Skagablaðið - 28.12.1984, Qupperneq 8
Daníel
Það er allt of sjaldan sem menn
og fyrirtæki fá hrós fyrir að sýna
snögg viðbrögð. Skagablaðið get-
ur þó ekki látið hjá h'ða að hæla
Daníel Árnasyni, bæjartækni-
fræðingi, í hástert fyrir vægast
sagt snaggaraleg viðbrögð.
Við skýrðum frá slysagildru í
Holtsbrekkunni sökum þess hve
illa lokun götunnar hafði verið
merkt. Með fréttinni fylgdi hins
vegar sama myndin og fylgir nú.
Á henni má sjá að stans-merki
hefur verið komið fyrir til þess að
vara ökumenn betur við lokun-
inni.
Skagablaðið skýrði Daníel frá
þessu um miðjan dag á
þriðjudag í síðustu viku og aðeins
tveimur klukkustundum síðar
hafði hann látið menn sína setja
merkið upp. Fyrir vikið sést af
mun lengra færi að gatan er lokuð
á umræddum stað og slysahætta
því margfalt minni en ella. Þetta
eru viðbrögð sem segja sex,
bravó Daníel!
Stans-merkið sem sett var upp á
mettíma.
Brynja Einarsdóttir er mörgum bæjarbúnm kunn af starfi sínu en þeir eru sennilega færri sem hafa hugmynd um að hún hefur ort talsvert
af Ijóðum um ævina þótt sjaldnast hafi sú iðja hennar farið hátt. Skagablaðið frétti fyrir skemmstu af því að Ijóð hennar um Akrafjallið
hefði vakið mikla athygli og fékk blaðið Ieyfi hennar til að birta það. Ljóðið heitir Ævintýrafjallið og fer hér á eftir. Inntak þess á vel við
einmitt núna um áramótin.
Staðurinn einn er ég unni
þar hvorki er tré eða runni
en brattar og bakkaðar klappir
bera yfir urðalappir.
Er kyndi ég bál þar á kveldin
koma fram öflin við eldinn
skuggarnir skjótast um völlinn
sjá — þarna dansa tröllin.
í trylltum taumlausum galsa
tangó, ræla og valsa
blása á bálið mitt smáa
og breiða út feldinn sinn gráa.
Fram úr dimmunni dvergur læddist
og dofri sem ekkert hræddist
býður mér heim að höllu
með hrífandi bjarma á öllu.
En eitthvað í vitund minni
vill ekki vera þar inni.
Ég er á annara valdi
um sál mína næðir kaldi.
Nú seiðir mig sveinn að ranni
svo-líkur mennskum manni
og haldandi um höndina mína
mig leiðir í höllina sína.
Þar virðast gullin glitra
og ómar gígjunnar titra
þar svífa verur um salinn
ég sé ekki fram í dalinn.
Það dimmir og draumsýnin hverfur
drungi að hjartanu sverfur
því sveinninn sem tældi mig fundna
segir mig örlögum bundna.
En kynlegur næðandi kraftur
kastar hurðinni á höllinni aftur
ég er fangi hjá bergrisa kalli
og álfum í Akrafjalli.
Yfir landið mitt læðist dögun
ég losna úr álögunum
vakna úr draumsins viðjum
vakna frá fjallsins niðjum.
Sól skín á blóm á brautu
angandi berjalautu
finn ég ilminn af einhverju nýju
sem fyllir mig unaði og hlýju.
Við brjóst hennar Jókubungu
bærast reyrstráin ungu
og breiðleitur Berjadalur
er bjartur sem álfasalur.
Háttvirtur Hái-hnjúkur
þér klappar himininn mjúkur
og blásandi bljúgur vindur
best kyssir þig Geirmundar tindur.
í fjallinu mínu eina
mun ég-milli klappa og steina
upplifa ævintýr, sögur
og jafnvel yrkja þar bögur
um álfana, dvergana og tröllin
sem áður fyrr byggðu fjöllin.
Bætum úrvaliö stöðugt
— nýtt efni í hverri viku
OPIÐ: Mánud.-miðv.d. 18-22
fim.d.-föst.d. 17-22
lau.d.-sun.d. 13-22
SKAGA VIDEÓ
Kirkjubraut 6, sími 2422
Eftirtalin fyrirtækióska viðskiptavinum sínum árs og friðar með þökk fyrir viðskiptin á árinu, sem er að liða:
Bókaverslun Andrésar Nielssonar Skallagrímur hf. Stúdíóval - Litaver
Staðarfell Hárstofan Stillholti Sláturfélag Suðurlands
Skaganesti Akraprjón Huld
8