Bæjarblaðið - 06.05.1983, Qupperneq 5
BaJorblodid
5
„Ætli það séu ekki eitthvað ná-
lægt 60 bátar sem gerðir eru út
héðan í sumar.“ Það er Kristján
Hagalínsson, sem hér svara
spumingu Bæjarblaðsins um
fjölda smábáta hér á Skaga. Við
litum við hjá Kristjáni nú í vik-
unni til að forvitnast aðeins um
smábátaútgerð héðan, grá-
sleppuveiði, aðstöðu bátaeig-
enda og fleira.
„Flestir þessara báta stunda
hrognkelsaveiðar", sagði Kristján,
„enda erum við Akurnesingar vel í
sveit settir með að losna við hrogn-
in. Hér eru tvær verksmiðjur sem
vinna úrgrásleppuhrognum, þann-
ig að þess vegna þurfa grásleppu-
karlar ekki að salta hrognin sjálfir.
Þessar verksmiðjur hafa jafnan
keypt hrognin hæsta verði og borg-
að fyllilega það verð sem annars-
staðar hefur verið greitt fyrir hrogn
upp úr sjó. Þessi góða aðstaða
okkar Skagamanna á þessu sviði
hefur svo án efa gert það að verk-
um að grásleppubátum hefur fjölg-
að hér mikið á síðustu árum."
Þú talar um góða aðstöðu, Krist-
ján, en nú þykist ég vita að sú
aðstaða nái ekki lengra en í þeim
efnum sem þú nefndir áðan. —
Hvað um aðstöðu þá sem bæj-
aryfirvöld skapa smábátaeig-
endum?
„Hún er nú nánast engin. Það er
jú iítill löndunarkrani á bátabryggj-
unni og svo hefur ferjunni gömlu
verið lagt við vestanverða Akra-
borgarbryggjuna undanfarin sum-
Þessar myndir eru teknar við löndunarkranan sl. unar frá kvöldinu áður. Afli þeirra var góður, frá
mánudag. Þá um morguninn biðu átta bátar lönd- 400 kg. upp í rúmt tonn. Mynd: HB.
an löndunarkrana, mér skilst að
hafnarnefnd sé búinn a samþykkja
slík kaup en allt stoppar þetta lík-
lega á peningunum.“
Kristján skýrði okkur frá að hjá
þeim smábáteigendum sem stund-
uðu handfæraveiðar væru nú tals-
verðir erfiðleikar að losna við fisk-
inn. Eina fiskverkunarstöðin sem
kaupir fisk af smábátaeigendum
tekur ekki við honum eftir klukkan
átta á kvöldin og ekki á sunnudög-
um. Sl. mánudagsmorgun hefðu til
dæmis átta bátar beðið löndunar
frá því á sunnudagskvöld og var afli
hvers báts frá 400 kílóum og upp í
rúmttonn.
Ekki er ástæða til að álasa
Heimaskaga hf., sem er eina fisk-
verkunarstöðin sem keypt hefur
fisk af smábátaeigendum, fyrir það
að setja tímatakmörk á móttöku.
Hitt væri frekar að athuga, og er
það verðugt verkefni fyrir atvinnu-
málanefnd bæjarins, hvort ekki
væri hægt að ná einhverju sam-
komulagi milli allra fiskverkunar-
stöðva annarsvegar og smábáta-
eigenda hinsvegar um móttöku á
fiski, en Heimaskagi mun ætla að
hætta að taka á móti trillufiski þann
20. maí nk. og er þá illt í efni fyrir
trillukarla.
Við skulum vona að bæjaryfir-
völd reyni eftir megni að greiða
fram úr vandamálum smábátaeig-
enda hér á Skaga og reyndar vitum
við að hafnarnefnd hefur unnið að
þessum málum undanfarið, eins
og kom fram í viðtali við Benediki
Jónmundsson, formann hafnar-
nefndar, í Bæjarblaðinu í vetur.
Smábátaeigendur færa talsverð
verðmæti að landi hér og skapa
auk þess mikla atvinnu, svo full
ástæða er til að gefa málum þeirra
góðan gaum.
Einn af smábátum Skagamanna, Fylkir Ak 66, heldur á miðin. — Mynd: Ámi S.
Bátamir eru af ýmsum gerðum
og þar á meðal nokkrir hraðbát-
ar. Hér landar Viktor Sigurðsson
úr hraðbát sínum, Snara Ak 96.
Mynd: Ámi S.
ur. Smábátum er alltaf að fjölga og
menn kaupa nýja og dýra báta. Við
vitum jú að ef fólk kaupir nýja bíla,
þá eru jú hér til staðar götur til að
aka á, og ef menn eignast hesta þá
er fyrir henda aðstaða fyrir þá.
Þetta eru allt sjálfsagðir hlutir og
jafn sjálfsagt ætti það að vera að
hafa aðstöðu fyrir smábáta. Við
smábátaeigendur erum ekki að
fara fram á að fá slíka aðstöðu
ókeypis. Við yrðum þá að sjálf-
sögðu að greiða hafnargjöld í
samræmi við þá aðstöðu sem okk-
ur yrði sköpuð. Þó verður nú að
segjast eins og er að bæjaryfirvöld
hafa unnið að þessum málum. Til
dæmis höfðu þau góðar vonir um
að fá keyptar flotbryggjur frá
NATÓ, sem verið hafa inn í Hval-
firði, en þær fengust því miður ekki
keyptar.
Annars er það án efa með þessi
mál eins og önnur nú, að peninga-
leysi hamlarframkvæmdum. Smá-
Raðhús til sölu
Til sölu er raðhús að Dalbraut 19, Akranesi.
Upplýsingar eru veittar í síma 97-2356 á
daginn og í síma 97-2432 á kvöldin.
báteigendur hér hafa lagt fram
ákveðnar hugmyndir um staðsetn-
ingu á flotbryggjum og verbúðum í
tenglsum við þær. Við höfum
áhuga á að fá þetta neðan við
skemmu Síldarverksmiðjunnar við
Akursbraut. Við skrifuðum bréf fyrir
áramót þar sem óskað var eftir lóð
þarna fyrir verbúðir en það virðist
allt stopp núna, allavega höfum við
ekki fengið svar við þessu ennþá.
Annað stórt atriði er að kaupa ann-
Húsnæði óskast
Fjögurra eða fimm herbergja íbúð.eða
einbýlishús óskast til leigu frá og með 1. júní
n.k.
Tilboð sendist í Box 106 Akranesi
Nytja-
skraut-
og listmunir
Leirkjallarinn
Melteig 4
Akranesi