Skagablaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skagablaðið - 24.04.1991, Qupperneq 5

Skagablaðið - 24.04.1991, Qupperneq 5
4 Skagablaðið Akurnesingar eiga nú allt í einu þrjá menn á þingi og tvo varaþingmenn að auki! Þessi stórmerku tíðindi eru Ijós eftir úrslit alþingiskosninganna á laug- ardag. Þetta eru sannarlega mikil um- skipti frá nýliðnu kjörtímabili, þar sem enginn Akurnesingur sat á þingi í fyrsta sinn í 60 ár. „Vandi fylgir vegsemd hverri," segir í gömlu máltæki og það á við nýkjörna þingmenn Akurnesinga og Vestlend- inga alla. Mjög hefur verið deilt á störf þingmanna Vesturlands á nýliðnu kjörtímabili og þeim legið á hálsi fyrir að reynast kjördæminu ekki nægilega duglegir og að lítið liggi eftir þá. Þrátt fyrir gagnrýnisraddir í garð þingmannanna eru margir þeirrar skoðunar að sú gagnrýni sem viðhöfð hefur verið hafi ekki verið réttmæt. Þingmenn Vestlendinga hafi unnið störf sín af samviskusemi og kost- gæfni. Þeir sem gagnrýnt hafa þingmenn- ina hafa m.a. borið því við, að enginn viti í raun hvað þeir eru að aðhafast á þinginu. Hvort þeir séu yfirleitt að vinna að einhverjum málum fyrir kjör- dæmið. Sambandsleysið sem þarna hefur ríkt hefur sáð fræjum tortryggni og vantrausts. Þingstörf eru tímafrek og ekki eru nefndarfundir utan hefðbundinna þingstarfa til þess fallnir að drýgja frístundir þeirra sem á þingi sitja. Það hlýtur samt að vera eðlileg krafa að þingmenn reyni eftir mætti að nálgast kjósendur sína með einhverjum hætti á öðrum tímum en rétt fyrir kosningar, t.d. í gegnum þau tvö héraðsblöð sem gefin eru út reglulega á Vesturlandi, Skagablaðið og Borgfirðing. Bæði mega blöðin líka koma meira til móts við þingmenn við að flytja fréttir af störfum þeirra á Alþingi. Öruggt má heita að Akurnesingarn- ir þrír sem náðu kjöri á laugardag eiga eftir að finna fyrir miklum þrýstingi frá bæjarbúum, meiri en hinir tveir. Kjós- endur munu koma til með að krefjast eins og annars til handa bæjarfélag- inu í krafti þess valds, sem þing- mennirnir óneitanlega hafa. í raun er erfitt fyrir kjósendur að gera aðrar kröfur á hendur þingmönn- um en þær, að þeir fylgi sannfæringu sinni og vinni landi og þjóð allt það gagn sem þeir hugsanlega geta. Þetta hafa allir þingmenn að leiðar- Ijósi þótt óneitanlega skeri nokkrir sig úr hvað snertir dugnað við að ota sín- um tota í þágu eigin bæjarfélags eða kjördæmis. Það er nú einu sinni svo, að þannig gerast kaupin á Alþingi í sumum tilfellum, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Og ef þingmenn viðkomandi kjördæmis berjast ekki fyrir hagsmunamálum þess hverjir gera það þá? Sigurður Sverrisson Atina Halldórsdóttir með fjölbrautaskólann í baksýn: „Félagsstarfið Rætt við 4 nemendur fjölbrautaskólans: Skólinn mótar nenv endur sína og þeir hann að sama skapi Vorið er á næsta leiti og óðum styttist í að hið hefðbundna skólastarf, sem vissulega setur svip sinn á bæinn yfir vetrarmán- uðina, leggist niður. Nemendur þrevta prófín í maí og halda síðan á braut. Hluti þeirra hefur lokið prófum og heldur síðan til nýrra starfa eða í framhaldsnám. Aðrir hverfa á braut sumarlangt og koma aftur að hausti. á skóli, sem eðlilega setur hvað mestan svip á bæjarlífið yfir vetramánuðina er Fjölbrautaskóli Vesturlands. I skólanum eru um 500 nemendur. Auk heimamanna er mikill fjöldi utan- bæjarnemenda þar á skólabekk eða um 35% nemendafjöldans. Á þeim tíma, sem þeir dveljast hér, sem getur verið allt upp í fjóra vetur, er eðlilegt að álykta að skólinn og bæjarfélagið móti þau að vissu marki og þau bæinn að sama skapi. Skagablaðið fór á stúfana og fékk tvo utanbæjarnemendur, sem eru að ljúka prófum á næstunni, til þess að ræða um skólann, félagslífið og bæjarlífið. Auk þeirra fengum við einn heimamann til viðræðna um félagslífið í skólanum og loks formann nemenda- félagsins. kemur ekki niður á náminu. “ Pétur Magnússon: „Sumir eru miklar félagsverur, aðrir ekki. “ Pétur Magnússon, innkaupastjórí námsbóka fyrír nemendiff í FV: „Erfitl en skemmtilegt um leið“ „Eg hef alltaf haft mikinn áhuga fyrir félagslífí, hvort sem það er í skólanum eða annars staðar, og ég tel að þau störf sem ég hef unnið við í félagslífí Fjölbrautaskólans hafi verið mér jafnmikill lærdómur og námið sjálft á mörgum sviðum,“ sagði Pétur Magnússon í samtali við Skagablaðið. Pétur er Akurnesingur og lýkur stúdentsprófí af náttúrufræðibraut í vor og hefur auk þess tekið samhliða því fjórar annir á viðskiptabraut. Eg hef í vetur ásamt öðrum nemenda annast innkaup á námsbókum fyrir nemendur og séð um skiptibókamarkaðinn. Petta starf er mjög tímafrekt og þarf oft að vinna í fríum frá skólanum, eins og t.d. um jól og á sumrin. í fyrravetur var ég gjaldkeri í stjórn nemendafélags- ins. Starfsemin þar er öll mjög umfangsmikil og getur oft verið erfið en gefandi og skemmtileg um leið.“ Þá er Pétur einnig formaður í skák- og spilaklúbb í skólanum. Hann sagði að félagar í klúbbn- um hittust svona hálfsmánaðar- lega og tækju í spil eða telfdu. Pétur er sjálfur mjög virkur í fé- lagslífinu í skólanum. Skaga- blaðið innti hann eftir því hvað honum fyndist um virkni nem- enda á því sviði almennt. „Auðvitað er þetta mjög ein- staklingsbundið. Sumir eru mjög opnir og miklar félagsverur, aðr- ir ekki. En mér hefur samt fund- ist vanta meiri áhuga og metnað hjá mörgum nemendum á þátt- töku í félagslífinu og um leið að auka hróður skólans út á við. Alltof margir vilja láta „mata“ sig á öllu sem þarna fer fram og taka sem minnstan þátt í vinn- unni og undirbúningnum við það sem gert er. Eins er ekki nægi- lega mikið um það að nemendur kynnist og vinni saman á meðan náminu stendur. Fólk kynnist ákveðnum, þröngum hópi, og lætur það duga. Til dæmis er oft áberandi, að nokkrir nemendur frá ákveðnum kaupstað eða sveit utan af landi haldi hópinn og kynnist þar af leiðandi lítið öðr- um nemendum. Minni kynni En auðvitað eru margar skýringar á þessu. Gamla bekkj- arkerfið, sem var við lýði hér áður fyrr þegar sami bekkurinn var nær óslitið saman í marga vetur og mikill kunningsskapur myndaðist innan bekkjarins, þekkist ekki í dag. Nemendur eru með ákveðnum hópi í t.d. ensku og öðrum hópi í stærð- fræði þennan áfanga og allt öðr- um þann næsta, þannig að vin- áttu- og kunningjabönd ná oft ekki að myndast. Þetta er aðeins eitt dæmi sem mér dettur í hug.“ Fjögurra vetra skólavist í Fjöl- brautaskólanum skilur að sjálf- sögðu eftir sig góðar minningar. Ég hef kynnst mö.gum góðum og skemmtilegum krökkum, bæði héðan frá Akranesi og annars- staðr frá, jafnt í námi og félags- lífi á þessum tíma,“ sagði Pétur að lokum. Skaqablaðið 5 Anna HaHdórsdóttir, fonnaður NFFA, í samtali við Skagablaðið: „Félagslíf í skólum er þroskandi“ „Þeir nemendur sem lítið eða ekkert hafa starfað í félagslífi { skólanum missa af miklu. Auk kunningsskaparins sem myndast við félagsstörfin er þetta dýrmæt reynsla þrátt fyrir erfíði oft á tíðum og skilur eftir sig Ijúfar minningar síðar meir. Félagslíf í skólum er þrosk- andi og er einnig til þess fallið að fólk nái að kynnast,“ sagði Anna Halldórsdóttir, formaður NFFA í samtali við Skagablaðið. Hún lýkur námi í vor af félagsfræðibraut, með sálfræði sem aðalsvið. Þrátt fyrir að stjórn Nemenda- nokkur skólamót yfir veturinn. rélagsins og starfandi klúbb ar innan skólans hafi verið með mikla starfsemi í allan vetur finnst mér nemendurnir ekki hafa verið næganlega duglegir við að nýta sér félagslífið, nema helst þessa föstu liði eins og t.d. dansleikina. Mér hefur virst þetta vera sami kjarninn sem starfar af áhuga í mörgum félög- um í skólanum.“ Kosningaskjálfti Fjórir nemendur skipa stjórn félagsins á hverjum vetri. Nú þegar senn líður að því að núver- andi stjórn láti af störfum — en hana skipa auk Önnu þau Sig- urður Sævarsson, Atli Þór Krist- jánsson og Kristinn B. Bjarnason — er kominn kosningaskjálfti í skólann og nýir frambjóðendur farnir að láta til sín taka fyrir kosningu nýrrar stjórnar í lok apríl. „Helstu starfsklúbbarnir í skólanum í vetur eru, leiklistar- klúbbur, sem sýndi nýlega leikritið „Dufl og daður.“ Um 40 nemendur unnu að þeirri sýn- ingu, sem tókst alveg frábærlega. Það er synd að aðeins um 300 manns komu á sýningarnar. Þeir sem heima sátu misstu af miklu. Þá er starfandi málfundarfélag sem er mjög virkt. Það stendur fyrir keppni og námskeiðum í ræðuhöldum og ræðunmám- skeiðum í samstarfi við JC Akra- Öflugt klúbbastarf Ljósmyndaklúbbur stendur fyrir námskeiðum og tekur myndir fyrir nemendafélagið af hinum ýmsu viðburðum í skóla- lífinu hverju sinni. íþróttaklúbb- ur sér um að undirbúa og halda Tónlistarklúbbur sér um að halda tónleika, er með videó- kvöld og undirbúning og fram- kvæmd á hæfileikakeppninni. Ennfremur er starfandi svokallað Lærdómsfélag Vesturlands. Fé- lagsmenn, eins og nafnið bendir til, vinna saman og í samstarfi við kennara skólans að ýmsum verkefnum sem tengjast náminu. Loks er það skák- og spilaklúbb- ur.“ Anna sagði að stærsta verkefni stjórnar NFFA væri undirbún- ingur fyrir „Opna viku“, sem væri haldin einu sinni á vetri. Þar væri allur undirbúningur á hönd- um nemenda og flestir ynnu að einhverju verkefni. Sagði hún þá starfsemi mjög krefjandi af hálfu nemendanna. Endapunkturinn væri síðan árshátíð skólans, sem væri hápunkturinn í skemmtana- lífi nemenda. Að þessu sinni var hún haldin í hótelinu í Borgar- nesi og heppnaðist mjög vel. Þá heldur NFFA auk þess nokkra skóladansleiki yfir veturinn. Bitnar ekki á náminu Eins og sést á þessu eru umsvif nemendafélagsins mjög mikil yfir veturinn. Öll sú vinna sem félag- ið innir af hendi hlýtur að vera krefjandi fyrir formaninn og spurning er hvort þetta skarist ekki við námið. „Auðvitað fylgir þessu starfi líkt og öðrum félagsstörfum í skólanum mikil vinna,“ sagði Anna. „En þetta kemur ekkert niður á náminu að mínu mati. Það er einhvern veginn þannig, að þeir sem eru virkir í félagslífi og hafa alltaf eitthvað fyrir stafni, hafa ætíð nægan tíma. Þeir sem eru lítt virkir og áhuga- lausir eru alltaf í tímaþröng." Egill Fjelsted frá Patreksfirði: „Kemurfyriraðnánv ið silur á hakanum“ „Það er mikil vinna sem fer í það hjá mér að starfa að félags- málum í skólanum. Ég er annar tveggja formanna íþróttaklúbbs og fer mestur tíminn í undirbún- ing og framkvæmd allskyns íþróttamóta. Ég neita því ekki að það kemur fyrir að námið situr á hakanum þegar líður að stærstu íþróttamótunum í skólanum því að undirbúningur fyrir slík mót tekur mikinn tíma,“ sagði Egill Fjelsted, sem er frá Patreksfirði. Hann stefnir að því að Ijúka námi frá íþróttabraut að ári og fara síðan í framhaldsnám í íþróttakennaraskólann að Laug- arvatni. Þetta er þriðji veturinn minn í skólaum. Eg hef allan þann tíma leigt mér húsnæði út í bæ, þar sem erfitt er að fá inni á heimqvistinni sökum þess að nemendur frá Vesturlandi hafa forgang. Það eru sjö nemendur frá Patreksfirði í skólanum í vet- ur og hefur það aukist mjög að krakkar þaðan komi hingað í framhaldsnám. Áður var mikið um það að þau færu til Akureyr- ar. Við erum fjögur frá Patreks- firði sem leigjum saman íbúð. Kunningjar halda hópinn Þegar Egill var spurður að því hvort það væri áberandi að nem- endur frá sama stað héldu mikið saman sagði hann að svo væri og kæmi eflaust að sjálfu sér. Þau þekktu fáa þegar þau kæmu hingað og væri mjög eðlilegt að þau héldu hópinn. Hann sagðist vita dæmi þess að nemendur, sem kæmu frá stöðum þaðan sem enginn annar nemandi væri, hættu í námi við skólann vegna þess að þau næðu ekki að aðlag- ast og kynnast öðrum nemend- um. „Ég tel að í þannig tilfellum sé afar nauðsynlegt að taka þátt í því félagslífi, sem skólinn hefur upp á að bjóða, og reyndar fyrir alla nemendur. Nemendur kynn- Egill Fjelsted: „Aukisl mjög að krakkar frá Patreksfirði komi hingað til náms.“ ast mjög vel í gegnum félagslífið. Ég held að félagslífið í skólanum sé með ágætum þó alltaf megi bæta það. Ég hef á veturna leikið með körfuknattleiksliði ÍA og í gegnum það hef ég kynnst heima mönnum og eignast ágætis kunn- ingja.“ Páll Hrannar Herniaiwsson frá Olafsvik um gikli félagslífsins: „Nauðsynlegt til að kon> ast í takt við bæjariífið" Páll Hrannar: „Reglur vistarinnar eru nokkuð strangar og ákveðið er tekið á málum séu þcer brotnar. “ „Ég hef starfað mikið með Hjálparsveit skáta á Akranesi eftir að ég kom hingað til náms við Fjölbrautaskólann. Með því að starfa þar kynntist ég fljótlega mörgum heimamönnum og hef átt góðan kunn- ingsskap við þá síðan,“ sagði Páll Hrannar Hermannsson frá Ólafs- vík. Hann hefur dvalist hér í fjóra vetur og lýkur áfanga í rafeinda- virkjun frá skólanum í vor og heldur í framhaldsnám í þeirri grein í Reykjavík í haust. Auk þess hefur Páll Hrannar lokið verslunarprófi afviðskiptabraut. þar og samheldni nemenda. „Það er mjög vel að okkur búið á heimavistinni og hún er al- veg til fyrirmyndar. Nemendurn- ir á vistinni eru rúmlega sextíu og að sjálfsögðu myndast ákveðið andrúmsloft í sambýli svona margra utanbæjarnemenda. Það er áberandi, að nemendur sem eru á fyrstu önnunum halda mjög hópinn, enda eru þarna saman- komnir unglingar frá fimmtán ára aldri. Á fyrsta vetrinum kynnast þeir lítið öðrum nem- endum en þetta breytist síðan í flestum tilfellum þegar frá líður. Eg tel, að það eitt að taka þátt í einhverjum félagsskap sem boðið er upp á á staðnum, hvort sem er í einhverjum félögum eða í íþróttum, sé nauðsynlegt sem flestum til þess að komast betur í takt við bæjarlífið og kynnast því.“ í leiklistinni Páll Hrannar hcfur auk þess starfað að félagsmálum í skólan- um og þá í leiklistarklúbb. Hann hefur allan námstímann á Akra- nesi búið á heimavist skólans. Hann var spurður út í aðbúnað Strangar reglur Það eru ákveðnar hefðir sem eru við lýði þarna. Árlega er haldinn knattspyrnukeppni á meðal vistarbúa. Þá eru haldin „vistapartý" einu sinni til tvisvar á önn auk ýmissa annarra hefða. I byrjun hverrar annar er skipað heimavistarráð, sem fer með öll málefni gagnvart skólayfirvöld- um. Reglur vistarinnar eru nokk- uð strangar og verða að vera það. Ákveðið er tekið á málum séu þær brotnar.“ Páll Hrannar sagði að sér hefði líkað mjög vel að vera í Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Hann sagði það hafa ráðið miklu um ákvörðun sína að stunda nám hér á Akranesi að skólinn var ekki svo ýkja langt frá heimkynnum hans og mátulega langt frá Reykjavík.

x

Skagablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.