Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 12

Fréttablaðið - 03.07.2019, Side 12
SPORT FÓTBOLTI Emil Lyng, leikmaður Vals, sást með tárin í augunum eftir sigurleik Vals gegn HK í Pepsi deild karla. Sigurbjörn Hreiðarsson, einn af þjálfurum Vals sagði í samtali við Fréttablaðið að danski sóknarmað- urinn hefði fengið eitthvað í kálf- ann og óttaðist að meiðslin væru slæm. Svo slæm að hann yrði lengi frá. „Hann langar að sýna sig og sanna fyrir Valsmönnum og þetta fékk á hann. Það á eftir að koma í ljós hvað hefur gerst en við vonum það besta enda er hann frábær leik- maður,“ sagði Sigurbjörn. Emil Lyng kom til Vals fyrir tímabilið og byrjaði á því að skora í fyrsta leik gegn Víkingi. Hann meiddist í maí og var að snúa til baka. Hann fékk sénsinn gegn HK en það var fyrsti leikurinn hans í byrjunarliðinu í rúman mánuð. Frammistaða hans í leiknum þótti ekki nógu góð og var hann tekinn út af eftir um klukkutíma leik sár- þjáður í kálfanum. Valsmenn tryggðu sér krafta Pat- ricks Pedersen í vikunni en Íslands- meistarar síðustu tveggja ára hafa verið að ná vopnum sínum að undan förnu eftir brösuga byrjun. – bb Grét vegna meiðsla í kálfa Emil Lyng er hér lengst til hægri ásamt Lasse Petry og Gary Martin sem er horfinn á braut. Ólafur Jóhannesson er til vinstri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það á eftir að koma í ljós hvað hefur gerst en við vonum það besta enda er hann frábær leikmaður. Sigurbjörn Hreiðarsson Brynjar Benediktsson annar eigandi Soccer and education Leikurinn fer 3-1 fyrir Val. Elín Metta með þrennu og Breiðablik klórar í bakkann með einu marki. Stefán Árni Pálsson blaðamaður Fyrsti risaleikurinn í Pepsi Max deild kvenna. Þeir verða ekki margir. Hinn fer fram á Kópavogsvelli þegar Valskonur mæta í heim- sókn. Í þessum leik verða bæði lið hrædd um að tapa og leikurinn mun því aldrei ná neinu flugi. Spái 1-1 og bæði mörkin koma úr vítaspyrnum. Seinni leikur þessara liða verður algjör úrslitaleikur og tel ég að reynsla leikmanna Vals skili dollunni í hús undir lok tímabilsins. Nökkvi Fjalar Orrason eigandi Swipe 2-1 fyrir Val og Valur endar sem Íslandsmeistari. Karólína Lea skorar fyrir Breiða- blik en Valur vinnur þar sem Elín Metta og Hlín klára leikinn fyrir þær rauðklæddu. Gunnar Birgisson íþróttafréttamaður á RÚV Bæði lið stefndu sennilega á tvenn- una fyrir mót og þá sérstaklega Valur. Nú er það úr sögunni og því er allt undir. Á Valsvellinum á morgun mætast tvö varkár lið sem vilja ekki tapa, líkleg niður- staða er 1-1 og bæði lið ganga þokkalega sátt af velli. Breiðablik stendur síðan uppi sem Íslandsmeistari, það virðist fátt stoppa Steina Halldórs og hans konur, hvað þá þegar þær finna lykt af titli. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafrétta- kona á RÚV Þetta verður stærsti leikur sumarsins enda hvorugt liðið búð að misstíga sig í deildinni hingað til. Bæði lið eru úr leik í bikarkeppninni og því ljóst að Íslands- meistaratitillinn er það eina sem liðin eru á höttunum eftir í sumar. Valur hefur skorað meira hingað til og þær eru til alls líklegar fyrir framan markið. Valur mun stýra leiknum en Blikarnir eru þéttir til baka. Ég held að leiknum muni ljúka með 1-1 jafntefli, Elín Metta og Karólína Lea muni sjá um að skora mörkin. Steini Halldórs, þjálfari Blika, er þannig gerður að hann sættir sig ekki við titlalaust sumar og því verður Breiðablik Íslandsmeistari eftir æsispennandi lokasprett í haust.“ Spurt um stórleikinn Í kvöld fer fram einn af úrslitaleikjum Pepsi Max deildar kvenna þegar Valur og Breiðablik mætast. Liðin eru jöfn að stigum á toppnum. Fréttablaðið fór á stúfana og spurði hvernig færi.   Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Hönnunar- miðstöðvar Íslands Þetta er leikur sem varla er hægt að spá um. Valsstúlk- ur hafa verið mjög öflugar í sumar og mikil bæting síðan í fyrra. Þetta eru tvö langbestu lið landsins, Steini og Pétur hafa byggt upp virkilega skemmtileg lið. Ég veit að Fanndís verður í stuði gegn sínum gömlu félögum en Steini og Blikastelpurnar hans munu enda sem sigurvegarar í þessum leik og verða Íslandsmeistarar. Steini kann bara að vinna. Hafnfirðingarnir Karó og Alexandra búa til sigurmarkið í þessum leik. FÓTBOLTI Everton heldur til Kenía á föstudag en liðið kom saman til æfinga á mánudag. Gylfi Sigurðs- son er þó enn að njóta hveitibrauðs- daga sinna og fær frí ásamt nokkr- um öðrum úr liðinu. Liðið mun spila leik gegn Kariobangi Sharks á sunnudag. Í blaðinu the Daily Nation segir að hákarlarnir frá Kar- iobangi hafi komið upp um deild fyrir tveimur árum og lítill áhugi sé í landinu fyrir leiknum. „Flestir stuðningsmenn Kariobangi koma úr fátækrahverfinu þar sem þeir draga fram lífið á innan við dollara á dag. Ef það væru bara stuðnings- menn liðsins sem myndu mæta væru um 10 þúsund manns á Moi International Sports Centre vell- inum en kannski verður fullt. Það er mikið búið að kynna leikinn,“ segir í blaðinu en völlurinn tekur 60 þúsund manns. Þar segir enn fremur að mikill áhugi sé á Everton enda sé Theo Walcott mjög vinsæll í landinu. Tottenham sé þó v i n s æ l a s t a liðið í land- i nu e n d a spilar Victor Wanyama, f y r i r l i ð i landsliðs- ins , með Lundúna- liðinu. – bb Gylfi ekki með til Kenía FÓTBOLTI KSÍ birti í gær frétt á heimasíðu sinni þar sem fagnað er stofnun undirbúningsfélags vegna nýs þjóðarleikvangs. Er þar sagt að nú sé hafinn lokaáfangi að undir- búningsvinnu nýs þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnulandslið Íslands. Vonast sambandið til að komist verði að niðurstöðu eins f ljótt og mögulegt er. KSÍ, Reykjavíkurborg og ríkið undirrituðu stofnsamning þann 12. júní að mögulegri uppbygg- ingu þjóðarleikvangs í Laugardal. Núverandi Laugardalsvöllur upp- fyllir ekki kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra kappleikja – fyrir leikmenn, dómara og starfslið, fyrir fjölmiðla, fyrir vallargesti og þá sérstaklega aðgengi og aðstöðu fatlaðra. Leikir í umspili undan- keppni EM 2020 fara fram í mars og er óvíst hvort hægt sé að leika slíkan leik á vellinum. Trúlega myndi þá íslenska landsliðið leika sinn heimaleik einhvers staðar í Skandinavíu. Megintilgangur félagsins er að undirbúa lokaákvörðun um mögu- lega endurnýjun vallarins og undir- búa þá útboð um byggingu hins nýja mannvirkis. Það yrði gert í tveimur þrepum. – bb Undirbúningur hafinn að nýjum Laugardalsvelli Laugardalsvöllur uppfyllir ekki kröfur sem gerðar eru til alþjóð- legra kappleikja. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 3 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 A -4 4 C C 2 3 5 A -4 3 9 0 2 3 5 A -4 2 5 4 2 3 5 A -4 1 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.