Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 32
Kakó hefur verið þekkt í aldaraðir fyrir að hafa hjartaopnandi áhrif,“ segir Styrmir en kakó er upprunalega frá Suður-Ameríku og var lengi vel hátíðardrykkur þar áður en Spán- verjar uppgötvuðu heimsálfuna. Þá var kakó notað í athöfnum Mayanna og á mörgum stöðum í Suður-Ameríku var því trúað að drykkurinn væri bæði heilsustyrkj- andi og ástarseyði. „Það er eitthvað í kakóinu sem er ávanabindandi, einhver tilfinning sem það vekur.“ Sæluhormón og ástarhormón í súkkulaði Styrmir segir að fjöldaframleitt súkkulaði í dag hafi ekki jafn góð áhrif og hreint, handunnið kakó, þar sem mikið af næringarefnum skolast í burtu við framleiðsluna. Hreint kakó inniheldur PEA-hormó- na sem virkja miðtaugakerfið. Þetta eru efni sem heilinn framleiðir þegar við erum ástfangin. Það er líka anandamide í kakói, sem er sæluhormón. Þar að auki inniheldur kakóið magnesíum sem hjálpar til við að slaka á þreyttum vöðvum og róa hugann, seratónín sem minnkar streitu og eykur vellíðan, þeóbrómín sem styrkir ónæmiskerfið og eykur blóðflæði til hjartans, og svo fullt af andoxunarefnum. Andreas Rusnes og Júlía Óttars- dóttir byrjuðu fyrst að halda kakóathafnir hér á Íslandi fyrir nokkrum árum og síðan þá hafa þær orðið æ vinsælli. Í dag heldur Júlía uppi síðunni Cacotribeiceland.is og heldur kakóathafnir. Einnig heldur til dæmis Andagift Súkkulaðisetur slíkar athafnir og er með hreint kakó til sölu. „Kakóið sem er notað í athöfn- unum er 100% hreint og hand unnið frá baun í bolla, sem gerir það að verkum að eiginleikar þess og næringarinnihald helst óskert við framleiðslu,“ segir Styrmir. Styrmir og vinur hans Þorsteinn Faxi Halldórsson halda reglulega kakó-jóganámskeið, Styrmir heldur námskeiðið „The Cacao People“ eða Kakófólkið, og Þorsteinn er með hópinn „Chocolate Lightning“ sem sagt Súkkulaðieldingin. Opnar hjartað „Við byrjum athafnir á því að biðja fólk um að beina ást á sjálft sig, og þaðan skjóta henni og dreifa henni í kringum sig. Það er í raun ekki hægt að elska nema þú sért með sjálfsást til að byrja með. Síðan er hver og einn með einhvers konar ásetning, sem er í raun eins og bæn. Þá biður hver og einn fyrir einhver- ju, til dæmis um að komast lengra í lífinu með kakóinu, opna hjartað meira, finna meiri ró, eða fá svar við einhverri stöðu í lífinu. Með því að setja ásetja sér að finna lausnina eða ná einhverju markmiði, þá fáum við svör – ef við hlustum nógu vel.“ Orka verður til Það er oft mikil orka sem verður til á kakóathöfnum samkvæmt reynslu Styrmis, sérstaklega þegar margir koma saman og dansa og syngja af miklum krafti. „Það verður til svo mikil orka á svæðinu og það hefur komið fyrir, þegar fólk drekkur kakó í fyrsta skiptið, að það fer bara að hágráta. Þá er það kannski bara einhver tilfinning að losna sem er ekki búið að hleypa út í einhver ár.“ Styrmir segir að hann taki eftir jákvæðum breytingum hjá sjálfum sér frá því hann fór að stunda kakó- athafnir fyrir nokkrum árum. „Ég er farinn að geta elskað skilyrðis- laust. Hjartað mitt er opnara, ég læt hausinn og aðstæður sem ég bý til í huganum ekki stöðva mig, og ég tek fólki eins og það er og ég get sett mig betur í spor annarra.“ Kakójóga að verða vinsælla Hefur kakó merkilegri tilgang en að ylja manni á kaldasta tíma ársins? Samkvæmt Styrmi Joshua gæti það vel verið, sjálfur hefur hann stundað kakódrykkju til að rækta andlega heilsu. Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Styrmir segir að hreint kakó opni hjartað fyrir ást, vellíðan og innri friðsæld. Það hefur komið fyrir, þegar fólk drekkur kakó í fyrsta skiptið, að það fer bara að hágráta. Nýtt frá Weber Weber Pulse 2000 rafmagnsgrill • Innbyggð iGrill tækni • Weber iGrill app • Stafrænn hitamælir • Hrein orka weber.is Fullkomið á svalirnar 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R 2 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 1 2 -9 6 9 4 2 3 1 2 -9 5 5 8 2 3 1 2 -9 4 1 C 2 3 1 2 -9 2 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.