Skagablaðið - 19.04.1985, Qupperneq 8
AUGLÝSINGA-
SÍMINN ER
2261
ÁSKRIFTAR-
SÍMINN ER
2261
Skagablaðsmótið í körfuknattleik í
íþróttahúsinu í kvöld og á morgun:
Meistarar
Njarövíkur
mæta til leiks
- „Ómetanleg lyftistöng fyrir körfuboltann
á Akranesi,“ segir Gísli Gíslason um mótiö
Stærsti viðburður keppnistímabilsins hjá körfuknattleiks-
mönnum hér á Akranesi hefst í íþróttahúsinu við Vesturgötu í kvöld
kl. 18. Er hér um að ræða Skagablaðsmótið í körfuknattleik, sex
liða mót með þátttöku sjálfra Islandsmeistaranna Njarðvíkinga.
Það er Skagablaðið sem heldur þetta mót í samvinnu við
körfuknattleiksráð og leggur blaðið til öll verðlaun á mótinu, þ.m.t.
veglegan farandgrip auk fjögurra eignarbikara, og stendur fyrir
sérstöku Iokahófi ásamt ráðinu. Hugmyndin er að Skagablaðsmótið
verði árviss viðburður.
„Þetta mót er okkur körfu-
knattleiksmönnum á Akranesi
tvímælalaust ómetanleg lyfti-
stöng,“ sagði Gísli Gíslason,
þjálfari 2. deildarliðs Skaga-
manna í körfunni og helsta
driffjöður liðsins. „Ég er að
auki viss um að þetta á eftir að
verða mót, sem lið sækjast eftir
að fá að taka þátt í þegar fram
líða tímar,“ bætti Gísli við.
Hann sagði Skagamenn myndu
mæta grimma til leiks og með
það hugarfar að sigra í hverri
viðureign. „Þetta er lokasprett-
urinn á keppnistímabilinu hjá
okkur og óneitanlega væri gam-
an ef okkur tækist vel upp.“
Svo vikið sé að þátttökulið-
unum þá eru þau sex talsins.
Auk íslandsmeistara Njarðvík-
ur og gestgjafanna, Skaga-
BL'ItÉll" 7
\ 'l,_\1
íslandsmeistarar Njarðvíkinga fagna sigri í lok þriðja úrslitaleiksins ,gegn Haukum. Mynd:
Víkur-fréttir/pfcet.
manna, taka Skallagrímur,
Reynir, Léttir og Breiðablik
þátt í mótinu. Fyrirkomulagið
verður þannig að allir leika
gegn öllum — alls verða leik-
imir því 15 talsins — og verður
hver leikur 2x15 mínútur að
lengd. Það verður stíft leikið
því í kvöld verða 6 leikir, sá
fyrsti kl. 18, sá síðasti hefst svo
um 22.15. Síðan verðurbyrjað á
ný kl. 9 í fyrramálið og leikið til
kl. 18 en að þeim leik loknum
koma leikmenn liðanna saman
í hófi, þar sem verðlaun verða
afhent.
Leikjaniðurröðunin hefur ver-
ið ákveðin þannig: (rétt er þó
að taka fram að erfitt er að
tímasetja leikina mjög nákvæm-
lega þar sem hver rekur annan):
Kl. 18 Skallagrímur — ÍA, þá
Breiðablik — Reynir og svo
Léttir - Njarðvík um kl. 20.
Önnur umferð hefst með leik
Skallagríms og Reynis um kl.
20.45, þá leika ÍA og Léttir og
loks Breiðablik og Njarðvík. f
fyrramálið hefst 3. umferð með
leik ÍA og Reynis, þá leika
Breiðablik og Léttir og svo
Njarðvík og Skallagrímur.
Fjórða umferð hefst um kl. 12
með leik Reynis og Léttis,
síðan mætast Njarðvík og f A og
loks Breiðablik og Skallagrím-
ur. Lokaumferðin hefst síðan
væntanlega um kl. 15 með leik
Njarðvík og Reynis, svo leika
Skallagrímur og Léttir og loka-
leikurinn er viðureign IA og
Breiðabliks.
Fyrirfram verður að telja
Njarðvíkinga sigurstrangleg-
asta en um önnur sæti er erfitt
að spá. Reynismenn stóðu sig
ágætlega í 1. deildinni í vetur en
hin fjögur liðin eru öll úr 2.
deild. Breiðablik tryggði sér
reyndar sigur í 2. deildinni með
sigri yfir Skallagrími þannig að
búast má við hörkuviðureign
hjá þeim liðum og líklegt að
Borgnesingamir vilji hefna
ófaranna.
Það lið, sem ber sigur úr
býtum, fær áður umgetinn far-
andgrip til varðveislu þar til
næsta mót fer fram, auk eign-
arbikars. Þá verða þrenn ein-
staklingsverðlaun veitt; stiga-
hæsti leikmaðurinn, efnilegasti
leikmaðurinn og það sem á
enskunni er kallað „most valua-
ble player" en við höfum nefnt
þýðingarmesti leikmaðurinn og
það val gmndvallað út frá þýð-
ingu viðkomandi leikmanns fyr-
ir lið sitt.
Eins og sjá má af framan-
greindu ættu körfuknattleiks-
unnendur að fá nokkuð fyrir
sinn snúð í kvöld og á morgun
því boltinn stoppar vart augna-
blik nema yfir blánóttina. Ekki
ætti verð aðgöngumiða að fæla
fólk frá því að hvetja Skaga-
menn í mótinu því aðeins kost-
ar kr. 100 fyrir fullorðna og kr.
50 fyrir börn að berja fjörið
augum. Allir í íþróttahúsið!
Þessi fyrir*
tækistyðja
Skagablaðs-
mótiðíkörfu•
knattleik
(0) Oliufélagið hf
Akranesumboð.Breiðgötu 1, s.1394
Akraprjón
Stillholti 18, sími 2080
Heimilis-
og húseigenda-
tryggingar.
SJÓVÁ
Suðurgötu 62, sími 2000
Shell
Einkaumboö
Skeljungur h.f.
Akranesumboð,
Bárugötu 21, s. 2335
Sementsverksmiðja
ríkisins
II
b:;E|
ÞORGEIR & ELLERT HF.
Bakkatúni 26, s. 1159-1160
Akraneskaupstaður
Kirkjubraut 28, sími 1211
loi(6S
Þjóðbraut 1, sími 2622
Harðarbakarí
Kirkjubraut 54, sími 2004
Steypa-fylling
- vélavinna
~ÞOREEIR‘HELEF
snnrusmo /immiiisi
simar 1062 og 2390
Lúftrasveitin meft
HENSON
Skipholti 37
Sportfatnaður
Einars Ólafssonar
Skagabraut 9-11 • Sími 2015
Smurstöðin
Smiðjuvöllum, sími 2445
Rafues
íslenska járnblendifélagið
/ORtimtffl
\ TRYGGINGAR
Matlhíav Hallgrímsson
Ilcidarbraut 7, sími 1286
Grundartanga, sími 3944
93-2800
GARÐABRAUT 2
SKAGA
Bókhaldsþjónustan sf.
Suðurgötu 45, sími 1570
VÖRUMARKADUR
~ MMMMMMM
Hjólbarðaviðgerðin sf.
Suðurgötu 41, Dalbraut 13
MIOaeR3 S1775-1776 GARÐAGRUND S 1030
afmælistónleika
Lúðrasveit Akraness efnir á
morgun, laugardag, til tónleika í
Bíóhöllinni í tilefni 25 ára afmælis
sveitarinnar. Auk LA leikur
Lúðrasveit verkalýðsins á tónleik-
unum en einnig mun „big band“
koma fram. Sveitimar munu spila
hvor í sínu lagi og svo einnig
saman. Stjómandi Lúðrasveitar
Akraness er Láras Sighvatsson en
stjómandi Lúðrasveitar verka-
lýðsins er Ellert Karlsson.
Það er ekki á hverjum degi sem
Lúðrasveit okkar Skagamanna
efnir til tónleika og enn sjald-
gæfara er að jafn góðir gestir og
blásarar verkalýðsins sæki okkur
heim í sama mund. Það væri því
vel til fundið hjá fyrirtækjum
bæjarins að slá tvær flugur í einu
höggi á morgun; bjóða starfsfólki
sínu á tónleika og styrkja starf-
semi lúðrasveitarinnar um leið.