Skagablaðið - 11.04.1991, Page 5
Framganga dómsmálaráðuneytisins í
málefnum lögreglunnar hér á Akranesi
er með eindæmum, svo ekki sé fastar
að orði kveðið. Þegar þetta er ritað er
lögreglan búin að vera viku lengur í nú-
verandi húsnæði sínu en samningar
segja til um og ekkert fararsnið virðist
vera á henni.
Eins og Skagablaðið skýrði frá í haust
var lögreglunni sagt upp húsnæðinu frá
og með 1. apríl sl. að telja í kjölfar
kaupa Myndbandaleigunnar Áss á
Kirkjubraut 8, þar sem lögreglan er tii
húsa. Þá strax var talið hæpið að tækist
að Ijúka tímanlega við hönnun og inn-
réttingu framtíðarhúsnæðis lögreglunn-
ar að Þjóðbraut 13.
Þær efasemdir eru nú orðnar að
staðreynd. Rúm vika er liðin af apríl og
enn hefur ekki verið hafist handa við
innréttingu húsnæðisins. Sáfrestursem
er orðinn á brottför lögreglunnar af
Kirkjubraut 8 hefur þegar bakað eigend-
um Myndbandaleigunnar Áss vand-
ræði. Hún þarf að vera komin í sitt nýja
húsnæði eigi síðar en 15. maí nk. en þá
rennur leigutími hennar á núverandi
stað út.
Það er ekkert annað en forkastanleg-
ur dónaskapur ráðuneytisins í garð
Myndbandaleigunnar Áss að láta ekki
einu sinni svo lítið að ræða við eigendur
hennar um lyktir málsins eftir að sýnt
var að ekki tækist að rýma húsnæðið í
tíma. Starfsmenn ráðuneytisins hafa
horft upp á tímaglasið tæmast án þess
að gera viðeigandi ráðstafnir. Hönnun á
húsnæðinu á Þjóðbraut mun þó vel á
veg komin en framkvæmdir eru enn ekki
hafnar.
Að ekki skuli vera búið að leysa þann
hnút sem húsnæðismál lögreglunnar
eru í er ekkert annað en reginhneisa.
Ráðuneytið hefur ekki aðeins haft sex
mánuði til athafna heldur mörg ár. Hús-
eignin að Kikrjubraut 8 var fyrst auglýst
til sölu fyrir a.m.k. fjórum árum. Þá strax
mátti ráðuneytinu Ijóst vera að gera
þyrfti ráðstafanir til þess að leysa vanda
lögreglunnar.
Svo virtist sem hann hefði verið leyst-
ur vorið 1988 með kaupum á hluta neðri
hæðar Þjóðbrautar 13. Á þeim þremur
árum sem síðan eru liðin hefur ná-
kvæmlega ekkert þokast.
Það, að dómsmálaráðuneytið sjálft
skuli eiga hér í hlut, er svartur blettur á
hinu opinbera. Á þeim bæ virðast ekki
viðgangast þær samskiptavenjur og
löghlýðni sem ráðuneytið gerir kröfur
um að aðrir landsmenn sýni.
Oft er talað um að opinberir em:
bættismenn standi sig ekki í stykkinu. í
mörgum tilfellum er um ósanngjarnar á
sakanir að ræða. í þessu máli tala blá-
kaldar staðreyndirnar skýru máli. Starfs-
menn ráðuneytisins eru einfaldlega ekki
starfi sínu vaxnir.
Sigurður Sverrisson
Opið bréf til kjósenda
Agæti kjósandi!
Þann 20. apríl nk. gefst okkur tækifæri til að ráða skipan mála
næstur fjögur ár í æðstu valdastofnunum landins. Atkvæði okkar
koma til með að gefa kjörnum fulltrúum okkar umboð og vald til að
stjórna málum lands og þjóðar næstu ár. Því er mikilægt að yfirvega
hvernig við viljum að staðið sé að málum eftir að talið hefur verið upp
úr kjörkössunum.
Ollum brögðum er beitt til
þess að laða okkur til fylgis
við stefnu eða stefnuleysi fram-
boðslista flokka og einstaklinga.
Allt þetta ágæta fólk sem býður
sig fram til þjónustu fyrir samfé-
gætu því orðið hækja hans eítir
kördag ef á þarf að halda. Vafa-
samt erf að kjósendum að veita
slíkt umboð.
Sjálfstæðisflokkurinn (flokkur
Davíðs) er í undarlegu ástandi
lagið er óþreytandi að auglýsa
ágæti sitt og síns flokks og á það
sammerkt að vera stútfullt af
fögrum fyrirheitum um betri tíð
með blóm í haga og skortir oft
orð til að lýsa hve umhyggja þess
fyrir okkur „hæstvirtum kjósend-
um“ sé djúp og einlæg.
Gnægð lista
Gnægð er af framboðslistum.
Vonlaus skrípaframboð póli-
tískra umskiptinga og maka-
lausra umrenninga í stjórnmál-
um stinga upp kollinum nú sem
endranær. Þeir, sem að þessum
pólitísku skyndikynnum standa
skipta um skoðun og félagsskap
jafn oft og annað fólk um nærföt
ef svo ber undir, virðast hafa það
markmið eitt að „komast á lista“,
þó ekki sé minnsti möguleiki á
fylgi til að fleyta manni inn á
þing. Samfélagið, ég og þú, borg-
ar fyrir grínið.
Okkur vantar allt annað en
fleiri stjórnmálaflokka á íslandi.
Við skulum því láta ógert að
kasta atkvæðum okkar í þessar
ruslakistur stjórnmálanna.
Kvennalistinn hefur slampast í
gegnum tvö kjörtímabil án þess
að þurfa nokkru sinni að axla
ábyrgð. Þeirra sérstaða felst í af-
neitun á öllu sem flest í nútíma-
legum vinnubrögðum í iðnaði og
framleiðslu. Ríghaldið er í
gömlu handprjónapólitíkina og
tregðast við að stíga inn í nútím-
ann í hugsun og athöfnum. Þessi
samtök eru því ósnortin enn póli-
tískt séð og verða svo um eilífð
með óbreyttu hugarfari.
Hækja
Sjálfstæðisflokksins
Þau eru í stjórnarandstöðu
ásamt Sjálfstæðisflokknum og
fyrir þessar kosningar. Eftir ein-
dæma slaka frammistöðu í
stjórnarandstöðu, þar sem utan-
dagskrárumræður með Halldór
Blöndal í ræðustóli var orðin sú
mynd sem þjóðin þekkti best í
sjónvarpi, tókst sjálfstæðismönn-
um að fanga athygli fjölmiðla-
flórunnar með einskonar hanaati,
þar sem krónprinsinn gerði hall-
arbyltingu og velti stjórnanda
flokksins úr hásætinu við mis-
mikinn fögnuð viðstaddra.
Þá var fyrrverandi varafor-
maður endurreistur og stillt upp í
gamalkunna stöðu fyrir framan
myndavélar fréttamanna. Þá var
valdataka Reykjavíkuríhaldsins
á Sjálfstæðisflokknum orðin
endanleg og handsöluð frammi
fyrir alþjóð. Já, landsbyggðar-
fólk má biðja guð að hjálpa sér!
Allur þessi hamagangur á
landsfundi íhaldsins um for-
mannskjör yfirskyggði svo störf
þessarar 1400 manna samkomu
að afgreiðsla stefnuskrár flokks-
ins varð í skötulíki og er eins-
dæmi að Sjálfstæðisflokkurinn
leggi upp í kosningar án mótaðr-
ar stefnu í helstu málum þjóðar-
innar.
Yefst tunga um tönn
Því hefur nýkjörnum leiðtoga
vafist tunga um tönn þegar hart
er gengið eftir útfærslu á þeim
markmiðum sem einstakir liðs-
menn hans reyna að impra á
enda alls óvanur landsmálaum-
ræðu í stjórnmálum. Sem sveit-
arstjórnarmaður í höfuðstaðnum
hefur hann starfað við önnur og
þægilegri skilyrði.
Borgin nýtur sjálfvirkt tekna
af landsbyggðinni. Samt hækka
útsvör þar um 63% á meðan út-
gjöld hækka aðeins um 37% og
allar tillögur og ábendingar
minnihluta í borgarstjórn eru af-
greiddar af borgarstjóra á líkan
mothercare
Póstverslun á íslandi.
Barnaföt — barnavörur
Tækifærisfatnaður
Pantið vörulista í síma 91-619557
Sæfell sf. n?l
hátt; „auðvitað er þetta allt
endemis rugl, bull og vitleysa.“
Við hverju megum við búast?
Ekki bætir úr skák, að sá mikli
hamagangur sumra liðsmanna
Sjálfstæðisflokksins til að láta
bera á þjónustu sinni við
leiðtoga sinn og ýmis furðu-
uppátæki þar að lútandi, virkar
ekki traustvekjandi þó þar fari
hinn mætasti maður.
Taka verður tillit til algjörs
reynsluleysis Davíðs Oddssonar í
landsmálapólitík. Ekki er nóg að
láta sem flokkurinn sé klæð-
skerasaumuð flík fyrir einn mann
þó mætur sé. Var ekki talað um
flokk allra stétta forðum? Því er
efamál að Sjálfstæðisflokkurinn
sé í viðunandi ástandi til að vera
hæfur til að tryggja nauðsynlegan
stöðugleika í þjóðfélaginu.
Reyndar sýnist augljóst að svo
er ekki á meðan þeir sem þar
starfa eru svo uppteknir af eigin
dýrð og ágæti innan flokksins, að
þeir sinna engu öðru en leiða
sinn nýfengna leiðtoga um landið
með stílbrögðum sem virðast
fengin að láni úr ævintýrinu góða
um nýju fötin keisarans. A með-
an þetta ástand varir tel ég var-
hugavert að greiða slíkri skrúð-
fylkingu atkvæði hugsunarlaust.
Stöðugleiki
í dag búum við að góðum ár-
angri sem við öll höfum náð með
miklum fórnum undir forystu
ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar. Það hefur tekist
sem enginn trúði fyrir tveimur
árum. Verðbólgan er nú 5%.
Stöðugleiki er í efnahagsmálum.
Við erum aftur á uppleið til betri
lífskjara. Þetta lága verðbólgu-
stig er mesta kjarabót sem við
höfum fengið. Hugleiðið hvað
það þýðir ef verðbólga og vextir
þjóta upp á ný. Sú fjölskylda sem
skuldar 2 millj. kr. í dag myndi
þurfa að sjá á bak hundruðum
þúsunda árlega til viðbótar nú-
verandi greiðslum.
Nei, við vitum hvað við
höfum. Er ekki full ástæða til að
veita núverandi forsætisráðherra
og flokki hans, Framsóknar-
flokknum, umboð okkar næsta
kjörtímabil til áframhaldandi
uppbyggingar á íslensku velferð-
arríki? Það væri furðulegt af
okkur kjósendum og sýndi lélega
dómgreind að vilja ekki leggja
okkar lóð á vogarskál þeirra sem
best hefur tekist að ná tökum á
landsmálum um árabil.
Þrekvirki
Er ekki eðlilegt að við stað-
festum vilja okkar til áframhalds
á þessari braut með því að sýna
þá ábyrgð að veita stuðning þeim
sem sýnt hafa í verki að vera fær-
ir um að hrinda í framkvæmd
þeim málum sem við felum þeim
til úrlausnar?
Núverandi ríkisstjórn undir
forystu Framsóknarflokksins
hefur unnið þrekvirki í þjóðmál-
um. Sýnum því hug okkar í verki
á kjördag, varðveitum góðan
árangur og veitum forystuflokki
ríkisstjórnarinnar öruggt umboð
til góðra verka með atkvæðum
okkar.
Lifið heil.
ykaqablaðið
Skagablaðið
Elsa Halldórsdóttir
Kristján Sveinsson
Ekki náði Kristján Sveinsson að hefna harma vinar síns Jóns
Gunnlaugssonar nema að hálfu leyti um helgina því honum tókst
aðeins að herja út jafntefli í viðureign sinni við EIsu Halldórsdótt-
ur. Hvort um sig fékk 5 leiki rétta.
Raðir þeirra þessa vikuna eru æði ólíkar. Elsa gerir ráð fyrir
fimm útisigrum en Kristján engum! Hann er aftur á móti með
níu heimasigra á sínum seðli. Líkurnar á jafntefli eru því hverf-
andi.
Elsa Kristján
Coventry — Derby 1 1
Crystal Palace — Áston Villa 1 1
Everton — Chelsea 2 1
Leeds Utd. — Liverpool 2 X
Luton — Wimbledon 2 X
QPR — Sheffield Utd. X 1
Southampton — Sunderland 1 1
Blackburn — Charlton 2 1
Brighton — Notts County X 1
Millwall — Port Vale
Newcastle — Oldham
Sheffield Wed. — Middlesbrough
X
Tvö hagsmunamál Vestlendinga
Nú er aðeins rúm vika til Alþingiskosninga og fyrir liggur að á
Vesturlandi verða 8 framboðslistar og hafa aldrei verið fleiri. Finnst
mér sú þróun í öfuga átt. Hér á eftir langar mig að minnast á tvö mál
sem skipta Vestlendinga miklu.
Stefnumótun
í sjávarútvegi
Inúverandi kvótalögum er gert
ráð fyrir endurskoðun þeirra í
lok næsta árs. Sjálfstæðismenn
vilja nota þennan tíma til að
móta heildarstefnu sem taki til
veiða, vinnslu og sölu. Mikilvægt
er að um þá stefnumótun takist
sem víðtækust samstaða útgerð-
ar, sjómanna og fiskvinnslufólks.
Á fjölmennum fundi smábáta-
eigenda á Akranesi í vetur, þar
sem mættu fulltrúar þingflokk-
anna (nema Framsóknarflokks)
kom fam eindregin andstaða
manna og ótti við auðlindaskatt
sem fulltrúi Alþýðuflokksins
boðaði.
Nú hefur Alþýðubandalagið
tekið að boða aflagjald. Ég óttast
að gjaldtaka, hvort sem hún
nefnist auðlindaskattur, aflagjald
eða eitthvað annað muni reynast
mörgum ofviða og stuðla að því
að færa kvótann á færri hendur.
Það hefur lengi verið barátt-
umál skipasmiðjanna að felld
verði úr gildi lög frá 1922 sem
setja hömlur á þjónustu við er-
Þessari þróun verður að snúa
við. íslendingar mega ekki við
því að sú mikla reynsla og þekk-
ing sem er til staðar í þessu fagi
hverfi. Það hlýtur að vera mikil-
vægt fyrir sjávarútvegsþjóð að
þessi iðngrein sé öflug.
Fyrirsjáanlegt er að ekki verð-
ur mikið um nýsmíðar fyrir ís-
lendinga á næstunni. Hvað skal
þá til ráða?
lend fiskiskip í íslenskum
höfnum, t.d. viðgerðir og veið-
arfæri. Eystrasaltsþjóðirnar og
fleiri hafa lýst miklum áhuga á að
fá þessa þjónustu á Islandi.
Á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins í síðasta mánuði var
samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Hömlur á þjónustu við erlend
fiskveiðiskip í íslenskum
höfnum, þ.m.t. viðgerðarþjón-
ustu, sölu á veiðarfærum, elds-
neyti og kosti, sem byggjast á
lögum frá 1922, verði að fullu
afnumdar. Löndun á afla er-
lendra veiðiskipa og annar inn-
flutningur á fiski til vinnslu í ís-
lenskum fiskiðjuverum verði
jafnframt frjáls.“
Það er stórmál fyrir íslenskan
skipasmíðaiðnað að þetta mál
nái fram að ganga. ísland gæti þá
orðið miðstöð sjávarútvegsvið-
skipta á Norður-Atlantshafs-
svæðinu.
Nágrannaþjóðir okkar sækja
stíft í að ná þessum viðskiptum,
enda um mikil verkefni og við-
skipti að ræða.
Brýnt er því að þetta mál fái
skjóta afgreiðslu á næsta Al-
þingi.
Skipasmíðar
Gífurlegur samdráttur og erf-
iðleikar hafa verið hjá skipa-
smíðastöðvunum á sl. 3 árum.
Lætur nærri að starfsmönnum
liafi fækkað um helming í þessari
iðngrein.
Skattpeningar almennings
nýttir í kosningabaráttuna
Ágætu lesendur.
Oft hafa mér blöskrað leiðara-
skrif Sigurðar „ritstjóra" Sverris-
sonar í Skagablaðinu, en kannski
af skiljanlegum ástæðum, aldrei
meir en eftir lestur síðasta
leiðara ritstjórans.
Það skiptir máli hver stjómar
Ég hef valið lokaorð úr grein eftir Gísla Einarsson sem er í síðasta
Skagablaði sem fyrirsögn þess sem ég vil koma á framfæri í tilefni af
henni.
Ígreininni virðist Gísli vera að
taka undir með blaði Fram-
sóknar, Magna, fyrir stuttu, þar
sem Framsóknarflokkurinn
þakkar sér þau langþráðu bata-
merki sem nú má sjá í atvinnulíf-
inu á Akranesi.
Akurnesingar fylgjast nú betur
með málefnuum bæjarfélagsins
en svo að þessi málflutningur
dragi Iangt. Þó finnst mér rétt að
rifja upp mótun þeirrar atvinnu-
stefnu sem bæjarstjórn Akraness
nú fylgir og ég lýsi yfir að ég er
sammála í öllum aðalatriðum.
Að loknum kosningum til
bæjarstjórnar 1986 mynduðu
meirihluta íbæjarstjórn, fulltrúar
Alþýðubandalags og Framsókn-
ar.
Tvö af aðalatriðunum í þeim
málefnasamningi sem þá var
gerður voru:
Nýir samningar við starfsmenn
bæjarins, þar sem hækkun lág-
markslauna skyldi vera aðal-
atriði.
Stofnun Atvinnuþróunarsjóðs
sem skyldi verða vettvangur
bæjarfélagsins til þátttöku í at-
vinnulífinu.
Við þessi atriði var staðið.
Lágmarkslaun í samningi
Verkalýðsfélags Akraness við
Akranesbæ eru til dæmis 33%
hærri en í almennum samningum
félagsins.
Atvinnuþróunarsjóðnum var
þeim eina tilgangi að reyna að
mynda þá þverpólitísku sam-
stöðu sem verður að myndast ef
tryggt stofnfé með sölu eigna og
er nú orðin fær um að taka
myndarlega á þegar þörfin er
brýn og hann hefur fyrir löngu
sannað gildi sitt.
Allir bæjarfulltrúar stóðu að
þessari stefnumótun undir for-
ystu fyrrnefnds meirihluta, líka
sjálfstæðismenn sem þó hafa oft
lýst andstöðu við þátttöku bæjar-
ins í atvinnulífinu.
Menn voru einfaldlega sam-
mála um að á erfiðum tímum
gæti bæjarfélagið ekki setið að-
gerðalaust hjá í atvinnumálum.
Skóflustungurnar að þeim
málum sem bæjarfélagið hefur
tekið þátt í að undanförnu voru
teknar í kjölfar þessarar stefnu-
mótunar.
Gísli gerir að umtalsefni grein
eftir mig og Guðjón A. Krist-
jánsson sem birtist í Morgun-
blaðinu 28. mars s.l. um stjórn
fiskveiða.
Gísli telur greinina vísbend-
ingu um áhuga minn á samstarfi
við Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrrnefnd grein er skrifuð í
það á að forða þjóðinni frá því
að kvótakerfið færi yfirráða- og
eignarétt á fiskinum í sjónum,
stærstu auðlind þjóðarinnar, í
hendur fárra einstaklinga og
fyrirtækja.
Ég hvet fólk eindregið til að
kynna sér þessar hugmyndir, þær
hafa líka birst í Vesturlandsblað-
inu og Þjóðviljanum, og ég er til-
búinn að ræða þær við einstakl-
inga eða hópa ef menn óska eftir
því.
LÁTIÐ
FAGMENN
VINNA
VERKIÐ
p]|([a-
PRENTVERK
AKRANESS HF.
Þa segir orðrétt í greminm:
„ekki veit ég hvort Jóhanni verð-
ur ágengt með ýmsar ágætar
skoðanir en ég bendi kjósendum
á að það ber að forðast eftirlík-
ingar í Alþýðubandalaginu.
Skipbrot þeirrar stefnu sem fé-
lagi Jóhann er fulltrúi fyrir er
þannig að allir hljóta að sjá að
tímabært er fyrir eðlilega jafnað-
arsinnað launafólk að snúa sér til
Jafnaðarmannaflokks Islands Al-
þýðuflokksins." Tilvitnun lýkur.
Ekki skil ég nú fullkomlega
hvað vinur minn Gísli á við með
þessum orðum en ég bið lesend-
ur að hugleiða vel hvað getur að
baki þeim búið.
Kjósendur hvet ég til að dæma
af sanngirni, bæði flokka og
menn, og leggja til grundvallar
verk þeirra, stefnumál og nýjar
hugmyndir.
Ritstjórinn, sem segist styðja
lýðræði (með ákveðnum
formerkjum þó!) og málefnaleg-
an boðskap, sá ástæðu til þess að
eyða heilum leiðara í að hneyksl-
ast á framboðum „smáflokka“ og
á kynningarmynd Þjóðarflokks -
Flokks mannsins, sem sýnd var í
ríkissjónvarpinu þann 3. apríl sl.
Hneykslun ritstjórans beindist
aðallega að myndgæðum og
bakgrunni frambjóðenda.
Ritstjórinn þóttist reyndar vita
ástæðuna. „Þjóðarflokkur -
Flokkur mannsins á ekki digra
kosningasjóði,“ sagði hann rétti-
lega.
Hvernig væri þá að ritstjórinn
gerðist málefnalegur og útskýrði
fyrir lesendum Skagablaðsins
hverjir það eru, sem borga fyrir
rándýrar kynningarmyndir nú-
verandi þingflokka, sem inni-
halda að sögn ritstjóra „alvöru
stjórnmálamenn, sem al-
menningur hefur dvínandi álit
á.“
Ágætu lesendur. Það eru með-
Athugasemd vegna skríffa Sigrúnar Jónsdóttur Halliwell:
Lestu leiðarann Sigiún!
Sigrún „frambjöðandi" Jónsdóttir Halliwell!
Ekki ætla ég að fara að þjarka við þig um mínar eigin skoðanir.
Hitt þykir mér verra að þú skulir lesa annað út úr mínum skrifum
enég taldi mig setja fram með þeim.
Eg get því ekki annað en bent þér — og þá kannski um leið
öðrum lesendum sem taka grein þína trúanlega — á að lesa
leiðarann aftur og fara með rétt mál þegar þú vitnar í skrif ann-
arra.
Setningin: „Alvöru stjórnmálamenn sem almenningur hefur
dvínandi álit á” er hvergi í mínum leiðara.
Sigurður Sverrísson
al annars skattpeningar ykkar,
sem borga þann brúsa!
Ríkissjóður úthlutar vænni
fjárhæð af skattpeningum okkar
í „kosningasjóði” núverandi
þingflokka svo þeir geti kynnt
okkur stefnumál sín.
Stefnu, sem alþjóð hlýtur að
vera fullkunnugt um!
Stefnu, sem viðkomandi þing-
flokkar hafa komið í framkvæmd
með ömurlegum afleiðingum fyr-
ir íslensku þjóðina!
Stefnu, sem að dómi álits rit-
stjóra Skagablaðsins hefur rýrt
álit almennirigs á „alvöru stjórn-
málamönnum.“
Ef fjöldi framboða rugiar rit-
stjórann verður að gera eitthvað
í málunum. Hann ætti að leggja
til að núverandi stjórnarflokkar
sameinist í eitt framboð. Þá
myndi framboðunum fækka um
heila 4 flokka! Þeir 5 flokkar,
sem standa að ríkisstjórn
Islands, hafa sýnt það í verki að
þeir gátu sameinast um eina ljóta
helstefnu. Stefnu, sem t.d. fól í
sér hækkun skatta, til þess m.a.
að bera kostnað af kosningabar-
áttu þingflokkanna. Af hverju
gátu þeir þá ekki sameinað
flokkana sína í eitt framboð?
Það hefði sparað íslenskum
skattgreiðendum stórfé og Sig-
urður ritstjóri gæti áttað sig betur
á hlutunum.
Ég tel að Þjóðarflokkur -
Flokkur mannsins hafi sýnt gott
fordæmi þegar þeir sameinuðust
í einn flokk með eina stefnuskrá.
Ef lesendur kynntu sér stefnu-
skrá Þ-listans og þar með ástæð-
una fyrir stofnun þessa framboðs
ættu þeir ekki að vera í vafa um
hvað kjósa skal á kjördag. X - Þ.