Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 30
Hlauparar:
Arnar Pétursson
og Hulda Guðný
Kjartansdóttir.
Mikið úrval af
hlaupa- og
sportgleraugum
12 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RÚT AÐ HLAUPA
Kostir þess að stunda hlaup eru gríðarmargir. Hlaup geta bætt heilsu fólks til muna,
bæði líkamlega og andlega. Hlaup
minnka streitu, bæta blóðþrýsting
og styrkja hjartað. Við hlaup
fara vellíðunarboðefni líkamans
af stað og það hefur sýnt sig að
regluleg hlaup geta dregið verulega
úr einkennum þunglyndis. Sumir
vísindamenn hafa gengið svo langt
að segja að hlaup séu svo góð fyrir
mannskepnuna að líkaminn sé
sérstaklega búinn til fyrir þau.
Líkaminn er byggður upp til að
þola mikil og löng hlaup. Lögun
mjaðma og fóta, lengd fótleggja,
höggþolið brjóskið milli hryggjar-
liðanna og möguleiki okkar til að
svitna gerir okkur kleift að hlaupa
fleiri kílómetra.
Það getur verið erfitt að venjast
hlaupum fyrir þá sem ekki hafa
hlaupið lengi. En þegar líkaminn
og hugurinn aðlagast hlaupunum
veita þau vellíðan og geta jafn-
vel virkað sem hugleiðsla fyrir
hlauparann.
Líkaminn gerður til að hlaupa
Hlaup geta bætt líkamlega og andlega heilsu manna. NORDICPHOTOS/GETTY
Arnar er einn af bestu langhlaup-
urum landsins og stefnir að því að
ná ólympíulágmarki í maraþoni
fyrir Ólympíuleikana í Tókýó 2020.
Arnar Pétursson
langhlaupari
Hvernig tónlist finnst þér best að
hlusta á þegar þú ert úti að hlaupa?
Ég er mikil alæta á tónlist en vinn
bara með sama lagalistann á öllum
mínum hlaupum. Þannig að ég
set bara lög á þennan lista sem ég
hlustað aftur og aftur á. Þetta eru
oftar en ekki lög í rólegri kantinum
eins og James Blunt og Enya, en inn
á milli eru hressari lög með Doctor
Victor og Kanye West til dæmis.
Eru einhver ákveðin lög sem
koma þér sérstaklega í gírinn?
Black Skinhead með Kanye
West og Runaway með Galantis
eru lög sem munu klárlega fá þig
til að hreyfast aðeins hraðar. Svo
er kenískt lag sem heitir Sura Yako
með Sauti Sol mjög gott.
Finnst þér tónlistin mikilvæg á
meðan þú æfir?
Tónlist eða góð hljóðbók getur
gert helling fyrir þig á æfingum og
rannsóknir hafa sýnt að tónlist geti
til að mynda hækkað sársauka-
þröskuldinn okkar. Mér finnst best
að hlusta á tónlist í rólegu æfing-
unum og svo hlusta ég á líkamann í
erfiðu gæðaæfingunum.
Gréta Rut Bjarnadóttir
utanvegahlaupari
Hvernig tónlist finnst þér best að
hlusta á þegar þú ert úti að hlaupa?
Þegar ég er á gæðaæfingum
ásamt fleiri hlaupurum með
þjálfara þá finnst mér ekki gott að
hlusta á tónlist því ég er að einbeita
mér rosalega að hlaupastílnum
og önduninni. Þegar ég tek svo
mín einstaklingshlaup þá nota ég
Spotify en ég hef sett saman nokkra
góða lagalista þar. Ég hlusta á ótrú-
lega mismunandi tónlist, það getur
verið allt frá alvöru rokki og yfir
í nútíma popptónlist en þegar ég
þarf að gíra mig upp hlusta ég oftast
á góð teknó remix.
Eru einhver ákveðin lög sem
koma þér sérstaklega í gírinn?
Fuego með Alok og Bashkar, Slow
Acid með Calvin Harris og Hatrið
mun sigra með Hatara. Þessi lög
hafa verið að koma mér í gírinn að
undanförnu.
Finnst þér tónlistin mikilvæg á
meðan þú æfir?
Á lengri og rólegri hlaupum
finnst mér mjög gott að hlusta á
góða tónlist með góðum takti. Ég
tel að góður taktur geti gefið manni
eitthvað extra inn í hlaupið.
Spurt og svarað
Uppáhalds-
tónlist
hlauparans
Gréta ætlar að hlaupa Laugavegs-
hlaupið í annað skiptið í sumar.
2
4
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
1
2
-9
B
8
4
2
3
1
2
-9
A
4
8
2
3
1
2
-9
9
0
C
2
3
1
2
-9
7
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K