Fréttablaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 03.06.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 2 7 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 3 . J Ú N Í 2 0 1 9 Fréttablaðið í dag SKOÐUN Guð- mundur Stein- grímsson skrifar um hættuna af glæpum. 11 SPORT Liverpool er allra liða best í Evrópu. 16 MENNING Vor í Lista- safninu á Akureyri 21 LÍFIÐ Stefán Jakobsson í Dimmu söng sig í gegnum sársaukann eftir endajaxlatöku. 26 PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK l  FASTEIGNABLAÐIÐ *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 4BLS BÆKLINGUR Í FRÉTTABLAÐINU Í DAG Reykjavík • Hallarmúla 2 | Akureyri • Undirhlíð 2 Fy ri r AF ÖLLUM PIZZUM STJÓRNSÝSLA Kvartanir nokkurra lögreglumanna undan yfirmanni sínum, Haraldi Jóhannessyni ríkis- lögreglustjóra, eru til meðferðar í dómsmálaráðuneytinu. Kvartan- irnar lúta annars vegar að fram- komu og hátterni ríkislögreglu- stjóra í garð þeirra og hins vegar að vinnuaðstæðum og heildarskipu- lagi sérsveitarinnar á landsvísu. Hjá ríkislögreglustjóra starfa r úmlega 100 lög reglumenn í nokkrum deildum; alþjóðadeild, fjarskiptadeild, greiningardeild, sérsveit og stoðdeild . Flestir þeirra, 46 menn, eru í sérsveit- inni en samkvæmt heimildum Frét t ablaðsins r ík ir óánæg ja með áherslur ríkislögreglustjóra um dreifingu sérsveitarinnar og fækkun sérsveitarmanna á lands- byggðinni.  Sérsveitarmönnum hefur fækkað mjög á Akureyri á undanförnum árum og nú er þar aðeins einn sérsveitarmaður með starfsstöð. Aðrir sérsveitarmenn eru í Reykjavík. Samkvæmt heim- ildum blaðsins lýtur óánægja þeirra sem kvartað hafa undan ríkislögreglustjóra meðal annars að því hvernig hann hafi fækkað mönnum í sérsveitinni úti á landi og aðferðum við þá fækkun. Menn hafi verið færðir  úr starfi sínu í sérsveit eða þrýst á þá að f lytja sig í aðrar deildir án þess að staða sér- sveitarmanns sé auglýst og ekkert gert til að bregðast við fækkuninni á Akureyri. Þeir sem Fréttablaðið ræddi við lýsa áhyggjum af því að viðbragðs- tími sveitarinnar lengist mjög hafi hún aðeins eina starfsstöð á landinu; í Reykjavík. Allir lögreglu- menn landsins sæki stuðning til sérsveitarinnar og treysti á hana. Þingmaðurinn Albertína Frið- björg Elíasdóttir beindi fyrirspurn til dómsmálaráðherra um mál- efni sérsveitarinnar í fyrra. Í svari ráðherra kemur fram að engin ákvörðun hafi verið tekin um að leggja niður starfsstöð sérsveit- arinnar á Akureyri. Samkvæmt reglugerð sé forræði á sérsveitinni hjá ríkislögreglustjóra og því í hans höndum að meta þörf á liðs- mönnum og dreifingu sveitarinnar á landsvísu. Ráðuneytið hefur ekki viljað veita upplýsingar um meðferð kvartana  lögreglumannanna á þeim grundvelli að ráðuneytið tjái sig ekki um mál einstaka starfs- manna. – aá Kvartanir sérsveitarmanna í skoðun Dómsmálaráðuneytið hefur til meðferðar kvartanir nokkurra lögreglumanna. Framkoma ríkislögreglustjóra helsta umkvörtunar- efnið. Einnig ágreiningur um heildarskipulag sérsveitarinnar á landsvísu. Óánægja ríkir með fækkun í sérsveit á landsbyggðinni. Það var ekkert gefið eftir í koddaslag upp á líf og dauða í Reykjavíkurhöfn á Hátíð hafsins í gær. Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land og í höfuðborgarinni var mikið um dýrðir. Áhorfendur skemmtu sér konunglega yfir góðlátlegum barsmíðum keppenda í koddaslagnum í blíðskaparveðri. Sjá f leiri myndir á síðu 24 í blaðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI KÖRFUBOLTI Íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt að hækka styrk til efnilegasta íþróttafólks Suður- nesjanna sem tekur þátt í lands- liðsverkefnum. Kostnaður leik- manna liðanna sem taka þátt í verkefnum yngri landsliðanna í körfubolta erlendis hley pur á milljónum. Formaður K K Í, Hannes S. Jónsson segir að það svíði að senda reikninga inn á heimili ungs landsliðsfólks. „Öll útgjöld heimila landsmanna sem tengjast landsliðsverkefnum finnst mér of há,“ segir Hannes. Dæmi eru um að leikmenn yngri landsliða í körfuknattleik hjá Kef lavík og Njarðvík þurfi að greiða allt að 279 þúsund krónur á mann. – bbh / sjá síðu 17 Yngri landsliðin  kosta foreldra milljónir 0 3 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :4 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 4 -F 3 1 4 2 3 2 4 -F 1 D 8 2 3 2 4 -F 0 9 C 2 3 2 4 -E F 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.