Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Skúli Halldórsson sh@mbl.is E ins og þetta blasir við þá er fiskeldi að verða æ mik- ilvægari þáttur í mat- vælaframleiðslu á heims- vísu,“ segir Einar K. Guðfinnsson, sem starfar að fiskeld- ismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. „Þróunin hefur verið á þann veg að prótínneysla hefur aukist mjög mikið, hún jókst til að mynda um fjörutíu prósent frá aldamótum og fram á okk- ar dag. Það er umfram fólksfjölgun á sama tímabili og skýrist meðal annars af bættum lífskjörum í heiminum og vaxandi þéttbýlismyndun,“ segir Ein- ar í samtali við 200 mílur. „Því er spáð að þessi aukning verði enn meiri á komandi árum þar sem fólki í svokölluðum neysluhópi (e. consuming class), það er fólki sem hefur tekjur fyrir ofan ákveðið mark, fer svo ört fjölgandi. Talið er að um 200 milljónir manna muni bætast í þennan hóp á ári næstu ár- in, sem er ekkert lítið miðað við það til dæmis að innan Evrópusam- bandsins búa um 500 milljónir manna. Það er í þessu ljósi sem við sjáum fiskeldið byggjast svona mik- ið upp, ekki síst vegna þess að hefð- bundin matvælaframleiðsla á borð við kvikfjárrækt og hefðbundinn sjávarútveg getur ekki annað þess- ari eftirspurn með góðu móti,“ segir hann. Myndin skýr í N-Atlantshafi „Fiskveiðar hafa staðið í stað um það bil síðustu þrjátíu til fjörutíu árin, þó hér á landi hafi gengið vel að auka verðmæti vinnslufangs á sama tíma. Við vitum líka að víða sverfur að ræktarlandi. Þetta gerir það að verk- um að þjóðir sem stunda fiskeldi eða geta komið því við, eru allar að horfa til þess að auka það og efla til muna. Hér í Norður-Atlantshafi er myndin mjög skýr. Norðmenn hafa auðvitað stóraukið sitt fiskeldi eins og allir vita og eru orðnir langstærstu laxeld- isframleiðendur í heimi. Færeyingar eru sömuleiðis komnir í þá stöðu að tekjur af fiskeldi mynda saman lang- stærstu útflutningsgrein þjóðarinnar. En við Íslendingar höfum verið eft- irbátar og það er ekki fyrr en nú á allra síðustu árum sem þetta hefur aðeins verið að breytast. Nú er fisk- eldi þegar farið að skipta efnahags- legu máli hér á landi,“ segir Einar. „Þetta hefur hins vegar tekið mjög langan tíma og framleiðslan á síðasta ári var til að mynda álíka og árið 2017. En sem betur fer má búast við því að laxeldisframleiðsla hér á landi nær tvöfaldist í ár miðað við síðasta ár og fiskeldi í heild vex sömuleiðis. Við er- um því að sjá hérna grein sem er verulega farin að láta um sig muna og er sannarlega orðin ein af vaxt- arbroddunum, sem skiptir miklu máli í okkar þjóðarbúi. Meira að segja er það orðið svo að um hana munar í rík- isfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú liggur fyrir Alþingi.“ Framsýni um aldamótin Upp úr síðustu aldamótum var tekin sú ákvörðun að loka stærstum hluta strandlengjunnar fyrir laxeldi í sjó. Var það gert til að koma til móts við þá sem áhyggjur höfðu af því að sjó- kvíaeldi hefði neikvæð áhrif á villta laxastofna. Einar segir að sér sé ekki kunnugt um að í öðrum löndum hafi verið gengið jafn langt í þessum efn- um. „Í Noregi hefur laxeldið í ýmsum tilvikum verið stundað nánast við ósa laxveiðiánna. Og þó um sé að ræða einhver svæði í einstökum löndum þar sem sjókvíaeldi er bannað þá er það hvergi nærri með sama hætti og við Íslendingar ákváðum að gera. Ég tel að sú ákvörðun sem þarna var tek- in, í tíð Guðna Ágústssonar landbún- aðarráðherra, hafi sýnt mikla fram- sýni og að með þessu hafi verið reynt að skapa ákveðna sátt um þessa at- vinnugrein til frambúðar. Það hafa ekki orðið miklar deilur um þá ákvörðun í sjálfu sér.“ Kolefnisfótspor eldis grunnt Þegar fylgst er með umræðunni í ís- lensku samfélagi virðist sem sífellt mikilvægara sé að taka til skoðunar kolefnisfótspor þeirrar fæðu sem við neytum, þ.e. hversu miklu kolefni er blásið út í andrúmsloftið við fram- leiðslu hennar og flutning. „Á það hefur verið ítrekað bent að heimurinn standi frammi fyrir tveim- ur risavöxnum áskorunum. Það er annars vegar hvernig við getum sinnt vaxandi fæðuþörf með sífellt meiri fólksfjölgun og aukinni velmegun og hins vegar hvernig við getum á sama tíma tryggt að við minnkum kolefn- isútblástur, sem margir telja að sé brýnasti vandinn sem leysa þarf nú á dögum,“ segir Einar. „Í því sambandi er mikilvægt að undirstrika það að fiskeldi er um- hverfisvæn atvinnugrein sem getur í krafti sinnar sérstöðu lagt mikið af mörkum til að uppfylla fæðuþörf mannkynsins. Landssamband fiskeld- isstöðva ákvað að fá færustu sérfræð- inga til að reikna út hvert væri raun- verulegt kolefnisfótspor laxeldis í sjókvíum hér við land. Niðurstaðan var sú að það er afar grunnt, grynnra heldur en í flestri annarri mat- vælaframleiðslu og laxeldið hefur því að þessu leyti mjög góða sögu að segja.“ Bendir hann á að athyglisvert sé að kolefnisfótspor fiskeldisins hér á landi skýrist að langmestu leyti af fóður- framleiðslunni, sem laxeldisfyr- irtækin sjálf geti litlu um ráðið. „En með aukinni fiskeldisframleiðslu inn- anlands opnast auðvitað möguleikar á því að hefja fóðurframleiðslu hér á landi í nágrenni við fiskeldið fyrir austan og vestan. Það er auðvitað svo- lítið sérkennilegt að hugsa til þess að á Íslandi er framleitt í dag fiskimjöl og lýsi, sem selt er svo til Noregs þar sem því er breytt í fóður fyrir fiskeldi, áður en það er svo flutt að einhverju marki aftur til Íslands,“ segir hann.. „Það mun auðvitað draga enn úr þessu fótspori, jafnframt því að mikil framþróun á sér stað í fóður- framleiðslunni. Við höfum líka lýst vilja til þess að kolefnisjafna að fullu okkar starfsemi og erum byrjuð að skoða þann kost af fullri alvöru, hvort sem er með skógrækt eða landbótum að öðru leyti, sem við myndum vinna með viðurkenndum aðilum.“ Þrjár sviðsmyndir framtíðar Einar segir að áhugavert sé að velta fyrir sér stöðu fiskeldis á Íslandi í hinu stóra samhengi. Nærtækast sé að átta sig á umfangi og möguleikum fiskeldisins með því að bera það sam- an við sjávarútveginn, eina helstu grundvallarstoð útflutnings og efna- hagslífs Íslendinga. „Við sjáum á tölum sem við höfum frá síðasta ári að verðmæti eldisafurð- anna alls nam um þrettán milljörðum króna, sem er álíka og útflutnings- verðmæti makríls á sama tíma. Fisk- eldið fer hins vegar vaxandi og fram- undan er hægur en öruggur vöxtur,“ segir hann og bendir á þrjár áhuga- verðar sviðsmyndir til að skoða vöxt greinarinnar í samhengi við sjávar- útveg í framtíðinni. „Í þeirri fyrstu skoðuðum við hvert gæti verið útflutningsverðmæti þess laxeldis sem þegar hafa fengist leyfi fyrir. Við erum ekki komin í þá fram- leiðslu strax en þau leyfi liggja fyrir. Þegar við verðum farin að fullnýta þau gæti útflutningsverðmætið legið á bilinu 30 til 35 milljarðar króna. Til að skilja þetta aðeins betur þá er það svipuð tala og svarar til útflutnings- verðmæti loðnu og makríls á síðasta ári. Þess ber þó að geta að útflutn- ingur loðnu var fremur lítill og við vit- um að hann getur verið sveiflu- kenndur í uppsjávarveiðunum. Engu að síður gefur þetta til kynna það um- fang sem við gætum verið að sjá inn- an ekki svo langs tíma,“ segir Einar. 90 til 100 milljarðar króna „Ef við skoðum síðan það magn sem Hafrannsóknastofnun taldi, með áhættumati sínu árið 2017, að óhætt væri að ala af frjóum laxi í sjókvíum án þess að það hefði neikvæð áhrif á umhverfið, þá væri útflutnings- verðmæti þess á bilinu 45 til 50 millj- arðar króna. Það er nálægt heildar- útflutningsverðmæti alls uppsjávarfisksins okkar, það er að segja loðnu, síldar, makríls og kol- munna samanlagt,“ bætir hann við og vísar loks til þriðju sviðsmyndarinnar. „Ef við fyndum leiðir til að fara með framleiðsluna upp í burðarþols- matið, þ.e. það sem lífríki fjarðanna, þar sem á annað borð er heimilt að ala fisk, þyldi, þá væri útflutnings- verðmætið á bilinu 90 til 100 millj- arðar króna. Er það þá farið að slaga upp í útflutningsverðmæti þorskafl- ans á síðasta ári. Að mínu mati gefur þetta til kynna annars vegar það hversu mikið fiskeldið er að fara að telja á allra næstu árum, og hins veg- ar sýnir þetta þau tækifæri sem fisk- eldið felur í sér.“ Fiskeldi svar við risavöxnum áskorunum Útflutningsverðmæti fiskeldis á ársgrundvelli hér á landi gæti komið til með að slaga hátt upp í útflutningsverð- mæti þorskaflans, þegar okkur tekst að nýta burðarþol fjarðanna samkvæmt fyrirliggjandi burðarþolsmati Haf- rannsóknastofnunar. Morgunblaðið/Hari Mikilvægt er að undirstrika það að fiskeldi er umhverfisvæn atvinnugrein sem getur í krafti sinnar sérstöðu lagt mikið af mörkum til að uppfylla fæðuþörf mannkynsins. Einar segir að nærtækast sé að átta sig á umfangi og möguleikum fiskeldisins með því að bera það saman við sjávarútveginn. Fiskeldisfyrirtæki sem fram til þessa hafa tilheyrt Lands- sambandi fiskeldisstöðva ákváðu í lok síðasta árs að ganga sameig- inlega til liðs við Samtök fyr- irtækja í sjávarútvegi. Var ákvörð- un þessi samþykkt á auka-aðalfundi sambandsins 14. desember en jafnframt var ákveð- ið að leggja niður daglega starf- semi þess. Verður henni fram- vegis sinnt af SFS. Gengið til liðs við SFS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.