Skagablaðið


Skagablaðið - 28.12.1984, Síða 12

Skagablaðið - 28.12.1984, Síða 12
AUGLÝSINGA- SÍMINN ER 2261 ÁSKRIFTAR- SÍMINN ER 2261 Þorbergur með Labradorhundana, Sambó og Trygg. dag. Það er til þess að venja þá við kuldann og um leið fá þeir fallegri feld.“ Þorbergur hefur ekki aðeins sótt hundaþjálfunarnámskeið hér heima, eitt sinn fór hann út til Noregs til þess að kynna sér þetta ásamt þremur öðrum íslenskum Labradorhundaeigendum. Þetta námskeið var að hluta greitt af norska björgunarhundasamband- inu. „Við fórum þarna út til þess að sjá hvar við stæðum. Við komumst að því að við vorum algerlega á réttri braut og það hafði góð áhrif á okkur.“ — Hvað eru hundarnir gamlir þegar byrjað er að þjálfa þá? „Þeir verða að vera orðnir hálfs annars árs gamlir. Síðan eru þeir prófaðir annað hvert ár, í síðasta sinn er þeir eru orðnir 8 ára.“ Æfíngarnar — Hvernig fara þessar œfingar fram? „Þær eru mjög einfaldar í fyrst- unni en síðan smáþyngdar. í raun má segja að byrjunarþrautin sé fjórþætt og það kemur ekki í ljós fyrr en í fjórða þættinum hvort hundurinn er hæfur til leitarstarfa eða ekki, þ.e. hvort eitthvað tjóar að halda þjálfun hans áfram.“ Þorbergur útskýrði síðan æfing- arnar fyrir blm. Sú fyrsta er á þann veg, að eigandinn hendir sér ofan í holu, sem grafin hefur verið í um 10 metra fjarlægð frá þeim stað sem hundinum er hald- ið á. Holan er það stór að maður getur rúmast vel fyrir í henni og eftir að hafa hlaupið frá hund- inum og hent sér ofan í holuna á hundurinn að hlaupa til eigand- ans. Önnur æfingin er á þann veg, að eigandi, hjálparmaður og hundurinn eru saman á einum stað. Eigandinn kemur sér síðan fyrir í holunni og mokað er yfir hann. Hundinum er síðan ætlað að hlaupa að gröfinni og róta ofan af húsbóndanum. Ef hundurinn er áhugasamur grefur hann niður á húsbóndann á mjög skömmum tíma. Þriðja æfingin er á þann veg, að nú fara bæði húsbóndinn og að- stoðarmaðurinn á undan hundin- um, koma sér fyrir í holunni, húsbóndinn fjær hundinum og aðstoðarmaðurinn nær. Síðan er mokað yfir þá báða. Hundinum er síðan ætlað að grafa þá báða upp. Fjórða æfingin er svo sú, sem sker úr um hæfileika hunds- ins. Aðstoðarmaðurinn fer þá ofan í holuna og mokað er yfir hann. Hundurinn á síðan að fara að skipan húsbónda síns og finna hjálparmanninn og grafa niður á hann. Venjulega eru hundarnir æstir upp með einhverju góðgæti áður en þessi þáttur fer fram. Það dugar stundum ekki og dæmi eru þess að hundarnir grafi ekkert, þar sem viðkomandi er ekki hús- bóndi þeirra, heldur hnusi aðeins af staðnum. Grafi hundurinn ekki að skipan húsbóndans þarf ekki að gera sér vonir um að þjálfa megi hann upp til leitar við erfiðar aðstæður. Þriggja ára þjálfun „Það verður að fara afar var- lega í sakirnar,“ sagði Þorbergur. „Það er auðvelt að ofgera hund- unum því þeir þurfa mjög mik- illar einbeitingar við á meðan þeir eru að leita. Fyrst þurfa að vera um tvær vikur á milli æfinga en síðan er hægt að þjálfa þá örar. Það er hættulegt að ætla sér að ofkeyra þá í þjálfuninni því þá er hætt við að þeir missi áhugann og það getur tekið óratíma að ná honum upp aftur. Allt í allt tekur það 3 ár að þjálfa hund til fullnustu til leitar.“ — Hvaða hæfileika þarf hundur að hafa til þess að geta talist það sem þú kallar útkallshæfur? „Hann þarf þát að geta fundið mann á tveggja metra dýpi á svæði sem er 100x100 metrar að stærð á innan við 30 mínútum. Á æfingum, sem framkvæmdar hafa verið, hefur Sambó t.d. leyst þetta verk af hendi á 6-7 mín- útum. Góður hundur á ekki að vera meira en 10 mínútur að finna mann á slíku svæði.“ Framhald á bls. 10 ,Ánægjan er margföld samanborið við eriiðið“ - Skagablaðið ræðir við Þorberg Þórðarson sem á tvo Labradorhunda, annan sérþjálf- aðantil leitarstarfa Áhugamál fólks eru margvísleg, það eitt er víst. Oruggt er þó að áhugamál Þorbergs Þórðarsonar hér í bæ er með því allra sérstæðasta sem gerist. Ekki aðeins á hann tvo Labradorhunda heldur hefur hann eytt ómældum tíma í að sérþjálfa þá til Ieitar í snjóflóðum, skriðum og húsarústum. Árangur þessarar þjálfunar Þorbergs er nú sá, að eldri hundurinn, Sambó, er einn fjögurra hunda landsins, sem teljast hæfír til þess að leita að fólki sem týnst hefur eða grafist ■ náttúruhamförum á borð við ofangreint. Skagablaðið hitti Þorberg að máli rétt fyrir jólin og innti hann eftir tildrögum þess að hann fór að stunda þetta sérstæða áhugamál. Tilviljun „Það er nú eiginlega hálfgerð tilviljun að ég komst í kynni við hundana,“ sagði Þorbergur. „Það var fyrir um fjórum árum að ég fór að hugsa til þess að taka mér tak í trimminu. Ég hafði verið mikið í íþróttum hér áður fyrr og hélt mér við eftir að ég hætti að keppa en síðan fannst mér ég vera farinn að slappast svo fjári mikið svo ég fór að hugsa minn gang. Ætlaði eiginlega fyrst að fara að stunda hefðbundið trimm, skokk eða eitthvað þvíumlíkt, en sá í hendi mér að áhuginn á slíku myndi strax dvína. Það þyrfti ekki annað en óhagstætt veður til þess að maður hætti við að fara út. Þá vissi ég það, að á meðan maður stendur einn í slíku er það miklu erfiðara en ef einhver fé- lagsskapur er fyrir hendi. Það var svo að ég hitti konu úr Garðabæ, sem vissi af hvolpi af Labrador-kyni af góðum ættum. Ég varð alveg veikur fyrir hund- inum og eignaðist hann. Hundar sem þessir verða að fá að minnsta kosti eins og hálfs tíma göngu og útiveru á dag og ég sá þarna kjörna leið fyrir mig til þess að trimma um leið. Síðan hefur þetta þróast út í það sem nú er.“ — Hvaðan fékkstu hundinn? „Ég fékk Sambó, og reyndar þann yngri líka, Trygg, frá Páli Eiríkssyni, lækni. Hann komst í kynni við hunda af þessu kyni úti í Noregi og er geysilegur áhuga- maður um þjálfun þeirra.“ — Hvenær fórst þú að þjálfa hundinn þinn markvisst? „Ætli það hafi ekki verið vetur- inn 1981, að hingað komu tveir Norðmenn til þess að leiðbeina hópi eigenda Labradorhunda við þjálfun þeirra. Mér fannst eldri hundurinn, Sambó, strax lofa góðu, og það gerir reyndar sá yngri líka, og komst í samband við Norðmennina. Á þessu nám- skeiði voru teknir út 10 Labra- dorhundar sem sýnt höfðu grund- vallarhæfileika, og Sambó var einn þeirra. Upp úr þessu komst ég í samband við Björgunar- hundasveit fslands og er reyndar kominn í stjórn þess félags núna. Er reyndar kominn með algera dellu á þessu sviði.“ Fallegri feldur — Þú hefur þá náð að sameina trimmið þitt og áhugamál? „Já, heldur betur og þetta hefur veitt mér óskaplega ánægju. En hundarnir þurfa sitt. Ég fer út með þá á hverjum einasta morgni klukkan 8 og er með þá svona 2 tíma og fer síðan í vinnuna.“ Þess má geta, að þegar Skagablaðið var að reyna að hafa uppi á Þorbergi fannst hann hvergi en loks fannst bíllinn hans fyrir utan hús eitt í bænum, sem hann var að virða, og þá voru báðir hundarnir í bílnum. Við spurðum hann að því í framhaldi hvort hann færi með hundana með sér allra sinna erinda. „Nei, ekki er það nú svo, en ég er með þá í bílnum allt upp í 12 tíma á

x

Skagablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.