Skagablaðið - 12.03.1986, Qupperneq 4
T A L I Ð
„Sló seinasta stafinn kl. 15
þann 3. fébrúar síðastliðinn'
- Steinunn Jóhannesdóttir um leikrit sitt Kitlur
Leiklistarklúbbur nemendafélags Fjölbrautaskólans á Akranesi
frumsýnir næstkomandi föstudag unglingaleikritið Kitlur. Höfund-
ur er Steinunn Jóhannesdóttir, en hún ætti að vera Akurnesingum
kunn því hún er fædd og uppalin hér á Akranesi. Kitlur er annað
leikritið sem sýnt er eftir Steinunni, hitt var Dans á rósum sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu leikárið 1981-2.
Skagablaðið ræddi við Krakkarnir
höfundinn um verkið og leikar- aðstöðu.
væru vanir þessari
ana, en alls eru um 35 sem starfa
að ieikritinu, en leikarar eru 22.
Steinunn sagði að hún hefði
starfað með skólaleikklúbbum
áður, hjá M.R. og M.A., og
sagði hún að það væri mjög
skemmtilegt að vinna með fólki
á þessum aldri, það væri mjög
dugiegt og krakkarnir hér væru
virkilega góð og legðu sig öll
fram. Aðstaðan sem þau hefðu
sagði hún að dygði, það væri vel
hægt að leika á þessu sviði,
sviðsmyndin væri ekki flókin né
fyrirferðamikil og þau kæmust
að seinni hluta dagsins til að æfa.
Fjórir ólíkir pólar
Við spurðum Steinunni um
hvað verkið fjallaði.
„Kitlur er leikrit um samskipti
unglinga sín á milliog unglinga
og foreldra, eða öllu heldur
samskipti fólks, því ungiingar
eru jú bara fólk þótt þeir séu á
þessum aldri. Það segir frá ferm-
ingardeginum og árinu á eftir í
lífi fjögurra unglinga, Ástu,
Benna, Hlyns og Lottu. Þau eru
bekkjarsystkin en koma úr ólíku
umhverfi og heimilum. Ásta er
úr listamannafjölskyldu og er
sjálf að stíga sín fyrstu spor á
listabrautinni. Hlynur er sonur
einstæðrar móður og auraleysið
neyðir hann til að byrja snemma
að vinna fyrir sér. Benni er úr
allsnægtafjölskyldu, skortir ekk-
ert nema tilfinningalegt öryggi.
Hann er hin ástsjúki ungi maður
og elskar Lottu, sem er læknis-
dóttir og á sænska ömmu. Lotta
er sigldari og lífsreyndari en
kannski gengur og gerist um
unglinga. Þessir krakkar eru
stundum vinir, stundum óvinir.
Þetta er tápmikið fólk, eins og
ég held að flestir íslenskir ungl-
ingar séu. Þau eru að stíga sín
fyrstu spor inn í heim hinna
fullorðnu, forvitin og fiktgjörn,
en líka hikandi og hrædd. Eins
og lög gera ráð fyrir á kynþroska-
skeiðinuu eru þau skotin hvert í
öðru. Tryllingslega ástfangin og
örvæntingarfull. Með öðrum
Frá Taflfélaai
Akraness
Nú er nýlokið firmakeppni Taflfélags Akraness í skák.
Eftirtöldum fyrirtækjum, sem tóku þátt í henni, eru færðar
bestu þakkir:
Samvinnubankinn - Sementsverksmiðja ríkisins - Bókaverslun Andr-
ésar Níelssonar - Bíóhöllin - Haraldur Böðvarsson & Co. - Hjólbarða-
viðgerðin - Skaganesti - Verkfræði- og teiknistofan sf. - Trésmiðjan
Akur - Harðarbakarí - Akraneskaupstaður - Samvinnuferðir/Landsýn
- Versl. Einar Ólafsson - Haförn hf. - Málningarþjónustan - Síldar- og
fiskimjölsverksmiðja Akraness - Þorgeir & Ellert - Heimaskagi hf. -
íslenska járnblendifélagið - Nótastöðin og Landsbanki íslands.
í mótinu sigraði Samvinnubankinn en Sementsverksmiðja
ríkisins hlaut 2. sætið og Landsbankinn 3. sætið.
Taflfélagið minnir á skákæfingarnar sem haldnar eru í
Röst á fimmtudögum kl. 20. Allir velkomnir.
Stjórnin.
orðum, Kitlur er leikrit um
fyrstu ástina og þetta kitlandi
ástand, þegar alvara lífsins er á
næsta leiti,“ sagði Steinunn.
I stníðum í 3 ár
Hún var spurð, hversu lengi
hún hefði verið að semja leikrit-
ið, sagðist hún hafa verið lengi
með það í smíðum, bráðum þrjú
ár, en þessari leikgerð hefði hún
lokið á tæpum mánuði og slegið
seinasta stafinn kl. 15:00 3.
febrúar síðastliðinn og mætt með
fyrstu fjölrituðu eintökin á
æfingu að kvöldi þess sama dags.
Steinunn sagði að sér þætti
mjög vænt um að leikritið yrði
frumsýnt hér a æsku- og uppeld-
isslóðum hennar. Ekki taldi hún
að það væri sótt í æsku hennar
nema að litlu leyti, leikritið væri
um nútímaunglinga, æskan nú
væri mun lífsreyndari en áður
var, hún hefði enn meira úrval
tækifæra og freistinga og hætt-
urnar væru meiri nú en áður.
Ofsafengnar tilflnningar
Hún sagðist vilja koma á fram-
færi, að það vantaði oft á að
fullorðið fólk hefði skilning á
ofsanum í tilfinningum unglinga,
því hætti til að taka þá ekki
alvarlega, hvorki tilfinningar
þeirra né skoðanir. En hitt væri
líka satt að unglingar væru svo
ekkert allt of mikið að setja sig í
spor foreldra sinna, foreldrar
gætu líka verið á erfiðum aldri,
í stuttu máli það vantaði oft
tengslin og vinskapinn á milli
foreldra og unglinga. Steinunn
gat þess að hjá Námsgagnastofn-
un hefði komið út lítil saga fyrir
jól, Flautan og vindurinn og væri
hún byggð á litlu broti úr þessu
leikriti.
Unglingarnir fjórir Ásta,
Hlynur, Benni og Lotta eru
leikin af Þóru Jónsdóttur,
Bjarna Ármannssyni, Kristjáni
Kristinssyni og Bjarnheiði Halls-
dóttur, en til gamans má líka
geta þess að tvö níu ára börn
fara með hlutverk í leikritinu,
þau Valgerður Jónsdóttir og
Jóhannes Harðarson og standa
sig með mikilli prýði líkt og allir
hinir sem vinna að leikritinu.
Steinunn var spurð hvort Kitlur
væri eitthvað í átt að Grænjaxla
sem leiklistarklúbburinn sýndi
síðast. Hún sagði að bæði stykk-
in fjölluðu um fólk á svipuðum
aldri, Kitlur gæti verið nokkurs-
konar framhald á Grænjöxlum,
án þess að vera samið sem slíkt.
Snyrtivörukynning
KYNNUM NÝJU VOR- OG SUMARLITINA FRÁ
Helena Rubinstein
FRÁ KL. 11 NÆSTKOMANDI
FÖSTUDAG. SÝNUM Á MYNDBANDI NOTKUN NÝJU
SUMARLITANNA, EINNIG VOR- 0G SUMARTÍSKUNA
í FATNAÐI FRÁ ARMANI.
SNYRTIFRÆÐINGUR Á STAÐNUM — ÓKEYPIS
FÖRÐUN Á STAÐNUM —
OPIÐ ( HÁDEGINU.
VERZLUNIN
anvii: f ^
skólabraut{91
AKRANESI^1
Já, já, það vcröa dráttarvextir þann íjórtáudaS
Innheimta Akraneskaupstaðar
4