Víkurfréttir - 14.03.2019, Blaðsíða 15
Það var líf og fjör á krílamóti júdó-
deildar UMFN sem haldið var í nýrri
aðstöðu júdódeildarinnar. Fjölmörg
börn á aldrinum fjögurra til ellefu
ára tóku þátt í mótinu. Öll börnin
voru að stíga sín fyrstu skref í íþrótt-
inni og skemmtu sér mjög vel.
Í lok móts voru börnin leyst út með
verðlaunum og hrósi. Gaman að sjá
hvað þjálfarar yngstu þátttakand-
anna, Jóel Helgi og Daníel Dagur,
hafa unnið frábært starf með þessum
hressu krökkum.
Einar Haraldsson var endurkjörinn formaður Keflavíkur á aðalfundi fé-
lagsins sem haldinn var á dögunum. Á fundinum létu tveir stjórnarmenn
af störfum eftir tuttugu ára starf en það voru þeir Birgir Ingibergsson og
Sveinn Júlíus Adolfsson, sem hlutu í kjölfarið heiðursgullmerki fyrir störf
sín í þágu íþróttanna.
Þá var Ólafur Ásmundsson einnig
heiðraður með starfsbikar Keflavíkur
fyrir mikla sjálfsboðavinnu í þágu
félagsins.
Í fyrsta skipti er kynjahlutfall aðal-
stjórnar Keflavíkur jafnt en þær
Jónína Steinunn Helgadóttir og Svein-
björg Sigurðardóttir eru nú komnar
í stjórn.
Kynjahlutfall aðalstjórnar jafnt í fyrsta sinn
Stúlkur í sókn
Mikil aukning hefur verið hjá júdódeild UMFN undan-
farin misseri. Það skemmtilegasta við þessa fjölgun er
að svo virðist sem að mikil vakning sé á meðal stúlkna
að taka þátt í íþróttinni. Nú er svo komið að fjölgunin
er svo mikil að þær hafa yfirtekið einn æfingahópinn
og stofnaður hefur verið sérstakur stúlknahópur. Þessi
hópur er skipaður stúlkum á aldrinum ellefu til sextán
ára allsstaðar af Suðurnesjum.
Þjálfarar hópsins, þau Guðmundur Stefán Gunnarsson og
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, eru gríðarlega ánægð og segja
að þessi hópur sé skipaður öflugum og sérlega efnilegum
einstaklingum.
Mikið fjör á krílamóti UMFN
Vínbúðin Grindavík óskar eftir
starfsmanni í sumarafleysingar
Hæfniskröfur
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Almenn tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar
Við leitum að jákvæðum og röskum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi
og ábyrga þjónustu.
Starfshlutfall er 93,8%.
Unnið er annan hvern
laugardag.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist.
Umsóknarfrestur er til og með 28. mars. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is.
Nánari upplýsingar: Guðlaug Íris Margrétardóttir – grindavik@vinbudin.is,
426 8787 og Thelma Kristín Snorradóttir – starf@vinbudin.is, 560 7700.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera
eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á
sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn
sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem
samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Birgir og Sveinn ásamt Einari, formanni Keflavíkur.
Ólafur með starfsbikarinn.
15ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. mars 2019 // 11. tbl. // 40. árg.