Fréttablaðið - 03.07.2019, Qupperneq 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 2 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú L Í 2 0 1 9
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
BRÚÐKAUPS-
BLÖÐRUR OG
SKREYTINGAR
Finndu okkur á
www.kronan.is
1299 kr.kg
Grísakótilettur, kryddaðar
Ódýrt
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt þremur börnum
manns sem lést á Landspítalanum
árið 2012, miskabætur vegna stór-
felldra mistaka starfsmanna Land-
spítalans við umönnun hans.
Hjúkrunarfræðingur sem annaðist
manninn var sýknaður af ákæru um
manndráp af gáleysi árið 2016.
Eftir sýknudóminn sendu börn
mannsins kröfu um miskabætur á
ríkið. Ríkislögmaður hafnaði bóta-
rétti þeirra með vísan til þess að
ósannað væri að mistök hefðu leitt
til andláts mannsins og að hjúkr-
unarfræðingur sem ákærður var
vegna andlátsins hefði verið sýkn-
aður. Börn mannsins töldu afstöðu
ríkislögmanns ekki samræmast
gögnum og höfðuðu því mál.
Í kröfugerð vísuðu systkinin til
umræddra gagna sem þau töldu
leiða í ljós mistök við umönnun
föður þeirra. Þrátt fyrir að ekki hafi
verið sýnt fram á refsiverða hátt-
semi, beri ríkið ábyrgð á stórfelldu
gáleysi starfsmanna sinna sem leitt
hafi til ótímabærs andláts föðursins.
Um mistökin vísa þau meðal annars
til krufningarskýrslu og matsgerðar
dómkvaddra matsmanna og skýrslu
hjúkrunarfræðingsins hjá lögreglu
þar sem hún játaði mistökin.
Mistökin hafi falist í því að starfs-
mönnum hafi láðst að tæma loft úr
kraga barkaraufarrennu þegar faðir
þeirra var tekinn úr öndunarvél,
með þeim afleiðingum að hann hafi
eingöngu getað andað lofti að sér en
ekki frá sér.
Þá hafi starfsmönnum láðst að
kveikja á hljóðmerki vaktara sem
mæli súrefnismettun í blóði og hefði
gefið frá sér öryggishljóð þegar súr-
efnismettun í blóði föður þeirra fór
að falla og blóðþrýstingur hækkaði.
Vísað er til þess mats héraðsdóms
í refsi málinu að þessi mistök hafi
mátt rekja til álags og undirmönn-
unar. Vegna mistakanna, sem hvor
um sig hafi falið í sér stórkostlegt
gáleysi starfsmanna spítalans, hafi
faðir þeirra látist. – aá / sjá síðu 4
Mistök á Landspítalanum viðurkennd
Þrjú unnu bótamál gegn ríkinu vegna andláts föður síns. Fengu milljón hvert í miskabætur. Hjúkrunarfræðingur var sýknaður af
manndrápi af gáleysi vegna andlátsins 2015. Að mati dómsins ber ríkið bótaábyrgð á mistökum „einhverra starfsmanna“ spítalans.
Mistökin sem leiddu til
andláts mannsins mátti
rekja til álags og undir-
mönnunar á spítalanum.
Sumarblíðan fór mjúkum höndum í gær um Flatey á Breiðafirði og gesti hennar. Þessir hressu krakkar
stóðust ekki mátið og óðu út í sjó til að kæla sig og skemmta sér um leið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VIÐSKIPTI Lausafjárstaða bankanna
í krónum hefur versnað síðustu
mánuði, að sögn fjármálastöðug-
leikaráðs. Stefán Broddi Guðjóns-
son, forstöðumaður greiningar-
deildar Arion, segir háar eigin- og
lausafjárkröfur, auk minni arðsemi,
gera það að verkum að aðgerðir til
að lækka vexti beri ekki eins mik-
inn árangur og annars væri.
Hertar kröfur dragi úr getu bank-
anna til þess að auka útlán á sama
tíma og hagkerfið þurfi á auknu
lánsfé að halda. – kij / sjá Markaðinn
Lausafjárstaðan
versnar enn
Stefán Broddi
Guðjónsson.
Fleiri myndir úr Flatey er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið
+Plús er í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
STJÓRNMÁL „Við blasa ein grimm-
ustu innanf lokksátök sem sögur
fara af í áratugi,“ segir Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, formaður
Viðreisnar, í grein í Fréttablaðinu í
dag þar sem hún fjallar um klofning
innan Sjálfstæðisf lokksins vegna
þriðja orkupakkans.
„Þetta mál er notað eða rétt-
ara sagt misnotað markvisst til að
ná lengra,“ skrifar Þorgerður. Rit-
stjórar Morgunblaðsins
kappkosti að lítillækka
ritara og varaformann
Sjálfstæðisflokksins.
„Þá spotta og hæða
ritstjórarnir for-
mann Sjálfstæðis-
flokksins.“
– gar / sjá síðu 11
Segir ritstjóra
spotta og hæða
Bjarna formann
0
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
A
-3
5
F
C
2
3
5
A
-3
4
C
0
2
3
5
A
-3
3
8
4
2
3
5
A
-3
2
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K