Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 25
Í grein í Markaðnum þann 19. júní sl. gera lögmennirnir Helga Mel-korka Óttarsdóttir og Halldór
Brynjar Halldórsson meðferð Sam-
keppniseftirlitsins á samrunamál-
um og umgjörð um þær rannsóknir
að sérstöku umtalsefni. Af greininni
verður ráðið að samrunafyrirtæki
standi berskjölduð gagnvart víð-
tækum heimildum Samkeppnis-
eftirlitsins og að lítið hafi upp á
sig fyrir fyrirtækin að leita réttar
síns brjóti eftirlitið gegn þeim rétt-
indum sem stjórnsýslulög tryggja
þeim. Í þessu samhengi fjalla lög-
mennirnir um heimild 2. mgr. 17. gr.
e. samkeppnislaga til þess að taka
aftur til skoðunar samruna sem
hafa verið ógiltir í kjölfar áfrýjunar
vegna formgalla á málsmeðferð.
Óhjákvæmilegt er að gera athuga-
semd við þessa framsetningu lög-
mannanna sem ekki er studd gögn-
um eða tilvísunum til einstakra
dæma. Er hún að tilefnislausu til
þess fallin að fæla fyrirtæki frá því
að tilkynna Samkeppniseftirlitinu
um samruna og halda fram rétt-
indum sínum.
Rannsóknir samrunamála
Rannsókn samrunamála er eitt
af meginverkefnum Samkeppnis-
eftirlitsins. Ólíkt f lestum öðrum
málum fyrir stofnuninni snýr sam-
runaeftirlit ekki að brotum sem
hafa átt sér stað heldur að því að
vernda samkeppnislega gerð mark-
aða og tryggja þannig möguleikann
á virkri samkeppni til framtíðar.
Samrunar sem hafa skaðleg áhrif á
samkeppni geta skaðað hagsmuni
neytenda og almennings með alvar-
legum hætti, til að mynda með
hækkun verðs. Löggjafinn hefur
metið það mikilvægt að hagsmunir
almennings séu verndaðir með
samrunaeftirliti.
Heimild til þess að taka sam-
runa aftur til meðferðar
Framangreindu ákvæði, sem lög-
mennirnir gera að umtalsefni í grein
sinni, var bætt við samkeppnislög á
árinu 2008 samhliða því sem reglur
um rannsókn samruna voru styrkt-
ar og færðar til nánara samræmis
við reglur sem gilda í EES/ESB-sam-
keppnisrétti. Ákvæðið sækir fyrir-
mynd sína til samrunareglugerðar
Evrópusambandsins og gerir sam-
keppnisyfirvöldum mögulegt að
taka efnislega afstöðu til samruna
sem hafa verið ógiltir vegna galla
á málsmeðferð. Í greinargerð með
lögunum kemur fram að ákvæðinu
er ætlað að tryggja að samrunar sem
hafa möguleg skaðleg áhrif á sam-
keppni fái efnislega umfjöllun.
Samkvæmt ákvæðinu er Sam-
keppniseftirlitinu heimilt, en ekki
skylt, að taka mál sem eru ógilt á
þessum grundvelli til rannsóknar
að nýju. Kjósi eftirlitið að gera það
hefur stofnunin 30 virkra daga
frest til þess að taka ákvörðun að
nýju um hvort rétt sé að hafna eða
setja viðkomandi samruna skilyrði.
Nauðsynlegt er að á þessu tímabili
sé bætt úr þeim annmörkum sem
kunna að hafa verið á fyrri máls-
meðferð. Í framkvæmd hefur Sam-
keppniseftirlitið ekki beitt heim-
ildinni og ljóst er að henni myndi
aðeins verða beitt í þeim tilvikum
þar sem framangreindir hagsmunir
sem samkeppnislögum er ætlað að
vernda eru í hættu.
Málsaðilar láta reyna
á meðferð máls
Í greininni láta lögmennirnir að
því liggja að ákvæðið komi í veg
fyrir að fyrirtæki telji það þjóna
hagsmunum sínum að láta reyna
á möguleg brot á málsmeðferðar-
reglum. Þvert gegn því sem lög-
mennirnir halda fram hafa sam-
runaaðilar iðulega haldið því til
haga í málatilbúnaði sínum, m.a.
fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnis-
mála, að Samkeppniseftirlitið hafi
ekki virt málsmeðferðarreglur. Í
f lestum þessara mála hefur nefndin
ekki fallist á athugasemdir við máls-
meðferðina, samanber meðal ann-
ars úrskurði áfrýjunarnefndar frá 8.
mars 2019 í máli Lyfja og heilsu hf.,
13. desember 2018 í máli Atlants-
olíu ehf. og 16. janúar 2018 í máli
Símans hf. en í öllum tilvikum var
meðferð eftirlitsins tekin til ítar-
legrar umfjöllunar og komist að
þeirri niðurstöðu að henni væri
ekki ábótavant.
Staðreyndin er sú að Samkeppnis-
eftirlitið fylgir málsmeðferðar-
reglum og verklagi sem tryggir rétt-
indi málsaðila miklum mun betur
en stjórnsýslulög gera ráð fyrir.
Þannig gefur Samkeppniseftirlitið
út svokallað andmæla skjal í sam-
runamálum þar sem líkur eru á
íhlutun. Í andmælaskjalinu er gerð
ítarleg grein fyrir gagnaöf lun og
annarri meðferð málsins, ásamt
því sem eftirlitið gerir grein fyrir
frummati sínu í málinu. Þannig hafa
málsaðilar tækifæri til að gera ítar-
legar athugasemdir við bæði máls-
meðferð og efnismat. Þessi sam-
skipti eftirlitsins og málsaðila eru til
þess fallin að gera meðferð málsins
og þar með niðurstöðuna vandaðri.
Þetta er meginástæðan fyrir
því að ekki hefur reynst nauð-
synlegt að beita fyrrgreindu var-
úðarákvæði 2. mgr. 17. gr. e. sam-
keppnislaga. Ákvæðið er engu að
síður mikilvægt til þess að tryggja
þá almannahagsmuni að neyt-
endur og viðskiptavinir þurfi ekki
um ókomin ár að gjalda fyrir það
að samkeppnishindrandi samruni
náði fram að ganga vegna mögu-
legrar niðurstöðu áfrýjunarnefnd-
ar eða dómstóla um annmarka á
meðferð viðkomandi máls. Engin
haldbær rök styðja hins vegar við
þá ályktun að varúðarreglan fæli
málsaðila frá því að halda fram
rétti sínum.
Að síðustu skal áréttað að Sam-
keppniseftirlitið vill að sjálfsögðu
kappkosta með öllum ráðum
eins skilvirka og vandaða rann-
sókn samrunamála og kostur er.
Eftirlitið stefnir að því að nýta þá
reynslu sem byggst hefur upp á
síðustu misserum til þess að bæta
enn frekar núgildandi verklag við
meðferð samrunamála. Í því sam-
bandi hyggst eftirlitið í haust efna
til fundar í fundaröð sinni Samtal
um samkeppni þar sem þetta efni
verður rætt við ráðgjafa fyrirtækja.
Meðferð samrunamála hjá SKE
Magnús Þór
Kristjánsson
verkefna- og
teymisstjóri hjá
Samkeppnis-
eftirlitinu
Samkeppniseftir-
litið fylgir máls-
meðferðarreglum og verk-
lagi sem tryggir réttindi
málsaðila miklum mun
betur en stjórnsýslulög gera
ráð fyrir.
Sterkt og gott
samband
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Eitt símtal
og málið er leyst
Vodafone sinnir tæknilegum
þörfum okkar hratt og örugglega
9M I Ð V I K U D A G U R 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 MARKAÐURINN
0
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
A
-6
C
4
C
2
3
5
A
-6
B
1
0
2
3
5
A
-6
9
D
4
2
3
5
A
-6
8
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K