Morgunblaðið - 16.04.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
E
ins og þetta blasir við þá er
fiskeldi að verða æ mik-
ilvægari þáttur í mat-
vælaframleiðslu á heims-
vísu,“ segir Einar K.
Guðfinnsson, sem starfar að fiskeld-
ismálum hjá Samtökum fyrirtækja í
sjávarútvegi.
„Þróunin hefur verið á þann veg að
prótínneysla hefur aukist mjög mikið,
hún jókst til að mynda um fjörutíu
prósent frá aldamótum og fram á okk-
ar dag. Það er umfram fólksfjölgun á
sama tímabili og skýrist meðal annars
af bættum lífskjörum í heiminum og
vaxandi þéttbýlismyndun,“ segir Ein-
ar í samtali við 200 mílur.
„Því er spáð að þessi aukning
verði enn meiri á komandi árum þar
sem fólki í svokölluðum neysluhópi
(e. consuming class), það er fólki
sem hefur tekjur fyrir ofan ákveðið
mark, fer svo ört fjölgandi. Talið er
að um 200 milljónir manna muni
bætast í þennan hóp á ári næstu ár-
in, sem er ekkert lítið miðað við það
til dæmis að innan Evrópusam-
bandsins búa um 500 milljónir
manna. Það er í þessu ljósi sem við
sjáum fiskeldið byggjast svona mik-
ið upp, ekki síst vegna þess að hefð-
bundin matvælaframleiðsla á borð
við kvikfjárrækt og hefðbundinn
sjávarútveg getur ekki annað þess-
ari eftirspurn með góðu móti,“ segir
hann.
Myndin skýr í N-Atlantshafi
„Fiskveiðar hafa staðið í stað um það
bil síðustu þrjátíu til fjörutíu árin, þó
hér á landi hafi gengið vel að auka
verðmæti vinnslufangs á sama tíma.
Við vitum líka að víða sverfur að
ræktarlandi. Þetta gerir það að verk-
um að þjóðir sem stunda fiskeldi eða
geta komið því við, eru allar að horfa
til þess að auka það og efla til muna.
Hér í Norður-Atlantshafi er myndin
mjög skýr. Norðmenn hafa auðvitað
stóraukið sitt fiskeldi eins og allir vita
og eru orðnir langstærstu laxeld-
isframleiðendur í heimi. Færeyingar
eru sömuleiðis komnir í þá stöðu að
tekjur af fiskeldi mynda saman lang-
stærstu útflutningsgrein þjóðarinnar.
En við Íslendingar höfum verið eft-
irbátar og það er ekki fyrr en nú á
allra síðustu árum sem þetta hefur
aðeins verið að breytast. Nú er fisk-
eldi þegar farið að skipta efnahags-
legu máli hér á landi,“ segir Einar.
„Þetta hefur hins vegar tekið mjög
langan tíma og framleiðslan á síðasta
ári var til að mynda álíka og árið 2017.
En sem betur fer má búast við því að
laxeldisframleiðsla hér á landi nær
tvöfaldist í ár miðað við síðasta ár og
fiskeldi í heild vex sömuleiðis. Við er-
um því að sjá hérna grein sem er
verulega farin að láta um sig muna og
er sannarlega orðin ein af vaxt-
arbroddunum, sem skiptir miklu máli
í okkar þjóðarbúi. Meira að segja er
það orðið svo að um hana munar í rík-
isfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar
sem nú liggur fyrir Alþingi.“
Framsýni um aldamótin
Upp úr síðustu aldamótum var tekin
sú ákvörðun að loka stærstum hluta
strandlengjunnar fyrir laxeldi í sjó.
Var það gert til að koma til móts við
þá sem áhyggjur höfðu af því að sjó-
kvíaeldi hefði neikvæð áhrif á villta
laxastofna. Einar segir að sér sé ekki
kunnugt um að í öðrum löndum hafi
verið gengið jafn langt í þessum efn-
um.
„Í Noregi hefur laxeldið í ýmsum
tilvikum verið stundað nánast við ósa
laxveiðiánna. Og þó um sé að ræða
einhver svæði í einstökum löndum
þar sem sjókvíaeldi er bannað þá er
það hvergi nærri með sama hætti og
við Íslendingar ákváðum að gera. Ég
tel að sú ákvörðun sem þarna var tek-
in, í tíð Guðna Ágústssonar landbún-
aðarráðherra, hafi sýnt mikla fram-
sýni og að með þessu hafi verið reynt
að skapa ákveðna sátt um þessa at-
vinnugrein til frambúðar. Það hafa
ekki orðið miklar deilur um þá
ákvörðun í sjálfu sér.“
Kolefnisfótspor eldis grunnt
Þegar fylgst er með umræðunni í ís-
lensku samfélagi virðist sem sífellt
mikilvægara sé að taka til skoðunar
kolefnisfótspor þeirrar fæðu sem við
neytum, þ.e. hversu miklu kolefni er
blásið út í andrúmsloftið við fram-
leiðslu hennar og flutning.
„Á það hefur verið ítrekað bent að
heimurinn standi frammi fyrir tveim-
ur risavöxnum áskorunum. Það er
annars vegar hvernig við getum sinnt
vaxandi fæðuþörf með sífellt meiri
fólksfjölgun og aukinni velmegun og
hins vegar hvernig við getum á sama
tíma tryggt að við minnkum kolefn-
isútblástur, sem margir telja að sé
brýnasti vandinn sem leysa þarf nú á
dögum,“ segir Einar.
„Í því sambandi er mikilvægt að
undirstrika það að fiskeldi er um-
hverfisvæn atvinnugrein sem getur í
krafti sinnar sérstöðu lagt mikið af
mörkum til að uppfylla fæðuþörf
mannkynsins. Landssamband fiskeld-
isstöðva ákvað að fá færustu sérfræð-
inga til að reikna út hvert væri raun-
verulegt kolefnisfótspor laxeldis í
sjókvíum hér við land. Niðurstaðan
var sú að það er afar grunnt, grynnra
heldur en í flestri annarri mat-
vælaframleiðslu og laxeldið hefur því
að þessu leyti mjög góða sögu að
segja.“
Bendir hann á að athyglisvert sé að
kolefnisfótspor fiskeldisins hér á landi
skýrist að langmestu leyti af fóður-
framleiðslunni, sem laxeldisfyr-
irtækin sjálf geti litlu um ráðið. „En
með aukinni fiskeldisframleiðslu inn-
anlands opnast auðvitað möguleikar á
því að hefja fóðurframleiðslu hér á
landi í nágrenni við fiskeldið fyrir
austan og vestan. Það er auðvitað svo-
lítið sérkennilegt að hugsa til þess að
á Íslandi er framleitt í dag fiskimjöl
og lýsi, sem selt er svo til Noregs þar
sem því er breytt í fóður fyrir fiskeldi,
áður en það er svo flutt að einhverju
marki aftur til Íslands,“ segir hann..
„Það mun auðvitað draga enn úr
þessu fótspori, jafnframt því að mikil
framþróun á sér stað í fóður-
framleiðslunni. Við höfum líka lýst
vilja til þess að kolefnisjafna að fullu
okkar starfsemi og erum byrjuð að
skoða þann kost af fullri alvöru, hvort
sem er með skógrækt eða landbótum
að öðru leyti, sem við myndum vinna
með viðurkenndum aðilum.“
Þrjár sviðsmyndir framtíðar
Einar segir að áhugavert sé að velta
fyrir sér stöðu fiskeldis á Íslandi í
hinu stóra samhengi. Nærtækast sé
að átta sig á umfangi og möguleikum
fiskeldisins með því að bera það sam-
an við sjávarútveginn, eina helstu
grundvallarstoð útflutnings og efna-
hagslífs Íslendinga.
„Við sjáum á tölum sem við höfum
frá síðasta ári að verðmæti eldisafurð-
anna alls nam um þrettán milljörðum
króna, sem er álíka og útflutnings-
verðmæti makríls á sama tíma. Fisk-
eldið fer hins vegar vaxandi og fram-
undan er hægur en öruggur vöxtur,“
segir hann og bendir á þrjár áhuga-
verðar sviðsmyndir til að skoða vöxt
greinarinnar í samhengi við sjávar-
útveg í framtíðinni.
„Í þeirri fyrstu skoðuðum við hvert
gæti verið útflutningsverðmæti þess
laxeldis sem þegar hafa fengist leyfi
fyrir. Við erum ekki komin í þá fram-
leiðslu strax en þau leyfi liggja fyrir.
Þegar við verðum farin að fullnýta
þau gæti útflutningsverðmætið legið
á bilinu 30 til 35 milljarðar króna. Til
að skilja þetta aðeins betur þá er það
svipuð tala og svarar til útflutnings-
verðmæti loðnu og makríls á síðasta
ári. Þess ber þó að geta að útflutn-
ingur loðnu var fremur lítill og við vit-
um að hann getur verið sveiflu-
kenndur í uppsjávarveiðunum. Engu
að síður gefur þetta til kynna það um-
fang sem við gætum verið að sjá inn-
an ekki svo langs tíma,“ segir Einar.
90 til 100 milljarðar króna
„Ef við skoðum síðan það magn sem
Hafrannsóknastofnun taldi, með
áhættumati sínu árið 2017, að óhætt
væri að ala af frjóum laxi í sjókvíum
án þess að það hefði neikvæð áhrif á
umhverfið, þá væri útflutnings-
verðmæti þess á bilinu 45 til 50 millj-
arðar króna. Það er nálægt heildar-
útflutningsverðmæti alls
uppsjávarfisksins okkar, það er að
segja loðnu, síldar, makríls og kol-
munna samanlagt,“ bætir hann við og
vísar loks til þriðju sviðsmyndarinnar.
„Ef við fyndum leiðir til að fara
með framleiðsluna upp í burðarþols-
matið, þ.e. það sem lífríki fjarðanna,
þar sem á annað borð er heimilt að ala
fisk, þyldi, þá væri útflutnings-
verðmætið á bilinu 90 til 100 millj-
arðar króna. Er það þá farið að slaga
upp í útflutningsverðmæti þorskafl-
ans á síðasta ári. Að mínu mati gefur
þetta til kynna annars vegar það
hversu mikið fiskeldið er að fara að
telja á allra næstu árum, og hins veg-
ar sýnir þetta þau tækifæri sem fisk-
eldið felur í sér.“
Fiskeldi svar við risavöxnum áskorunum
Útflutningsverðmæti
fiskeldis á ársgrundvelli
hér á landi gæti komið
til með að slaga hátt
upp í útflutningsverð-
mæti þorskaflans, þegar
okkur tekst að nýta
burðarþol fjarðanna
samkvæmt fyrirliggjandi
burðarþolsmati Haf-
rannsóknastofnunar.
Morgunblaðið/Hari
Mikilvægt er að undirstrika það að fiskeldi er umhverfisvæn atvinnugrein sem getur í krafti sinnar sérstöðu lagt mikið af mörkum til að uppfylla fæðuþörf mannkynsins.
Einar segir að nærtækast sé að átta sig á umfangi og möguleikum fiskeldisins með því að bera það saman við sjávarútveginn.
Fiskeldisfyrirtæki sem fram til
þessa hafa tilheyrt Lands-
sambandi fiskeldisstöðva ákváðu
í lok síðasta árs að ganga sameig-
inlega til liðs við Samtök fyr-
irtækja í sjávarútvegi. Var ákvörð-
un þessi samþykkt á
auka-aðalfundi sambandsins 14.
desember en jafnframt var ákveð-
ið að leggja niður daglega starf-
semi þess. Verður henni fram-
vegis sinnt af SFS.
Gengið til
liðs við SFS