Skagablaðið - 24.04.1991, Side 1
15. TBL. 8. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 1991
VERÐ KR. 150,-
Alþýðubandalag og Sjállstæðisflokkur bættu mestu fylgi við sig í Alþingiskosningunum á laugaidag:
Eiður Guðnason ásamt Eyglóu konu sinni í Röst eftir að Ijóst var að
hann var áfram inni sem þingmaður.
r
a
lngibjörg Pálmadóttir fagnaði þingsœtinu í hópi stuðningsmanna í
Framsóknarhúsinu.
Guðjón Guðmundsson og Guðný Ólafsdóttir, kona hans, sigurreif í
Sjálfstæðishúsinu við Heiðargerði.
Aflismábát-
anna heldur
aðglæðast
Afli smábátanna hefur
heldur verið að giæðast að
undanförnu og afli þeirra
báta sem mest fengu vikuna
15. - 22. apríl sl. slagaði í 20
tonn. Langflestir bátanna
gera út á net en einhverjir
eru enn á línu eða færi. Afl-
inn var annars sem hér segir
þessa viku.
NETABÁTAR
Bátur Afli/kg Róðrar
Enok 18.520 7
Ásrún 17.940 7
Særún 17.450 5
Margrét 11.380 7
Yngvi 9.210 7
Bresi 7.580 6
Síldin 7.200 6
Hrólfur 6.330 5
Keilir 6.320 2
Dagný 6.220 7
Máni 6.180 6
Sæþór 4.970 7
Þytur 4.920 7
Bergþór 4.130 7
Ver 3.730 7
Emilía 3.560 7
Sæbjörn 3.220 7
Diddo 2.810 3
Markús 2.520 6
Flatey 2.310 5
ísak 1.500 2
Óskar 850 3
Stormur 780 4
LÍNUBÁTAR
Bátur Afli/kg Róörar
Kópur 6.290 6
Leifi 4.950 6
Fannar 1.370 3
FÆRABÁTAR
Bátur Afli/kg Róðrar
Sigursæll 2.740 4
Von 1.880 4
Vilborg 840 3
Þura 790 2
Afli samtals 148.470 kg
Róðrar alls 148
Meðalafli í róðri 1.003 kg
— SLP.
FimmSkapamenn
á þingi í einu?
Sú staða kann að koma upp á kjörtímabilinu að allir fímm full-
trúar Vestlendinga á Alþingi verði frá Akranesi.
Þau Guðjón Guðmundsson, Sjálfstæðisflokki. Ingibjörg Pálma
dóttir, Framsóknarflokki og Jóhann Ársælsson Alþýðu-
bandalagi, hlutu öll kosningu á laugardaginn.
Tveir Skagamenn eru að auki varaþingmenn. Það eru þau Elín-
björg Magnúsdóttir, Sjálfstæðisflokki og Gísli Einarsson, Al-
þýðuflokki.
Fari svo að Sturla Böðvarsson og Eiður Guðnason forfallist
báðir og hin þrjú sitji samtímis verða fimm fulltrúar Akurnesinga
á þingi í einu.
Óhætt er að fullyrða að enginn kaupstaður á landinu er eins vel
settur með þingmenn og Akurnesingar eru nú. Til gamans má
geta þess, að ef hlutfall reykvískra þingmanna ætti að geta orðið
sambærilegt við fimm þingmenn af Skaganum þyrftu þeir að sitja
90 á þingi í einu! Þingmennirnir eru hins vegar ekki nema 63 sem
kunnugt er.
hír Skagamem á þing!
Akurnesingar eiga nú í fyrsta sinn í sögunni fleiri en einn fulltrúa á
Alþingi. Eftir alþingiskosningarnar á iaugardag liggur Ijóst fyrir að
þrír Skagamenn munu sitja á þingi næsta kjörtímabil. Þetta eru mikil
viðbrigði frá nýloknu kjörtímabili, þar sem enginn Akurnesingur sat
á þingi í fyrsta sinn í 60 ár.
Sj álfstæðisflokkurinn
heimti sinn fyrri
endur-
sinn tyrri sess sem
stærsti flokkurinn í Vesturlands-
kjördæmi í kosningunum á laug-
ardag. Hann fékk 28,9% at-
kvæða og bætti við sig 4,8% frá
því í kosningunum 1987. Sjálf-
stæðisflokkurinn fékk tvo menn
kjörna á þing, Sturlu Böðvarsson
og Guðjón Guðmundsson sem
uppbótarþingmann.
Það var þó Alþýðubandalagið
sem bætti við sig mestu fylgi. Það
hlaut nú 17,3% atkvæða og bætti
við sig 6,5% fylgi. Alþýðubanda-
lagið hélt sínum þingmanni. Jó-
hann Ársælsson hlaut örugga
kosningu.
Framsóknarflokkurinn bætti
við sig 2,8% fylgi og fékk alls
28,5% atkvæða en missti sæti sitt
sem stærsti flokkurinn á Vestur-
landi. Flokkurinn fékk einn
mann kjörinn, Ingibjörgu Pálma-
dóttur.
Alþýðuflokkurinn tapaði 1%
fylgi en hélt sínum þingmanni,
Eiði Guðnasyni, sem fékk einnig
örugga kosningu. Fékk nú 14,1%
fylgi.
Kvennalistinn tapaði 3,6%
fylgi og missti eina þingmann
sinn í kjördæminu, sem reyndar
var „flakkarinn" í síðustu kosn-
ingum. Kvennalistinn fékk nú
6,8% fylgi.
Aðrir listar höfðu ekki erindi
sem erfiði. Heimastjórnarsam-
tökin fengu 2% atkvæða, Frjáls-
lyndir 1,4% og Þjóðarflokkur/
Flokkur mannsins 0,9% fylgi.
Almennt vekur það mesta at-
hygli hversu mikið fylgi Alþýðu-
bandalagið fékk á landsvísu, svo
og það að Sjálfstæðisflokkurinn
skyldi ekki fá „nema“ 38.6% at-
kvæða eftir spár upp á 42 - 44%
fylgi. Þá hefur slæm útreið smáf-
lokkanna um allt land vakið at-
hygli, einkum afhroð Frjáls-
lyndra.
Jóhann Ársœlsson ásamt konu sinni, Guðbjörgu Róbertsdóttur,
kampakátur í Rein á kosninganótt.