Skagablaðið - 28.12.1984, Síða 2
Skagabladló
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson
Ljósmyndir: Árni S. Arnason
Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Borgarprent
Útlit: Sigurður Sverrisson.
Ritstjórnarskrifstofa Skagablaðsins er að Suðurgötu 16
og er opin sem hér segir: mánudaga frá kl. 14.30-22,
þriðjudaga frá kl. 10-17, alla aðra virka daga frá kl. 17-19.
Móttaka auglýsinga og áskrifta er á sömu tímum. Síminn
er 2261 eða 1397. Sláið á þráðinn, lítið inn eða sendið
okkur línu í pósthólf 170.
Björn Steinar Sólbergsson, sem nú stundar framhatdsnám í
orgelleik í Frakklandi, hélt tónleika t Akraneskirkju á föstudag
fyrir jól og þóttu þeir vel heppnaðir. Björn hefur lagt mikla rækt
við nám sitt og á efnisskránni voru verk eftir Bach, Messian og
Frank. Tónleikarnir voru ekki mjög fjölsóttir en hafa vafalítið
yljað mörgum tónlistarunnandanum ef að líkum lætur. Arni tók
meðfylgjandi mynd af Birni Steinari á tónleikunum.
HMYNDBOND
Deathcar.
Spemandieneiiv
hæf vinnubrögð
Death car on the freeway
fjallar um geðveikan ökumann,
sem brunar um í sendiferðabíl
og hefur þá uppáhaldsiðju að
hrella laglegar konur sem eru
einar á ferli í bílum sínum.
Hann storkar þeim með undar-
legu aksturslagi, hleypir þeim
síðan fram úr sér og þá byrjar
ballið.. venjulega lýkur því
með því að hann þvingar bíl
viðkomandi út af hraðbrautinni
og allir fara létt með að geta sér
til um ævilengd þeirra kvenna.
Það er ekki fyrr en sjón-
varpsfréttakona fer að veita
þessum slysum athygli að skrið-
ur kemst á málið. Lögreglan er
í fyrstu vantrúa á að einhver
brjálæðingur sé þarna á ferð en
svo fer að lokum að ekki verður
horft framhjá staðreyndum og
þá byrjar ballið öðru sinni.
Allar löggur Los Angeles-borg-
ar og fleiri til leggjast á eitt um
að ná þeim geðveika, sem leik-
ur tryllingslega fiðlutónlist í bíl
sínum til að komast í ham. Það
er svo í lok myndarinnar að
sjónvarpsfréttakonunni tekst
að snúa hann af sér eftir mikinn
eltingarleik, þar sem vart mátti
á milli sjá. Happy end og gaman
gaman.
Death car er þegar öllu er á
botninn hvolft ágætis spennu-
mynd. Handrit hið þokkaleg-
asta en myndatakan ansi ein-
hæf, sérstaklega þegar bíla-
atriðin eiga í hlut. Sjónarhornið
svipað og sendurnar því fremur
leiðigjarnar. Tæknivinna er
þokkaleg en það fer alltaf í
taugarnar á mér að sjá alla bíla
í myndum sem þessum springa
í loft upp með látum er þeir
lenda í árekstri. Slíkt þekkist
vart hérlendis enda erum við
íslendingar ekki mikið í kvik-
myndum af þessu tagi. Leikur
er aftur á móti ágætur. Það er
fátt um fræg nöfn, þó eru þarna
George Hamilton og Dinah
Shore.
Death car fengi aldrei nein
verðlaun fyrir eitt né neitt en
þetta er ágæt afþreying að
mörgu leyti. Spennandi lengst-
um þótt auðveldlega hefði mátt
moða betur úr spennuatriðum
með meiri tilbreytni. Einkunn
2>á stjarna af 5.
Flugeldasala
Kiwanismanna
Krossgátan
Lárétt: l)Hátíð, 2)Hærra, 7)Fangamark, 9)Guðhrædd-
ur, 10)Eldsneyti, ll)Skel, 12)Þoka, 15)Att, 16)Ekki
með, 17)Hátíðarmatar.
Lóðrétt: l)Áhald, 2)Fram á við, 3)Skepnurnar, 4)Vín-
stofa, 5)Litaðra, 8)Mannsnafn, ll)Slagur, 13)Flug-
félag, 14)Skammstöfun fyrir Akranes.
„Við vonumst auðvitað til að
bæjarbúar taki vel á móti okkur
nú sem endranær,“ sagði Sigur-
steinn Hákonarson, formaður
Kiwanisklúbbsins Þyrils, er
Dagbókin
Sjúkrahúsið: Heimsóknartími frá kl.
15.30-16.00 og svo aftur frá kl. 19.00-
19.30. Sfminn á sjúkrahúsinu er 2311.
Heilsugæslustöðin: Upplýsingar um
stofuviðtöl og læknavakt í síma 2311
frá kl. 8-20. Uppl. um læknavakt í
símsvara 2358 á öðrum tímum.
Tannlæknar: Upplýsingar um tann-
læknavaktir um hátíðarnar í símsvara
viðkomandi tannlæknis.
Bókasafnið: Safnið er opið sem hér
segir: mánudaga 16-21, þriðjudaga og
miðvikudaga 15-19, fimmtudaga 16-21
og föstudaga 15-19. Útlánatími er 20
dagar, dagsektir 50 aurar á bók.
Slökkviliðið: Síminn á slökkvistöðinni
er 2222.
Lögregla: Símar 1166, 2266 og 1977.
Sjúkrabíll: Símar 1166, 2266.
Byggðasafnið: Sýningartími er frá kl.
11-12 og 14-17 alla virka daga frá maí
og fram í ágúst. Frá september og
fram í apríl er safnið opið gestum frá
kl. 14-16 virka daga.
Sundlaugin: Opið er mánudaga-mið-
vikudaga sem hér segir: 7-8.45, 17-
18.30 og 20-21.15, fimmtudaga 7-8.45,
17-18.30, 20-21 og 21-21.45 (fyrir
konur), föstudaga 7-8.45, 17-18.30 og
20-21.15. Á laugardögum er opið frá
10-11.45 og 13.15-15.45 og á sunnu-
dögum frá 10-11.45.
Al-Anon: Félagsskapur fyrir aðstand-
endur drykkjufólks. Fundir alla mánu-
daga kl. 21 að Suðurgötu 102.
Skagablaðið sló á þráðinn til hans
í vikunni í tengslum við hina
árlegu flugeldasölu klúbbsins.
Kiwanismenn munu í kvöld,
föstudag, ganga í hús og bjóða
flugelda til sölu. Auk þess að
ganga í hús eru Kiwanismenn
með flugeldasölu sína í gangi allt
fram á gamlársdag og loka þá
ekki fyrr en klukkan 15.
Sigursteinn sagði Þyril nú
standa á tímamótum. Klúbburinn
yrði 15 ára síðari hluta janúar-
mánaðar ,og í tilefni þess hefði
verið ákveðið að gefa stórgjöf.
Árið, sem nú er að líða, er helgað
fjölfötluðum, og ætla Kiwanis-
menn að færa Sambýlinu við
Vesturgötu gjöf af því tilefni. Það
verður ekki í fyrsta sinn sem
klúbburinn réttir þurfandi hjálp-
arhönd því á liðnum árum hefur
hann dyggilega stutt við bakið á
starfseminni á Höfða, auk þess að
leggja Hjálpinni, björgunarsveit
SVFÍ, lið. Þá má ekki gleyma því
að það voru Kiwanismenn, sem
keyptu kútter Sigurfara frá Fær-
eyjum á sínum tíma.
Félagar í Þyrli eru nú 49 talsins
að sögn Sigursteins en voru um 20
við stofnun hans. Skagablaðið
mun skýra nánar frá afmæli
klúbbsins þegar þar að kemur en
hvetur bæjarbúa í lokin til þess að
kaupa flugeldana af Kiwanis-
mönnum og leggja þeim þar með
lið við að styðja við bakið á
öðrum.
Spurning
dagsins
— Ætlarðu að kaupa flug-
elda fyrir áramótin?
Steinn Helgason: — Ja, þar fórstu
alveg með það. Jú, jú ég kaupi
rakettur, ég á 4 börn. Ég hef
keypt fjölskyldupoka en efa að
einn slíkur dugi nú.
Kristján Olafsson: — Já, ég er
vanur því. Ég kaupi vafalítið
fjölskyldupoka af Kiwanismönn-
um.
Jón Gunnlaugsson: — Já, en ég
fer nú ekki með mikið í rakettur.
Ætli ég kaupi ekki fjölskyldu-
poka eins og endranær.
Guðríður Guðmundsdóttir:
— Jú, ég kaupi áreiðanlega einn
fjölskyldupoka. Hann dugar ör-
ugglega því við erum aðeins 3 í
heimili.