Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.04.2019, Blaðsíða 8
ekki lengi að nota tækifærið til að stofna til nýrra viðskiptasambanda þegar ný borg bættist við leiðakerfið. En nú er WOW air horfið af svið- inu, eftir að hafa þegar á síðasta ári byrjað að draga seglin töluvert sam- an. Tengingum Íslands við umheim- inn hefur fækkað og ekki hægt að koma eins miklu magni af ferskum fiski beinustu leið í hendur kaupenda erlendis. Markaðsgreinendur hafa bent á að þetta bitni einkum á fyr- irtækjum sem selja ferskar sjávaraf- urðir til Bandaríkjanna, enda eru þau meira háð flutningum með flugi en þeir sem selja kældan fisk til Evr- ópu. Sindri Már Atlason, sölustjóri ferskra afðurða hjá HB Granda, tek- ur undir þetta: „Bandaríkjamark- aður er drifinn áfram af flutningum með flugi og er það forsenda þess að ferskar sjávarafurðir geti haldið áfram að vaxa á þeim markaði að út- flytjendur geti gengið að nægri flutn- ingsgetu hjá flugfélögunum,“ segir hann og bendir á að árið 2018 hafi orðið aukning í sölu íslenskra fyr- irtækja á ferskum fiski vestanhafs. Að mati Sindra þýðir gjaldþrot WOW þó ekki að komið sé upp alvar- legt vandamál fyrir sjávarútveginn til lengri tíma, þó að missir sé að flugfélaginu. „Vissulega dregur eitt- hvað úr framboði á flutningsrými með flugvélum á leið til Bandaríkj- anna, og mikilvægt fyrir seljendur að geta afhent sínar vörur hratt og hnökralaust. En ef ekki er hægt að senda fiskinn með beinu flugi til borgar A má í staðinn fljúga með fiskinn til borgar B og svo koma hon- um þaðan á áfangastað með tengi- flugi eða með flutningabíl,“ segir Sindri. „Vissulega er beint flug ákjósanlegra, en þetta er leið fyrir seljendur til að bjarga sér og leysa úr því sem vonandi verður bara skamm- tímavandamál.“ Ekkert má klikka Heiða Kristín Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri Niceland Seafood, hef- ur svipaða sögu að segja. „Við höfum náð að finna hentugar dreifileiðir fyr- ir alla okkar núverandi viðskiptavini, en við erum að stækka nokkuð hratt Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is G aman var að fylgjast með því undanfarin ár hvernig íslensku flugfélögin juku umsvif sín jafnt og þétt. Bæði fylgdu hverjum nýj- um áfangastað fleiri ferðamenn og líka nýir viskiptamöguleikar og voru seljendur íslenskra sjávarafurða þannig að vinnan við að tryggja flutningspláss er eitt af okkar dag- legu verkefnum,“ segir hún og bend- ir á að þegar verið sé að senda fersk- an fisk úr landi megi ekkert klikka. „Við leggjum mikla áherslu á að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu og er afhendingaröryggið hluti af því.“ Niceland er ungt fyrirtæki með gamla kennitölu, en félagið byggir á rekstri Viking Fresh sem flutt hefur út ferskan fisk í marga áratugi. Var mikil vinna lögð í að þróa Niceland- vörumerkið og hampa þannig gæð- um og uppruna vörunnar, og eru t.d. allar pakkningar merktar með kóða sem neytendur geta skannað og fengið upplýsingar um hvernig fisk- urinn var veiddur með sjálfbærum hætti og hvernig hann ferðaðist frá sjómanni til verslunar. Hefur Niceland m.a. náð ágætri útbreiðslu á Denver-svæðinu, í Chi- cago-borg og Minneappolis. Fyrir- hugað er að fjölga sölustöðum í mið- ríkjum Bandaríkjanna á næstu vikum og mánuðum, einkum í Texas og Flórída. „Við vinnum mikla mark- aðsvinnu í samvinnu við viðskiptavini okkar á hverjum stað og nýtum okk- ur m.a. samfélagsmiðla til að finna þann hóp viðskiptavina sem við telj- um að geti haft áhuga á Niceland- sjávarafurðum, auk þess sem við vöndum valið á verslanakeðjum og veitingahúsum þar sem okkar vöru- merki á vel heima,“ útskýrir Heiða Kristín. Henni þykir eftirsjá að flugteng- ingum WOW til Bandaríkjanna en þar sem beinna tenginga nýtur ekki við fari Niceland-fiskurinn með tengiflugi ýmist í gegnum evrópska eða bandaríska flugvelli. „Það væri gaman að sjá önnur flugfélög taka við keflinu og tengja Ísland t.d. við Miami-flugvöll allt árið, en hann er mjög hentugur fyrir dreifingu á vörum vítt og breitt um Bandaríkin,“ segir hún og bætir við að beinar tengingar séu alltaf ákjósanlegastar, bæði svo að varan hafi sem lengstan endingartíma þegar hún er komin í hillur verslana og eins til að lág- marka sótsporið af flutningunum. „Það eykur líka alltaf flækjustigið ef fiskurinn þarf að hafa viðkomu á fleiri stöðum á leið sinni til kúnnans.“ Með meiri áhyggjur af orðspori en flutningum Spurð að hvaða marki stækkun leiða- kerfa flugfélaganna hafi stýrt útrás fyrirtækja eins og Niceland segir Heiða Kristín að erfitt sé að segja hvort hafi komið á undan, hænan eða eggið. „Við fórum meðal annars inn á Denver því þar var meira flutnings- pláss í boði, en mestu skiptir samt að byggja upp markaði sem vit er í að sækja inn á – sem í okkar tilfelli snýst um að einblína á stærstu borg- irnar og byggðina á vestur- og aust- urströndinni. Markaðurinn leiðir ákvarðanirnar, frekar en flutnings- leiðirnar og eru Bandaríkjamenn öllu vanir þegar kemur að því að skipu- leggja vöruflutninga og senda t.d. ferskan fisk með trukk yfir vega- lengdir sem okkur gætu þótt allt of langar við fyrstu sýn.“ Segir Heiða Kristín að hún óttist ímyndartjón vegna hvalveiða miklu meira en röskun á flugi. „Það má allt- af leysa úr óstöðugleika í flutnings- leiðum, en sama er ekki hægt að segja um orðspor Íslands og vöru- merkisins okkar. Þar tel ég yfirvof- andi áframhald hvalveiða vera óá- sættanlegan áhættuþátt fyrir íslenskan sjávarútveg.“ Morgunblaðið/Eggert Verður vonandi bara skammtímavandamál Sala á ferskum íslenskum sjávarafurðum til Banda- ríkjanna er háð flutningum með flugi. Með gjald- þroti WOW kom babb í bátinn og gæti fiskurinn þurft að fara lengri leið á markað vestanhafs. Viðskiptavinur skannar kóða á fiski Niceland Seafood til að sjá hvar fiskurinn var veiddur og hvernig hann barst í búðina. Sindri Már Atlason Heiða Kristín Helgadóttir Starfsmaður á Keflavíkurflugvelli önnum kafinn við að raða fiski upp í vél með félögum sínum. Ferskur fiskur sem seldur er til Bandaríkjanna verður að fara með flugi. 8 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 2019 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.