Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 Haraldur Jónsson, oftast kenndur við Úthafsskip í Hafnarfirði, segir frá tilraunaveiðum sem hafnar eru fyrir yfirvöld í Óman. Morgunblaðið/Árni Sæberg 4 16.04.2019 16 | 04 | 2019 Útgefandi Árvakur Umsjón Skúli Halldórsson Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is H́afþór Hreiðarsson korri@internet.is Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Skúli Halldórsson sh@mbl.is Stefán Einar Stefánsson ses@mbl.is Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Auglýsingar Valur Smári Heimisson valursmari@mbl.is Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon Prentun Landsprent ehf. „Íslenskur sjávarútvegur hefur mjög sterka sögu að segja, við þurfum bara að segja hana með enn sterkari hætti,“ segir Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, sem rætt er við á síðu 12 í blaðinu. Ljóst er að sögn Péturs að neytendur virðast líklegir til að taka íslenska vöru fram yfir vöru frá öðrum löndum. Hins vegar standa Íslendingar frammi fyrir ýmsum áskorunum sem aðr- ar þjóðir þurfa ekki að eiga við í sama mæli, til að mynda hvað varðar flutning sjávarafurða frá landinu og á markaði. Brotthvarf lággjaldaflugfélagsins WOW air varpaði ekki síst ljósi á þetta. Fjallað er um þessar áskoranir á síðu 8 í blaðinu en einnig á síðu 14, þar sem rætt er við Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóra DB Schenker á Íslandi. Segir hann að þegar skoðaður er flutningstími og verð þá séu Íslendingar undir í samkeppninni miðað við nágrannalöndin. Þetta og margt fleira í þessu nýjasta sjávarútvegsblaði 200 mílna. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Sérstakar áskoranir fyrir íslenskan sjávarútveg Gjaldþroti flugfélagsins WOW air fylgja áskoranir fyrir fiskútflytj- endur. Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Niceland Sea- food, ræðir um þær við 200 mílur auk Sindra Más Atlasonar, sölu- stjóra hjá HB Granda. 8 Einar K. Guðfinnsson, sem starfar að fiskeldismálum hjá SFS, ræðir um tækifærin sem fram undan eru í fiskeldi á Íslandi. Kolefnisfótspor eldisins geti grynnkað enn meira. 16 Gunnar Davíðsson, sjávarútvegs- fræðingur sem stýrir atvinnuþró- unardeild Troms-fylkis í Noregi, segir að skilvirkara ferli þurfi fyrir fiskeldi í íslenskri stjórnsýslu. 26 Friðrik Mar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar, segir að ástæða sé til að telja að loðnustofninn snúi aftur. Hrygn- ingin núna virðist hafa verið ágæt. 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.