Fjarðarpósturinn - 08.10.2015, Page 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2015
Útivist er yndislegur hlutur. Ég
vandist því í skátunum að horfa á
veður með stráksaugum – því
verra því meira spennandi. Þá
var oft sagt að það væri ekkert
sem héti vont veður, aðeins
lélegur klæðnaður. Þetta er í fullu
gildi enn og mér verður hugsað um þetta nú þegar
haustlægðirnar eru byrjaðar að kræla á sér og og
rigningin steypist yfir okkur. Sólin gleður okkur með
litríkum heilum regnboga trekk í trekk. Haustið er líka
spennandi útivistartími þar sem nýta má það sem
finnst allt í kringum okkur, krækiber og bláber og
jafnvel villt jarðarber svo ekki sé minnst á alla
sveppina. Þeim fjölgar með hverju árinu sem stunda
einhverja útivist og síðustu ár hefur þeim fjölgað
gríðarlega sem hlaupa og hjóla allan ársins hring. Því
miður hefur allt of lítil áhersla verið lögð á lagningu
göngu og hjólreiðastíga og það vantar enn stíga sem
leiða úr bænum upp að Hvaleyrarvatni og upp í
Kaldársel. Hestamenn hafa notið þess að sérstakir
sjóðir Vegagerðarinnar hafa verið eyrnamerktir
reiðvegum en minna er um slíka styrki til göngu og
útivistarstíga. Þó hefur Hafnarfjarðarbær notið styrkja
Vegagerðarinnar við gerð stígs meðfram Bæjarhrauni
og nú meðfram Reykjavíkurveginum. Þetta eru stígar
sem ætlað er til að auðvelda fólki til að fara úr og í
vinnu á reiðhjóli. Framtíðarsýn vantar á legu göngu
og hjólreiðastíga í bæjarlandinu og það er til lítils að
hvetja fólk til útivistar og heilsueflingar ef þeim er
ætlað að þvælast innan um bifreiðar í svörtu
skammdeginu. Það er voðalega sætt að bæjarfélagið
taki þátt í að verða heilsueflandi sveitarfélag en lítið
gagn af því ef það eru aðeins orðin tóm.
Ég var að koma frá Bregenz í Austurríki þar sem ég
var að hlaupa með stórum hópi Hafnfirðinga. Þetta er
bær, jafnfjölmennur Hafnarfirði. Þar er flott stígakerfi
og það vakti eftirtekt okkar hversu umferðarmenn
ingin var góð. Hjólreiðamenn sýndu gangandi umferð
mikla tillitssemi og ökumenn sýndu gangandi og
hjólandi mikla tillitssemi. Hvergi sáust „vespur“ án
númera og aldrei á gangstéttum eða hjólastígum. Við
eigum langt í land að temja okkur góða umferðar
menningu og Hafnarfjarðarbær á langt í land með að
geta státað sig af góðu stígakerfi fyrir gangandi,
hlaupandi og hjólandi umferð. Tökum fyrstu skrefin!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 11. október
Guðsþjónustua og
sunnudagaskóli kl. 11
Starf eldri borgara
miðvikudaginn 14. október kl. 13.30
Björgvin Guðmundsson, fv. borgarfulltrúi
og áhugamaður um málefni aldrara
kemur í heimsókn.
www.astjarnarkirkja.is Sunnudagur 4. október
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Barnakór Hafnarfjarðarkirkju syngur.
Stjórnandi er Helga Loftsdóttir. Píanóleikari
er Anna Magnúsdóttir. Leiðtogar úr
sunnudagaskóla eru Heba, Ísak og Una.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
MÁNUDAGUR:
Tíu Til Tólf ára starf
í Vonarhöfn kl. 16.30 -18
MIÐVIKUDAGUR:
Morgunmessa kl. 8.15
Léttur morgunverður á eftir.
FIMMTUDAGUR:
Foreldramorgnar kl. 10-12
í Vonarhöfn.
www.hafnarfjardarkirkja.is www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Víðistaðakirkja
Sunnudagur 11. október
Fjölskylduhátíð kl. 11
Fjölbreytt dagskrá, fjörug lög,
falleg orð og NebbiNú!
María og Bryndís leiða stundina.
Verið með í sunnudagaskólanum!
Kaffi, djús og kex eftir guðsþjónustu.
6-9 ára starf
á miðvikudögum kl. 13.30
10-12
á miðvikudögum kl. 14.30
Kyrrðarstundir
alla miðvikudögum kl. 12.00
súpa og brauð í safnaðarheimilinu á eftir.
www.vidistadakirkja.is
Sunnudagurinn 11. október
Sunnudagaskóli kl. 11
Guðsþjónusta kl. 14
– ATH. breyttan tíma.
Hin árlega
kaffisala Kvenfélagsins
hefst að lokinni guðsþjónustu.
Sjá nánar á www.frikirkja.is
og á Facebook
MIÐVIKUDAGAR:
Foreldramorgnar kl. 10-12
Krílakór yngri kl. 16.30
(2-3ja ára í fylgd með fullorðnum)
Krílakór eldri kl. 17-17.40 (4ra-5 ára)
Kaffisala
Fríkirkjukvenna
Á sunnudaginn verður kaffisala Kvenfélags Frí
kirkjunnar að lokinni messu sem hefst kl. 14. Það er
klukkustund síðar en venja er. Kvenfélag kirkjunnar er
öflugt og félagskonur hafa sýnt í gegn um tíðina hversu
þær eru megnugar. Kaffisalan er mikilvæg fjáröflun í
starfi kvenfélagsins hlaðborðið þeirra rómað.
Kvenfélagið hefur styrkt við bakið á safnaðarstarfi
Fríkirkjunnar með margvíslegum hætti, ekki síst
barnastarfið og fyrir svo ekki löngu síðan kostaði kven
félagið að fullu endurnýjun á áklæðum á kirkju
bekkjunum. Allir eru velkomnir, bæði í messuna og
kaffið á eftir í safnaðarheimilinu.