Skagablaðið - 12.03.1986, Síða 1
Hitabreytingar
leika bakið illa
og þao míglekur
Við sögðum frá því að Guð-
mundur Vésteinsson, einn stjórn-
armanna í Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar, hefði lagt fram
tillögu á stjórnarfundi í fyrri viku,
þar sem óskað var eftir að HAB
yrði strax við tilmælum Iðnaðar-
ráðuneytisins og lækkaði taxta
s'na um 7%. Fyrir þrýsting dró
C>uðmundur tillöguna til baka en
fylgdi henni eftir af festu á fundi
1 síðustu viku og var hún bókuð
er> ekki samþykkt. Tillagan var
svohljóðandi:
.,Með vísan til tilmæla Iðnaðarráðu-
icytisins samkvæmt samþykkt rikis-
stjórnarinnar frá 11. febrúar sl. sam-
Þykkir stjórn HAB að lækka gjaldskrá
hitaveitunnar um 7% frá 1. mars sl. og
senda Iðnaðarráðuneytinu slíka
gjaldskrá til staðfestingar í trausti þess
að stjórnvöld beiti sér fyrir nauðsyn-
legum ráðstöfunum til að leysa úr
fekstrarvanda hitaveitunnar og vísar
stjórnin í þvt efni til margítrekaðra
viðræðna við stjórnvöld á undanförn-
um mánuðum og árum.“
áætlunar næði yfir þessa fram-
kvæmd í ár.
Hvað lekann sjálfan varðaði
sagði Daníel hann vera af hönn-
unarfræðilegum orsökum. A
Þekjunni væri álþak, sem hreyfð-
ist meira en venjulegt járnþak í
miklum hitabreytingum og þá
gerðist það að læki með nöglun-
um.
Eins og vœntanlega má sjá af þessari mynd er ekki beint fýsilegt að stunda kennslu við þœr aðstæður sem
gat að líta á Þekjunni sl. mánudagsmorgun.
„Langþráður draum-
ur er að rætast"
- segir Guttormur Jónsson, myndlistarmaöur
Guttormur Jónsson, myndlist-
armaöur, opnar formlega á laug-
ardaginn langþráða og um leiö
ákaflega umdeilda vinnustofu
sína. Vinnustofa þessi fór á sín-
um tíma mjög fyrir brjóstið á
bæjarstjórn en er nú að endingu
komin upp. Bæjarstjórn hefur
verið hoðið að verða viðstödd
formlega opnun stofunnar kl. 14
á laugardag. Við opnunina verð-
ur boðið upp á „mini-sýningu“.
„Það má segja að þarna sé
langþráður draumur að rætast,"
sagði Guttormur er Skagablaðið
ræddi stuttlega við hann í gær.
„Þetta hefur útheimt heilmikla
vinnu en ég hef notið dyggilegs
stuðnings fjölskyldunnar við að
koma vinnustofunni upp,“ bætti
hann við.
Vinnustofan er 36 fermetrar
að grunnfleti teiknuð af Ragnari
á Verkfræði- og teiknistofunni.
Hún er sérstaklega hönnuð með
þarfir listamannsins í huga og
leysir af hólmi ófullnægjandi
aðstöðu sem hann hefur notast
við í bílskúrnum um margra ára
skeið.
Ekki verður um það að ræða
að vinnustofan verði opin
almenningi alla jafna en bæjar-
búum gefst þó kostur á að skoða
vinnustofuna á milli kl. 16 og 18
á sunnudag.
Takmarkaóur áhugi æskunnar á
bæjarmálapólitíkinni á Akranesi
Ungt fólk á Akranesi virðist að stórum hluta mjög óákveðið þegar
böndin berast að stjórnmálum. Þetta skín út úr könnun á fylgi
stjórnmálaflokkanna sem gerð var á vegum hóps innan Fjölbrauta-
skólans á Akranesi í tengslum við „Opnu vikuna“ svokölluðu.
Urtakið, sem notað var í 25 þeirra 80 sem svöruðu spurn-
könnuninni, var valið úr hópi ingunum. Niðurstöður í því tilliti
300 nemenda, sem fæddir eru því tæpast marktækar. Alþýðu-
1968 eða fyrr. Úr þeim hópi voru
síðan 100 nemendur valdir af
handahófi. Af þessum 100 svör-
uðu 80 þeim spurningum sem
fyrir þá voru lagðar.
Varðandi bæjarstjórnarkosn-
ingarnar, sem fram fara í vor,
fengust aðeins ákveðin svör frá
flokkur fékk 8 þessara 25
atkvæða, Sjálfstæðisflokkurinn
6, Framsóknarflokkurinn og
Alþýðubandalagið 4 hvor,
Kvennalistinn 2 og „önnur
framboð" 1.
Þegar litið er til niðurstöðu í
tengslum við Alþingiskosning-
arnar kemur í ljós að áhuginn á
landsmálum virðist heldur meiri
en á bæjarmálum því 47 af 80
gefa ákveðið svar. Þar kemur
Sjálfstæðisflokkurinn best út
með 16 atkvæði, Alþýðuflokkur-
inn fékk 13, Bandalag jafnað-
armanna 6, Alþýðubandalagið
5, Framsóknarflokkurinn 4,
Kvennalistinn 2 og Flokkur
mannsins 1.
Samhliða spurningum um
pólitíska afstöðu var spurt um
afstöðu til lækkunar kosninga-
aldurs, lokun útibús ÁTVR á
Akranesi, kjarasamninganna og
fjarvistarkerfis FA.
Alls töldu 44 þeirra 80, sem
svöruðu í úrtakinu að lækka
bæri kosningaaldurinn í 18 ár,
en 36 voru andvígir því. Alls
svöruðu 54 þeirri spurningu
hvort loka ætti útibúi ÁTVR hér
á Akranesi neitandi en 6 voru
hlynntir því. Tuttugu svöruðu
ekki. Þá var51 hlynntur nýgerð-
um kjarasamningum en 24 and-
vígir. Fimm svöruðu ekki.
„Þetta er alltaf svona þegar
rignir að ráði og hefur verið svona
i langan tíma,“ sagði einn kennar-
anna við Þekjuna er Skagablaðið
kom þangað rétt fyrir hádegi á
mánudag eftir að nemendur
höfðu fengið leyfi kennara til þess
að hafa samband við blaðið til
þess að vekja athygli á miklum
leka, sér í lagi í einni stofunni.
Nemendurnir voru bersýnilega
orðnir hvekktir á þessum Ieka og
sögðu ekki annað fært en að vera
> ein'nverjum skófatnaði innan-
dyra ef menn vildu ekki vökna í
fæturna þó svo þess sé farið á leit
v'ð nemendur að þeir skilji skó
sína eftir í fordyrinu. Við slíkum
tilmælum er erfitt að verða á
ngningardögum eins og sl. mánu-
dag.
En hvað er til ráða? Skagablað-
'ð sneri sér til Daníels Árnasonar,
bæjartæknifræðings, og innti
hann eftir því hvort ekki væri von
á úrbótum.
Daníel sagði þá á tæknideild-
'nni vita af þessum leka og þeir
væru búnir að leggja inn beiðni
únt fjármagn til þess að geta gert
við þakið. Nú væri hins vegar
spurning hvort rammi fjárhags-
Harður á 7
prósentum