Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 24.04.2019, Blaðsíða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M TÓMAS BREKI BJARNASON er þrettán ára nemandi við Grunnskóla Grindavíkur og hafði í þrjú ár safnað „bítlahári“. Tómas Breki ákvað svo að nú væri kominn tími á klippingu en vildi ekki henda síðum lokk- unum í ruslið. Tómas var kominn með veglegan makka en á þrettán ára afmælinu sínu, þann 15. apríl, fór Tómas Breki í klippingu. „Ég skoðaði á netinu hvort hægt væri að endurnýta það. Ég fann engan á Íslandi sem tekur við hári en ég fann vefsíðu í Bandaríkj- unum sem gefur hárkollur til barna sem eru veik.“ Tómas Breki fékk mjög jákvæð viðbrögð við framtakinu sínu. „Já mikil, fólk er hissa að sjá mig með stutt hár og mörgum finnst þetta falleg gjöf,“ sagði ungi Grindvíkingurinn sem er stuðningsmaður Manchester United, elskar sushi og finnst skemmtilegast að vera í fótbolta, körfubolta og pílu. Gleðilegt sumar (og þar sem athugasemdir bárust frá lesanda, gleðilega páska)! LOKAORÐ Örvar Þ. Kristjánsson Nú er farið að vora all hressilega og þegar þetta er ritað er sannkallað íslenskt sumarveður úti, 9 gráður og grenjandi rigning. Afar notalegt samt og þessi ilmur í lofti sem kætir alla. Sumarið í fyrra var reyndar afar blautt og dapurt en bjartsýnir menn eins og undirritaður spá sólríku og góðu sumri núna. Ef sú spá rætist ekki verða fáir fyrir vonbrigðum því fátt bregst okkur hér á landi jafn reglulega og veðurspár, nema þá kannski loforð stjórnmálaflokkanna fyrir kosningar. Þessi spá verður eiginlega að rætast enda bíður pallaolían ennþá inni í skúr síðan í fyrra og spurning hvort þetta renni nokkuð út? Það er með miklum ólíkindum hvað einn og einn sólardagur gerir fyrir sálina, núna um páskahelgina eða réttara sagt annan í páskum var sól í rúmlega fjóra tíma og það lifnaði heldur betur yfir öllum, meira að segja stuðningsmönnum United! Við fjölskyldan létum t.d. renna í pottinn á mettíma og það var hver einasti sólargeisli nýttur, meira að segja var grillað þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið neitt spes seinni partinn þegar grillið var tekið út. Sólin fyrr um daginn gerði það að verkum að grillið var vígt við hátíð- lega athöfn þetta vorið og 120 gramma hamborgurum (sem þó voru ekki nema 85 gr. þegar þeir voru teknir úr umbúðunum) var skellt á grillið. Ótrú- legt hvað svona börgerar minnka við það að vera teknir úr umbúðunum, magnaður andskoti, einn þeirra datt á milli raufanna á grillinu meira að segja. Það skyggði þó ekki á gleðina á heimilinu því þrátt fyrir tveggja munnbita hamborgarann þá fór brosið ekki af heimilisfólkinu þegar grillbragðið lék um munninn. Úrslitakeppnin í körfuboltanum er núna á lokametrunum. Karlaliðin úr Reykjanesbæ féllu úr leik allt, allt of snemma en Keflavíkurstelpur halda uppi heiðri bæjarins og eru komnar í lokaúrslit gegn Val. Staðan í einvíginu er 1:0 fyrir Valsstúlkum eftir fyrsta leik og það vakti athygli mína hversu illa var mætt á þennan fyrsta leik. Stuðningsmenn liðanna geta betur, mun betur. Keflavíkurstelpur þurfa stuðning til þess að koma þeim stóra í land og eiga hann skilið. Persónulega hef ég fulla trú á þeim, ætla að spá þeim sigur eftir oddaleik. Bjartsýnn að vanda enda þýðir ekkert annað. Gleðilegt vor! Vor Hátíðar- og baráttufundur í Stapa 1. maí 2019 Húsið opnar 13.45 Guðmundur Hermannsson syngur og spilar ljúf lög Dagskrá hefst kl. 14.00 Setning: Ólafur Sævar Magnússon FIT Ræða dagsins: Guðbjörg Kristmundsdóttir formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis Tónlist og söngur: Jóhanna Guðrún og Davíð Sigurgeirsson Leikfélag Keflavíkur: „Allir á trúnó“ Ungmennakórinn Vox Felix, stjórnandi er Arnór B. Vilbergsson Kaffiveitingar verða í lok fundar Börnum boðið í Sambíó Hafnargötu á 1. maí kl. 14.40 og 15.00 salur 1 og 2 Kynnir dagsins: Kristján Gunnar Gunnarsson VSFK 1. maí nefndin 1. maí merki verða afhent sölubörnum á skrifstofu félaganna í Krossmóa 4 mánudaginn 29. apríl „Bítlahár“ Tómasar þrettán ára fór í endurnýtingu

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.