Skagablaðið - 28.12.1984, Qupperneq 1
21. TBL. 1. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984 VERÐ KR. 25,-
Fyrirtæki
stofnað
um ferða-
þjónustu
Ákveðið hefur verið að stofna
fyrirtæki um ferðamannaþjón-
ustu hér á Akranesi. Skagablaðið
hefur ítrekað sagt frá miklum
áhuga á ferðamálum hér í bæ og
fyrir nokkru ákvað Akraneskaup-
staður að Ieggja fram 150 þúsund
krónur til þessarar starfsemi gegn
því að hagsmunaaðilar legðu
fram samsvarandi upphæð. Vil-
yrði mun þegar fengið fyrir henni.
Þá hefur blaðið fregnað að
Danfríður Skarphéðinsdóttir,
verði ráðin til þess að veita
þessari starfsemi forstöðu á næsta
ári en fyrirhugað er að hún starfi
að þessu í hálfan sjötta mánuð.
Danfríður hefur unnið að ferða-
málum um margra ára skeið og
eru miklar vonir bundnar við starf
hennar.
Enn sem komið er liggur ekki
ljóst fyrir með hvaða hætti um-
rætt fyrirtæki verður, hlutafélag,
sameignarfélag eða í öðru formi.
Ljóst er hins vegar að af stofnun
þess verður og það er í augna-
blikinu mikilvægasta skrefið á
þessum vettvangi.
Gamlaáríö kvatt og því nýja heilsað
Það er til siðs við hver áramót að kveðja gamla árið og fagna því nýja með flugeldaskotum og öðru er því tilheyrir. Sumir láta sér nægja
að fylgjast með allri skotdýrðinni úr fjarska, aðrir punda þúsunda virði út í svartnættið, allt eftir fjárhag hvers og eins. Þessi mynd var
tekin um áramótin fyrir nokkrum árum og sýnir hluta þess flugeldaregns, sem lýsti upp bæinn okkar á nýársnótt.
Afstaða bæjarráös veld
ur ólgu í íþróttaráði
SWpotts ímíwwbwísSI (hKÚsætraasSS
rwwwhéJwret?® A Mlkrsmma
Mikil óánægja ríkir nú innan
íþróttaráðs bæjarins í kjölfar
þeirrar ákvörðunar bæjarráðs að
ákveða á síðasta fundi sínum fyrir
jól að heimiia þrettándabrennu á
malarvellinum á Jaðarsbökkum
án þess að hafa nokkurt samráð
við íþróttaráðið.
Þrettándabrennur hafa áður
verið haldnar á malarvellinum en
lítil ánægja hefur verið með þá
ráðstöfun innan íþróttaráðs enda
eru þess dæmi að ýmiss konar
hættulegt rusl, t.d. naglar og
glerbrot, hafi komið upp á yfir-
borð vallarins á miðju sumri.
íþrótttaráð samþykkti á fundi
sínum í fyrra að leggjast fram-
vegis gegn því að leyfa áramóta-
brennur á vellinum. I fyrra var
reyndar gerð undanþága, sú síð-
asta taldi íþróttaráð en nú hefur
bæjarráð tekið af því völdin.
Eftir því sem Skagablaðið
kemst næst eru íþróttaráðsmenn
ákafleg óhressir með það að ekk-
ert samráð skyldi haft við þá
vegna þessa, heldur tekin ein-
hliða ákvörðun. Þetta væru af-
skaplega ólýðræðisleg vinnu-
brögð, ekki samboðin bæjarráði.
Á þessari skýringarmynd má glöggt sjá hvert núverandi húsnœði er og
cetti að vera. Rúm A táknar það sem œtti að vera en dökku fletirnir í
stóru myndinni tákna húsnœðið sem er í notkun.
Húsnæðið er 44% af þörf inni
„...Akraneskaupstaður hlýtur
að þurfa að leggja verulegan
hluta af framkvæmdafé sínu til
skólamála á næstu árum.“ Svo
segir m.a. í skýrslu um málefni
grunnskólanna á Akranesi, sem
sérstök nefnd tók saman á árinu
og var lögð fyrir bæjarstjórn fyrr
í þessum mánuði. I skýrslunni
kemur m.a. fram, að grunnskól-
arnir á Akranesi hafa aðeins um
42-44% þess húsrýmis, sem þeir
ættu að hafa, en Skagablaðið
skýrði frá þessari staðreynd fyrir
skemmstu.
í skýrslunni, sem Ingi Steinar
Gunnlaugsson hefur að mestu
tekið saman af mikilli kostgæfni
eru ástæðurnar fyrir húsnæðis-
vandanum helstar þær, að Akra-
nesbær afhenti ríkinu rúmlega
helming grunnskólahúsnæðis
staðarins undir fjölbrautaskólann
gegn því að byggður yrði nýr
Svanur Geirdal næsti
yfirlögregluþjónn
Svanur Geirdal verður næsti áraraðir.
yfirlögregluþjónn Akumesinga Ekki tókst að fá þetta stað-
að því er Skagablaðið frétti nú fest hjá Svani sjálfum en blaðið
um hátíðarnar. Tekur hann við fregnaði að skipan hans yrði
af Stefáni Bjarnasyni, sem kunngerð nú einhvern tíma á
gegnt hefur þessari stöðu um milli hátíðanna.
grunnskóli af sömu stærð. Þar er
átt við Grundaskóla. Bygging 1.
áfanga hans hefur tekið 6 ár þrátt
fyrir samning, sem hljóðar upp á
4 ár, og er þó enn ekki lokið. Þá
hefur fólksfjölgun á Akranesi frá
1975 numið 800 manns á sama
tíma og grunnskólahúsnæði hefur
ekkert aukist.
Afleiðingar hafa verið þær að
draga hefur orðið úr kennslu
vegna húsnæðisskorts. í skýrsl-
unni segir m.a. að kennsla í
íslensku og stærðfræði hafi verið
skert um 7,5-20% í 7. og 8. bekk
á síðasta ári. Sömuleiðis var
kennsla í líf- og eðlisfræði skert
sem og sund- og íþróttakennsla.