Fréttablaðið - 03.06.2019, Side 2
Veður
Garðtraktorar
fyrir þá kröfuhörðu
Gerir sláttinn auðveldari
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
8-15 m/s. Rigning eða slydda
með NA, en snjókoma til fjalla.
Skýjað NV, en þurrt og bjart
sunnan jökla. Hiti 4 til 14 stig,
mildast SV. SJÁ SÍÐU 20
Flúrað í Gamla bíói
Hin árlega Icelandic Tattoo Convention fór fram í fjórtánda sinn um helgina í Gamla bíói í Ingólfsstræti. Þrjátíu húðf lúrmeistarar með áratuga
reynslu í bransanum voru á svæðinu og f lúruðu gesti og gangandi í öllum regnbogans litum. Hér má sjá nokkrar grjótharðar konur og karla láta
suma af hinum færu f lúrurum skreyta líkama sína fyrir allra augum á ráðstefnunni. Engin þeirra létu á nokkru bera. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
MANNLÍF „Ég, mamma og félagar
mínir keyptum bara miða út beint
eftir undanúrslitaleikinn og von-
uðum að við myndum fá miða á
leikinn. Miðaverðið var frá hálfri
milljón og upp úr svo við keyptum
okkur ekki miða,“ segir Magnús
Már Einarsson, ritstjóri fótbolti.
net. Hann fór ásamt móður sinni,
Hönnu Símonardóttir, og vinum til
Madríd á úrslitaleik meistaradeild-
arinnar á laugardaginn þrátt fyrir
að eiga ekki miða á leikinn sjálfan.
„Það var fullt af fólki sem átti ekki
miða og maður sá það yfir daginn.
Fólk var með skilti í höndunum að
auglýsa eftir miða og jafnvel í bolum
merktum „I need ticket“ og allir að
spyrja úti um allt: áttu miða, áttu
miða“ segir Magnús. „Þetta varð til
þess að þeir sem voru að selja miða á
svörtum markaði gátu bara sett á þá
ævintýralegar upphæðir. Það hefur
aldrei verið svona mikil eftirspurn
eftir miðum á úrslitaleik Meistara-
deildarinnar.“
Magnús og Hanna eru bæði
miklir stuðningsmenn Liverpool,
en liðið vann Meistaradeildina í
sjötta sinn um helgina. Stuðnings-
menn bæði Liverpool og Totten-
ham söfnuðust saman víðsvegar
um borgina og var góð stemning
að sögn Magnúsar. „Við horfðum á
leikinn á bar með Liverpool stuðn-
ingsmönnum, það var allt troðfullt
þar inni og stemningin var frábær.“
„Ég ætlaði alltaf að fara á leikinn
og trúði því varla þegar hann var
flautaður á að ég væri ekki á vellin-
um. En við horfðum á hann á pöbb
þar sem var sungið og öskrað og
það var bara sturlað,“ segir Hanna.
Liverpool hefur alla tíð verið stór
partur af lífi hennar.
„Ég fæddist bara með Liverpool í
blóðinu, man eftir mér pínulítilli að
horfa á vikugamla leiki í svarthvítu
sjónvarpi,“ segir Hanna og bætir því
við að hún horfi á alla leiki sem liðið
spilar og sé í Liverpool treyjunni í
hverjum leik.
Hanna stoppaði ekki lengi í
Madríd og flaug til Íslands á undan
ferðafélögum sínum. „Ég mætti
heim klukkan sjö í morgun og er á
leiðinni á Stjarnan – Valur. Ég flaug
á undan öllum hinum til þess að ná
þeim leik. Það má segja að fótbolti
sé líf mitt og yndi.“
Yngri bróðir Magnúsar, Anton
Ari Einarsson leikur með meistara-
f lokki Vals í fótbolta og missir
Hanna helst ekki af leik hjá honum.
birnadrofn@frettabladid.is
Sturluð stemning hjá
mæðginum í Madríd
Miðar á leik Liverpool og Tottenham í Meistaradeildinni seldust á ævintýra-
legar upphæðir í Madríd. Magnús Már Einarsson fór til Spánar ásamt móður
sinni án þess að eiga miða á leikinn. Horfðu á leikinn í frábærri stemningu.
MENNING „Fjármál Sviðslistasam-
bands Íslands eru hvorki til rann-
sóknar hjá embætti ríkisskattstjóra
né skattrannsóknarstjóra ríkisins
og hafa aldrei verið,“ segir í yfir-
lýsingu sem stjórn sambandsins
sendi frá sér í gær. Segir að stjórnin
hafi fengið þetta staðfest skriflega
frá skattayfirvöldum. Tilefni yfir-
lýsingarinnar eru ummæli Ara
Matthíassonar þjóðleikhússtjóra í
fjölmiðlum um slíka rannsókn.
Fréttablaðið fjallaði í síðasta
mánuði um samskiptavanda þjóð-
leikhússtjóra og leikara við leik-
húsið. Félag íslenskra leikara hefur
meðal annars farið fram á við
menntamálaráðuneytið að fagfólk
í mannauðsmálum verið fengið til
að ráða fram úr þeim vanda. Emb-
ætti þjóðleikhússtjóra var í síðasta
mánuði auglýst til fimm ára. Ari
Matthíasson hefur gegnt stöðunni
frá árinu 2015. - sar
Listamenn
svara Ara
Magnús og Hanna fóru til Madríd
þrátt fyrir að eiga ekki miða á
úrslitaleikinn. MYND/MAGNÚS MÁR
EINARSSON
Leikmenn Liverpool fagna sigrinum á Tottenham í Madríd á laugardaginn.
Liverpool sigraði Meistaradeildina síðast árið 2005 NORDICPHOTOS/GETTY
VEÐUR „Í fyrra var óvenju lítil sól
í júní en nú byrjar sumarið mjög
sólríkt hérna á Suður- og Vestur-
landi,“ segir Haraldur Eiríksson,
vaktaveðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands. „Það er svolítið lottó hvað
það er mikil sól í maí og júní. Í fyrra
var hún ekki mikil en nú lítur þetta
betur út.“
Ekki eru allir jafn heppnir með
veður og íbúar á höfuðborgarsvæð-
inu og segir Haraldur að búast megi
við rigningu og slyddu á Austur-
landi í byrjun vikunnar, jafnvel
snjókomu til fjalla. Þegar líða tekur
á vikuna fari þó að birta til fyrir
austan. „Þetta er bara rigning og
slydda svo hlýnar aðeins eftir miðja
vikuna og þá er sumarið vonandi að
koma fyrir austan.“
Haraldur segir að borgarbúar
geti búist við betra veðri í sumar en
þeir fengu í fyrra og ástæðuna segir
hann einfalda. „Ég vænti þess að
þetta sumar verði skárra en í fyrra
því ég held að það geti ekki orðið
verra, svo einfalt er það.“ -bdj
Borgin
sigrar
sólarlottóið
Búast má við áframhaldandi sól í
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nú byrjar sumarið
mjög sólríkt hérna á
Suður- og Vesturlandi
Haraldur Eiríksson veðurfræðingur
3 . J Ú N Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
3
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:4
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
4
-F
8
0
4
2
3
2
4
-F
6
C
8
2
3
2
4
-F
5
8
C
2
3
2
4
-F
4
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K