Skagablaðið - 04.04.1991, Blaðsíða 8
t\$na KIRKJUBRAUT 4-6 Skagablaðið w* KIRKJUBRAUT 4-6
Lögum samkvæmt en siðlaust?
- íbúðareigandi greiðir fasteignagjökl af rúmlega 8 milljóna króna eign samkvæmt álagningarstuðli
en Irfeyrissjóður miðar veðhæfni við 5 milljóna króna fæteignamat
Þó svo íbúðareigendur á Akranesi og víðast hvar á landsbyggðinni
greiði fasteignagjöld af upphæð, sem er langt umfram uppgefið fast-
eignamat viðkomandi eignar, geta þeir ekki nýtt sér hærri upphæðina
til veðsetningar eigninni til tryggingar lánum sem þeir hyggjast taka.
Þetta er hindrun sem margir landsbyggðarbúar reka sig á.
Löglegt en siðlaust," eru fleyg upphæð greiðir íbúðareigandinn
i
•ummæli Vilmundar heitins
Gylfasonar. Þessi orð komu ó-
neitanlega upp í huga íbúðareig-
anda eins hér á Akranesi, sem
hafði samband við Skagablaðið
fyrir stuttu vegna svona máls.
Eign hans, sem er 150 fermetr-
ar að stærð auk 38 fermetra
bílskúrs, er skráð á rétt tæpar 5
milljónir króna hjá Fasteigna-
mati ríkisins. Að viðbættum
álagningarstofni fasteignagjalda
hér á Akranesi telst eigin 8,1
milljóna króna virði. Af þeirri
sín fasteignagjöld.
Málið vandaðist hins vegar
þegar íbúðareigandinn sótti um
lán hjá lífeyrissjóði. Þar er fast-
eignamatinu fylgt og þegar til
kom reyndist eignin of hátt veð-
sett sem nam 300 þúsundum
króna. Hún dugði því ekki sem
veð fyrir láninu.
„Þetta er ekkert annað en
hreinn og klár þjófnaður," sagði
íbúðareigandinn, sem vildi ekki
láta nafns síns getið, er Skaga-
blaðið ræddi við hann. „Maður
Allar matsupphaðir eru (þúsundum króna
Eign Mhl. Hæð Nr. á Hæð Mannv.mat/ húsmat Lóðarmat/ landmat Fasteignamat samtals Álagningarstofn húss/mannvirkis
íBÚÐ 150,8 H2 BÍLSKÚR 38,0 H2 01 02 02 01 01 01 4207 574 201 4408 574 726ó 85 4
Þannig lítur fasteignaseðillinn út. Eins og sjá má er eignin ásamt bílskúrnum metin á tæpar 5 millj. kr. en eig-
andinn greiðir hins vegar fasteignagjöld samkvœmt síðari dálkinum, sem hljóðar upp á rúmlega 8 millj. kr.
er nógu góður til þess að greiða
bæjarfélaginu gjöld af 8,1 mill-
jóna eign en það er ekki hægt að
nýta sér þessa upphæð til veð-
setningar." Hann bætti því við að
fasteignasali mæti eignina á 7,5
milljónir króna.
Magnús Ólafsson, forstjóri
Ólafur R. Guðjónsson og Ólafur Magnús Helgason við ruslagáminn sem verið er að smíða.
Vélsmiðja Ólafs R. Guðjónssonar bryddar upp á nýjung í framleiðslu:
Er að gera tilraun með
smíði stórra ruslagáma
„Þar sem þessir gámar hafa nær eingöngu ver-
ið fluttir inn til landsins að undanförnu fannst
mér full ástæða til þess að gera tilraun til þess að
framleiða þá hér á landi á ekki lakara verði en
þeir innfluttu,“ sagði Ólafur Rúnar Guðjónsson,
sem hefur að undanförnu verið að gera tilraunir
við smíði ruslagáms.
Þessi gámur er 12 rúmmetrar á stærð og er í
minni flokknum af slíkum gámum. Hann er
nú vel á veg kominn og ég ætla að kynna þessa
framleiðslu betur síðar fyrir hugsanlegum kaup-
endum,“ sagði Ólafur ennfremur.
Ólafur, sem rekur vélaverkstæði að Smiðju-
völlum 6, hóf starfsemina á sínum tíma í bíl-
skúrnum heima hjá sér. Þar smíðaði hann beislis-
stangir, mél og ístöð fyrir hestamenn. Þótt um-
svifin hjá Ólafi séu orðin mun meiri í dag þá er
þessi smíði enn stór þáttur í starfsemi fyrirtækis
hans.
„Þessi smíði fyrir hestamenn hefur gengið
mjög vel. Auk þess að selja beint í verslanir er ég
farinn að selja þessar vörur erlendis. Fyrirspurnir
hafa aukist jafnt og þétt. Af þeim sjö mönnum
sem ég hef í vinnu í dag hafa fjórir til fimm þeirra
eingöngu verið við þessa smíði þegar eftirspurnin
er hvað mest á tímabilinu frá desember tii júlí,“
sagði Ólafur.
Þá opnaði Ólafur litla verslun með vörur fyrir
hestamenn í desember sl. og sagði hann rekstur
hennar hafa gengið vel.
Fasteignamats ríkisins, sagði í
samtali við Skagablaðið í gær, að
ekki væri eðlilegt að íbúðareig-
endur gætu notað uppreiknað
verð íbúðarinnar með álagning-
arstofni fasteignagjalda til veð-
setningar. Fasteignamatið ætti að
endurspegla markaðsverð eign-
arinnar miðað við staðgreiðslu í
nóvember á síðasta ári.
Hvað varðaði veðhæfni við-
komandi eignar gagnvart lífeyris-
sjóði sagði Magnús það ekki vera
mál Fasteignamats ríkisins. Líf-
eyrissjóðurinn setti sínar eigin
reglur og það væri hans að
ákveða þær viðmiðanir sem not-
aðar væru við lánsúthlutun.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri,
kvað það koma sér á óvart að líf-
eyrissjóður viðkomandi notaði
fasteignamatið sem verðmæta-
viðmiðun. Hann sagði að sem
dæmi styddist Lífeyrissjóður
STAK við brunabótamat, sem
væri mun hærra en fasteignamat-
ið og nær raunvirði eignarinnar.
Hvað varðaði vanda íbúðar-
eigandans sagði Gísli, að eðlilegt
væri að hann óskaði eftir endur-
mati á eign sinni hefði það ekki
þegar verið gert. Hann sagði fjöl-
mörg dæmi koma upp á ári
hverju, þar sem fasteignamatið
reyndist allt of lágt miðað við
markaðsverð. Því væri algengt
að eignir væru endurmetnar.
Söfnunarféð kom*
ið upp í 500 þús.
Söfnunin fyrir Evu Aslanian,
armensku móðurina, sem kom
hingað til lands til skurðaðgerðar
fyrir skömmu hefur gengið mjög
vel að sögn Gísla Þráinssonar,
sem stóð fyrir komu hennar.
Þegar hefur safnast um hálf mill-
jón króna og vantar nú aðeins
um 100 þúsund krónur til þess að
ná settu marki.
Að sögn Gísla lagðist Eva inn
á sjúkrahús um miðja síð-
ustu viku og hefur nú farið í
nauðsynlegar rannsóknir og
hjartaþræðingu. Sagði hann
sjúkdómsgreiningu íslenskra
lækna koma heim og saman við
þá sjúkdómsgreiningu sem fylgdi
með Evu frá armenskum læknum
við komuna til tslands.
Stefnt er að því að skera Evu
upp við hjartasjúkdómi hennar í
vikulokin eða snemma í næstu
viku. Hún mun síðan dvelja hér-
lendis um hríð á meðan hún er
að jafna sig eftir aðgerðina áður
en hún heldur á ný til síns heima.
Eins og Skagablaðið skýrði frá
í síðustu viku vakti koma Evu til
landsins mikla athygli stóru fjöl-
miðlanna, m.a. DV og Stöðvar 2
auk tveggja útvarpsstöðva. Þá
hyggst Stöð 2 fylgja málinu enn
frekar eftir með nánari umfjöll-
un.
Gísli óskaði eftir því við
Skagablaðið að það kæmi enn og
aftur á framfæri innilegu þakk-
læti til allra sem lagt hafa söfnun-
inni lið. Hann sagði hana hafa
gengið framar vonum og að hann
væri bjartsýnn á að endar næðu
saman áður en yfir lyki.
Vinnuslys
Alvarlegt vinnuslys varð
snemma á laugardag um
borð í flutningaskipinu
Hauki, þar sem það lá við
Sementsbryggjuna.
Vörubretti með umbúðum
féll þá á starfsmann SR,
sem vann við uppskipun,
með þeim afleiðingum að
hann slasaðist illa. Lærbrotn-
aði m.a. og hlaut fleiri
meiðsl.
Maðurinn var fluttur rak-
leitt á Sjúkrahús Akraness en
var síðan sendur til Reykja-
víkur til frekari aðgerðar.