Fréttablaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 03.07.2019, Blaðsíða 25
Í grein í Markaðnum þann 19. júní sl. gera lögmennirnir Helga Mel-korka Óttarsdóttir og Halldór Brynjar Halldórsson meðferð Sam- keppniseftirlitsins á samrunamál- um og umgjörð um þær rannsóknir að sérstöku umtalsefni. Af greininni verður ráðið að samrunafyrirtæki standi berskjölduð gagnvart víð- tækum heimildum Samkeppnis- eftirlitsins og að lítið hafi upp á sig fyrir fyrirtækin að leita réttar síns brjóti eftirlitið gegn þeim rétt- indum sem stjórnsýslulög tryggja þeim. Í þessu samhengi fjalla lög- mennirnir um heimild 2. mgr. 17. gr. e. samkeppnislaga til þess að taka aftur til skoðunar samruna sem hafa verið ógiltir í kjölfar áfrýjunar vegna formgalla á málsmeðferð. Óhjákvæmilegt er að gera athuga- semd við þessa framsetningu lög- mannanna sem ekki er studd gögn- um eða tilvísunum til einstakra dæma. Er hún að tilefnislausu til þess fallin að fæla fyrirtæki frá því að tilkynna Samkeppniseftirlitinu um samruna og halda fram rétt- indum sínum. Rannsóknir samrunamála Rannsókn samrunamála er eitt af meginverkefnum Samkeppnis- eftirlitsins. Ólíkt f lestum öðrum málum fyrir stofnuninni snýr sam- runaeftirlit ekki að brotum sem hafa átt sér stað heldur að því að vernda samkeppnislega gerð mark- aða og tryggja þannig möguleikann á virkri samkeppni til framtíðar. Samrunar sem hafa skaðleg áhrif á samkeppni geta skaðað hagsmuni neytenda og almennings með alvar- legum hætti, til að mynda  með hækkun verðs. Löggjafinn hefur metið það mikilvægt að hagsmunir almennings séu verndaðir með samrunaeftirliti. Heimild til þess að taka sam- runa aftur til meðferðar Framangreindu ákvæði, sem lög- mennirnir gera að umtalsefni í grein sinni, var bætt við samkeppnislög á árinu 2008 samhliða því sem reglur um rannsókn samruna voru styrkt- ar og færðar til nánara samræmis við reglur sem gilda í EES/ESB-sam- keppnisrétti. Ákvæðið sækir fyrir- mynd sína til samrunareglugerðar Evrópusambandsins og gerir sam- keppnisyfirvöldum mögulegt að taka efnislega afstöðu til samruna sem hafa verið ógiltir vegna galla á málsmeðferð. Í greinargerð með lögunum kemur fram að ákvæðinu er ætlað að tryggja að samrunar sem hafa möguleg skaðleg áhrif á sam- keppni fái efnislega umfjöllun. Samkvæmt ákvæðinu er Sam- keppniseftirlitinu heimilt, en ekki skylt, að taka mál sem eru ógilt á þessum grundvelli til rannsóknar að nýju. Kjósi eftirlitið að gera það hefur stofnunin 30 virkra daga frest til þess að taka ákvörðun að nýju um hvort rétt sé að hafna eða setja viðkomandi samruna skilyrði. Nauðsynlegt er að á þessu tímabili sé bætt úr þeim annmörkum sem kunna að hafa verið á fyrri máls- meðferð. Í framkvæmd hefur Sam- keppniseftirlitið ekki beitt heim- ildinni og ljóst er að henni myndi aðeins verða beitt í þeim tilvikum þar sem framangreindir hagsmunir sem samkeppnislögum er ætlað að vernda eru í hættu. Málsaðilar láta reyna á meðferð máls Í greininni láta lögmennirnir að því liggja að ákvæðið komi í veg fyrir að fyrirtæki telji það þjóna hagsmunum sínum að láta reyna á möguleg brot á málsmeðferðar- reglum. Þvert gegn því sem lög- mennirnir halda fram hafa sam- runaaðilar iðulega haldið því til haga í málatilbúnaði sínum, m.a. fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnis- mála, að Samkeppniseftirlitið hafi ekki virt málsmeðferðarreglur. Í f lestum þessara mála hefur nefndin ekki fallist á athugasemdir við máls- meðferðina, samanber meðal ann- ars úrskurði áfrýjunarnefndar frá 8. mars 2019 í máli Lyfja og heilsu hf., 13. desember 2018 í máli Atlants- olíu ehf. og 16. janúar 2018 í máli Símans hf. en í öllum tilvikum var meðferð eftirlitsins tekin til ítar- legrar umfjöllunar og komist að þeirri niðurstöðu að henni væri ekki ábótavant. Staðreyndin er sú að Samkeppnis- eftirlitið fylgir málsmeðferðar- reglum og verklagi sem tryggir rétt- indi málsaðila miklum mun betur en stjórnsýslulög gera ráð fyrir. Þannig gefur Samkeppniseftirlitið út svokallað andmæla skjal í sam- runamálum þar sem líkur eru á íhlutun. Í andmælaskjalinu er gerð ítarleg grein fyrir gagnaöf lun og annarri meðferð málsins, ásamt því sem eftirlitið gerir grein fyrir frummati sínu í málinu. Þannig hafa málsaðilar tækifæri til að gera ítar- legar athugasemdir við bæði máls- meðferð og efnismat. Þessi sam- skipti eftirlitsins og málsaðila eru til þess fallin að gera meðferð málsins og þar með niðurstöðuna vandaðri. Þetta er meginástæðan fyrir því að ekki hefur reynst nauð- synlegt að beita fyrrgreindu var- úðarákvæði 2. mgr. 17. gr. e. sam- keppnislaga. Ákvæðið er engu að síður mikilvægt til þess að tryggja þá almannahagsmuni að neyt- endur og viðskiptavinir þurfi ekki um ókomin ár að gjalda fyrir það að samkeppnishindrandi samruni náði fram að ganga vegna mögu- legrar niðurstöðu áfrýjunarnefnd- ar eða dómstóla um annmarka á meðferð viðkomandi máls. Engin haldbær rök styðja hins vegar við þá ályktun að varúðarreglan fæli málsaðila frá því að halda fram rétti sínum. Að síðustu skal áréttað að Sam- keppniseftirlitið vill að sjálfsögðu kappkosta með öllum ráðum eins skilvirka og vandaða rann- sókn samrunamála og kostur er. Eftirlitið stefnir að því að nýta þá reynslu sem byggst hefur upp á síðustu misserum til þess að bæta enn frekar núgildandi verklag við meðferð samrunamála. Í því sam- bandi hyggst eftirlitið í haust efna til fundar í fundaröð sinni Samtal um samkeppni þar sem þetta efni verður rætt við ráðgjafa fyrirtækja. Meðferð samrunamála hjá SKE Magnús Þór Kristjánsson verkefna- og teymisstjóri hjá Samkeppnis- eftirlitinu Samkeppniseftir- litið fylgir máls- meðferðarreglum og verk- lagi sem tryggir réttindi málsaðila miklum mun betur en stjórnsýslulög gera ráð fyrir. Sterkt og gott samband Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Eitt símtal og málið er leyst Vodafone sinnir tæknilegum þörfum okkar hratt og örugglega 9M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 MARKAÐURINN 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 A -6 C 4 C 2 3 5 A -6 B 1 0 2 3 5 A -6 9 D 4 2 3 5 A -6 8 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.