Skagablaðið


Skagablaðið - 12.03.1986, Síða 12

Skagablaðið - 12.03.1986, Síða 12
Megas og Bubbi í fínu formi Meistari Megas og Bubbi Mortens héidu tónleika í Bíóhöllinni síðastliðið laugardagskvöld við mikla hrifningu áheyrenda. Um 200 manns sóttu tónleikana sem þóttu vel heppnaðir. Þeir hófust á því að Bubbi kom fram einn, en svo kom Megas og spilaði hann einn í smá tíma. Eftir það spiluðu þeir báðir og var virkilega gaman að heyra í þeim, það var tónlistarklúbbur NFFA sem stóð að því að fá þá félaga hingað uppeftir. Prófkjör AlþýðU' flokks um helgina Alþýðuflokkurinn á Akranesi gengst fyrir prófkjöri um næstu helgi og fer það fram í Röst, Vesturgötu 53, frá kl. 14-20 bæði laugardag og sunnudag. Allir þeir, sem náð hafa 18 ára aldri geta tekið þátt í prófkjörinu, þ.e. það er opið sem kallað er. Við undirbúning prófkjörsins efndi undirbúningsnefnd þess m.a. til forkönnunar á meðal allra félagsbundinna Alþýðuflokks- manna og óskaði eftir ábending- um um einstaklinga til þátttöku í prófkjörinu. Niðurstaðan af þessu starfi nefndarinnar varð sú að 12 einstaklingar gefa kost á sér. Óskað er eftir því að kjósendur raði frambjóðendum upp eftir númeraröð og er þess óskað að raðað sé í minnst 3 efstu sæti listans. Sfldar- og fiskimjölsverksmiðjan er að endurnýja tæki hjá sér um þessar mundir. Eru það pressur og sjóðari sem verið er að skipta um, en tækin sem voru fyrir eru mjög svo komin til ára sinna. Verkfræð- ingurinn sem vinnur við að setja tækin upp hafði á orði að þau tæki sem voru fyrir væru sennilega elstu tæki á Norðurlöndum. Tækin sem sett eru upp nú eru ekki ný en þó nýrri en þau sem fyrir voru. Ekki er á döfinni að gera neinar stórar breytingar hjá SFA heldur er þetta liður í öryggisráðstöfunum því ekki þótti vert að treysta lengur á gömlu tækin. Enn er verð á matvöru kannaÓ: Óverulegurmunur á milli verslana Mjög óverulegur munur er á verði matvöru á milli einstakra verslana hér á Akranesi. Þetta kemur fram í ítarlegri verðkönn- un, sem nemendur Fjölbrauta- skólans á Akranesi framkvæmdu í tengslum við svonefnda „Opna viku“ í skólanum Verð matvöru var kannað í fjórum verslunum hérá Akranesi, Kaupfélagi Borgfirðinga, Slátur- félagi Suðurlands, Versl. Einars Ólafssonar og Skagaveri. Alls var verð á 53 vörutegunum kannað. Ut úr þeim fjölda voru svo dregnir 26 flokkar og þeir settir saman i „innkaupakörfuna“. Þegar heildarverð þessara 26 flokka hafði verið tekið saman kom í ljós að verðmunur á milli þeirrar verslunar, sem var ódýr- ust, og þeirrar sem var dýrust var aðeins 7,8%. „Innkaupakarfan“ reyndist ódýrust í Versl. Einars Ólafssonar, kr. 2.358,55. Næst var verslun Sláturfélags Suður- lands með kr. 2.439,10, þá Skaga- ver með 2.496,70 krónur og þá Kaupfélag Borgfirðinga 2.543,35 krónur. Sem dæmi um samræmt verð verslananna má nefna lambalæri. Þar voru þrjár af fjórum með kílóið á kr. 367,40 en ein á 367,60 eða aðeins 20 aurum hærra. Ann- að dæmi er Hreinol-uppþvotta- lögur, sem kostar á bilinu 51,50 til 52,40 í öllum verslununum. Þótt verðmunurinn sé yfirleitt lítill nær hann sums staðar nokkr- um tugum prósenta. Tvö kíló af Juvel-hveiti kosta t.d. kr. 35,90 í Versl. Einars Ólafssonar en 51,20 í Kaupfélaginu. Þarna munar 42,6%. Verð á Libby’s tómatsósu er ennfremur 41,7% dýrara hjá KB en Versl. Einars Ólafssonar. Þegar verð á lambahrygg er hins vegar skoðað snýst dæmið aftur á móti við. Þar er KB með 43,5% ódýrara kjöt en Sláturfélagið. Verð á grænni papriku er enn- fremur 36% dýrara í sláturfélag- inu en hjá Kaupfélaginu. Þessi fjögur dæmi eru öll óvenjuleg því þar er verðmunur mikill. f 21 tilviki af 53 reyndist munurinn á milli hæsta og lægsta verðs innan við 10% og í 18 tilvikum á milli 10 og 20%. Þrátt fyrir nokkrar verðsveiflur í einstaka vöruflokkum á milli verslana er af öllu Ijóst að verð matvöru er mjög lágt á Akranesi og óvíða á landinu hagstæðara að versla en hér. Það er sú niðurstaða sem mestu máli skiptir úr könnun sem þessari. Lokafrágangi á „nýja Stillholtinir miðar vel - fyrsta samkoman þar um næstu helgi í samkomusalnum á efri hæðinni „Við flytjum vélar og áhöld um páskana, en hvenær formlega verður opnað er ekki hægt að segja nákvæmlega til um, en það verður fljótlega eftir páska. |,e((a hefur gengið Ijómandi vel og aðeins spurning um tíma hvenær allt verður komið í rétt horf,“ sagði Egill Egilsson veitingamað- ur, þegar við inntum hann eftir því hvernig gengi að fullgera nýja veitingastaðinn. Hann sagði að starfsemin byrj- aði óformlega næsta föstudag, en þá verður Sjávarréttagerðin með hádegisfund þar sem framleiðsla fyrirtækisins verður kynnt. Þá verður sameiginlegur fundur hjá Norræna félaginu og Rótary- klúbbnum en hann á 30 ára afmæli um þessar mundir. Egill sagði að þá yrði salurinn uppi og anddyrið tilbúið. Egill sagði að þessa dagana væri dagsmunur á staðnum, eitt og annað væri að koma, til dæmis borðin og stólarnir, lyftan í eld- húsið og barinn. Þetta væri allt að smella saman og fljótlega væri hægt að fara að þjónusta á fullu.

x

Skagablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.