Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2019, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 24.04.2019, Blaðsíða 15
Landsbankinn greiðir 6.000 kr. mótframlag þegar fermingarbörn leggja 30.000 kr. eða meira inn á Framtíðargrunn eða í verðbréfa- sjóð. Ef báðir kostir eru nýttir leggur Landsbankinn því til 12.000 kr. í mótframlag. Þannig viljum við hvetja til sparnaðar. Nánari upplýsingar um sparnað og verðbréfasjóði má nálgast á landsbankinn.is/sparnaður. Sparaðu og við hvetjum þig áfram landsbankinn.isLandsbankinn 410 4000 Dagana 25.–27. apríl næstkomandi stendur blakdeild Keflavíkur fyrir gríðarlega stóru verkefni í Reykja- nesbæ. Þessa daga verður 44. Öld- ungamót Blaksambands Íslands haldið í fyrsta skiptið hér í bæ en mótið er haldið í samstarfi við blak- deild Þróttar í Reykjavík sem hefur reynslu af skipulagningu slíkra móta. Mótið ber nafnið Rokköld 2019 sem er vel við hæfi þar vsem þvað er haldið í Rokkbænum sjálfum. Öldungamótið í blaki er eitt af stærstu íþróttamótum landsins ár hvert og eru þátttakendur um 1.400 sem koma alls staðar að af landinu. Um 165 karla- og kvennalið mæta og er mótið fyrir 30 ára og eldri. Vel skipulögð skemmtidagskrá er í boði fyrir þátttakendur alla keppnis- daga. Langflestir þátttakendur gista í bænum frá 24. til 28. apríl og munu á þeim tíma án efa nýta sér alla þjón- ustu og afþreyingarmöguleika sem Reykjanesbær hefur upp á að bjóða. Mikill vöxtur hefur verið í blak- íþróttinni hér á landi undanfarinn áratug en eflaust eru ekki margir sem vita að blak hefur verið spilað í Keflavík frá því skömmu eftir að Íþróttafélag Keflavíkur var stofnað árið 1969. Lengi vel voru leikmenn aðallega kennarar en fyrir sex árum tóku nokkrir áhugamenn um blakí- þróttina sig saman og stofnuðu blak- deild Keflavíkur. Á þeim árum hefur deildin þroskast og dafnað og hefur barna- og unglingastarfið vaxið sam- hliða því. Mikill metnaður hefur verið lagður í Öldungamót undanfarinna ára og allt kapp verður lagt á að fram- kvæmd mótsins fari vel fram þetta árið þannig að upplifun gesta okkar af Reykjansbæ verði sem jákvæðust. Biðjum við því íbúa Reykjanesbæjar taka vel á móti keppendum og einnig hvetjum við íbúa til að kíkja á gleðina sem blakinu fylgir. Leikirnir verða spilaðir í dúkalagðri Reykjaneshöll og Blue-höllinni alla keppnisdagana en úrslitaleikir verða spilaðir í Ljóna- gryfjunni 27. apríl. Guðrún Jóna Árnadóttir, formaður blakdeildar Keflavíkur Rokköld í Reykjanesbæ! Hin árlega árshátíð Sandgerðisskóla var haldin fimmtudaginn 11. apríl síðastliðin. Í þetta skipti setti skólinn upp leiksýninguna Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu „Kikku“ Maríu Sigurðardóttur. Allir nemendur í 1.–6. bekk ásamt skólahópi leikskólans tóku þátt í sýningunni sem var sú glæsilegasta. Um kvöldið var svo árshátíð nemenda í 7.–10. bekk. Þar var hver bekkur fyrir sig með fjölbreytt og skemmtileg atriði. Ávaxtakarfan í Sandgerði 15ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM miðvikudagur 24. apríl 2019 // 17. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.