Fréttablaðið - 25.07.2019, Blaðsíða 15
Reykjavík – Hagtölur um framleiðslu og tekjur duga ekki einar sér til að bregða
máli á framför einstakra landa
og heimsins alls. Meira þarf til.
Það er að sönnu gagnleg vitneskja
að framleiðsla á mann á Íslandi
óx um 2,6% á ári að jafnaði frá
1960 til 2017 á móti 1,8% vexti
um heiminn í heild. En þá er
einnig gott að vita að íbúar
heimsins lifðu að jafnaði 20 árum
lengur 2017 en 1960 á móti níu
ára aukningu á Íslandi. Fram-
leiðslan óx hraðar hér heima,
með rykkjum og skrykkjum,
en ævirnar lengdust meira um
heiminn í heild þar sem nýfætt
barn gat vænzt þess að ná 52ja ára
aldri 1960 og 72ja ára aldri 2017.
Finnist okkur 1,8% hagvöxtur
heimsins frá 1960 vera rýr úr því
að Ísland óx enn hraðar getum við
glaðzt yfir því hversu ævir manna
hafa lengzt með árunum. Meiri
tekjur, minna strit og mun lengri
ævir með minnkandi barnadauða
vitna um velferðarbyltingu sem
einkum má þakka betri hagstjórn
og heilbrigðisþjónustu í óræðum
hlutföllum.
Forsagan
Tölur Hagstofu Íslands um ævir
Íslendinga segja mikla sögu.
Fyrstu 30 árin eftir að mælingar
hófust, 1841-1870, var meðalævi
Íslendinga um eða innan við 30
ár eins og hún hafði verið úti í
heimi frá 1800 og var enn 70 árum
síðar. Þessi staðreynd stendur nær
okkur sem nú lifum en mörgum
kynni að virðast. Þegar föður-
afi minn fæddist 1867 gat hann
vænzt þess að verða þrítugur, en
honum tókst þó að komast yfir
sjötugt. Síðan lengdust ævirnar
hröðum skrefum, um fimm til sex
mánuði á ári að jafnaði 1870-1960
og um tvo til þrjá mánuði á ári
að jafnaði 1960-2017. Meðalævin
lengist skiljanlega hægar eftir því
sem árin líða.
Þegar ævirnar styttast
Það gerist næstum aldrei að
meðalævi þjóðar styttist nema
í kjölfar mikilla hamfara eða
hörmunga. Þannig styttist
meðalævi Bandaríkjamanna þrjú
ár í röð í fyrri heimsstyrjöldinni,
einkum vegna þess að styrjöldina
bar upp á sama tíma og Spænsku
veikina sem kostaði f leiri manns-
líf í Bandaríkjunum en borgara-
stríðið hálfri öld áður. Meðal-
ævin vestra styttist aftur þrjú ár
í röð 2015-2017 vegna ofneyzlu
verkjastillandi lyfja o.f l., einkum
meðal hvítra karla með litla
skólagöngu að baki. Meðævi
Rússa hrapaði úr 70 árum niður
í 65 ár eftir hrun Sovétríkjanna,
náði ekki aftur upp í 70 ár fyrr en
2011 og er nú jöfn heimsmeðal-
talinu, 72 ár.
Ísland er kaf li út af fyrir sig.
Meðalævi Íslendinga var komin
upp í 73,4 ár 1960 og var þá næst-
hæst í heimi. Norðmenn einir
lifðu lengur, 73,5 ár. Nýjustu
tölur Alþjóðabankans sem hægt
er að bera saman milli landa
sýna að Ísland var 2017 komið
niður í 19. sæti langlífislistans
og Norðmenn í 12. sæti. Ísland er
ásamt Bandaríkjunum og Bret-
landi eina landið í okkar heims-
hluta (þá eru Rússland og önnur
fv. kommúnistalönd ekki talin
með) þar sem meðalævin hefur
stytzt. Styttingin hér heima nam
átta mánuðum úr 82,9 2012 í
82,2 2017. Í Bandaríkjunum nam
styttingin fjórum mánuðum úr
78,8 2014 í 78,5 2017 og í Bret-
landi einum mánuði úr 81,3 2014
í 81,2 2017.
Misskipting skiptir máli
Fylgnin milli ótímabærra dauðs-
falla í örvæntingu og kjörfylgis
Trumps forseta í Bandaríkjunum
er býsna sterk eins og skozki
Nóbelshagfræðingurinn Angus
Deaton í Princeton-háskóla hefur
rakið. Fylgnin milli fátæktar
og menntunarleysis í dreifðum
byggðum Englands og stuðnings
kjósenda við útgöngu Breta úr
ESB var með líku lagi býsna sterk
í Brexit-atkvæðagreiðslunni 2016
eins og Gylfi Zoëga prófessor í
Háskóla Íslands hefur lýst ásamt
öðrum. Níu af tíu fátækustu
svæðum Norður-Evrópu eru öll í
Bretlandi, þó ekki Skotlandi. Fyrir
liggja gögn sem renna stoðum
undir samhengi milli ójafnaðar,
örvæntingar, ótímabærra dauðs-
falla og úlfúðar í stjórnmálum
sem leiddu af sér bæði Brexit og
Trump.
Meðalævir Íslendinga styttust
einnig lítils háttar eftir að síldin
hvarf 1967-1968 og eftir að verð-
bólgan var kveðin niður eftir 1983
en lengdust síðan aftur. Í þessu
ljósi virðist nærtækt að kenna
eftirköstum hrunsins um stytt-
ingu meðalævinnar 2012-2017
þrátt fyrir minnkandi barna-
dauða. Hrunið kann að hafa spillt
ekki bara efnahag heimila og
fyrirtækja heldur einnig lýðheilsu
og langlífi og jafnvel mannvali á
Alþingi og þá um leið traustinu
sem Alþingi nýtur meðal kjós-
enda. Þessi hugsanlegu tengsl
þarf að kanna í samhengi við
hliðstæða þróun mála í Banda-
ríkjunum og Bretlandi.
Hagstofa Íslands birti nýlega
tölur sem sýna skyndilegan fjör-
kipp í langlífi Íslendinga 2018.
Ekki verður unnt að leggja raun-
hæft mat á þær tölur í samhengi
við umheiminn fyrr en sambæri-
legar tölur um önnur lönd liggja
fyrir.
Að lifa lengur og lengur
Þorvaldur
Gylfason
Í DAG
Svo háttar til að lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson var í september 2016 skipaður
skiptastjóri yfir þrotabúi heild-
sölunnar Eggerts Kristjánssonar hf.
(EK), sem í dag er nefnt EK 1923 ehf.
Heildsalan hafði um langt árabil átt
við rekstrarvanda að etja og þrátt
fyrir að ég hafi lagt fyrirtækinu til
hátt á annað hundrað milljónir eftir
að ég eignaðist það ásamt öðrum í
kringum áramótin 2013-14, tókst því
miður ekki að forða því frá rekstrar-
þroti.
Einföld fasteignaviðskipti
EK átti stóra fasteign að Skútuvogi 3,
sem frá upphafi lá fyrir að yrði eign
fasteignafélags í minni eigu. Gerður
var kaupsamningur um eignina rétt
fyrir áramótin 2013-14 og honum
þinglýst með fullu samþykki þáver-
andi eigenda EK. Á árinu 2014 var
hins vegar ákveðið að færa eignina
yfir í fasteignafélagið með skiptingu
EK, með þeim hætti sem lög áskilja. Í
skiptingu félags felst að eigandi eins
félags lætur af hendi eign til eiganda
annars félags og fær eign á móti. Í
þessu tilviki eignaðist fasteignafélag
mitt, Sjöstjarnan ehf., Skútuvog 3 og
greiddi eigendum EK annars vegar
með yfirtöku skulda og hins vegar
með útgáfu nýrra hlutabréfa í Sjö-
stjörnunni. Viðskiptin fóru fram á
bókfærðu verði eignarinnar eins og
tíðkast við skiptingu eigna og voru
eignaskiptin láta gilda frá 1. október
2013, en heimilt er að láta slík skipti
taka gildi allt að sex mánuði aftur
í tímann. Á þessum tíma var EK að
fullu gjaldfært, en það er lykilatriði
að allar kröfur, sem urðu til fyrir
þessi skipti, eru greiddar að fullu.
Endurskoðunarfyrirtækið KPMG
framkvæmdi skiptinguna og gætti
þess sérstaklega að skiptin færu
fram á réttu verði og að fjárhagur
EK yrði að minnsta kosti jafn góður
eftir skiptin og fyrir. Þetta staðfestu
endurskoðendur KPMG. Skiptin
voru auglýst í Lögbirtingablaðinu
og gafst kröfuhöfum EK kostur á að
gera athugasemdir við þau, en engar
athugasemdir komu fram. Faxaflóa-
hafnir höfðu forkaupsrétt að fast-
eigninni en kusu að nýta hann ekki.
Skútuvogur 3 fór þannig sannanlega
á fullu verði inn í Sjöstjörnuna því að
vitanlega hefði forkaupsréttarhafi
nýtt sinn rétt ef verið væri að ráð-
stafa eign á undirverði, auk þess sem
óháður dómkvaddur matsmaður
hefur síðar staðfest að eigninni hafi
verið skipt á réttu verði.
Hótanir í stað samninga
Víkur þá sögunni til Sveins Andra
Sveinssonar skiptastjóra sem hófst
þegar handa og notaði þá aðferð
sem hann kann best, þ.e. að hóta og
ógna. Hann hótaði að kæra mig og
samstarfsfólk mitt fyrir alla mögu-
lega og ómögulega hluti sem áttu
sér enga stoð í raunveruleikanum,
ef við ekki greiddum hverja einustu
krónu sem honum hugkvæmdist að
senda kröfu fyrir. Ekki var léð máls á
samningaviðræðum þegar lögmaður
minn óskaði eftir því. Sveinn Andri
fylgdi hótununum svo eftir með til-
hæfulausum kærum.
Samkvæmt Sveini Andra áttu
allar mínar gjörðir, og samstarfs-
fólks míns, að hafa verið gerðar með
það fyrir augum að svíkja, pretta
og auðgast ólöglega. Með þessari
taktík reyndi Sveinn Andri að sá efa
í huga embættismanna og dómara,
auk kröfuhafa búsins, því ef einhver
öskrar „reykur“ nógu oft fara margir
eðlilega að trúa því að einhvers stað-
ar hljóti að vera eldur laus.
Sveinn Andri hefur stoltur sagt frá
því á skiptafundum að „geim planið“
hafi alltaf verið að hann sjálfur fengi
peninginn, sem var til ráðstöfunar í
búinu og notaði hann til að „ná í
meiri aur“ og fara svo í „Stóra fast-
eignamálið“. „Meiri aurinn“ auk
peninganna sem til voru í búinu,
voru alls 117 milljónir. Allt þetta fé
hefur Sveinn Andri nú ryksugað úr
búinu.
„Stóra fasteignamálið“ snýst um
hvort Sveinn Andri geti f.h. þrota-
búsins krafið félag mitt um fulla
greiðslu samkvæmt kaupsamningi
fyrir sömu fasteign og búið er að
greiða fyrir með skiptingunni, sem
rakin er að framan. Kaupsamningn-
um var ekki ætlað að hafa gildi, enda
var búið að færa fasteignina yfir og
greiða fyrir hana með skiptingunni.
Þrátt fyrir þetta leitar Sveinn Andri
atbeina dómstóla til að neyða mig til
að greiða tvisvar fyrir sömu fasteign-
ina – og það enga smáfasteign, held-
ur fasteign upp á um hálfan milljarð
króna. Með öðrum orðum var það
ætlun Sveins Andra frá byrjun að
höfða mál vegna kaupsamnings
sem hafði ekkert gildi og fá mig til
að greiða aftur fyrir fasteign sem ég
hafði þegar greitt að fullu.
Vill fá greitt tvisvar
fyrir sömu eignina
Til að einfalda málið má líkja þessu
við að þú, lesandi góður, hefðir keypt
nýja íbúð á 50 milljónir af verktaka
og skrifað undir kaupsamning um að
greitt yrði fyrir hana með peningum.
Nokkrum dögum síðar hefðir þú
hins vegar komist að samkomulagi
við verktakann um að í stað pen-
inga myndir þú greiða fyrir íbúðina
með annarri íbúð sem væri jafn-
verðmæt. Svo hefði verið gengið frá
kaupunum á löglegan hátt miðað við
þessi umsömdu skipti á íbúðum. Þú
hefðir engar áhyggjur haft af gamla
samningnum, þar sem gengið var
frá kaupunum á umræddri íbúð á
annan hátt. Hins vegar hefði viljað
svo illa til nokkrum árum seinna
að verktakinn sem seldi þér íbúð-
ina verður gjaldþrota. Skipaður er
skiptastjóri sem lætur ekki smámuni
eins og siðsemi og velsæmi flækjast
fyrir sér. Þessi skiptastjóri finnur
gamla kaupsamninginn um eignina
og þrátt fyrir að hann sjái að eignin
hafi verið seld í skiptum fyrir aðra
íbúð, ákveður hann að fara í dóms-
mál og krefjast þess að þú borgir
aftur 50 milljónir fyrir íbúðina og
það með dráttarvöxtum nokkur ár
aftur í tímann. Þannig liggur ein-
faldlega í þessu „Stóra fasteignamáli“
Sveins Andra Sveinssonar, nema töl-
urnar eru auðvitað mun hærri.
Búinn að tæma þrotabúið
í sjálfan sig
Eins og áður var nefnt hefur Sveinn
Andri aldrei léð máls á samningum
heldur frekar viljað fara með öll mál
fyrir dóm. Með samningum fengju
kröfuhafar megnið af öllum pening-
unum sem næðust inn, en með því
að fara í dómsmál renna þeir allir til
Sveins Andra sem lögmannsþóknun.
Vissulega hefur þrotabúið unnið tvö
dómsmál en fjárhæðirnar sem búinu
voru dæmdar voru því sem næst
jafnháar og þóknun Sveins Andra
hefur verið fyrir málareksturinn
og heimtur búsins því engar. Lög-
maður minn reyndi ítrekað að fá
Svein Andra til að setjast niður og
semja um þau mál sem fyrir lá að
mögulega yrði rift. Sveinn Andri er
ekki vitlaus maður, þótt siðblindur
sé, og veit að náist samningar getur
Siðblindur Sveinn Andri Sveinsson
Skúli Gunnar
Sigfússon
fjárfestir
hann ekki skráð á sig vinnustundir
við að reka dómsmál.
Um síðustu áramót var Sveinn
Andri búinn að skrá á sig meira
en 2.400 klukkustunda vinnu við
búskiptin, en það er næstum eitt
og hálft ár í fullri vinnu fimm daga
vikunnar. Sveinn Andri rukkar rétt
um 50 þúsund krónur fyrir hverja
klukkustund, þannig að kostnaður-
inn við eingöngu hans „vinnu“ er
kominn í 120 milljónir króna. Það
er meira en til var í búinu. Þóknun
hans fyrir meinta vinnu við þetta
eina þrotabú nam því 4,5 milljónum
króna í hverjum mánuði frá því að
honum var úthlutað búinu í sept-
ember 2016 til ársloka 2018. Vitað er
að Sveinn Andri sinnti fjölmörgum
öðrum lögmannsverkefnum á sama
tímabili.
Héraðsdómur Reykjavíkur féll
fyrir lögfræði- og reiknibrellum
Sveins Andra og felldi dóm á þann
veg að bæði kaupsamningurinn og
skiptasamningurinn skuli halda
fullu gildi og að greiða beri sam-
kvæmt báðum. Dómurinn færði
engin rök fyrir því hvernig hvort
tveggja gæti verið gilt, enda ekki
hægt. Því verður ekki trúað að
Landsréttur leggi blessun sína yfir
slíka endaleysu.
Sveinn Andri á mikið undir í þessu
máli. Hann er búinn að eyða öllum
peningunum, sem til voru í þrotabúi
EK, aðallega í sjálfan sig, en þó líka
í vini sína og kunningja, sem hann
hefur kallað sér til aðstoðar. Hans
eina von er að Landsréttur staðfesti
endaleysuna frá héraðsdómi um að
greiða skuli tvisvar fyrir sömu eign-
ina. Ella er hann ábyrgur gagnvart
kröfuhöfum EK 1923 ehf., sem ekki
fá svo mikið sem túskilding með
gati úr búinu, því að skiptastjórinn,
sem kallaður hefur verið opinber-
lega „endaþarmur íslenskrar lög-
mennsku“, er búinn að sjúga hvern
einasta eyri í eigin rann.
– við Laugalæk
Ekkert hveiti
Ekkert soyja
Enginn sykur
Ekkert MSG
Íslenskt kjöt
Íslensk
framleiðsla
Snakk-
pylsur
í útivistina
Athugasemd frá
Sveini Andra Sveinssyni
Landsréttur hefur fram til dagsins
í dag staðfest eitt riftunarmál gegn
félagi í eigu greinarhöfundar (20 mkr.)
og dæmt greinarhöfund til að greiða
þrotabúinu skaðabætur að fjárhæð
kr. 5 mkr. Fjölskipaður dómur Hér-
aðsdóms Reykjavíkur hefur síðan
dæmt annað félag í eigu greinarhöf-
undar til þess að greiða búinu rúm-
lega 400 mkr. Það mál sætir áfrýjun.
Héraðssaksóknari er síðan með í
rannsókn kærur skiptastjóra á hend-
ur greinarhöfundi. Allar hafa þessar
aðgerðir verið samþykktar af kröfu-
höfum. Ætli sé ekki rétt í þessu eins og
svo oft að spyrja að leikslokum.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 2 5 . J Ú L Í 2 0 1 9
2
5
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:2
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
8
-E
1
D
8
2
3
7
8
-E
0
9
C
2
3
7
8
-D
F
6
0
2
3
7
8
-D
E
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K