Skagablaðið - 12.03.1986, Blaðsíða 8
E ® H □ B EIU \M\ ® [d] [u] Jm
Okkur er hollt
aó minnast þess
sem vel er gert
Frétt í Skagablaðinu nú fyrir 2
vikum um íþróttahús IA á Jað-
arsbökkum þar sem segir að
bærinn bjóði stuðning sinn með
fyrirframgreiddri húsaleigu en
hafni kostnaðarþátttöku á sama
grundvelli og tíðkast hjá ná-
granna sveitarfélögunum, vakti
athygli mína.
Við lestur greinarinnar gæti sá
sem ekki þekkir til dregið þá
ályktun að bærinn, þ.e.a.s.
bæjarstjórn, styðji lítið við
íþróttahreyfinguna. Skoðun mín
er að það sé fjarri öllum sann-
leika og því vil ég bæta lítillega
við greinina.
Ljóst hefur verið lengi að hið
glæsilega íþróttahús okkar við
Vesturgötu væri orðið of lítið og
því þyrfti að hefjast handa við
byggingu nýs húss.
Spurningin hefur hins vegai
verið um forgang framkvæmda.
Enn lcngur hefur verið augljós
nauðsyn þess að byggja nýja
sundlaug á Jaðarsbökkum.
Vegna verðbólgu og óhag-
stæðra skilyrða undangenginna
ára hafa sveitarfélög orðið að
fara hægar í sakirnar varðandi
framkvæmdir en þau sjálf vildu.
Skólabyggingar hafa haft for-
gang í framkvæmdum bæjarins
síðustu árin og mun svo verða á
næstunni. Það var því ekki hægt
að hefjast handa við byggingu
sundlaugar og íþróttahúss sam-
tímis.
Því var það fagnaðarefni að
íþróttahreyfingin skyldi sýna
þann stórhug að ráðst sjálf í
byggingu íþróttahúss. Bæjaryfir-
völd gerðu forystumönnum ÍA
strax í upphafi grein fyrir því að
lögð yrði áhersla á að ljúka
byggingu sundlaugarinnar og að
þeir gætu ekki vænst stórra fram-
laga úr bæjarsjóði til íþróttahús-
byggingar á sama tíma. Um
þetta var ekki ágreiningur.
Akveðið var að búningsað-
staða skyldi vera sameiginleg
fyrir öll íþróttamannvirkin á Jað-
arsbökkum. Þar með er hlutur
baéjarins orðinn töluverður og ei
það vel. Einnig má nefna að
bærinn gaf uppfyllingu í grunn
hússins.
í annan stað gaf bærinn eftir
öll byggingaleyfisgjöld sem talin
eru nema níu hundruð þúsund
krónum.
Eins og fram kemur í téðri
grein eru að hefjast viðræður um
fyrirframgreiðslu á húsaleigu
vegna leikfimikennslu fyrir
nemendur Grundaskóla í nýja
íþróttahúsinu.
Það er ljóst að rekstrarlega
munu þessi mannvirki tengjast
saman og því augljóst að bærinn
tekur verulegan þátt í öllu
saman.
Það er skoðun mín að okkur
sé hollt að minnast þess sem vel
er gert og eins að segja söguna
alla, því fáir bæir hafa staðið sig
betur í uppbyggingu íþrótta- og
æskulýðsmála en Akranes.
Pórður Björgvinsson
Sandvarnargirðingarnar sem settar hafa verið upp.
Grjótgarð á Langasandinum
ætti að forðast í lengstu lög
Mig rak í rogastans þegar ég
las í síðasta Skagablaði það sem
haft var eftir bæjartæknifræð-
ingi, að nú væri í athugun að
setja grjótgarð á Langasand til
að hefta sandfokið. Ekki verður
séð að peninga vanti í bæjarkass-
ann ef hefta á sandfokið með
grjótgarði.
Slíkur garður yrði að vera
minnst þrír metrar á hæð og ná
frá Faxabrautinni og inn fyrir
klöppina. Þetta er að sjálfsögðu
séð af sjónarhóli leikmanns.
Hvað fræðingarnir hafa hugsað
sér læt ég ósagt því ekkert hefur
sést frá þeim um þennan garð
enn, en ef að líkum lætur má
búast við snjallri og ódýrri lausn
úr þeim herbúðum.
Gagnlegar girðingar
Núna fyrir stuttu voru settar
upp girðingar til að hefta sand-
fokið. Tvær girðingar voru settar
upp á horni Faxabrautar og Jað-
arsbrautar. Ekki orkar tvímælis
að slíkar girðingar eru til mikils
gagns en trúlega væru þær betur
komnar alveg fram á bökkunum
og niður á sand því augljóst
virðist vera að best sé að stöðva
sandfokið strax þar sem það á
upptök sín, eða hefst það ekki á
Langasandinum?
Ein slík girðing hefur þó verið
sett á bakkana og niður á sand-
inn inn við íþróttavöllinn. Ef
Grunnur nyja iþrottahussins.
slíkar girðingar yrðu settar á
bakkana með 50 metra millibili,
allt frá klöppinni og út undir
Faxabraut, myndi leikmaður
eins og ég álíta að sandfokið
væri úr sögunni.
Slíkar girðingar, sem orðið
hafa að umtalsefni hér að
framan, eru ekki neitt nýtt fyrir-
bæri hér á Skaga. í mörgum
tilfellum hafa íbúar, sem búa við
Krókasandinn varist sandfoki í
mörg ár með slíkum girðingum,
en þar fýkur sandur í norðanátt-
um eins og gefur að skilja. Því
mætti benda fræðingunum á að
kynna sér það nánar.
Hvað veldur sandfokinu?
Ýmsar tilgátur hafa komið
fram hvað veldur sandfokinu.
Sumir Jiallast að því að útrennsl-
ið frá Sementsverksmiðjunni
valdi þar miklu. Ekki get ég séð
nein rök sem mæla með slíkum
fullyrðingum. Ég hef alla mína
tíð, sem eru 50 ár, átt heima svo
að segja á Langasandsbökkun-
um og því hef ég haft góða
aðstöðu til þess að fylgjast með
þeim breytingum sem orðið hafa
á sandinum.
Breytingar fóru ekki að eiga
sér stað fyrr en grjótgarðurinn
var settur fram af hafnargarðin-
um. Við þá lengingu hefur líkast
til orðið breyting á straumum í
víkinni með þeim afleiðingum
að sandurinn tók að hlaðast upp
að bökkunum, þar sem hann
liggur og þornar. Þegar svo
hvessir fer hann af stað eins og
flestir, sem búa á efri-Skagan-
um, hafa komist í kynni við.
Varhugaverð ráðstöfun
Eftir grjótflutningana niður í
bæinn, sem leysa kannski einn
vanda en skapa annan, finnst
mér að menn ættu að athuga vel
sinn gang áður en ákvörðun
verður tekin um að fara að aka
grjóti á Langasandinn. Að mínu
áliti þyrfti slíkur garður að vera
svo stór ef eitthvert gagn ætti að
verða að, að slíkt mannvirki ætti
að forðast í lengstu lög.
Þær girðingar, sem ég gat um
áður myndu þjóna tvennum til-
gangi. í fyrsta lagi hefta sandfok-
ið og til þess væru þær auðvitað
reistar, og í öðru lagi veittu þær
ákjósanlegt skjól fyrir þá sem
stunda sólböð á sandinum á
sumrin. Hitt verður að viður-
kennast að engin prýði er að
slíkum girðingum en þær eru
fljótteknar niður ef þær ekki
þjóna sínu ætlunarverki. Það
sama er ekki hægt að segja um
þúsundir eða tugþúsundir tonna
af stórgrýti, sem búið væri að
aka á Langasandinn og stór-
skemma hann sem útivistar-
svæði.
Okkur sem erum fæddir og
uppaldir hér við Langasand,
finnst of vænt um hann til að við
getum sætt okkur við meiri grjót-
flutninga á hann en orðið er,
nema í algjöru neyðartilfelli.
Nú vil ég biðja þá sem búa
fremst á Jaðarsbökkum að vera
ekki að amast við sandfoksgirð-
ingunum ef reyndar yrðu að
marki. Að mínu áliti er þetta
langódýrasta og besta leið sem
völ er á fyrir tóman bæjarkassa.
í fyrra var ein slík girðing reist
frammi á bökkunum en þá mun
einhver ykkar ekki hafa linnt
látunum fyrr en girðingin var
tekin niður aftur.
Jón P. Pétursson
Orösending til lesenda:
Látið fullt nafn fylgja
þótt nafnleyndar sé óskað
Bréf frá lesendum berast
Skagablaðinu með reglulegu
millibili en þrátt fyrir að áhersla
hafi veirð lögð á að fullt nafn
þurfi að fylgja bréfum þótt dul-
nefni sé notað slæðast alltaf
nafnlaus bréf með póstinum.
Þessa dagana erum við með
tvö slík bréf í fórum okkar, sem
í sjálfu sér eru bæði góð og gild.
í ljósi þeirrar stefnu blaðsins að
birta ekki bréf, sem send eru inn
án nafns, viljum við beina þeim
tilmælum til þeirra, sem eiga
umrædd bréf, að þeir hafi sam-
band við ritstjórnarskrifstofu
Skagablaðsins.
Annað er merkt „Anonymus"
hitt er fyrirspurn frá Kárafélaga.
Rétt er að ítreka að Skagablaðið
gætir ætíð fyllstu nafnleyndar sé
þess óskað en bréfin fara ekki á
prent fyrr en ritstjórinn veit hver
hefur skrifað þau.
2261
8