Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Síða 8

Víkurfréttir - 24.04.2019, Síða 8
Hringbraut 99 - 577 1150 FAGLEG, TRAUST OG PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKUR- MÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR. Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00. MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN, STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR - „No coding“ þarf ekki að núllstilla - Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl - Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L - Mæling tekur aðeins 5 sek. - Geymir 480 mælingar í minni - Hægt að tengja við tölvu Apótek Suðurnesja sendir Suðurnesjamönnum kærar kveðjur á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. ÞAÐ DREGUR TENNURNAR ÚR BARÁTTUNNI – þegar kröfur Íslendinga eru aðrar en útlendinganna sem koma hingað til að vinna, segir Grétar Sigurbjörnsson hafnarvörður Fyrsti maí, einnig kallaður verkalýðsdagurinn, er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Á þingi evrópskra verkalýðsfélaga í París árið 1889 var samþykkt tillaga frá Frökkum um að 1. maí skyldi verða alþjóðlegur frídagur verkafólks. Frakkar lögðu til að verkafólk notaði daginn til fjöldafunda til að fylgja eftir kröfum um átta stunda vinnudag og aðrar umbætur á kjörum sínum. Á Íslandi var fyrsta kröfugangan á fyrsta maí gengin árið 1923 en dagurinn varð lögskipaður frídagur á Íslandi árið 1972. Á 1. maí gengur launafólk undir rauðum fána og leikinn er alþjóðasöngur verkalýðsins, Internasjónalinn sem einnig kallast Nallinn. Sumir hugsa kannski um Sovétríkin sálugu og alræðisvald kommúnistastjórna þegar þeir sjá fánann og heyra sönginn en upprunaleg merking þessara tákna er fyrst og fremst krafa um breytingar og réttlátara þjóðfélag. Rauði liturinn á fána verkalýðshreyfingarinnar táknar uppreisn gegn ranglæti. Hann þýðir að nú sé nóg komið, auk þess sem hann táknar dagrenningu. Margir af eldri kynslóðinni hér á landi muna eftir þessum degi sem hátíðlegum baráttudegi, þar sem verkafólk arkaði um aðalgötu bæjarins við hljóma lúðrasveitar. Fólk var með kröfuspjöld og íslenska fánann á lofti. Við fórum á flandur og hittum fólk af báðum kynjum sem hafði ákveðnar skoðanir á þessum baráttudegi verka- lýðsins. Albert Snorrason og Grétar Sigurbjörnsson, hafnarverðir við Sandgerðishöfn: Finnst þér 1. maí skipta máli? Grétar: „Já, mér finnst hann eiga að skipta máli en hér hjá okkur eru gangandi vaktir því sumir sjómenn taka sér ekki frí þennan dag. Það er þá fólk í landi sem þarf að vinna aflann sem kemur, svo hann er ekki lengur frídagur fyrir allt verkafólk í fiskvinnslu. Dagurinn er virtur að vettugi af mörgum því miður, þótt hann sé merktur sem rauður dagur. Við þurfum til dæmis að vera á vakt hérna hjá okkur.“ Albert: „1. maí skiptir klárlega máli. Þetta er dagur sem við eigum að nýta til hins ýtrasta, dagur okkar sem eigum að láta í okkur heyra. Verkalýðsforystan þarf að leiða fólkið sitt og knýja fram hækkun launa, til þess eru þau kjörin í stjórn.“ Grétar: „Sjáðu frídag verslunarmanna, hverjir eru að vinna þá? Nú fólkið í verslun- unum! Sjáðu 1. maí sem er baráttu- dagur verkamanna en hverjir eru að vinna þá? Verkafólk! Allar stofnanir eru lokaðar, allir eru í fríi en fólkið sem á þessa daga er jafnvel að vinna. Það er búið að veikja þessa lögbundnu frídaga með því að virða þá ekki meira en þetta.“ Albert: „1. maí eigum við að nýta betur í smáplássum. Það þarf að endur- vekja daginn og efla baráttuhug fólks. Laun verkafólks eru allt of lág. Það er erfiðara að fá Íslendinga í þessi störf út af laununum en útlendingarnir eru jafnvel hæstánægðir og sumir þeirra staldra stutt við í landinu okkar. Þeim finnst þetta jafnvel vera ofurlaun því þeir þekkja ekkert annað en þetta er nánös fyrir okkur hin. Launin eru ekki há fyrir fólkið sem er búsett allt árið hér á landi, þarf að borga af lánum og hafa í sig og á. Það eru margir af þessum útlendingum helvíti duglegt fólk en það veikir launabaráttu okkar sem vinnum verkastörf allt árið þegar hópurinn er orðinn svona blandaður af Íslendingum og öðrum þjóðum. Mér finnst bara verkalýðurinn hér á landi vera mestmegnis útlendingar og fleiri störf eru farin til útlendinga eins og mörg störf á elliheimilum, fisk- vinnslan er nær öll í höndum útlensks vinnuafls. Við erum með útlendinga í vinnu alls staðar þar sem Íslendingum finnst launin vera of lág.“ Grétar: „Það dregur tennurnar úr þessari baráttu þegar kröfur Íslendinga eru aðrar en útlendinganna sem koma hingað til að vinna og eru svo farnir aftur. Sumir ílengjast auðvitað en hitt veikir baráttuna fyrir bættum launum. Þeir fara í störfin sem Ís- lendingar eru ekki stoltir af að vinna en við getum ekki bara haft menntað fólk í vinnu. Það verða einhverjir að vinna almenn verkastörf. Unga fólkið okkar vill sumt frekar fara á atvinnu- leysisbætur heldur en að vinna þessi störf sem eru samt mikilvæg. Það þarf að efla virðinguna hjá okkur sjálfum fyrir þessum störfum.“ Hvað finnst þér um verkalýðsfor- ystuna á landsvísu? Grétar: „Mér finnst baráttan hafa verið óskap- lega léleg miðað við hvernig var hér áður þegar Gvendur Jaki og Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttir voru og hétu. Þá var ekkert gefið eftir, steinn í stein. Ég hef ekkert grætt á neinu verkfalli undanfarið. Þau voru baráttufólk sem maður bar virðingu fyrir. Það skiptir máli að hafa gott fólk í forystu verkalýðsins.“ Albert: „Já, maður leit upp til þeirra. Nú er nýtt fólk komið í verkalýðsforystuna, fólk sem er að slíta barnsskónum. Grétar: „Já, maður þarf að gefa þeim tíma og sjá hvaða kraftur er í þessu nýja fólki.“ Áttu minningu um 1. maí? Grétar: „Þegar ég var að alast upp fór fullt af fólki í kröfugöngu niður Laugaveginn og víðs vegar í bæjum landsins. Þarna voru lúðrasveitir og kröfuspjöld. Í dag er þetta mest lúðrasveitin sem labbar í kröfugöngunni. Það vantar fólkið í göngurnar til þess að berjast fyrir bættum launum. Þegar Gayp- ride-gangan fer niður Laugaveginn þá tekur fullt af fólki þátt til þess að berjast gegn fordómum sem er bara frábært og hið besta mál. En þegar 1. maí gangan fer fram, þar sem verið er að berjast fyrir betri lífskjörum fyrir alla, þá eru fáir sem mæta.“ Albert: „Mér finnst það bara flott hvað Gay- pride-gangan laðar marga til sín en við mættum einnig standa svona vel vörð um lífskjörin okkar og launakjör. Til þess er 1. maí.“ Í dag er þetta mest lúðra- sveitin sem labbar í kröfu- göngunni. Það vantar fólkið í göngurnar til þess að berjast fyrir bættum launum ... 1. maí skiptir klárlega máli. Þetta er dagur sem við eigum að nýta til hins ýtrasta, dagur okkar sem eigum að láta í okkur heyra ... Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL Albert Snorrason t.v. og Grétar Sigurbjörnsson t.h. „Allir á trúnó“ – Aukasýningar vegna fjölda áskorana Það er óhætt að segja að revía Leikfélags Keflavíkur „Allir á trúnó“ hafi aldeilis slegið í gegn. Nú þegar hafa um fimmtán hundruð manns mætt í Frumleikhúsið og hreinlega grenjað úr hlátri á þessari bráðskemmti- legu sýningu þar sem gert er góðlátlegt grín af mönnum og málefnum líðandi stundar. Til stóð að ljúka sýningum fyrir páska en vegna fjölda áskorana og það, að ekki þykir hægt að hætta sýningum fyrir fullu húsi, hefur verið ákveðið að skella í tvær aukasýningar miðvikudaginn 24. apríl og laugardaginn 27. apríl kl.20.00. Hægt er að panta miða á lk.is og í síma 4212540. Miðaverð er 2.500 kr. Forseti Íslands í heimsókn til Reykjanesbæjar Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jó- hannesson, kemur í opinbera heim- sókn til Reykjanesbæjar í næstu viku. Mun hann heimsækja fjöl- marga staði í bæjarfélaginu. Bæjar- stjórn Reykjanesbæjar verður með kaffiboð fyrir forsetann og bæjar- búa í Stapa fimmtudaginn 2. maí kl. 17.30 og hvetur alla bæjarbúa, unga sem aldna, til að fjölmenna í boðið og hitta forsetann. Allir eru hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Flutt verður stutt tónlistardagskrá og forsetinn mun ávarpa fólkið. Heimsókn frá sendiherra Kína Sendiherra Kína á Íslandi, Jin Zhijian, heimsótti Reykjanesbæ nýlega og fundaði með Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra. Á meðal þess sem þeir ræddu var hvernig auka mætti og styrkja tengsl Reykjanesbæjar og vinahéraðsins Xianyang í Kína en stofnað var til formlegra vinabæjar- tengsla á milli sveitarfélaganna snemma árs 2014. Þetta mætti t.d. gera á sviði menningar, viðskipta og/eða menntamála. Lítil sem engin samskipti hafa verið á milli sveitarfélaganna frá stofnun vinabæjartengslanna önnur en að varaborgarstjóri Xianyang heim- sótti Reykjanesbæ ásamt fríðu föruneyti árið 2017 í stuttri heim- sókn til Íslands. Í þeirri heimsókn heimsóttu gestirnir m.a. orkuver HS Orku í Svartsengi en í Xianyang hafa verið gerðar tilraunir með hitaveitu enda heitt vatn og jarðhiti þar. Kjartan bæjarstjóri og Jin Zhijian, sendiherra Kína, á skrifstofu þess fyrrnefnda. 8 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.