Bæjarblaðið - 06.05.1983, Qupperneq 8

Bæjarblaðið - 06.05.1983, Qupperneq 8
Öldungar ÍA í blaki: Komu, sáu og sigruðu — eða svo gott sem Keppnisliðið — þetta er þó ekki allur hópurinn. Meðal þeirra sem vantar á myndina er aldurs forsetinn, Daníel Ágústínusson. — Mynd: Ámi S. Helgina 29. og 30. apríl fór fram öldungamót í blaki á vegum Blak sambands íslands. Meöal þátttak- enda nú var öflugt lið Skaga- manna, en þaö er hópur manna sem æft hafa saman blak hér á Skaga undanfarin ár og þeir elstu ( alls 25 ár. Á þessum árum hefur lítil endurnýjun átt sér stað, enda mennirnir einstaklega frísklegir. Öldungarnir héðan kepptu undir merki ÍA og voru algjörlega óskrif- að blað fyrir keppnina. Þeir gerðu sér aftur á móti lítið fyrir og nældu í annað sæti í 2. deild en í þeirri deild urðu þeir að keppa nú þar sem þetta var í fyrsta sinn sem liðið tók þátt í mótinu. Bæjarblaðið óskar þessum hresssu blakmönnum til hamingju með hinn góða árangur. Stuðlastál á Akranesi: Smíða margvísleg tæki fyrir sjóefnavinnsluna á Reykjanesi Einar Guðleifsson (t.v.) og Þorvaldur Loftsson við háþrýstiskiljuna. Mynd HB. Brú brotin niður Samvinnufélagið Stuðlastál hér á Akranesi, hefur undanfarið unnið að miklu verkefni fyrir Sjóefna- vinnsluna á Reykjanesi. Að sögn Þorvaldar Loftssonar hjá Stuðla- stáli þá hafa þeir félagar unnið að þessu verkefni frá því í desember sl. Þau tæki sem Stuðlastál hefur smíðað fyrir Sjóefnavinnsluna eru háþrýstiskilja, sem skilur sjó frá gufu, gufukista, gufuskilja, jöfn- unargeymir og holuhljóðdeyfir. Þorvaldur sagði að Stuðlastál myndi ennig sjá um niðursetningu þéssara tækja fyrir sunnan og hefðu þau verið send suðureftir í byrjun vikunnar. Hins vegar væru undirstöður undir þau ekki tilbúnar og yrðu það ekki fyrr en í júní þannig að niðursetning þeirra myndi dragast eitthvað. Aðspurður um það hvort næg verkefni væru framundan hjá þeim Stuðlastálmönnum, sagði Þor- valdur að fátt væri um fína drætti í þeim málum. „Við höfum mest verið í hitaveituframkvæmdum og vinnu fyrir Akranesbæ undanfarin sumur, en ég get ekki séð að mikið verði um slíka vinnu í sumar. Við erum nú með fjóra menn í vinnu inn á Grundartanga og mikið meira er það nú ekki núna“, sagði Þor- valdurenn fremur. Á fundi Húsfriðunarnefndar Akraness, sem haldinn var 7. apríl sl. var tekið fyrir erindi frá Sam- vinnubankanum, þar sem farið var fram á heimild til að rífa og fjar- lægja húsið nr. 24 við Kirkjubraut. Húsfriðunarnefnd ræddi um bygginguna,-uppruna hennar og fólk tengt henni og gerði nefndin síðan svofellda bókun: „Húsfrið- unarnefnd sér ekki ástæðu til að hamla gegn niðurrifi þessa húss, en ef bygginganefnd veitir heimild til niðurrifs skal bygginganefnd sjá til þess að nákvæmar teikningar af húsinu séu til staðar svo og Ijós- myndir og stutt saga þess. Gögn þessi skulu geymd og varðveitt á byggðasafninu." Það virðist því liggja nokkuð Ijóst fyrir að „Brú“ verði brotin niður og bílastæði komi þar sem húsið stendur nú. En við leyfum okkur að leggja til, að úr því að teikningar og myndir eiga að varðveitast á byggðasafninu, þá væri ekki úr vegi að láta eitthvað af hinum ein- stöku fréttapistlum Odds Sveins- sonar í Brú fylgja þar með. Bœjorblodid 6. maí 1983 Verð kr. 20.- Að loknum kosningum Bílhræið við Akrafjall Enn hulin ráðgáta í síðast Bæjarblaði var birt mynd af bílhræi, sem hefur verið við veg- inn upp að Akrafjalli og var greint frá því hirðuleysi og sóðaskap sem þetta hræ ber vott um. Vegna þessarar greinar ( blað- inu hafði einn lesandi blaðsins samband við okkur, og sagði að þessi bíll eða það sem eftir af hon- um var hefði upphaflega komið þarna á flötina fyrir ofan ösku- haugana, eins og honum hefði hreinlega verið lagt þarna um stund, og eigandinn fengið sér heilsubótargöngu um svæðið, því bíllinn var með skrásetninganúm- erum, Hafði þetta vakið athygli viðmæl- enda okkar, því hann gengi oft þarna framhjá í heilsubótargöng- um. Þegar bíllinn var búinn að standa þarna um nokkrun tíma fóru ýmsir hlutar bílsins að hverfa af honum smá saman og eitt sinn var búið að velta honum á toppinn og hjólin verið tekin af honum og síð- an var hann smátt og smátt tættur í sundur eins og hrægammar mundu hafa ráðist á dautt dýr og gerður að því hræi sem hann er nú. Einnig sagði viðmælandi okkar frá því að upp við Akrafjallið á því svæði sem skátaskálinn og vatns- þróin er, þar sem er vinsælt útivist- arsvæði hjá mörgum skagamönn- um, væri nú svo komið að vart sé hægt að ganga þarna um fyrir glerbrotum sem liggja vítt og dreift um svæðið. Ástæða þessa er að þetta virðist einnig vera vinsæll staður hjá byssumönnum. Virðast þeir koma þarna með flöskugler í miklum mæli og m.a. stinga flösku- stútnum í jörðina og æfa síðan skothæfni sína á flöskunum með þeim afleiðingum að hárbeitt gler- ið stendur upp úr jörðinni og er þar af leiðandi stór hættulegt gangandi fólki og skepnum sem þarna eiga leið um. Væri óskandi að byssumenn hættu „skitteríi" á þessu svæði eða a.m.k. hreinsuðu vel eftir sig áður en slys hlýst af. Vinningsnúmer í happdrætti I.O.G.T. Skíðaferð fyrir tvo að eigin vali að verðmæti kr. 27.000.-. . . .4576 18 vinningar, skíðabúnaður á kr. 3.000.-hver. . . .143,439,522, 3544, 3890, 4574, 5552, 7322, 8496, 9199, 9344, 9510, 9674, 12090, 12339, 13187, 13269, 13652. Með kveðju Stórstúka íslands I.O.G.T. Bæjarblaðið Auglýsingasímar 1919 — 2774

x

Bæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.