Skagablaðið - 09.02.1989, Page 7
Skagablaðið
Bróðir Darwins tekur sér stutt hlé frá œfingu. Frá vinstri: Orri Harðarson, gítarleikari, Logi Guðmundsson, trymbill, Karl Lilliendahl, bassa-
pokkari, og Anna Halldórsdóttir, söngkona.
Sígurvegaramir í hæfiteikakeppni Fjölbrautaskóians teknir tali:
Afsannar Bróðir Darwins
þfóunaikeraiinguna alveg?
Fyrir réttum þremur mánuðum bar sveitin Bróðir Darwins, sem
reyndar hét þá Medúsa Rescribo, sigur úr býtum í hæfileikakeppni
Fjölbrautaskóla Vesturlands hér á Akranesi. Keppni þessi hefur oft
verið meira grín en alvara en að þessu sinni var því öfugt farið.
Margar sveitanna voru fambærilegar og Medúsa Rescribo þeirra
frambærilegust að mati áhorfenda.
Skagablaðið ræddi stuttlega
við þessa ungu sveit í vikunni,
þ.e. alla nema söngkonuna,
Önnu Halldórsdóttur. Það gerir
líka ekkert, blaðið spjallaði við
hana í haust sem skiptinema
nýkominn frá Ítalíu! Hinir í
sveitinni eru þeir Karl Lillien-
dahl, Logi Guðmundsson og
Orri Harðarson. Orri talar mest
og því var ekki nema von að
hann yrði fyrir svörum er sveitin
var að því spurð hvers kyns tón-
list hún léki.
„Ætli það verði ekki að flokk-
ast undir poppað rokk, allt of
poppað að mínu mati, köllum
það nýrokk."
Síðar fylgdi að þeir Orri og
Logi hefðu lengstum séð um
lagasmíðarnar en Karl væri nú
sem óðast að blanda sér í málið
enda búinn að læra fimmta
hljóminn á bassann. Anna sér
alfarið um textana, sem eru „um
allt og ekki neitt,“ svo vitnað sé í
orð háksins Orra.
Þeir Orri og Logi hafa báðir
komið við sögu í bílskúrssveitum
bæjarins. Hin tvö hafa minna
látið á sér kræla á þeim vett-
vangi. Orri var í Óþekktum and-
litum og Tregablandinni lífsgleði
en Logi á að baki setu í Black
Soldiers From Hell, sem síðar
fékk nafnið Deja Vu, og svo
Þema. Að undanförnu hefur
hann svo lamið húðir hjá þunga-
rokkssveitinni Battery í forföll-
um.
Eftir sigurinn í hæfileika-
keppninni hafa Darwin og bróðir
hans aðeins komið tvisvar fram
opinberlega. Fyrst á útgáfutón-
leikum Síðan skein sól í Tungl-
inu og síðan á Hótel íslandi er
þar fóru fram tónleikar á vegum
Útrásar, útvarpsstöðvar mennta-
skóianna.
Síðan þá hefur lítið verið um
að vera og eiginlegar æfingar
legið niðri sl. mánuð, m.a. vegna
fjarveru Loga. Ailt stendurþetta
þó til bóta. Að vonum langar
meðlimi Bróður Darwins til þess
að eiga eitthvað eftir sig á plötu
en það eru enn sem komið er
aðeins draumar. Þeir Logi og
Orri geta a.m.k. huggað sig við
að eiga myndbönd með sjálfum
Unglingaflokkur Skagamattna í kðrfuknallleik:
Hver stórskellurinn
hefur rekið annan
Unglingaflokkur Skaga-
manna, sem svo miklar vonir
voru bundnar við, hefur ein-
hvern veginn ekki náð að
spjara sig í vetur. Flokkurinn
hefur leikipð þrjá leiki að
undanförnu og tapað öllum illa.
Sýnu versti skellurinn var
gegn Val, 49 : 100! Þar skoraði
Elvar Þórólfsson 18 stig, Elías
Ólafsson 10, Kristján Ölafsson
8 og Jóhannes Helgason 7.
Aðrir minna.
Kristjan skoraði svo 28 stig
gegn Haukum í bikarnum en
allt kom fyrir ekki, Hafnfirð-
ingarnir unnu, 112 : 81. Elvar
skorðai 25 stig og Jón Þ. Þórð-
arson 18.
Haukarnir unnu Skagamenn
svo aftur í íslandsmótinu iitlu
síðar, 78 : 41. Elvar skoraði
mest, 11 stig, Jón Þór 10 og þeir
Bogi Pétursson og Elías 6 hvor.
7
A AKRANESI
Ogn-
valdurinn
(Hero and
the Terror)
Danny hélt að hann hefði sigr-
ast á sinni verstu martröð og nú
er ekki víst að hann fái annað
tækifæri. Þessi magnaða
spennumynd er nýjasta og
besta mynd kappans Chuck
Norris og hún heldur þér á stól-
bríkinni frá upphafi til enda.
Sýnd kl. 21 í kvöld og
annað kvöld, föstudag.
Jólasaga
(Scroogeð)
Leikarinn Bill Murray kemur
skemmtilega á óvart í jólamynd-
inni frá Háskólabíói.
„Það er sérstakur galdur Bill
Murrays að geta gert þessa
persónu bráðskemmtilega og
maður getur ekki annað en
dáðst að honum og hrifist með.
Það verður ekki af henni skafið
að Jólasaga er ekta jólamynd. “
Al., Mbl.
Sýnd kl. 21 á sunnudag,
mánudag og þriðjudag.
BÍÓHÖLLIN -
bíó með fólki