað fyrir bílinn ættu kaup-
endur að hafa hugfast að versla við fyrirtæki sem geta tryggt
gott framboð af varahlutum svo að bilanir valdi sem minnstri
röskun á rekstri ökutækisins.“
Á nær öllum sendiferðabílum er gert ráð fyrir vörulyftufest-
ingum í burðarvirki bílsins en engu að síður er töluvert meiri
framkvæmd að koma lyftunni fyrir en t.d. að festa dráttarbeisli.
Segir Bjarni að vörulyftur hafi aldrei verið eins notendavænar
og þær eru í dag. Þeim er stýrt með n.k. sjónvarpsfjarstýringu,
og öll umgengni mjög auðveld. „Verður samt að muna að nota
vörulyftuna varlega, og t.d. sýna aðgát þar sem bílar eru á ferð-
inni ef ske kynni að þeir sjái ekki ef lyftan er niðri fyrr en það er
orðið of seint.“
PON Pétur O. Nikulásson ehf. | Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður | Sími: 580 0110 | pon.is
skotbómulyftara
AG línan frá Manitou býður meðal
annars upp á nýtt ökumannshús með
góðu aðgengi og útsýni.
HANNAÐUR TIL AÐ
VINNA VERKIN
NÝ KYNSLÓÐ
• DSB stjórntakkar
• JSM stýripinni í fjaðrandi armi
• Stýrð stjórnun og hraði á öllum glussahreyfingum
• Virk dempun á bómu
• Hnappur sem losar glussaþrýsting á tengjum