Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.07.2019, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 03.07.2019, Qupperneq 26
Helgi Vífill Júlíusson SKOÐUN Kirkbi, fjárfestingafélag Legó-fjölskyldunnar, hefur eignast hlut í Lególandi á nýjan leik en félagið, ásamt sjóði í stýringu Blackstone og kanadíska lífeyrissjóðnum CPPIB, festi í liðinni viku kaup á öllu hlutafé í Merlin Entertainment, sem á meðal annars danska skemmtigarðinn, London Eye og söfnin vinsælu Madame Tussauds. Danska fjölskyldan, sem er aðaleigandi Legó, seldi Lególand árið 2005. NORDICPHOTOS/GETTY Skotsilfur Legó-fjölskyldan eignast Lególand á ný Sem betur fer en vonandi ekki of seint eru Íslending-ar ásamt öðrum þjóðum sífellt betur að vakna til vitundar um þann vanda sem mannkyn stendur frammi fyrir vegna loftslagsbreyt- inga. Hverjum er ljóst að bregðast þarf við og leita leiða til að draga verulega úr losun gróðurhúsaloft- tegunda með sem hagkvæmustum hætti. Vandinn er stór og eins og þá vill oft verða er tilhneigingin til að leita að blóraböggli. Einn blórabögg- ullinn er hagvöxtur, sem fljótt á litið er skiljanlegt því margt í efnahags- lífinu leiðir til mengunar. Við nánari athugun er þó afar vanhugsað að skella skuldinni á hagvöxt. Hagvöxtur er breyting á vergri landsframleiðslu eða landsfram- leiðslu í daglegu tali. Landsfram- leiðsla er aftur á móti virði allrar vöru og þjónustu sem framleidd er innan ákveðins svæðis, oftast á einu ári. Landsframleiðsla er því mæli- kvarði á hversu miklum mælanleg- um verðmætum og afurðum vinna, tækni og fjármagn skila sem við svo njótum með því að kaupa í matinn, hlusta á tónlist, fara til læknis, ferðast og hvað eina. Til að lands- framleiðslan aukist þarf annaðhvort (eða bæði) f leiri vinnandi hendur, sem eðli málsins samkvæmt helst mest í hendur við fólksfjölda, eða framleiðniaukningu. Framleiðnin getur t.d. aukist vegna betri mennt- unar, hagkvæmari fjárfestinga eða tækniframfara. Þannig er hægt að gera meira fyrir minna. Ef lands- framleiðslan aftur á móti minnkar felur það óhjákvæmilega í sér að fólk hefur almennt minna á milli hand- anna og iðulega atvinnuleysi eins og reynslan sýnir. Ekki gallalaus mælikvarði Landsframleiðsla er ekki og átti aldrei að vera endanlegur mæli- kvarði á lífskjör. Enda eru takmark- anir á því hvað landsframleiðsla mælir og mælingar á landsfram- leiðslu geta verið gallaðar eins og fjölmörg dæmi um endurskoðun hagtalna bera vitni um. Engu að síður er landsframleiðsla skýr og samræmanlegur mælikvarði og því afar gagnlegur til að skoða þróun samfélagsins yfir tíma eða í saman- burði milli landa. Einnig eru tengsl milli landsframleiðslu á mann og ýmissa mælikvarða á lífsgæði – allt frá langlífi til hamingju. Eitt og sér segir það lítið og meira þarf til en háa landsframleiðslu, en það gefur augaleið að í ríkjum sem búa við háa landsframleiðslu á mann er meira svigrúm til að lifa heilbrigðu og öruggu lífi. Vegna annmarka landsfram- leiðslu hafa verið þróaðar aðrar leið- ir til að meta lífskjör landa. Vísitala félagslegra framfara (SPI) er einn slíkur mælikvarði. Hann sýnir svart á hvítu tengsl við landsframleiðslu þar sem öll þau ríki sem búa við mestu félagslegu framfarirnar búa við háa landsframleiðslu á mann en þau lönd sem reka lestina búa við lága landsframleiðslu á mann. Sömu sögu má segja um aðra slíka mæli- kvarða eins og „Better Life Index“. Meiri hagvöxtur, minni fátækt Í þessari umræðu virðist líka gleym- ast að 63% aukningar útblásturs frá 1990, sem Parísarsamkomu- lagið miðar við, til 2012 kom frá Austur-Asíu og Eyjaálfu – svæðum þar sem mestu efnahagsfram- farir síðustu ára hafa átt sér stað og hundruð milljóna manna hafa brotist úr fátækt með betra aðgengi að menntun, auknu langlífi, fátíðari ungbarnadauða o.s.frv. Í því ljósi virðist andúð á hagvexti vera vegna misskilnings, vanþekkingar eða for- réttindablindu sem verður allt að því mannfjandsamleg. Í staðinn fyrir að horfa á hagvöxt sem vandamál er skynsamlegra að líta á kraft tækniframfara og efna- hagslífið sem lausn á þeim gríðar- legu áskorunum sem steðja að. Með því t.d. að nýta betur fjárfestingar og aðföng eins og eldsneyti aukum við hagvöxt og vinnum um leið gegn loftslagsbreytingum. Þá er ágætt að muna að það skapar bein- línis hagvöxt á Íslandi að f lytja inn minna eldsneyti. Breytt og umhverfisvænna neyslumynstur þarf að sama skapi ekki að draga úr landsframleiðslu heldur einfaldlega breyta samsetningu hennar. Margir, helst allir, þurfa að leggj- ast á eitt við að gera hlutina með minni kostnaði fyrir umhverfið þannig að það auki lífsgæði almennings um allan heim. Sem vill svo skemmtilega til að er í anda þess sem hagvöxtur mælir: Hve mikið meira er gert fyrir minni til- kostnað. Við borðum víst hagvöxt  Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur Viðskiptaráðs BSRB, samtök opinberra starfs-manna, börðust kröftuglega fyrir þá félagsmenn sem starfa hjá Íslandspósti á dögunum þegar mótmælt var einkavæðingu ríkisfyrirtækisins. Í herlúðrunum ómaði gamall, skerandi falskur tónn um mikilvægi ríkisrekstrar á fjölda sviða mannlífsins. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra á hrós skilið fyrir að stíga fram og lýsa yfir áhuga á að selja Íslandspóst. Það getur verið erfitt að viðra hugmyndir sem þessar í ríkisstjórnarsamstarfi við Vinstri græna. Það skiptir nefnilega sköpum að leiðtogar Sjálfstæðis- f lokksins tali með þessum hætti. Það hreyfir við umræðunni, eins og sést. Því miður vildi Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra stíga varlega til jarðar. Hann taldi ekki tímabært að ræða sölu á fyrir- tækinu og vildi sjá hver árangur af rekstrarumbótum á félaginu yrði. Birgir Jónsson, nýr forstjóri Íslandspósts, má eiga það að hann lætur strax til sín taka. Hans fyrsta verk var að setja prentsmiðjuna Samskipti á sölu. Það er lýsandi fyrir óráðsíuna hjá ríkispóstinum að hafa keypt illa rekna prentsmiðju á árunum fyrir hrun. Stjórnendurnir virtust ekki átta sig á þeim takmörkum sem ríkisrekstur setur þeim. Sigurður Ingi þarf að hafa í huga að endurskipulagning á rekstri Íslandspósts breytir ekki þessu þrennu: Í fyrsta lagi á ríkið ekki að reka flutningafyrirtæki sem dreifir bréf- um, pökkum og stærri sendingum eins og Íslandspóstur gerir. Hann á ekki að vera í samkeppnisrekstri. Opinberu fé er betur varið í þarfari verkefni. Í öðru lagi felst vandi Íslands- pósts í því að bréfasendingum hefur fækkað með tilkomu internetsins. Ríkið sendir til dæmis ekki skatt- framtöl í pósti nema nauðbeygt. BSRB-liðar segja að póstþjónusta sé mikilvægur innviður en bréfa- sendingar eru það ekki lengur. Jafnvel þótt svo væri, geta einka- fyrirtæki geta sinnt þjónustunni með myndarbrag. Í þriðja lagi er ríkið með einka- rétt á bréfasendingum. Pawel Bart- oszek, forseti borgarstjórnar, vakti athygli á að Ísland væri síðasta EES- ríkið til að afnema þessa einokun. Framkvæmdastjóri BSRB sagði í grein í Fréttablaðinu í gær að vandi Íslandspósts fælist í skorti á stefnu- mótun, ekki eignarhaldinu. Í þessu felst rökvilla. Vegna eignarhaldsins var skortur á stefnumótun. Aðhald hluthafa er með allt öðrum hætti en stjórnmálamanna. Það sem ekki skiptir síður máli er að þegar hefð- bundin fyrirtæki ná ekki að fóta sig, líða þau undir lok. En vel rekin fyrirtæki fá að lifa áfram. Fátt fær stöðvað illa rekin ríkisfyrirtæki. Í því liggur vandinn. Fátt fær stöðvað illa rekin ríkisfyrirtæki Fengi falleinkunn Leiðtogar Evrópu- sambandsins náðu í gær samkomulagi eftir langt og mikið þref um að tilnefna Christine Lagarde, fram- kvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins, sem næsta bankastjóra Evrópska seðlabankans. Skipanin kann að vekja nokkra athygli og kemur eflaust sumum á óvart enda er Lagarde hvorki hagfræðingur né sérfræðingur í peningamálum. Eitt er víst að Lagarde kæmist ekki í gegnum nálarauga hinnar íslensku hæfisnefndar um skipan seðla- bankastjóra. Miðað við menntun hennar og starfsreynslu fengi hún varla viðtal hjá nefndinni. Til Kviku Almar Guðmunds- son, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, er genginn til liðs við Kviku banka í kjölfar kaupa fjárfestingarbankans á GAMMA Capital Management og starfar nú sem sérfræðingur á fyrir- tækjasviði bankans. Síðustu ár hefur Almar stýrt uppbyggingu Krítar fjármögnunarlausna sem er í eigu sjóðs í stýringu GAMMA en eftir sameiningu Kviku og GAMMA breyttist skipulag innan samstæð- unnar þannig að ýmsir starfsmenn færðust á milli félaga. Misvísandi hagtölur Margir klóra sér í höfðinu þessa dagana yfir þeim hagtölum sem hafa verið gefnar út undanfarið en þær þykja gefa fremur misvísandi skilaboð um stöðu hagkerfisins, og þá ekki síst ferðaþjónustunnar, í kjölfar falls WOW air. Á sama tíma og ferðamönnum hefur fækkað og fjöldi gistinátta dregist saman hefur umferð bíla um hringveginn aukist meira í ár en í fyrra og korta- velta á hvern ferðamann aldrei ver- ið jafn mikil og í maí, eins og Stefán Broddi Guðjónsson og kollegar í greiningardeild Arion banka bentu nýverið á. Hagfræðingar landsins ættu að hafa nóg fyrir stafni. 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 5 A -6 7 5 C 2 3 5 A -6 6 2 0 2 3 5 A -6 4 E 4 2 3 5 A -6 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.