Skagablaðið - 01.03.1985, Qupperneq 1
Fráfundi nemendafélagsins á ' miðvikudag.
„Göngum hiklaust
út ef ekki semst“
„Það liggur ekkert raunhæft tilboð fyrir frá samninganefnd ríkisins,
en hins vegar voru lagðir fram þrír umræðupunktar,“ sagði Danfríður
Skarphéðinsdóttir, kennari, er Skagablaðið náði tali af henni eftir að
hún hafði sótt fund um kjaramál kennara í Reykjavík á þriðjudags-
kvöld. „Umræðupunktarnir er þeir, að í fyrsta lagi verði tekið tillit til
mismunar á kjörum kennara og annarra opinberra starfsmanna, í öðru
lagi, að tekið verði tillit til niðurstöðu endurmatsnefndar og í þriðja
lagi, að kennarar fái sömu hækkun á launum cg aðrir fá út úr
samningum eða dómi Kjaradóms.“
í gær átti að efna til fundaraðar
með samningaaðilum, síðan átti
að vera fulltrúafundur HÍK og í
gærkvöldi félagsfundur, þar sem
ákvörðun átti að taka um fram-
hald miðað við stöðuna eins og
hún var í gærkvöld. Skagablaðið
innti Danfríði eftir því hvort hún
væri bjartsýn á framvindu mála.
„Nei, ég er ekki bjartsýn eins
og málin standa í dag. Kennarar
eru almennt farnir að hugsa sér til
hreyfings, leita sér að vinnu, en
ástandið í atvinnumálum hér er
þannig, að þeir sem hætta að
kenna verða líklega að flytja
héðan í ofanálag."
Skagablaðið hafði einnig sam-
band við Þorstein Gunnarsson,
kennara í Fjölbrautaskóla Akra-
ness, og spurði hann fregna af
máli allra mála þessa dagana,
uppsögnum kennara.
„Það er harla lítið að frétta,
engin hreyfing er enn komin á
málið," sagði Þorsteinn er við
hann var rætt á þriðjudagsmorg-
Bæjarstjóm:
Fundi
frestað
—fjárhagsáætlun í
algleymingi
Fundi bæjarstjórnar, sem
vera átti á þriðjudag, var
frestað vegna gífurlegra anna
hjá bæjarstjórnarmeðlimum.
Einkum munu það vera bæj-
arráðsmenn, sem sitja í verk-
efnum upp fyrir haus um
þessar mundir því unnið er
sleitulaust að því að fullgera
fjárhagsáætlun bæjarins.
Að því er Skagablaðið hef-
ur fregnað er ráðstöfunarfé
bæjarins umfram fastafram-
kvæmdir af mjög skornum
skammti, á bilinu 11-13 millj-
ónir króna.
náðst samningar þá.“
— Eru einhverjir búnir að ráða
sig annars staðar?
„Ég held að enginn kennari hér
hafi ráðið sig í fasta vinnu annars
staðar, en í Reykjavík eru nokkr-
ir, sem hafa ráðið sig og snúa ekki
aftur að kennslu."
— Treysta kennarar á, að sam-
ið verði þannig að þeir þurfi ekki
að hætta?
„Við treystum ekki á neitt í
þeim efnum." —SEÞ/SSv.
Nemendur Fjölbrautaskóla
Akraness samþykktu með yfir-
burðum stuðningsyfirlýsingu við
kjarabaráttu kennara á fundi,
sem nemdendafélag skólans efndi
til kl. 9.15 á sal skólans á mið-
vikudagsmorgun. Fyrir fundinn
var talið að mjög tvísýnt kynni að
verða um úrslit atkvæðagreiðsl-
unnar en þegar upp var staðið
reyndust úrslitin ótvíræð. Rúm-
lega 150 nemendur sóttu fundinn
og við handauppréttingu komu 18
mótatkvæði í Ijós.
Tillagan, sem atkvæði voru
greidd um hljóðaði á þessa leið:
„Nemendur hér á sal Fjölbrauta-
skóla Akraness þann 27.2. 1985
samþykkja eftirfarandi ályktun.
Við nemendur hér í Fjölbrauta-
skóla Akraness krefjumst þess að
laun kennara verði hækkuð svo
að tryggt verði að við skólann
verði ávallt hæfir kennarar. Auk
þess er það skýlaus krafa okkar
að flýtt verði fyrir framgangi
þessa máls.“
Flutningsmenn tillögunnar
voru fjórir og eftir að hún hafði
verið lesin upp tók einn nemenda
til máls og taldi sig ekki geta stutt
tillöguna, þar sem í henni fælist
ákveðin afstaða með kjarabar-
áttu. Einn flutningsmanna tillög-
unnar tók síðan til máls og sagði
enga beina stuðningsyfirlýsingu
við kröfur kennara felast í til-
lögunni. Hins vegar væri það
stuðningur við hærri laun kenn-
ara en ekki kröfur þeirra sem
slíkar. í millitíðinni tók þriðji
nemandinn til máls og mælti með
því að tillagan yrði samþykkt, sem
og varð raunin á.
Fremur dauft var yfir fundinum
á miðvikudag og samkvæmt heim-
ildum Skagablaðsins stafaði
deyfðin m.a. af því að kvöldið
fyrir fundinn hafði verið unnið
ötullega að því að steypa mörgum
tillögum saman í eina til þess að
komast hjá klofningi á fundinum.
glæsilegu
verðlauna-
getraun, sem
hefstídag
—Sjá fyrsta spurninga-
seðilinn á bls. 3
— Ganga kennarar þá út á
föstudag (í dag)?
„Já, alveg hiklaust ef ekki hafa
Alvariegur atburöur aftfaranótt föstudags:
Neyðarblys að nætur-
þeli reyndist gabb
Skagablaðið frétti af því að
neyðarblys hefði sést á lofti við
strandlengjuna vestantil í bæn-
um aðfaranótt föstudags. Um
tfma var óttast að skip kynni að
vera í nauðum statt hér skammt
undan ströndinni en þegar blað-
ið leitaði staðfestingar lögregl-
unnar á þessu kom í Ijós, að
einhverjir gálausir náungar
höfðu skotið blysinu upp að því
er virtist sé til skemmtunar.
Er lögreglunni barst tilkynn-
ing um neyðarblysið var þegar
haft samband við tilkynningar-
skylduna og í framhaldi af þvf
við höfuðstöðvar Slysavarnar-
félags íslands, þar sem allt var
sett í viðbragðsstöðu. Ekki
kom þó til neinnar leitar því í
ijós kom að engin skip voru á
ferð hér undan ströndinni. Mál
þetta er nú í rannsókn.
Ekki þarf að taka það fram
hve hættulegur fíflagangur á
borð við þetta er. Neyðarblys er
til þess eins að nota í neyð ekki
til að skemmta fólki að nætur-
lagi. Menn hugsa kannski ekki
málið til enda á þeirri stundu,
sem skotið er upp, en svona
blys gætu hæglega sett af stað
umfangsmikla leit.
Nemendafélagsfundur í Fjölbrautinni:
Styðja ein-
dregið hærri
laun kennara