Morgunblaðið - 16.04.2019, Síða 6
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
V
ið erum nokkurn veginn á
áætlun. Einhverjar tafir
urðu þó vegna veðurs í
vetur en heilt yfir hefur
þetta gengið vel,“ segir
Gestur Geirsson. Verklok eru áætl-
uð í lok þessa árs og mun vinnsla
hefjast í húsinu í janúar á næsta ári,
gangi allt að óskum.
„Þetta verður heljarinnar breyt-
ing fyrir starfsemina á Dalvík. Við
erum núna með starfsemina í húsi
sem að stofni til er gamalt sláturhús,
margbætt, á mörgum hæðum, og allt
of lítið fyrir það umfang sem starf-
semin hefur um þessar stundir. Það
verður því gríðarlegur munur fyrir
starfsfólkið þegar allt verður komið
á eitt gólf, allt á sömu hæðinni.“
Innlend tæknifyrirtæki
Í húsinu verður öll sú nýjasta tækni
sem kostur er á að sögn Gests.
Megnið af vinnslubúnaði í nýja húsið
kemur frá Völku, svo sem snyrtilín-
ur, skurðarvélar og afurðadreifing,
en meðal annarra birgja eru Vélfag í
Ólafsfirði með flökunarvélar, Skag-
inn 3X með búnað í móttöku og Mar-
el með flokkara, framleiðslu-
hugbúnað og fleira.
„Að langmestu leyti eru þetta inn-
lend tæknifyrirtæki, og það er mjög
ánægjulegt að geta skipt við þau og
styrkja þannig íslenska hugvitið.
Stærsti birgirinn er Valka, sem við
höfum átt mjög gott samstarf við,“
segir hann og bendir á að breyt-
ingum og endurnýjun frystihúss
ÚA, dótturfélags Samherja, sé til-
tölulega nýlokið á Akureyri.
„Þær hófust árið 2015 og þeim
lauk svo í fyrra. Þar er í raun lagður
grunnurinn að þeirri tækni sem við
ætlum að nýta í frystihúsinu á Dal-
vík, og það höfum við gert að uppi-
stöðu til í samstarfi við Völku. Þetta
er hins vegar mun stærra, eða um
helmingi meiri framkvæmd en þar
var á ferðinni,“ segir Gestur.
Mikil endurnýjunarþörf
„Það verða margar nýjungar í hús-
inu og sumt sem aldrei hefur verið
gert áður. Við erum að fara í þessa
afurðaflokkun og beinskurð með
röntgenvélum, eins og hefur verið í
þróun. Svo erum við að hugsa um
nýjungar í afurðaflokkun á full-
unnum vörum, þar sem verða alveg
nýir hlutir í gangi.“
Hann segir að mikil endurnýj-
unarþörf hafi skapast undanfarin ár.
„Það er löngu kominn tími til að
byggja nýtt hús á Dalvík. Það er
langt síðan starfsemin sprengdi utan
af sér og í raun er það þrekvirki
hvað fólk hefur náð að gera góða
hluti í svona gömlu húsi.“
Með nýja húsinu færist starfsemi
Samherja einnig úr stað, eða niður á
sjálft hafnarsvæðið. „Því fylgir bylt-
ing þar sem nú getum við landað
beint af bryggjunni og inn í hús. Það
munar töluvert um það, bæði hvað
varðar gæði og einnig hagræði – að
þurfa ekki að keyra allan aflann til
og frá. Einnig hefur verið lagt upp
með það að öllum þáttum í hverju
rými fyrir sig væri hægt að stýra
með tilliti til þess að hámarka gæði
hráefnisins.“
„Verður heljarinnar breyting“
Um tíu mánuðir eru liðnir síðan tekin var skóflustunga að nýju frystihúsi Samherja á Dalvík. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri
landvinnslu hjá Samherja, segir í samtali við 200 mílur að verkið hafi unnist ágætlega. Landað á bryggjunni og aflinn beint í húsið.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Áformað er að vinnsla hefjist í húsinu í janúar á næsta ári. Megnið af vinnslubúnaði kemur frá Völku, en einnig kemur búnaður frá Vélfagi í Ólafsfirði, Skaganum 3X og frá Marel koma meðal annars flokkarar.
Útveggir byggingarinnar hafa verið reistir og heildarmyndin liggur fyrir. Mikið er þó ógert því húsið er feiknastórt. Gestur Geirsson, landvinnslustjóri Samherja.
6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019
Til sölu úr þrotabúi T1978
ehf. (áður Toppfiskur ehf)
Óskað er eftir tilboðum í allar eigur T1978 ehf., að Fiskislóð 65
Reykjavík og Bakkafirði.
Um er að ræða lausafé til fiskvinnslu eins og færibönd, snyrtilínur,
bitaskurðvélar, flæðivogir, lausfrysta, ísvélar, kælipressur, kara-
hvolfara, aðgerðarlínur, þvottakör, krapavél, marningsvél
og fleira. Einnig er til sölu skrifstofu-og kaffiaðstöðubúnaður.
Lausafé á Fiskislóð verður til sýnis þriðjudaginn 23. apríl nk.
kl. 10:00-12:00. Óskað er eftir tilboðum í allan reksturinn saman,
eða einstaka hluti. Tilboðsskilmálar liggja frammi við sýningu.
Eignir og lausafé á Bakkafirði er sýnt skv. samkomulagi.
f.h. þb. T1978 ehf.
Gizur Bergsteinsson, lögmaður.
gizur@lagastod.is
Til hagsbóta fyrir samfélagið í heild
Í húsinu felst fimm milljarða fjárfesting þegar allt er talið; hús og tæki.
Fram kom í ræðu Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, við
undirritun lóðaleigusamnings við bæjarfélagið í maí á síðasta ári, að með
samningnum væri tekið stórt skref í átt að nýrri og fullkomnari vinnslu á
Dalvík.
Dalvíkurbyggð hefði þá í nokkurn tíma unnið að hugmyndum að end-
urbótum á hafnarsvæðinu, meðal annars til að mæta mikilli fjölgun ferða-
manna og tengdri starfsemi. Með því að flytja starfsemi Samherja á hafn-
arsvæðið skapist möguleikar fyrir bæjarfélagið til að skipuleggja svæðið
allt með öðrum hætti, til hagsbóta fyrir samfélagið í heild.