Skagablaðið - 09.02.1989, Blaðsíða 4
4
Gísli Gislason, bæjarstjóri, skrifan
Fjáihagsáætlun 1989
Fjárhagsáætlun fyrir Akraneskaupstað og stofnanir hans fvrir árið
1989 liggur nú fyrir og fór fyrri umræða fram sl. þriðjudag. Undirbún-
ingur þessarar áætlunar hófst með vinnu forstöðumanna stofnana og
embættismanna bæjarins í október sl. en bæjarráð kom síðan inn í
þessa vinnu í byrjun janúar. I glímunni við að ná endum saman hjá
bæjarsjóði reyndust vandamálin mörg þau sömu og undanfarin ár,
þ.e. óskir um fjárútlát miklar, verkefnin mörg en tekjurnar takmark-
aðar.
Þegar litið er á rekstur síðasta
árs virðast rekstrargjöld ætla að
verða samkvæmt áætlun. Tekjur
fara nokkuð fram úr áætlun
þannig að mismunur tekna og
rekstrar verður töluvert meiri en
ráð var fyrir gert í síðustu fjár-
hagsáætlun og er það út af fyrir
sig ánægjuefni enda í fyrsta skipti
á þessum áratug sem slíkt er uppi
á teningnum.
En þessi árangur ræður ekki
öllu um heildarafkomu bæjar-
sjóðs. Samkvæmt bókhaldi
bæjarsjóðs er staðan sú hvað
varðar framkvæmdaliði, þ.e.
gjaldfærða og eignfærða fjárfest-
ingu, að kostnaður er um kr.
5.286.000 umfram áætlun.
Ræður þar mestu að frá þvf sem
áætlað var að leggja í Jaðars-
bakkalaug varð niðurstaðan
25.619.000 kr. hærri, cn á móti
þeim framkvæmdum færast til
tekna rúmar 20 milljónir sem cru
hlutur ríkissjóðs, en af þeirri
fjárhæð hafa þó aðeins fengist
greiddar kr. 900.0000 og á fjár-
lögum í ár er 1.590.000. Aðrir
fjárfestingarliðir voru nánast á
áætlun eða undir áætlun þannig
að í heild verður að telja niður-
stöðu rekstrar miðað við áætlun
góða.
En hvað varðar eignfærða og
gjaldfærða fjárfestingu verður
ekki það sama sagt þó svo bók-
haldsleg niðurstaða leiði til þess
að framúrakstur verði ekki
mikill. Það sem er bæjarsjóði
verulega þungt í skauti er slæm
afkoma fyrirtækja í bænum,
veltubreytingar þeirra á milli ára
undir landsmeðaltali og erfið
innheimta opinberra gjalda.
Þegar ársreikningar liggja fyrir
koma þessi atriði til með að vega
þungt þegar metið verður hvort
afkoma bæjarsjóðs hafi batnað
eða versnað frá árinu 1987.
En svo vikið sé að fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs fyrir árið 1989
þá er gert ráð fyrir að tekjur
verði kr. 390.274.000 sem er
14,7% hækkun á milli ára. Heild-
arrekstrargjöld eru áætluð kr.
339.699.000 en mismunur á milli
tekna og rekstrargjalda er kr.
50.575.000 sem er 13% af
tekjum. Þetta er sama hlutfall og
í því t'rumvarpi sem lagt var fram
til fyrri umræðu í fyrra en í
endanlegri áætlun varð hlutfallið
14,3%, en stefnir í að verða
miðað við áætlaða niðurstöðu
rekstrar í fyrra 20%. Því er vissu-
lega vonað að 13% í afgang af
tekjum þegar rekstur hefur verið
dreginn frá verði að þessu ári
liðnu eitthvað hærra hlutfall.
I fréttum undanfarið hefur
verið fjallað um fjárhagsáætlanir
ýmissa kaupstaða og m.a. hversu
mörgum prósentum tekna er
varið til framkvæmda. Nú er það
svo að tölum má stilla upp með
ýmsum hætti án þess að fara með
rangt mál. Það er samanburður-
inn sem oftast er rangur ef mis-
Gísli Gíslason, bœjarstjóri.
munandi uppsetning ræður því
hvernig mál eru sett fram.
Þannig mætti segja að Akranes-
kaupstaður leggi samkvæmt
þessu frumvarpi til fjárhagsáætl-
unar 13% af sameiginlegum tekj-
um til framkvæmda, en þegar lit-
ið er á þá fjárhæð sem varið er til
eignabreytinga, kr. 108.879.000,
er hún 18,7% af heildartekjum,
sem færðar eru í bókhald bæjar-
ins, kr. 579.452.000. Einnig
mætti hækka þetta hlutfall með
því að færa af rekstri stærra við-
hald fasteigna.
En hvað sem öllum reikning-
skúnstum líður þá er það
markmið bæjarstjórnar að leggja
fram og samþykkja raunhæfa
fjárhagsáætlun sem byggir á eðli-
legum forsendum og raunsæjum
markmiðum.
Forsendur þessarar áætlunar
eru 18% hækkun almenns
verðlags. Markmið hennar er
lækkun skulda bæjarins án þess
þó að draga saman þær fram-
kvæmdir sem brýn nauðsyn
kallar á að fé verði lagt í. Helstu
famkvæmdir verða þessar:
• Til endurnýjunar í Brekku-
bæjarskóla verða lagðar kr.
19.600.000 og er það stærsta
verkefni bæjarins á þessu ári.
• Til Dvalarheimilisins Höfða
renna á þessu ári úr bæjarsjóði
kr. 17.460.000.
• Áætlað er, að á móti
21.000.000 kr. framlagi ríkisins
til þjónustubyggingar Fjöl-
brautaskóla Vesturlands þá
greiði rekstraraðilar skólans kr.
9.000.000 og þar af bæjarsjóður
5.716.000.
• Áætlað er að verja kr.
5.000.000 til hönnunar og fram-
kvæmda við dagvistarstofnun.
• Framlag til byggingar kaup-
leiguíbúða og verkamannabú-
staða nemur kr. 4.500.000.
• Til framkvæmda við heilsu-
gæslustöð er áætiað að verja kr.
17.200.000 og hlutur bæjarins
þar er kr. 2.600.000. Vonir
standa til að unnt verði að haga
framkvæmdum þannig, að mögu-
legt verði að taka hluta hússins í
notkun árið 1990.
• Framkvæmdum við Vernd-
aðan vinnustað verður lokið á
árinu og er hlutur bæjarins þar
kr. 2.800.000.
• Gert er ráð fyrir kr.
1.500.000 í hönnum D-áfanga
Grundaskóla þannig að unnt
verði í samræmi við samning um
uppbyggingu grunnskólanna að
hefja framkvæmdir við þá bygg-
ingu árið 1990.
• Þá er gert ráð fyrir fram-
kvæmdum við götur, holræsi og
opin svæði að fjárhæð alls kr.
19.081.000 og kr. 1.300.000 í
landbrotsvarnir en brýnt er að
ráðast til atlögu við landbrot við
Leyni.
Lántökur eru áætlaðar samtals
kr. 41.685.000 sem er um
7.000.000 kr. lægri fjárhæð en
áætlað var.
Áætlanir hafnarsjóðs, vatns-
veitu, tónlistarskólans og raf-
veitu eru einnig til meðferðar
bæjarstjórnar.
Heildartekjur rafveitunnar eru
áætlaðar kr. 180.000.000 og er
áætlað að til rekstrar fari kr.
114.120.000 en til framkvæmda,
nýlagna og og fleira fari kr.
65.880.000. Áætlað er að byggja
nýja spennistöð við Akurgerði,
endurþæta götulýsingu, lagfæra
rafmagn á hafnarmannvirkjum
og leggja tvöfaldan nýjan há-
spennustreng að Höfða en einnig
er áætlað að endurbæta hús raf-
veitunnar að Dalbraut 8.
Tekjur hafnarsjóðs eru áætl-
aðar kr. 37.287.000 en rekstrar-
gjöld kr. 18.342.000. Fjárveiting
ríkisins er kr. 13.100.000 en af
tekjum hafnarinnar fara kr.
18.945.000 til rekstrar. Helstu
verkefni eru þessi:
• Endurnýjun á lóðsbát
• Dýpkun innri hafnarinnar
• Fylling á milli bátabryggju
og smábátahafnar
• Grjótfylling við þrær SFA
• Stoðveggur á aðalhafnar-
garði
• Lagfæring rafmagns á hafn-
armannvirkjum.
• Frágangur lóðar við hafnar-
húsið.
Tekjur Vatnsveitu Akraness
eru kr. 19.594.000 en rekstrar-
gjöld og afborganir skulda kr.
17.404.000 þannig að einungis
eru eftir kr. 2.190.000 til nýfram-
kvæmda. Mörg stór verkefni
liggja fyrir hjá stjórn vatnsveit-
unnar, reyndar svo stór að í þau
verður ekki ráðist nema með
sérstöku átaki. Þar má nefna
endurnýjun á aðveituæð til
bæjarins og uppsetningu miðlun-
argeymis á Neðri-Skaga.
Ágætu bæjarbúar. Hér að
framan er stiklað á stóru varð-
andi áætluð fjármál og verkefni
bæjarins á þessu ári. Allar þessar
áætlanir eru reistar á ákveðnum
forsendum varðandi verðbólgu
og vexti en það er ekki heiglum
hent en ætla sér að rýna í fram-
tíðina í þeim efnum. Ólgusjór
efnahagsmála getur leikið allar
áætlanir grátt, en þær forsendur
sem við er stuðst í ár bera með
sér einkenni þess að varlega er
siglt og reynt að seilast ekki of
langt, hvorki í útgjöldum eða
lántökum. Ég vona að fram-
kvæmd þessarar áætlunar verði
bænum okkar og bæjarbúum til
heilla.
Gísli Gíslason,
bæjarstjóri.
Hvaðvarðun
bjúháððina?
í 46. tbl. Skagablaðsins 1988 kom sú frétt
að þann 4. mars 1989 stæði til að halda
„Bjórhátíð í íþróttahúsinu við Vesturgötu.
Þar áttu að koma fram m.a. Léttsveit Tón-
listarskólans og sönghópurinn Oktavía.
Tilefni þessarar hátíðar yrði að safna fé
til byggingar Tónlistarskóla en eins og öll-
um er kunnugt býr Tónlistarskólinn við
óviðunandi aðstæður í húsnæðismálum.
Í síðasta tölublaði Skagablaðsins kom
fram sú athugasemd, að hátíðin yrði ekki
haldin vegna þess að áðurnefndir hópar
væru ekki tilbúnir með efní fyrir slíka hátíð
þrátt fyrir miklar æfingar.
í tilefni þessarar fréttar, og síðan athuga-
semdar, vilja aðstandendur Léttaveitar
Tónlistarskólans og Oktavíu taka fram
eftirfarandi:
Léttsveitin og Oktavía hafa unnið á
fullum krafti við að undirbúa sig fyrir þessa
hátíð og eru þessir hópar með fullæfða
dagskrá fyrir slíka hátíð. Að okkar mati
var áherslupunktur hátíðarinnar, „Bjór-
hátíð“, rangur í fréttinni. Tilefni hátíðar-
innar var jú að halda vandaða kvöld-
skemmtun jtar sem sem flestir bæjarbúar
gætu komið saman og skemmt sér, og um
leið stutt byggingu framtíðarhúsnæðis
Tónlistarskólans. Hugmyndin var að bjóða
veitingamönnum bæjarins að taka þátt í
skipulagi hátíðarinnar og sjá um sölu á
léttum veitingum. Auk þess var hugmyndin
að bjóða upp á létt vín og bjór til sölu. Á-
stæðan fyrir því að íþróttahúsið við Vest-
urgötu varð fyrir valinu var sú, að það hús
er eina húsiðí bænum sem er nógu stórt til
að rúma slíka hátíð og einnig sú, að þar
hafa verið haldnar veislur og dansleikir af
svipuðu tagi.
Ástæðan fyrir því, að ekkert verður af
þessari hátíð er sú að einhverjir aðilar hér
í bæ hafa komið því á framfæri að verði
hátíðin haldin með þessu smiði verði séð til
þess að íþróttahúsið verði upptekið
umræddan dag og kvöld.
f dálkinum Palli á punktinum í Skaga-
blaðinu var fyrir stuttu bent á það hversu
bæjarlífið væri dauft og frumkvæði heima-
manna lítið til að Iífga upp á það. Okkur
finnst því annarlegt að um leið og reynt er
að gera eitthvað í málinu séu aðilar í
þessum bæ sem sjá ofsjónum yfir slíku
framtaki og vilji koma í veg fyrir það með
öllum tiltækum ráðum. Við erum að von-
um óánægð með slík viðbrögð og áttum
satt að segja ekki von á þeim.
Þrátt fyrir þetta andstreymi munum við
flytja okkar dagskrá á öðrum vettvangi og
vonum um leið að þessir menn sem komu í
veg fyrir þessa hátíð sjái sóma sinn í því að
koma fram með einhverjar uppákomur til
upplífgunar menningarlífi bæjarbúa og hafi
hugmyndaflug til að slík uppákoma gæti
verið í einhverju öðru formi en íþrótta-
keppni.
Með von um að slíkt endurtaki sig ekki í
þessum bæ.
Virðingarfyllst.
Bjarki Sveinbjörnsson
Andrés Helgason
_____Lárus Sighvatsson.__________
Skagablaðið
Skagablaðið
5
IngóHur HróHsson, hítavertustjóri skrifan
Rekstrarerfiðleltar
Eins og margir viðskiptavinir hitaveitunnar hafa orðið varir við,
hafa orðið truflanir á rekstri hitaveitunnar að undanförnu. Hitinn á
vatninu hefur lækkað og þrýstingur fallið. Hitasveiflur hafa fylgt hita-
veitunni frá byrjun og eru eðlileg afleiðing þess að valin var „ódýr“
lausn á aðveitulögn. Það var öllum Ijóst frá byrjun að í úrkomu
lækkar einangrunargildi jarðvegsins ofan á aðveitulögninni og meiri
hiti tapast úr vatninu. Áhrif úrkomunnar eru þó ekki alvarleg, nema
um mikla og langvarandi rigningu sé að ræða eða snöggar leysingar.
Tvisvar síðan um áramót hefur loka fyrir sírennsli á neysluvatni
gert asahláku með tilheyrandi
kólnun á vatninu. Helsta vörn
hitaveitunnar er að auka vatns-
rennslið um lagnirnar eins og
hægt er. Það tekur þó alltaf
nokkra daga að ná vatnshitanum
upp á nýjan leik.
Þann 30. janúar gerði asahláku
og kólnaði þá hitaveituvatnið
mjög hratt. Að morgni þess 31.
janúar bilaði rör við Varmalæk.
Viðgerð gekk mjög vel, en
rennslisstöðvunin jók enn á kæl-
inguna. Þann 1. febrúar var
dælustöðin við Hafnará gangsett
í fyrsta sinn til að auka rennslið
til Akraness. Vatnsnotkun á
Akranesi var þá um 115 - 120
1/sek á sama tíma og vatnsgeymir
við Akranes var hálffullur.
Vatnsþrýstingur við bæjarmörk
féll þá niður í 3,5 - 4 kg/cm2.
Að morgni 3. febrúar sprungu
tvö rör í Rudda ofan við Stóra-
Kropp. Viðgerð lauk um hádegi,
en þá var geymir á Grjóteyri
tómur, vatnslaust í Borgarnesi í
fyrsta sinn og einungis 20% eða
um klukkutíma birgðir í Akran-
esgeymi.
Þegar þetta er skrifað (á
mánudegi) er vatnshiti og birgða-
staða að komast í eðlilegt horf.
Vatnsnotkun í bænum hefur á
þessum vetri orðið miklu meiri
en áður. Notkunin er 30% meiri
en eðlilegt getur talist miðað við
selt magn. Er nú svo komið að
vatnið úr Deildartunguhhver er
fullnýtt á mesta álagstíma. Ást-
æður þessarar miklu vatnsnotk-
unar liggja sennilega helst í göll-
uðu sölufyrirkomulagi. Neyslu-
vatn er ekki mælt eða skammtað,
enda á það við eðlilegar
aðstæður að vera lítill hluti af
notkuninni. Það lýtur þó helst út
fyrir að sírennsli á neysluvatni sé
mjög algengt. Neysluvatnsforhit-
arar, sem orðnir eru mjög
margir, viðast oft vera með sí-
rennsli á hitaveituvatninu. Sé svo
er um að ræða brot á reglugerð
hitaveitunnar. Sírennsli á heitu
vatni er líka mjög varhugavert
gagnvart frárennslislögnum
húsa. Hitaveitan biður fólk að
Leidrétting
Sá misskilningur kom upp í
grein Skagablaðsins um gjafir
Kvenfélags Akraness til grunn-
skólanna, að Byggingarsjóður
Húsmæðraskóla Ákraness, sem
leystur var upp, var ranglega
nefndur Ingunnarsjóður. Sá
sjóður er enn til.
Varðandi Byggingarsjóðinn
var ekki rétt að honum hefði
ekkert fé borist utan stofnfram-
lagsins. Kvenfélagið aflaði fjártil
hans fyrstu árin, einnig bárust í
hann gjafir auk þess sem bæjar-
sjóður styrkti hann.
og aðgæta hvort neysluvatnsfor-
hitararnir vinni eðlilega.
Skammtar: Hitaveitan miðar
hemlun við 77° C vatnshita í
dælustöð við Akranes. Undan-
farin ár hefur tekist að halda
meðalhita hvers mánaðar um eða
yfir þessum mörkum. Viðbótar-
skammtur er í samræmi við
gjaldskrá 6,7% í öllum bænum.
Þetta þýðir alls ekki að inn-
rennslishitastig sé 77° C, en láta
mun nærri að það leiki á bilinu 70
— 75° C.
Einstaka hús eru illa staðsett í
kerfinu og með langar heimæðar.
Þar hefur reynst erfitt að ná upp
hita á vatninu. Hitaveitan hefur
um nokkurt skeið haft þá vinnu-
reglu, að bæta við skammtinn í
þeim húsum sem ekki ná 70° C
innrennslishita við eðlilegar
aðstæður og kaupa lágmarks-
skammt samkvæmt áætlun hita-
veitunar. Það hefur reynst
mörgum erfitt að sætta sig við
körfuna um lágmarksskammt, en
viðmiðunarmörkin hljóta að vera
þau að ekki sé afhent ókeypis
vatn fyrr en komið er í það
lágmark, sem hús er talið þurfa
til upphitunar. Þrátt fyrir þessa
leiðréttingu er Ijóst að notendur
fá misheitt vatn. Sá mismunur
verður ekki leiðréttur nema með
breyttu sölufyrirkomulagi. Æski-
legt væri að nota mæla, sem
mæla rennsli og innrennslishita
vatnsins. Lauslega áætlað myndi
slík breyting kosta 40 — 60 mili-
jónir króna.
Nú er í gangi umfangsmikil
könnun á hitastigi í dreifikerfi
hitaveitunnar. Þegar niðurstöður
þeirrar könunar liggja fyrir
verður kominn betri grundvöllur
til ákvarðanatöku um framhald-
ið.
Forsala aðgöngumiða á tónleika Artch í Hótel íslandi dagana
1. og 2. mars er hafin á ritstjórn Skagablaðsins. Verð miða kr.
1.500. Pakkatilboð: Miði á tónleikana og rútuíerð kr. 1.950,-
ATH! Fyrri tónleikarnir eru ætlaðir unglingum og á þá er ekk-
ert aldurstakmark. Seinna kvöldið er aldurstakmark 18 ár.
Þungarokksveitin Battery frá Akranesi „hitar upp“ síðara
kvöldið.
Skagablaðið
Ingólfur Hrólfsson, hitaveitustjóri, á skrifstofu sinni.
OPINN FUNDUR
UM ATVINNUMÁL
Kvennalistinn á Vesturlandi heldur fund á gamla sal Fjölbrautaskóla Vest-
urlands laugardaginn 11. febrúar kl. 14.
Efni fundarins:
1) Ávarp: Danfríður Skarphéðinsdóttir
2) Atvinnuleysi og áhrif þess: Herdís Ólafssdóttir, starfsmaður Verka-
lýðsfélags Akraness, og Ragnheiður Þorgrímsdóttir, formaður atvinnu-
málanefndar Akraness.
3) Kaffihlé: Valbjörg Kristmundsdóttir spjallar um jafnréttisbaráttu
kvenna.
4) Atvinnulausar konur og leiðir til úrbóta: Sigrún Jóhannesdóttir, kenn-
ari á Bifröst, Kristín Karlsdóttir frá Seyðisfirði og Málmfríður Sigurð-
ardóttir, þingkona Kvennalistans.
Állir relkomnir — barnagæsla á staðnum
Kvennalistinn á Vesturlandi
Þrýstingur: Afköst dælu í
dælustöð við Akranes eru miðuð
við að halda 5 kg/cm2 þrýstingi
við bæjarmörk þegar dæling er
90 — 100 1/sek. og miðlunar-
geymir er fullur. Þessi dæling á
að tryggja að nægur þrýstingur
verði við öll hús í bænum. Þrýst-
ingurinn verður ekki sá sami alls-
staðar. Það ræðst af hæðarlegu
húsa og þrýstifalli í pípum. Það
hefur ekki alvarleg áhrif þó
þrýstingur lækki nokkuð frá við-
miðun. Á sumrin er ekki dælt í
dælustöðinni við Akranes og
þrýstingur því nokkru lægri en á
veturna.
Undanfarið hefur borið á
vandræðum vegna ónógs þrýst-
ings í nokkrum húsum. Þessi lági
þrýstingur stafar af gífurlegri
vatnsnotkun og lágri stöðu í
geymi.
Hvað er til ráða? Hitaveitan
getur aukið dælingu til að mæta
vatnssóuninni í bænum en til
þess þarf að breyta dælu í dælu-
stöð við Akranes, bæta við
stjórnbúnaði í dælustöð við
Hafnará og gangsetja á ný bor-
holudælu í Laugarholti og dælu-
stöð við Brún. Þessar breytingar
verða tæpast gerðar á þessum
vetri. Besta lausnin er að sjálf-
sögðu sú að draga úr óþarfa
vatnssóun í bænum.
Að lokum biður hitaveitan
notendur velvirðingar á þeim
óþægindum sem þeir kunna að
hafa orðið fyrir og mælist jafn-
framt til þess að notendur mis-
noti ekki neysluvatnið með því
að láta það sírenna.
Ingólfur Hrólfsson
AMINNING!
(GULT SPJALD)
Þann 15. febrúar næstkomandi verða reiknaðir
dráttarvextir á 1. gjalddaga fasteignagjalda 1989.
Þeir aðilar sem enn skulda gjöld frá fyrra ári eru
áminntir um að gera full skil nú þegar svo ekki komi
til uppboðs á eigum þeirra.
Með kærri kveðju,
Innheimtufulltrúi.
TÓNLISTARSKÓL-
INNÁ AKRANESI
Á laugardaginn, 11. febrúar, fá nemendur í Tón-
listarskólanum góða gesti í heimsókn. Um er að
ræða nemendur úr Tónlistarskólanum í Keflavík. í
sameiningu ætla þessir skólar að halda músMmd
í safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 14.30.
Þessi fundur er væntanlega upphaf að meiri
samskiptum á milli nemenda tónlistarskólanna.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þessi sam-
skipti eru velkomnir í safnaðarheimilið á laugar-
daginn.
NEMENDUR OG KENNARAR T. á. A.
Helgartilboð
Forréttur: Rækjuumslög á American-sósu. Aðalréttur: Ofn-
steikt lambalæri með hvítlaukshjúp og gratineraðri kartöflu.
Eftirréttur: Eplabaka með bráðnum ís.
ÞETTA ALLTÁ AÐEINS KR. 1850,-
Einnig fjölbreytt úrval af pizzum. Fjöldi rétta að auki á „a la
carte" matseðli.
s
ÞT
LÉTT OG RÓMANTÍSKT -
Sálin hans Jóns míns með þrumuball á morgun, föstudag. Aldurstak-
mark 18 árs! Munið naínskírteinin.
Laugardagskvöld: Dansleikur frá kl. 23 — 03.
HOTELAKRANESS