Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Hér hafa
orðið
mistök við
skipan
nefndarinn-
ar sem
hljóta að
verða
leiðrétt sem
fyrst.
Flest fram-
faraskref
íslensks
samfélags
hafa sprott-
ið upp úr
þeirri
einföldu
formúlu að
treysta
einstakl-
ingnum með
frjálslynd-
um ákvörð-
unum.
Í dag eru 1096 dagar síðan stjórnmálaaflið Viðreisn var stofnað. Þriggja ára afmæli er því staðreynd. Í stóra samhenginu er þetta ekki langur tími en
áskoranirnar hafa verið margar. Við höfum upplifað
þrennar kosningar og uppskorið mikilvægt lærdóms-
ferli. Viðreisn hefur sett ákveðin málefni á dagskrá og
fylgt þeim eftir. Við höfum haft kjark til að gagnrýna
á málefnalegan hátt og bent í leiðinni á raunhæfar
lausnir. Við höfum lagt fram ótal mál bæði á þingi og
í sveitarstjórnum víða um landið sem eru í samræmi
við þau gildi sem Viðreisn stendur fyrir. Við erum
ábyrg en á sama tíma kjörkuð. Raunsæ en á sama tíma
framsækin. Við höfum með virkum hætti talað fyrir
mikilvægi þess að Ísland sé þjóð á meðal þjóða með
öflugu alþjóðasamstarfi. Því þær ákvarðanir sem
við stöndum frammi fyrir nú, sérstaklega á tímum
óvissu og uppgangs popúlistaflokka, eiga sér engin
landamæri. Hvort sem litið er til mannréttinda-
mála, loftslagsmála eða mikilvægi þess að viðhalda
áframhaldandi friði, stöðugleika og áframhaldandi
lífsgæðum í Evrópu. Ekkert af þessu er sjálfgefið en
þar mun Viðreisn áfram standa vaktina.
Viðreisn hefur stimplað sig inn sem ungt og
þróttmikið stjórnmálaafl, sem spratt upp úr kröfu
nútímans um frjálst, opið og gróskumikið sam-
félag sem setur almannahagsmuni, atvinnulífið,
jafnrétti og mennskuna í forgrunn. Viðreisn hefur
einnig stimplað sig inn á stjórnmálasviðið sem eini
f lokkurinn sem raunverulega stendur vörð um frjáls-
lynd gildi, þegar á reynir. Flest framfaraskref íslensks
samfélags hafa sprottið upp úr þeirri einföldu formúlu
að treysta einstaklingnum með frjálslyndum ákvörð-
unum, samhliða trú á opið samfélag, með virku
alþjóðasamstarfi. Blanda sem opnað hefur á tækifæri
sem kynslóðirnar á undan okkur óraði ekki fyrir.
Það eru forréttindi að vera formaður í f lokki sem
hefur femínísk, frjálslynd og umhverfissinnuð gildi
að leiðarljósi í öllum ákvarðanatökum. Frá stofnun
Viðreisnar hafa margar hugmyndir kviknað og enn
fleiri orðið að veruleika, við lofum ekki upp í ermina á
okkur og látum verkin tala. Því getið þið treyst.
1096 dagar
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
Seðlabanki Íslands er ein mikilvægasta og valda-mesta stofnun landsins. Næsti seðlabanka-stjóri, sem verður skipaður síðar á þessu ári, mun meðal annars fá það krefjandi verkefni að leiða sameiningu Seðlabankans og Fjármála-
eftirlitsins þannig að til verður ein öflug þrjú hundruð
manna stofnun með heildarsýn á hagkerfið. Sextán
manns sækjast eftir starfinu og fyrr í þessum mánuði
tilkynnti forsætisráðuneytið um skipan þriggja manna
hæfisnefndar sem hefur það hlutverk að meta hæfi
umsækjenda. Þótt hæfismatið sé aðeins leiðbeinandi
en ekki ráðgefandi má öllum vera ljóst að forsætisráð-
herra, sem hefur skipunarvaldið, verður ekki stætt á að
skipa aðra umsækjendur í embættið en þá sem nefndin
mun meta hæfasta. Hæfisnefndin hefur því í reynd ríka
aðkomu að vali á næsta seðlabankastjóra landsins. Um
þetta er engin ástæða til að deila.
Nú háttar svo til að formaður hæfisnefndarinnar,
Sigríður Benediktsdóttir, er jafnframt bankaráðsmað-
ur í Landsbankanum. Tveir umsækjendur um embætti
seðlabankastjóra, eins og greint var frá í Fréttablaðinu í
vikunni, hafa séð ástæðu til að kvarta yfir meintu van-
hæfi Sigríðar vegna setu í bankaráðinu á sama tíma og
hún leiðir nefndina. Enginn efast almennt um hæfi Sig-
ríðar, sem er hagfræðingur við Yale-háskóla og starfaði
um nokkurra ára skeið sem framkvæmdastjóri í Seðla-
bankanum. Um það snýst hins vegar ekki málið. Lands-
bankinn er stærsti viðskiptavinur Seðlabankans og á
því verulegra hagsmuna að gæta sem snýr að ýmsum
ákvörðunum bankans. Það hlýtur því að skjóta skökku
við að bankaráðsmaður hjá Landsbankanum, sem er
hlutafélag með sjálfstæða stjórn og í samkeppni við
aðrar fjármálastofnanir, hafi umtalsverða aðkomu að
því að ákveða hver verði næsti seðlabankastjóri.
Við sameiningu Seðlabankans og FME, sem ætti
að óbreyttu að verða að veruleika um næstkomandi
áramót, verður það seðlabankastjóri sem mun bera
æðstu ábyrgð á eftirliti með starfsemi allra fjármála-
fyrirtækja landsins. Með öðrum orðum er sú staða því
núna uppi að bankaráðsmaður í Landsbankanum mun
ákveða hverjir komi til greina til að hafa eftirlit með
bankanum. Þetta gengur augljóslega ekki upp. Sigríður
hefur meðal annars vísað til þess að hún hafi fengið
„grænt ljós“ frá bankastjóra Landsbankans áður en hún
tók að sér nefndarstarfið. Hér hlýtur að gæta einhvers
misskilnings enda getur sú skýring tæpast staðist.
Bankastjórinn hefur ekkert boðvald yfir bankaráðs-
mönnum Landsbankans. Það er hann sem heyrir undir
bankaráðið en ekki öfugt. Staðfest er að Sigríður ráð-
færði sig ekki við formann bankaráðsins áður en hún
samþykkti að taka við formennsku hæfisnefndarinnar
enda þótt slíkt sé ávallt gert í málum af þessu tagi.
Hér hafa orðið mistök við skipan nefndarinnar,
bæði af hálfu forsætisráðuneytisins og eins Sigríðar
þegar hún samþykkti að taka að sér starfið, sem hljóta
að verða leiðrétt sem fyrst. Ákveði formaður hæfis-
nefndarinnar ekki sjálfur að eiga frumkvæðið og stíga
til hliðar hlýtur forsætisráðherra að taka af skarið.
Það blasir við öllum að óbreytt staða er ekki í boði sé á
annað borð áhugi á því að vanda til verka við val á yfir-
manni einnar mikilvægustu stofnunar landsins.
Mistök
Kjarni málsins
Klaustursmálið ætlar engan
enda að taka. Vandinn er sá að
margir eru strax byrjaðir að
gleyma hvað málið snerist um.
Drykkja á vinnutíma, tal um
sendiherrakapal og ósíaðar
skoðanir um hinn og þennan.
Harðasta talið beindist þó
að konum, voru þær meðal
annars kallaðar „apakettir“
og „kuntur“. Að ógleymdum
öllum vandræðaganginum
um hver man hvað, hver sagði
minna en hinn og hverjir aðrir
gætu hafa verið á Klaustri
kvöldið örlagaríka. Þegar
þetta er haft í huga er ansi hjá-
kátlegt að velta upp hvað Per-
sónuvernd eða öðrum aðilum
finnst um málið.
Hver lak?
Samsæriskenningarnar sem
fylgdu í kjölfarið eru ekki
minna ævintýri en sögurnar
sem sagðar voru á Klaustri.
Vekur það óneitanlega
spurningar, ef Bára Halldórs-
dóttir var ekki stödd á Klaustri
fyrir tilviljun þá hlýtur ein-
hver utanaðkomandi að hafa
vitað af fundinum. Eða þá að
einn Klaustursþingmannanna
hafi lekið tímasetningunni
og staðsetningunni til þess
sem átti að hafa sent Báru. Það
kemur kannski í ljós eftir að
siðanefnd þingsins, sem á fáa
ef einhverja vini þessa dagana,
lýkur umfjöllun sinni um
málið. arib@frettabladid.is
Gæði og glæsileiki
endalaust úrval af hágæða flísumFlísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Gæði og glæs
ileiki endalaust
úrval af hágæ
ða flísum
Finndu okkur
á facebook
2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
1
2
-7
8
F
4
2
3
1
2
-7
7
B
8
2
3
1
2
-7
6
7
C
2
3
1
2
-7
5
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K