Fjarðarpósturinn - 08.10.2015, Side 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 2015
Kjarnameðferðir -
Regndropa meðferð - Tarot -
Heilun. Frábær leið til að
takast á við verki, fá út hreins
un eða einfaldlega slökun.
Olí um nuddað innað hrygg og
undir iljar í meðferðunum.
Sanngjarnt verð fyrir vandaða
meðferð. Uppl. 8440009.
þjónusta
Óska eftir íbúð á Hafnarfjarðar-
svæðinu eða nágrenni ca 80-140
m² að stærð. Þarf að vera á
jarðhæð og helst ekki í blokk þar
sem að við erum með smáhund og
kött. Skoða einungis langtímaleigu
og get lagt fram meðmæli 10 ár
aftur í tímann. Frank Höybye sími
844 5222 eða frank@eldklar.is
þjónusta
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Tek að mér að færa þær yfir
á(vídeó, slide, ljósmyndir) DVD
diska eða flakkara. Sýnishorn á
siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is Vantar Betamax
video. Sigurður Þorleifsson.
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Hrein húsgögn og bílasæti án ryks,
lyktar og bletta. Djúphreinsun á
borðstófustólum, hægindarstólum,
sófasettum, rúmdýnum og teppum.
Djúphreinsun á bílasætum. Einnig
leðurhreinsun á áklæði. Kem á
staðinn og hreinsa, s. 780 8319.
bílar
Toyota Corolla árg. 1997 í mjög
góðu ástandi til sölu.
Ekinn 200 þús. km. Þrisvar
ryðvarinn. Verð 250 þús. kr.
Uppl. í s. 517 4935.
tapað - fundið
Brúnn karlmanns sparihattur
ritstjórans tapaðist fyrir alllöngu.
Viti einhver um hattinn
eru upplýsingar vel þegnar
í síma 896 463.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
Vaktsímar: 565 5892 & 896 8242 • www.utfararstofa.is • Allan sólarhringinn
Bókasafnið lokað á morgun
Bókasafn Hafnarfjarðar verður lokað
á morgun, föstudaginn 9. október
vegna hreingerninga. Starfsfólk
safnsins biðst velvirðingar á óþæg
indum sem kunna að skapast.
Kökubasar
Kökubasar Kvennakórs Hafnarfjarðar
í Samkaupum Miðvangi á morgun,
föstudag kl. 1317.
Kaffisala Fríkirkjukvenna
Á sunnudaginn verður kaffisala
Kvenfélags Frí kirkjunnar að lokinni
messu sem hefst kl. 14. Kaffisalan er
í safnaðarheimili Fríkirkjunnar.
Hafnarborg
Haustsýning Hafnarborgar 2015 er
sýningin Heimurinn án okkar.
Á sunnudaginn kl. 20 hefst nýtt
starfsár tónleikaraðarinnar Hljóðön í
Hafnarborg. Þá flytur Kristín Þóra Har
aldsdóttir, víóluleikari og tónskáld,
nýja útfærslu tónleikhúsverksins,
Orðin, eftir Þórunni Grétu Sigurðar
dóttur tónskáld.
Sendið stuttar tilkynningar um
viðburði á ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Voff, voff
ÉG man eftir því þegar það var
gott, duglegt og málefnalegt fólk
í Samfylkingunni í Hafnarfirði.
Þá naut flokkurinn gríðarlegs
stuðnings og hafði hreinan meiri
hluta, með miklum yfirburðum.
Bæjarbúar voru sáttir við þá
Samfylkingu. Nú er
stað an önnur og Sam
fylkingin er ekki lengur
með þennan stuðning
og hefur reyndar tapað
svo miklu fylgi að
bæjarfulltrúi þeirra
segir að næst minnsti
flokk urinn, Björt fram
tíð, hafi verið sigur veg
ari seinustu kosn inga.
Það er sérstakt viðhorf
en skýrir e.t.v. hvernig fulltrúum
Samfylkingar líður núna.
Á fyrri kjörtímabilum var
minni hlutinn líklega óþægur ljár
í þúfu Samfylkingar sem sat
undir stöðugum árásum Rósu
Guðbjartsdóttur og hennar fólks í
Sjálfstæðisflokknum sem gerðu
öll störf tortryggileg og tóku
senni lega upp öll mál, jafnvel þó
að þau væru í hjarta sínu sam
þykk þeim, og hjóluðu í þau í
þeirri trú að stjórnarandstaða eigi
umfram allt að vera andstaða.
Kannski vilja pólitíkusar vinna
svona og kannski vilja bæjarbúar
hlusta á svona tal í kjörnum
fulltrúum. Ef fólk trúir því þá
kann það að vera skýringin á því
hvernig Samfylkingin vinnur
núna, hún er svona hinsegin
Sjálfstæðisflokkur.
Ef fólk vill öðruvísi stjórnmál
þar sem fólk getur unnið saman
að því að gera sitt besta til
hagsmuna fyrir samfélagið þá
verður einhver að rjúfa þennan
vítahring árásastjórnmála. Það
þarf einhver flokkur að neita að
vera í slagsmálum. Björt framtíð
ætlar ekki inn í þennan leðjuslag.
Það er ekki víst að það sé fallið til
vinsælda að svara ekki skítkasti
með skítkasti. Skoðana kannanir
benda til þess að Björt framtíð
skori ekki hátt fyrir að fara ekki í
samtalið á þessum for send um.
Það er allt í lagi, ef fólk
vill velja slags mála
pólitík þá vel ur það
bara þannig.
Núverandi minni
hluti í bænum hefur
fengið fjölmörg tilboð
um samstarf og sam
vinnu. Þannig var
minni hlutanum t.d.
boð in varaformennska í
öllum ráð um og
nefndum, Því var hafn að. Þeim
var boðið að sitja alla fundi til
undirbúnings fjár hagsáætlunar.
Þeim var boðið að sitja
samráðsfundi til að undirbúa
meðferð á tillögum í rekstrar
úttekt Capacent á bæjar félaginu,
því var hafnað.
Þess í stað finnst mönnum við
eigandi og smekklegt að skrifa
greinar þar sem fólki úr öðrum
flokki er líkt við hunda í bandi og
láta teikna skopmyndir í sama
dúr í vefmiðlana sína. Íslensk
stjórn málaumfjöllun hefur ekki
risið „hærra“ síðan Mogginn birti
látlaust skopmyndir af Jóni
Baldvin Hannibalssyni með
drullusokk í hendi. Ef bæjarbúum
finnst þetta málefnalegt og vera
það sem bæjarfulltrúar eiga að
gera, þá sigrar Samfylkingin með
yfirburðum í næstu kosn ingum
og fólkið í Bjartri framtíð fer að
gera eitthvað annað en leggja sig
fram við að gera gagn fyrir
bæjarfélagið. Gaman að því, eða
ekki.
Höfundur er félagi í Bjartri
framtíð í Hafnarfirði.
Hörður
Svavarsson
MD bókhald ehf
Alhliða bókhaldsþjónusta
Bókhald - Laun - Virðisaukaskattur
Uppgjör - Stofnun fyrirtækja - Ráðgjöf
Sími 616 9480