Skagablaðið - 24.09.1986, Side 8
Fjallalambið gómað
Réttað var í fjárréttinni inni við Berjadalsá á sunnudag að aflok-
inni fyrri smölun hjá Fjáreigendafélagi Akraness. Heimtur voru
misgóðar en smalað verður að nýju í Grafardal um aðra helgi og
koma þá flökkusauðirnir vonandi í ljós. Þessari mynd var smellt af
á sunnudag og sýnir hún unga hnátu sem hefur betur í viðureign sinni
við eitt fjallalambið.
Æfingasvæði ÍA
stækkar að mun
Bæjarstjórn hefur samþykkt að
úthluta Knattspyrnufélagi ÍA 2/3
hluta þess svæðis, sem merkt hef-
ur verið „æfingavellir“ á deili-
skipulagi frá 1984. Þama er fyrir-
hugað að koma upp 2-3 knatt-
Dauftyfir
höfninni
Fremur dauft hefur verið yfir
lífinu við höfnina undanfarna
viku og heyrir það nánast til
undantekninga. Yfirleitt er allt
iðandi af lífi við þessa sannköll-
uðu „lífæð“ bæjarins.
Akurnesingur kom inn með
ca. 35 tonn af rækju á föstudag
og á mánudag kom Haraldur
Böðvarsson með 140 tonn.
Fremur tregt hefur verið hjá
smábátunum eins og við skýrð-
um frá í síðasta blaði. Þó fékk
Enok 1800 kíló og nokkrirvoru
með 7-800 kíló en annars
minna.
spyrnuvöllum og bætist þetta
svæði, sem er fyrir innan núver-
andi æfingasvæði við hlið malar-
vallarins. við núverandi aðstöðu.
Þá var samþvkkt að félagið skyldi
sjálft sjá um uppbyggingu svæðis-
ins í samráði við bæjaryfirvöld.
Jón Gunnlaugsson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA, sagði í
samtali við Skagablaðið að þessi
samþykkt markaði tímamót að
vissu leyti því nú væri félaginu
sjálfu gert að sjá um uppbyggingu
svæðisins. Sagði hann það já-
kvæða þróun og æskilega ekki síst
í ljósi þess að fjárhagur bæjarins
væri þröngur og því erfitt um vik
við eins hraða uppbyggingu svæð-
isins og æskilegt væri.
Jón sagðist ennfremur telja, að
Knattspyrnufélagið mundi fara út
í framkvæmdir við svæðið með
aðstoð einstaklinga og vinveittra
fyrirtækja og yrði ljóst að mikil
þörf myndi verða fyrir sjálfboða-
liða. „Það má segja að þetta komi
í beinu og eðlilegu framhaldi af
þeirri ákvörðun IA að reisa sitt
eigið íþróttahús á Jaðarsbökk-
um,“ sagði Jón.
Úttekt á öryggismálum við Akraneshöfn:
Stigar allt of fáir,
of stuttir eða ónýtir
Oryggismál Akraneshafnar hafa oftlega verið til umræðu og hefur það verið almcnnt álit manna, að
þrátt fyrir að eitt og annað væri þar í góðu lagi væri enn margt sem betur mætti fara. Sigurður Þorsteins-
son, hafnarverkstjóri, hefur tekið saman skýrslu um það sem lagfæra þyrfti við höfnina og er það fróðleg
lesning.
Bendir hann m.a. að bjarghringjum þurfi að fjölga og ennfremur þurfi aö lengja bryggjustiga á a.m.k.
10 stööum um hálfan annan metra. Aukinheldur telur Sigurður að kaupa þurfi allt að 15 nýja stiga. Þá
bendir Siguröur á í samantekt sinni. að steypa bryggjanna sé á nokkrum stöðum farin að láta á sjá og séu
bindijárn komin í Ijós. Ástandið í þessu tilliti er verst að því er virðist á Scmentsbryggjunni. sér í lagi á
austurkanti hennar þar sent myndast hafa göt.
Þessa dagana er verið að vinna að gcrð kostnaðaráætlunar vegna þeirra lagfæringa sern framkvæma
þyrfti í kjölfar úttektar Sigurðar.
HAB gef-
iö undir
fótinn
Hitaveita Akraness og Borgar-
fjarðar hefur að undanförnu verið
að leita fyrir sér með leiguhús-
næði undir skrifstofur en núver-
andi leigusamningur veitunnar að
Kirkjubraut 40 rennur út um ára-
mótin.
Svo virðist sem margir hafi
áhuga á að leigja HAB húsnæði
undir skrifstofur. Þannig hefur
t.d. Guðmundur Magnússon boð-
ið fram efri hæð húss síns við Still-
holt til leigu og ennfremur hefur
borist leigutilboð frá eigendum
íbúðarhúsnæðisins á 2. hæð
Kirkjubrautar 54-56. Loks hafa
þeir Sigurjón & Þorbergur boðið
veitunni makaskipti á húseign
sinni við gamla þjóðveginn og
núverandi verkstæðishúsi HAB
við Esjubraut.
Gott atvinnuástand
Átvinnuástand hér á Skaga virðist ekki hafa verið betra en einmitt
nú í háa herrans tíð. Um síðustu mánaðamót voru aðeins þrír á at-
vinnuleysisskrá hér í bæ og hafa vart verið færri í annan tíma. Hins
vegar mun eitthvað hafa bæst á listann í þessum mánuði án þess þó
að um verulegan mun sé að ræða. Gott dæmi um atvinnuástandið í
bænum hefurt.d. lýst sér þannig á undanförnum vikum aðerfitt hef-
ur verið að fá fólk til starfa í fjölmörgum tilvikum.
Einn hinna hálfónýtu stiga.
Ökuþórar á Akranesi virð*
ast í algjörum sérflokki
Skagamenn eru enn í sérflokki ins og 14 í Garðabæ, sem reynd- mannfærri en ástkæri, árekstrafái
á meðal landsmanna hvað ar er heldur mannfleiri en Akra- bærinn okkar.
árekstra áhrærir. Þetta kemur nes. í Keflavík urðu árekstrarnir Mjög svipaðar tölur voru uppi á
glöggt í Ijós þegar samanburðar- 37 talsins! Keflavík er reyndar teningnum í júlímánuði og virðist
tölur yfir árekstra í ágústmánuði með um 25% fleiri íbúa en Akra- sem færni Skagamanna undir stýri
eruskoðaðar.Tölurnarkomafrá nes. sé vel yfir meðallagi. Hins vegar
Umferðarráði. En Akurnesingar skáka ekki hefur árekstrum fjölgað á ný síð-
Samkvæmt yfirlitinu urðu að- bara byggðalögum með svipaðan ustu vikurnar og kann það að stafa
eins 6 árekstrar hér á Akranesi í íbúafjölda. Á Isafirði, Húsavík og af skammdeginu eða þá hinu, að
ágústmánuði. í Vestmannaeyj- á Seltjarnarnesi urðu fleiri ökuþórar bæjarins eru orðnir of
um, sem er bær svipaður að árekstrar en á Akranesi í ágúst- öruggir með sig.
stærð, urðu árekstrarnir 10 tals- mánuði. Allir þessir staðir eru