Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.05.2019, Blaðsíða 4
HEILBRIGÐISMÁL Eðlilegast er að bíða með innf lutning á fersku kjöti þangað til nýr meðferðarkjarni er tilbúinn, segir Reynir Arngríms- son, formaður Læknafélags Íslands. Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíus- sonar landbúnaðarráðherra um innf lutning á fersku kjöti er nú til umfjöllunar í atvinnuveganefnd. Málið hefur mætt töluverðri andstöðu. Til að mæta áhyggjum um að hingað berist sýklalyfja- þolnar bakteríur hefur ráðherra lagt fram ýmsar mótvægisaðgerðir. Karl G. Kristinsson, prófessor og yfirlæknir við sýklafræðideild Landspítalans, hefur bent á hættur sem skapast af óheftum innf lutn- ingi á hráu kjöti til landsins. Hann telur þær mótvægisaðgerðir sem landbúnaðarráðherra ætlar að setja á laggirnar góðar. Hægt sé að sættast á frumvarpið ef mótvæg- isaðgerðum verði framfylgt. Reynir segir að stjórnin sé sam- mála umsögn Karls, vandinn sé að mótvægisaðgerðirnar þurfa að vera til staðar. „Við höfum upplýsingar um að það sé ekki búið að ganga frá þeim málum. Ef við viljum gæta full- kominnar varúðar þá þurfum við að geta brugðist við ef þessar mót- vægisaðgerðir duga ekki,“ segir Reynir. „Það hafa verið að koma upp sýkingar sem enginn átti von á. Það er ekkert langt síðan það kom upp mislingafaraldur þar sem þurfti að einangra fólk í heimahúsum.“ Aðstaðan í dag sé langt frá því að vera fullnægjandi, skortur sé á einangrunarrýmum sem setji bæði aðra sjúklinga og starfsfólk í hættu. Leggur stjórn Læknafélagsins til að beðið verði með óheftan innf lutning þar til nýr meðferðar- kjarni og bráðamóttaka verður tekin í notkun. „Það væri mjög eðlilegur tímapunktur. Það er eðli- legt að búið sé að byggja upp inn- viðina.“ Upphaf lega var stefnt að því að meðferðarkjarninn yrði tilbúinn árið 2023. Því hefur verið frestað í það minnsta til ársins 2024. – ab Þó að þetta geti komið með mörg- um leiðum til landsins þá er engin ástæða til að auka líkurnar á að svo verði. Reynir Arngrímsson, formaður Lækna- félags Íslands LEIÐRÉTTING Ranglega var sagt í Fréttablaðinu 13. maí síðastliðinn að Árni Logi Sigurbjörnsson hefði fengið dóm fyrir vopnalagabrot. Hann var sýknaður í Hæstarétti í málinu. Þá segir Árni Logi að frystikista með friðuðum fuglum sem fannst á heimili hans hafi verið í eigu tengdasonar hans. VINNUMARKAÐUR Atvinnuleysi var 4 prósent í apríl síðastliðnum. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysi um 4,6 prósent og hefur því minnk- að um rúmt hálft prósent. Samkvæmt óleiðréttum mæl- ingunum voru að jafnaði 211.500 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í apríl 2019 sem jafn- gildir um 83 prósenta atvinnuþátt- töku. Þá reyndust 203.000 af þeim vera starfandi en 8.400 án vinnu og í atvinnuleit. Frá apríl 2018 hefur fólki á vinnu- markaði fjölgað um 9.400 og starf- andi fólki fjölgað um 10.300. Þá voru um 1.000 f leiri atvinnulausir og atvinnuleysi um 4,6 prósent. – smj 4% atvinnuleysi var skráð á Ís- landi í apríl Atvinnuleysi er nú 4 prósent Atvinnuleysi í apríl er minna en í apríl í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Vöðva eða liðverkir? Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afsláttu r af 100g og 150 g Voltare n Gel www.apotekarinn.is - lægra verð Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur Voltaren_Gel 2 tupur 15% 5x10 apotekarinn.indd 1 31/10/2017 11:31 Vilja klára meðferðarkjarna áður en kjöt er flutt inn HEILBRIGÐISMÁL Tölur um skrán- ingu dauðsfalla af völdum Alz- heimer-sjúkdómsins segja ekki til um réttan fjölda þeirra sem sjúk- dómurinn dregur til dauða. Í tölum frá Landlæknisembættinu má sjá mikla aukningu á fjölda þessara einstaklinga. Árið 1996 voru þeir 12 en árið 2018 voru þeir 192. Steinunn Þórðardóttir, yfirlæknir heilabilunareiningar Landspítal- ans, segir ástæðuna fyrir auknum fjölda dauðsfalla af völdum Alz- heimer að mestu leyti vera vegna breytinga á skráningum dauðsfalla. „Menn voru á því að Alzheimer gæti ekki verið dánarorsök en þetta er búið að breytast mikið á undan- förnum árum. Það er farið að skrá Alzheimer-sjúkdóm miklu oftar á dánarvottorð sem dánarorsök.“ Jón G. Snædal, yfirlæknir í öldr- unarlækningum á Landspítala, er sammála Steinunni og segir að skráning á dauðsföllum tengdum sjúkdómnum hafi ekki hafist fyrr en upp úr árinu 1990. „Rétt um 1990, sennilega nokkru fyrr, þá var mér sagt að ég hefði skráð á dánarvottorð þann fyrsta sem hefði dáið úr Alzheimer á Íslandi,“ segir Jón. Sá einstaklingur hafi ekki verið sá fyrsti sem lést af völdum sjúkdómsins hér. Jón segir einnig að tölur Landlæknisembætt- isins sýni eingöngu fram á vankanta á skráningu á slíkum dauðsföllum. „Þessar tölur segja okkur ekkert til um það hvort f leiri séu að deyja úr Alzheimer, þær sýna okkur einungis að fólki hefur verið gefin önnur dánarorsök,“ segir Jón. „Dánarorsök margra þeirra sem deyja úr Alzheimer er skráð sem einhver fylgikvilli sjúkdómsins, til að mynda lungnabólga.“ Tölur Landlæknisembættisins sýna að með hækkun skráninga á dauðsföllum af völdum Alzheimer fækkar dauðsföllum af völdum inf lúensu og lungnabólgu á móti. Árið 1996 voru þau 153 en 90 í fyrra. Steinunn og Jón eru sammála um að fjöldi þeirra sem þjást af Alz- heimer sé að aukast en ekki til jafns við tölur Landlæknisembættisins. Ástæðuna segja þau vera hærri líf- aldur. „Fólk er að lifa lengur og þar með þjást f leiri af sjúkdómnum þar sem aldur er stærsti áhrifaþáttur- inn“ segir Steinunn. Í tölum Embættis landlæknis kemur einnig fram að mun f leiri konur látist af Alzheimer en karlar og segir Steinunn meginástæðuna vera þá að konur lifi lengur en karl- ar. Tölurnar sýna að 128 konur hafi Alzheimer sem skráða dánarorsök árið 2018 en einungis 64 karlar. Jón tekur undir orð Steinunnar en segir jafnframt að dánarorsök karla sé oftar en kvenna skráð sem hjarta- áfall. „Hjartaáföll eru tíðari hjá körl- um en konum og líklegt er að í ein- hverjum tilfellum sé einstaklingur sem deyr úr Alzheimer skráður með hjartaáfall sem dánarorsök.“ Þessi útskýring Jóns kemur heim og saman við tölur Landlæknisemb- ættisins. Þar eru hjartasjúkdómar skráðir sem dánarorsök 247 karla en 195 kvenna. Samkvæmt Steinunni og Jóni er mikilvægt að upplýsingar sem þessar séu skráðar réttilega til að einstaklingar með Alzheimer fái sem besta þjónustu. „Nágrannalönd okkar eru með góða stefnu í umönnun einstakl- inga með Alzheimer en til þess að við getum miðað okkur við þau er mikilvægt að við höfum réttar upp- lýsingar um efnið,“ segir Steinunn og bætir við að hún finni fyrir auk- inni velvild í garð málaflokksins. Þó segir Steinunn að aukið fjár- magn þurfi til að halda utan um þá gagnagrunna sem til þarf. birnadrofn@frettabladid.is Fleiri andlát tengd Alzheimer Alzheimer-sjúklingum sagt fjölga en þó ekki til jafns við tölur Landlæknisembættisins. NORDICPHOTOS/GETTY Tölur um skráningu dauðsfalla af völdum Alzheimer segja ekki réttu söguna að mati lækna. Hækkandi líf- aldur fjölgar sjúkling- um. Skrá verði rétt svo rétt umönnun sé veitt. 2 4 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 4 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 1 2 -7 D E 4 2 3 1 2 -7 C A 8 2 3 1 2 -7 B 6 C 2 3 1 2 -7 A 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.