Skagablaðið - 27.06.1991, Blaðsíða 5
4
Skagablaðið
Skagablaðið
5
Þeir 99 hluthafar sem standa aö
rekstri Fiskeldisfélagsins Strandar á
Hvalfjarðarströnd hafa til þessa ekki
látið mikið yfir sér þrátt fyrir ötula upp-
byggingu starfseminnar á síðustu
árum. E.t.v. hefur ekki verið mikil
ástæða til húrrahrópa því oftar en
einu sinni hefur það gerst að rekstur-
inn hefur orðið fyrir miklum skakkaföll-
um. Þeim hefur að stórum hluta verið
mætt með auknu framlagi hluthafa í
stað stórfelldrar lántöku. Sú skynsam-
lega stefna er nú að skila sér.
Síðast í sjónvarpsfréttum í gær-
kvöld var því lýst yfir að fjöldagjald-
þrot blasti við hjá fiskeldisfyrirtækjum
ofan á öll þau gjaldþrot sem þegar
hafa riðið yfir greinina. Á sama tíma
og þessi unga atvinnugrein virðist
vera að gefa upp öndina víða um
land, án þess nokkru sinni að hafa
skilað tilætluðum árangri, stendur
rekstur Strandar traustum fótum.
Fyrirtækið er með jákvæða eiginfjár-
stöðu — sem út af fyrir sig hlýtur að
vera fréttaefni — og horfur eru á að
fullnýting náist út úr henni í fyrsta sinn
á næsta ári.
Undirritaður átti þess kost að skoða
aðstöðu Strandarmanna í gær. Þær
framkvæmdir sem lagt hefur verið í
eru meiri og fjárfrekari en flesta
grunar. Möguleiki er á að stækka
stöðina um helming reynist þörf á því
en eigendur fyrirtækisins vilja fyrst
láta á það reyna hvort hægt sé að ná
hámarksafköstum áður en ráðist
verður í frekari framkvæmdir.
íslendingar hafa alla tíð verið því
marki brenndir að ætla sér að græða
mikið á skömmum tíma. Gildir einu
hvar drepið er niður fæti í þeim
efnum. Sorgarsögurnar eru fleiri en
tekur að nefna. Af þeim sökum einum
er ástæða til þess að hrósa stjórnend-
um og eigendum Fiskeldisfélagsins
Strandar fyrir skynsamlega og mark-
vissa uppbyggingu.
Óskandi er að rekstur fyrirtækisins,
sem er nú með sex manns í vinnu,
komist sem fyrst á það stig að þeir
sem lagt hafa í það áhættufé fái um-
bun fyrir. Sú umbun yrði ekki aðeins
ósvikin laun erfiðisins heldur einnig
hvatning til annarra um að ráðast í
nýsköpun atvinnulífs með skynsöm-
um hætti.
Ásjóna Bíóhallarinnar hefur tekið
stakkaskiptum á síðustu vikum í kjöl-
far mikilla og tímabærra endurbóta á
ytra byrði þessa reisulega húss.
Bjarnalaugin er næst á dagskrá og
eru viðgerðir á henni þegar hafnar.
Bæjarbúar hljóta að fagna þessu því
báðar skipa þessar byggingar stóran
sess í hugum þeirra. Vonandi er að
fleiri sögufrægar byggingar fái tilhlýði-
lega andlitslyftingu og verði komnar í
sitt „fínasta púss“ á 50 ára afmæli
Akraneskaupstaðar á næsta ári.
Sigurður Sverrisson
Sigurbjörn Jónsson, slökkviliðsstjóri, með slökkvistöðina í baksýn.
wiyuiujuiii wiKJðviij ðiunnvinvððijviij i ðcuiiuiii viw wivcnjaviavivi
Vatnsskortur helsta áhyggju-
efnið ef kemur til eldsvoða
„Það eru 32 slökkviliðsmenn á Akranesi, sem sinna útköllum, en
enginn þeirra er í fullu starfi sem slíkur,“ sagði Sigurbjörn Jónsson,
slökkviliðsstjóri, í samtali við Skagablaðið. „Guðmundur Þór Sigur-
björnsson er þó í fullu starfi á slökkvistöðinni og sér um viðhald á
tækjum og húsnæði.
tköll vegna elds voru fjögur
á síðasta ári, sem telst minni
háttar. Síðustu tíu árin hafa þau
ekki farið yfir tólf á ári. Arið
1988 voru þau sex og aðeins tvö
árið 1989. Sem betur fer hafa
ekki orðið stórbrunar á Akranesi
og næsta nágrenni á síðustu
árum. Síðasti stórbruninn var
þegar að Nótastöðin brann árið
1979.
Slökkvibifreiðar eru þrjár, og
ein tækjabifreið. Elsta bifreiðin
er af Mack gerð með háþrýsti-
dælu með 1200 lítra afköstum á
mínútu. Bifreiðin er í góðu lagi
en fremur lítið notuð. Önnur er
þessi hefðbundni Bedford-bíll,
sem víða er um land og hafa
reynst vel sem dælubílar. Þriðji
bílinn er af Ford- gerð með
Darley dælu, sem dælir 3000 lítr-
um á mínútu. Áhaldabílinn er af
gerðinni Mercedes Benz. Hann
er búinn ýmsum algengum
áhöldum eins og reykblásara,
ljósavél, reykköfunartækjum,
fatnaði og fleiru."
— Hvert er starfssvæði slökkvi
liðsins?
Akraneskaupstaður, Innri-
Akraneshreppur, Skilmanna-
hreppur og svo Leirár- og Mela-
sveit. Þessir þrír hreppar og
Akraneskaupstaður hafa með sér
samstarf um rekstur slökkviliðs-
ins. íbúafjöldinn á þessu svæði er
um sex þúsund manns og lengsta
vegalengd innan þessa svæðis um
tuttugu og fimm kílómetrar.“
Sigurbjörn sagði að æfingar
hjá slökkviliðinu væru annan
hvern mánuð. Ýmist sæju þeir
sjálfir um æfingarnar eða að
starfsmenn Brunamálastofnnar
væru með námskeið. Hefðu þeir
einmitt verið með námskeið í
reykköfun í byrjun mánaðarins.
Sigurbjörn sagði að boðunar-
kerfi slökkviliðsins væri í gegn-
um síma og væri hægt að hringja
í 35 símanúmer í einu. Hann
sagði að boðunarkefinu væri
skipt í þrjá flokka og færi eftir
því hversu mikill bruninn er
hverju sinni hve margir slökkvi-
liðsmenn væru kallaðir út. Væri
hægt að boða mannskapinn út
bæði frá slökkvistöðinni og lög-
reglustöðinni, en lögreglan sæi
að jafnaði um boðun.
„Það sem helst veldur okkur
áhyggjum varðandi slökkvistarf í
dag er að á álagstímum á daginn
er vatnsmagnið í bænum mjög
lítið ef til bruna kemur. En við
treystum á sjóinn eins mikið og
hægt er til slökkvistarfa, en því
miður er ekki hægt að koma því
við að leiða vatnsslöngur í sjóinn
nema á nokkrum stöðum í
bænum.“
Sigurbjörn sagði að í stuttu
máli væri saga slökkviliðsins á
Akranesi sú, að árið 1935 gekkst
hreppsnefnd Ytri-Akraness-
hrepps fyrir stofnun slökkviliðs í
hreppnum. Hefur það starfað
síðan og er því 55 ára um þessar
mundir. Starf slökkviliðsins var
erfitt á fyrstu árunum vegna
tækjaskorts og auk þess sem erf-
itt var með vatnsöflun á þeim
tíma. En með tilkomu vatnsveitu
og brunahana árið 1942, breyttist
aðstðan til mikilla muna.
Fyrsti slökkviliðsbílinn eignað-
ist slökkviliðið árið 1946,
Chervolet árgerð 1946 með 2500
lítra dælu. Bíll þessi hefur fyrir
nokkru lokið hlutverki sínu og er
nú varðveittur í byggðasafninu
að Görðum.
Árið 1955 var reist slökkvistöð
að Laugarbraut 6B, sem var 150
fermetrar að stærð. Árið 1981
var byggt við fyrri byggingu sem
nam 204 fermetrum. Er slökkvi-
stöðin því í dag 354 fermetrar að
stærð og rúmar hún ágætlega
tækjakost slökkviliðsins eins og
hann er í dag.
„Við reynum á hverju ári að
bæta tækjabúnað okkar eins og
kostur er,“ sagði Sigurbjörn
„Næst á dagskrá hjá okkur er að
endurnýja reykköfunargrímur
okkar, sem eru komnar mjög til
ára sinna.
Ég vil að endingu nota tæki-
færið og koma á framfæri í blaðið
hvatningu til allra bæjarbúa um
að koma sér upp reykskynjara,
því betri og öruggari líftryggingu
er ekki hægt að kaupa sér,“ sagði
Sigurbjörn Jónsson.
Svæði það sem liðið þjónar er
Starf aðalféhirðis
Akraneskaupstaðar
er hér meö auglýst laust til umsóknar. Launakjör
samkvæmt samningum Akraneskaupstaðar og
STAK.
Nánari upplýsingar um starfið veita bæjarstjóri
eða bæjarritari í síma 93 - 11211.
Umsóknarfrestur er til 22. júlí nk.
Bæjarstjórinn á Akranesi
Slökkvilið Akraness er sjálfsagður öryggisþáttur í hugum okkar
bæjarbúa en lengra nær sú hugsun ekki. Skagablaðið ákvað að
skyggnast örlítið inn í þá viðamiklu starfsemi sem tengist þessum
öryggisþætti og starfi þeirra manna, sem ætíð eru reiðubúnir þegar
útkallið kemur. Þeir vinna starf sitt oft við hinar erfiðustu aðstæður.
Við ræddum við Sigurbjörn Jónsson, slökkviliðsstjóra um starfsemi
slökkviliðsins í gegnum tíðina og Guðmund Þór Sigurbjörnsson, sem
sagði okkur frá tækjakosti slökkviliðsins.
Slökkvilið Akraness er mjög áhaldabíllinn 1979 og síðan nýr
v ' ' ‘ *
Pvel tækjum búið í saman-
burði við önnur slökkvilið,“
sagði Guðmundur Þór í spjalli
við Skagablaðið „Við erum með
fjóra bíla, þrjá dælubíla og einn
áhaldabíl. Sá elsti er síðan 1943,
og var þá lengi annar tveggja
slökkviliðsbíla bæjarins. Nýr
dælubíll kom síðan árið 1963,
og fullkominn dælubíll af Ford-
gerð árið 1984.“
Auk þess að sjá um daglegt
viðhald á slökkvistöðinni hefur
Guðmundur eftirlit með því að
allir brunahanar í bænum séu í
lagi en fjöldi þeirra er um níutíu
talsins.
■ .....
Reykköfunaræfingar voru hér á Akranesi fyrir nokkru. Til œfinganna
var notaður stór gámur frá Brunamálastofnun.
Rólegheit hafa verið á fæðingardeildinni á Sjúkrahúsi Akra-
ness síðustu dagana, hvort sem blíðviðrinu er um að kenna
eða einhverju öðru. Eitt barn gleymdist í upptalningu blaðsins í
síðustu viku, fætt 12. júní. Það fylgir hér með:
12. júní kl. 10.32: stúlka, 3815 g að þyngd og 51 sm á lengd. For-
eldrar: Borghildur Jósúadóttir og Sveinn Kristinsson, Vesturgötu
85, Akranesi.
21. júní kl. 07.18: drengur, 4535 g að þyngd og 55 sm á Iengd.
Foreldrar: Sigríður Ingibjörg Karlsdóttir og Olafur Helgason,
Höfðaholti 4, Borgarnesi
26. júní kl. 04.26: drengur, 3730 g að þyngd og 50 sm á lengd.
Foreldrar: Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir og Guðmundur
Ragnar Guðmundsson, Efstahjalla 23, Kópavogi.
Leiðrétting: Stúlkubarn Guðrúnar Lilju Þorsteinsdóttur og
Lárusar Más Hermannssonar, sem sagt var frá í síðustu viku,
fæddist 17. júní ekki 16. eins og stóð í blaðinu. Er því sannkallað
þjóðhátíðarbarn. _______
Eftir að hafa skoðað slökkvi- haga ýmsum áhöldum og slökkvi
stöðina í fylgd með Guðmundi tækjum frá fyrstu dögum slökkvi-
fer ekki leynt að þar er öllu af- liðsins, sem segðu söguna frá
skaplega vel viðhaldið og hefur upphafi. Menn væru honum
hann meðal annars gert upp þakklátir fyrir þetta því þetta
fyrstu dæluna sem slökkvilið átti væri ómetanleg söguleg heimild.
og komið henni í upprunalegt Guðmundur sýndi okkur meðal
ástand. annars gamla handsmíðaða reyk-
Guðmundur benti á að Guð- grímu, sem Guðjón hafði haldið
jón Bjarnason hefði verið ein- við og gætt þess að hún týndist
staklega natinn við að halda til ekki.
(Green Card)
Frábær grínmynd leikstjór-
ans Peter Weir sem hlaut
tvenn Golden Globe verð-
laun, bæði fyrir „bestu mynd-
ina“ og „besta leikarann."
Aðalhlutverk: Gerard
Depardieu, Andie
McDowell.
Sýnd kl. 21 í kvöld,
fimmtudag, og annað
kvöld.
Leikskóla-
löggan
Allir héldu að Arnold
Schwarzenegger gæti ekki
brosað, hvað þá heldur leik-
ið. Hann hefur afsannað
hvoru tveggja með glæsi-
brag. í þessari grínmynd fer
hann á kostum, sigrar hóp
glæpamanna með aðstoð
leikskólakrakka.
Sýnd kl. 21 á sunnudag
og mánudag.
Oliver
og félagar
Bráðskemmtileg mynd fyr-
ir yngri kynslóðina.
Sýnd kl. 15 á sunnudag.